Fréttablaðið - 17.06.2021, Síða 3

Fréttablaðið - 17.06.2021, Síða 3
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s F I M M T U D A G U R 1 7 . J Ú N Í 2 0 2 11 1 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R Hæ hó og jibbý ... OPIÐ Í DAG í öllum verslunum! 17. JÚNÍ Reykjavíkurborg er komin í hátíðarbúninginn í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga í dag. Eftir hógvær fagnaðarlæti síðasta árs má búast við að Íslendingar hópist saman og efni til fagnaðarláta í hinum ýmsu sveitarfélögum í dag. Veðurstofan býst við að það verði skýjað um land allt og gæti dropað á nokkrum stöðum og því er gott að hafa regnhlíf innan seilingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Tilboð eignarhaldsfélaga og fjársterkra einstaklinga í útboði Íslandsbanka voru skert niður í eina milljón króna. Utanþingsviðskipti með bréf bankans áttu sér stað eftir að útboðinu lauk og var gengið í viðskiptunum 15 prósentum hærra en útboðs- gengið. hordur@frettabladid.is thorsteinn@frettabladid.is VIÐSKIPTI Öll eignarhaldsfélög og fjársterkir einstaklingar, sem skráðu sig fyrir meira en 75 milljónum króna í hlutafjárútboði Íslands- banka, fengu einungis úthlutun upp á eina milljón króna. Fréttablaðið hefur staðfestar upplýsingar um að úthlutunin hafi verið skert með þessum hætti. Í nýafstöðnu hlutafjárútboði Íslandsbanka var níföld umfram- eftirspurn eftir bréfum bankans og því ljóst að skerða þurfti tilboð fjárfesta töluvert. Tilboð undir einni milljón króna voru hins vegar ekki skert. Í tilboðsbók A, sem ætluð er almennum fjárfestum, var tekið við áskriftum að fjárhæð 50 þúsund til 75 milljóna króna, en áskriftir sem námu meira en 75 milljónum fóru í tilboðsbók B. Stórir einkafjárfestar, sem höfðu lagt fram tilboð í tilboðs- bók B þurftu að sæta skerðingum niður í eina milljón, óháð því hversu hátt tilboðið var. Lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og tryggingafélög þurftu einnig að sæta töluverðum skerðingum, en fengu þó talsvert stærri skerf en einkafjárfestar og sömuleiðis gír- aðir fjárfestingasjóðir. Þá hefur Markaðurinn heimildir fyrir því að eftir að útboðinu lauk á hádegi í fyrradag hafi átt sér stað utanþingsviðskipti upp á hundruð milljóna króna, þar sem fjárfestar afsöluðu sér bréfum sem þeim var úthlutað í útboðinu. Gengi bréf- anna í þessum viðskiptum var yfir 90 krónur á hlut, sem er um 15 pró- sentum hærra en útboðsgengið sem nam 79 krónum. Áætlað er að fyrsti dagur viðskipta með bréf í bank- anum í Kauphöllinni verði 22. júní næstkomandi. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir í samtali við Fréttablaðið að ríkissjóður hafi fengið gott verð fyrir eignarhlutinn í Íslandsbanka en við verðlagning- una hafi einnig verið horft til þess að fá fjárfesta að borðinu. „Það er útilokað að við hefðum fengið sama verð fyrir ári síðan,“ segir Bjarni, spurður hvort verðið hafi verið ásættanlegt fyrir ríkissjóð. „Það er vandasamt verk að stilla verðbilið. Það var ákveðið eftir langt ferli og speglast í verði fjármála- fyrirtækja innanlands sem erlendis. En verðlagningin er líka hugsuð til þess að vekja áhuga og fá menn að borðinu, og mér finnst það hafa tekist vel.“ Fjöldi hluthafa eftir útboðið er um 24 þúsund talsins, sem er mesti fjöldi hluthafa allra skráðra fyrir- tækja á Íslandi. ■ –SJÁ SÍÐU 12 Skerða fjársterka niður í milljón birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Samkvæmt bráða- birgðatölum Embættis landlæknis fyrir árið 2020 frömdu fleiri konur sjálfsvíg á síðasta ári en á nokkru af þeim 25 árum sem tölfræði hefur verið haldið til haga um málefnið. Alls voru 47 sjálfsvíg á Íslandi á síðasta ári, þar af 15 konur og 32 karlar . Síðastliðinn áratug hafa að með- altali verið 39 sjálfsvíg framin hér á landi árlega, en þegar litið er til einstakra ára hefur fjöldinn verið á bilinu 27-49. Flest sjálfsvíg áttu sér stað árið 2013. Kristín Ólafsdóttir, framkvæmda- stjóri Píeta samtakanna, segir sím- tölum til samtakanna hafa fjölgað gríðarlega á síðasta ári, en samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfs- vígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. ■ -SJÁ SÍÐU 4 Sjálfsvíg kvenna fleiri en áður Verðlagningin er líka hugsuð til þess að vekja áhuga og fá menn að borðinu, og mér finnst það hafa tekist vel. Bjarni Benediktsson, fjármála- ráðherra.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.