Fréttablaðið - 17.06.2021, Side 14

Fréttablaðið - 17.06.2021, Side 14
Arnarfjörður er annar stærsti fjörður Vestfjarða á eftir Ísafjarðardjúpi, 38 km langur og víðast 5-10 km breiður. Þótt f ljúgandi örnum bregði oft fyrir í fjöllum girtum firðinum segir í Landnámu að hann sé nefndur eftir landnámsmanni sem hét Örn. Arnarfjörður var löngum þéttbyggður en í dag er aðeins búið á nokkrum bæjum auk Bíldudals. Undirlendi í firðinum er lítið og því urðu bændur að stunda sjóróðra samhliða bústörf- um. Fiskisæld var mikil en lending á árabátum víða erfið nema í víkum yst við sunnanverðan fjörðinn. Þar komu bændur sér því upp verbúðum og heita því Ver- dalir. Til þeirra teljast Sandvík sem er næst Selárdal, síðan kemur Miðdalur og vestast er Ystidalur. Verdalir bjóða ekki aðeins upp á hrikalegar fjalls- hlíðar með mannhæðarháum skriðum heldur einnig ljósar strendur og biksvarta kletta. Skammt frá strönd- inni eru síðan tóftir gömlu verbúðanna en haganlega gerðar grjóthleðslurnar falla sérlega vel að landslaginu. Í þessum Versölum Vestfjarða var Jón Sigurðsson for- seti vermaður en annars bjó hann á Hrafnseyri innar í Arnarfirði. Aðeins 13 ára gamall réð hann sig upp á hálfan hlut á feræringi og þótti standa sig vel. Fór hann því fram á fullan hlut, og fékk. Síðar átti Jón eftir að sýna sömu staðfestu í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19 öld og var fæðingardagur hans, 17. júní, gerður að þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til að komast í Verdali er ekinn 25 km langur Ketil- dalavegur frá Bíldudal út í Selárdal, Þar er tilvalið að hefja gönguna og er fylgt smalavegi sem liggur út í Ver- dali og þaðan áfram út á Kópanes. Ganga má út fyrir nesið uns komið er í Kópavík, sem var líka mikilvæg verstöð. Úr Kópavík liggur leiðin aftur í Ystadal og er gengið meðfram tignarlegum Miðmúla. Hringurinn í kringum Kóp tekur daginn frá Selárdal en aðeins tekur hálfan dag að ganga fram og til baka út í Verdali. Á leið- inni heim er tilvalið að koma við í safni Samúels Jóns- sonar í Selárdal eða sjá býlið þar sem Gísli á Uppsölum bjó einn án nútímaþæginda þar til hann lést 1986. n Versalir Vestfjarða Horft yfir Verdali í átt að Kópanesi. Tóftir gömlu verbúðanna í forgrunni. MYNDIR/TG Klettarnir í fjörum Verdala auðvelduðu lendingu ára- báta og voru forsenda þess að þarna voru verbúðir. Fjöllin upp af Verdölum eru mikilfengleg. Hér er horft í átt að Sand- víkurhyrnu með tóftir verbúðar í forgrunni. Ólafur Már Björnsson, augnlæknir og ljósmyndari Tómas Guðbjartsson, hjartaskurð­ læknir og náttúru­ unnandi FÓKUS Á HJARTA LANDSINS 17. júní 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.