Fréttablaðið - 17.06.2021, Qupperneq 21
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 17. júní 2021
Sigrún er mörgum að góðu kunn en hún stofnaði og átti íslenska hönnunarmerkið Gyðja Collection sem gerði það gott á sínum tíma. Hún segir skemmtilegt
hvernig lífið breyti um stefnu og þróist út í eitthvað dásamlegt eins og líkamsmeðferðarstofuna The House of Beauty sem hún á. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Fetar nýjar slóðir við
uppbyggingu á bættri heilsu
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir er konan á bak við líkamsmeðferðarstofuna The House of
Beauty, sem nýlega er búið að stækka til að anna eftirspurn. „Það skemmtilegasta sem við
gerum er að hjálpa fólki við að bæta heilsuna og auka sjálfstraustið,“ segir Sigrún Lilja. 2
Aldís Amah Hamilton í hlutverki
fjallkonunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
sandragudrun@frettabladid.is
Fjallkonan er þjóðartákngervingur
Íslands. Kventákngervingar þjóða
birtast oft sem umhyggjusamar
mæður sem vernda þjóð sína
og arfleifð hennar. Sambærileg
fyrirbrigði eru til dæmis Ger-
manía í Þýskalandi og Brittanía á
Bretlandi. Fyrst er vitað til þess að
orðið fjallkona hafi verið notað í
kvæði Bjarna Thorarensen, Íslands
minni, sem hefst á eftirfarandi
orðum: „Eldgamla Ísafold, ástkæra
fósturmold, Fjallkonan fríð!“
Sú hefð hefur skapast að kona
klædd skautbúningi flytji ávarp
við hátíðahöldin 17. júní. Árið 1924
kom kona fyrst fram í gervi fjall-
konunnar á Íslendingadeginum
í Winnipeg. Fyrsta fjallkonan á
Íslandi var Kristjana Milla Thor-
steinsson. Hún átti að flytja ávarp
á Þingvöllum árið 1944, en ekkert
varð af því. Skýringin sem gefin
var, var að veðrið væri orðið of
slæmt. Margar konur höfðu beðið
spenntar eftir fjallkonunni og
gagnrýndu þessa ákvörðun og
töldu að um óvirðingu væri að
ræða og fjarvera fjallkonunnar
væri táknræn fyrir ósýnileika
kvenna við stjórn landsins.
Kröfurnar breytast
Yfirleitt hafa ungar leikkonur
leikið hlutverk fjallkonunnar í
Reykjavík en árið 2019 varð Aldís
Amah Hamilton fyrsta fjallkonan
í Reykjavík af erlendum uppruna.
Undanfarin ár hefur krafan um
fjölbreyttari konur, eða karla í
hlutverki fjallkonunnar orðið
sterkari. n
Fjallkonan fríð
Heilbrigð melting er
grunnur að góðri heilsu
Heilsan er dýrmætust
www.eylif.is
Frítt dakrem fylgir hverju augnkremi
T A R A M A R
www.taramar.is, Íslandsapótek, Lyfjaver, Hagkaup
(Smáranum, Garðabæ, Kringlunni, Akureyri)