Fréttablaðið - 17.06.2021, Side 32

Fréttablaðið - 17.06.2021, Side 32
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@ frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigríðar Friðrikku Jónsdóttur Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Seltjarnar og Landspítalans í Fossvogi fyrir ómetanleg störf og umhyggju. Rebekka G. Gundhus Anders Gundhus Anna Ólafía Guðnadóttir Viðar Böðvarsson Arnfríður Lára Guðnadóttir Sveinbjörn Lárusson Kristín Guðnadóttir Einar Vignir Sigurðsson Jóna Björk Guðnadóttir Jón Marinó Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Fulvio Bosio lést á líknardeild Misericordia Rossello í Savona 16. júní. Jarðarförin fer fram í Basilica San Nicolò í Pietra Ligure 18. júní. Sólveig Ragna Sigurþórsdóttir Kristian Þór Jessica Piero Sigurður Katia Giselle Björg Ástkær faðir okkar, Bragi Níelsson læknir, lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi sunnudaginn 13. júní 2021. Útför hans verður auglýst síðar. Árni Bragason Röðull Bragason Baldur Bragason Margrét Bragadóttir og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Guðberg Ellert Haraldsson Árskógum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 9. júní. Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 22. júní klukkan 13. Regína Birkis, Páll Guðbergsson og aðrir aðstandendur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, Sigríður Sjöfn Guðbjartsdóttir frá Melshúsum í Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 11. júní síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju 23. júní kl. 13.00. Einnig verður sent út netstreymi frá youtu.be/BYXL0WzlOJs Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Magni Kristjánsson Kristján Magnason Lilja Jóna Halldórsdóttir Bryndís Magnadóttir Magnús Blöndal barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóhanna Margrét Þorgeirsdóttir Mosgerði 23, Reykjavík, lést mánudaginn 14. júní. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 23. júní, kl. 13. Gunnhildur Óskarsdóttir Gunnar Guðlaugsson Katrín Óskarsdóttir Pétur Árni Óskarsson Jakobína Sveinsdóttir Sumarliði Óskarsson Elín Ruth Reed Þorgeir Óskarsson Erla Þorsteinsdóttir Ingiríður Brandís Þórhallsdóttir Hafsteinn Óskarsson Sigurrós Erlingsdóttir Margrét Dröfn Óskarsdóttir Viktor Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Útitónleikar verða í Lystigarð- inum í Hveragerði um helgina. Líklega þeir fyrstu á landinu eftir að Covid-þokunni létti. Tveggja kvölda tónlistarhátíð sem ber yfirskriftina Allt í blóma. gun@frettabladid.is „Kuldinn stoppar okkur ekki, ég hef haft meiri áhyggjur af rigningu og skoðað veðurspár reglulega, bæði þá íslensku og norsku, en nú lítur allt vel út,,“ segir Sigur- geir Skafti Flosason tónlistarmaður, sem er prímus mótor í útitónleikum í Lysti- garðinum í Hveragerði bæði á föstudags- og laugardagskvöld, 18. og 19. júní. „Við erum með yfirbyggt svið og svo er mikið skjól í garðinum. Þar verður bara geggjað flott að vera að syngja og tralla og dilla sér. Fólk fær að hlusta á alls konar músík og miðar eru á tix.is,“ heldur hann áfram. „Við erum með landslið poppara, líka smá blús og svaka söngkonur. Sem sagt fjölbreytt einvalalið og engin ein tón- listarstefna ríkjandi heldur sitt lítið af hverju. Þetta er tónlistar-og menningar- veisla, það gerir þetta svo skemmtilegt.“ Sjálfur er Sigurgeir Skafti hljóm- sveitarstjóri í sveitinni Blómabændur og spilar þar á bassa. Auk hans eru í henni þeir Vignir Þór Pétursson á píanó, Pétur Valgarð Pétursson á gítar og Óskar Þor- marsson á trommum. Meðal annara listamanna sem koma fram eru Stefán Hilmarsson, Magnús Þór Sigmundsson, Unnur Birna, Hreimur Örn, Stefanía Svavarsdóttr, Lay Low og Dagný Halla. Lystigarðurinn er á bökkum Varmár, uppi undir hlíðinni og markast af göt- unum Breiðumörk, Skólabraut og Reykja- braut. Hann verður opnaður klukkan 18 báða dagana, dagskráin hefst klukkan 20 og stendur til klukkan 23 bæði kvöldin. Sigurgeir Skafti segir hana setta upp sem fjölskylduhátíð. Hann tekur fram að í garðinum verði hægt að kaupa sér sitthvað að borða og drekka. Auk þess sé röð af góðum veitingastöðum með fram Breiðumörkinni sem sé aðal aðkomu- leiðin á svæðið. „Það er breiðgata bragð- laukanna,“ segir hann og fullyrðir að allir leggist á eitt í blómabænum við að gera helgina sem ánægjulegasta.“ n Engin ein tónlistarstefna ríkjandi Sigurgeir Skafti við útisviðið sem Hveragerðisbær kom upp fyrir þjóðhátíðina og verður vettvangur tónleikanna. MYND/AÐSEND Við erum með yfirbyggt svið og svo er mikið skjól í garðinum. Þar verður bara geggjað flott að vera að syngja og tralla og dilla sér. gun@frettabladid.is Þjóðhátíðardegi Íslendinga verður eflaust fagnað í dag um allt land með fjöl- breyttum hætti, ef veður leyfir. Dagskrá Árbæjarsafns verður á þjóðlegum nótum eins og vænta má og venja er, að sögn Guðrúnar Helgu Stefánsdóttur, kynn- ingarstjóra. Hún nefnir sem dæmi að Vikivaki, hópur ungra dansara og hljóð- færaleikara sem hefur starfað saman frá árinu 2017, muni sýna gamla dansa og fjallkonunni verði skautað í Lækjargötu klukkan 14. „Skólahljómsveit Grafarvogs mun marsera um svæðið og margir flott- ir fornbílar verða víðs vegar um svæðið. Svo verður harmónikkuleikari að spila og þeir sem vilja taka sporið geta gert það á torginu, eða við það. Þetta er allt ein heild. Svo eru líka kindur í haga og vappandi landnámshænur sem gaman er að fylgjast með. Félagar Heimilis- iðnaðarfélagsins sýna fallegt handverk í völdum safnhúsum, Karólínusýningin í Kornhúsinu hefur vakið athygli, enda vönduð sýning og merkilegur arfur. Það er eitthvað fyrir alla og kosturinn við Árbæjarsafn er sá að safnsvæðið er stórt og fólk dreifist vel um.“ En hvað ef það rignir? „Við erum búin að biðja um gott veður og ganga eins tryggilega frá því og okkur er unnt, en höfum stóran sal. Það þarf samt að rigna eldi og brennisteini til að við f lýjum þangað inn,“ segir Guðrún Helga og tekur fram að aðgangur að hátíðinni sé ókeypis fyrir börn, öryrkja og þá sem mæta í þjóð- búningi síns lands. n Þeir sem mæta í þjóðbúningi njóta fríðinda Guðrún Helga virðist vera tilbúin að stíga dansinn í Árbæjarsafni í dag. MYND/ROMAN GERASYMENKO 1974 Kapella til minningar um Jón Steingrímsson eld- klerk er vígð á Kirkjubæjarklaustri. 1975 Sumar á Sýrlandi, fyrsta plata Stuðmanna, kemur út. 1977 Höggmyndin Alda aldanna eftir Einar Jónsson myndhöggvara frá Galtafelli í Hrunamannahreppi er afhjúpuð á Flúðum. 1980 Ísbjarnarblús, fyrsta plata Bubba Morthens, kemur út. 1985 Höggmynd til minningar um Guðríði Símonardótt- ur, Tyrkja-Guddu, er afhjúpuð í Vestmannaeyjum. 2000 Jarðskjálfti, 6,5 stig á Richter, skekur Suðurland. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 17. júní 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.