Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.12.1981, Blaðsíða 16
16 Yiðtalið
Sigurlína Hannesdótlir er matráðskona í vínbirgðadeild Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins sem er til húsa að Stuðlahálsi 2 í Ár-
bœjarhverfi. Hún hefur verið trúnaðarmaður síns vinnustaðar og
tekið virkan þátt í trúnaðarmannsráði SFR. Sigurlína hefur unnið í
rúm tvö ár hjá Á TVR.
— Já, það tel ég vera. Framleiðslan getur
farið upp í 5000 flöskur á einum klukku-
tíma, en út úr stofnuninni fara þetta viku-
lega um 80—90 tonn bara á Reykjavíkur-
svæðið.
— Er mikið vinnuálag?
— Það er mikið, og fer vaxandi og með
aukinni sölu eykst álagið á okkur. Og nú er
það svo að sala áfengis hefur stóraukist á
— í hverju er starf þitt fólgið?
— Ég sé um morgunkaffið og hádegis-
kaffið og hef síðan heitan mat í hádegi 5
daga vikunnar. Þá sé ég náttúrulega um að
þvo allt upp og halda eldhúsinu og eldhús-
áhöldum hreinum. Einnig sé ég um öll
matarinnkaup auk þess sem ég sé um að
innheimta matarpeninga.
— Hvað kostar ein máltíð hjá ykkur?
— Við höfum jafnaðarverð 15 kr. mál-
tíðin, hvort sem um er að ræða fisk- eða
kjötmáltíð. Hins vegar er allt kaffi frítt.
— Hvaða starfsemi fer hér fram að öðru
leyti þ.e. innan stofnunarinnar?
— Hér kemur allt það áfengi sem flutt er
inn til landsins og héðan er því dreift vítt og
breitt um landið. Þá framleiðum við um 20
víntegundir.
— Er mikið framleitt.
frá fræðsltmefnd
Með aukinni sölu eykst vinnuálagið.
„Míkil óánægja
er með launin”
Ræðumennskunámskeið
Auk fáðstefnanna tveggja um lífeyrismál
og um starfsmat, sem sagt er frá annars
staðar í blaðinu hafa verið haldin tvö
námskeið um fundasköp og ræðu-
mennsku á þessu hausti, 29. sept. — 9.
okt. fyrir félög innan BSRB og 10.—20.
nóv. fyrir St.Rv. Leiðbeinendur á þess-
um námskeiðum voru auk starfsmanna
BSRB þeir Baldur Kristjánsson, Þórir
Maronsson og Baldvin Halldórsson.
Trúnaðarmenn Suðurnesjum
Þá stóð yfir námskeið fyrir trúnaðarmenn
Starfsmannafélags Suðurnesjabyggða
þegar bruninn varð við Grettisgötu —
Rauðarárstíg og varð að fresta seinni
hlutanum til fimmtudags 3. des.
Fór námskeiðið fram að Grettisgötu 89
tvo daga frá kl. 13.00—18.00 ogvoru alls
19 þátttakendur.
Leiðbeinendur voru þrír starfsmenn
BSRB og Gunnar Gunnarsson, fram-
kv.stj. SFR og Einar ísfeld deildarstjóri í
Tryggingastofnun.
Myndlist kynnt á Akureyri
Björn Th. Björnsson hélt erindi í Iðn-
skólanum á Akureyri fyrir félaga í BSRB
fimmtudagskvöldið 3. des. Nefndi Björn
erindi Að skoða myndir og sýndi
skyggnur með.
Kynningafundir kröfugerðar
Mikið starf var unnið við að skipuleggja
um 30 fundi víða um land vegna kröfu-
gerðar BSRB og skoðanakönnunar um
hana.
Varð aðeins að aflýsa einum fundi, þ.e. á
Ólafsfirði, þrátt fyrir mikla ófærð á
þessum tíma.
Þá hefur fræðslufulltrúi BSRB og aðrir
starfsmenn kynnt fræðslustarfið og
starfsemi BSRB á námskeiðum ýmissa
aðildarfélaga.
Útvarpsþættir
I vetur verða vikulega útvarpsþættir sem
nefnast Félagsmál og vinna.
Fjalla þeir um launafólk, réttindi þess og
skyldur og eru m.a. ætlaðir til að leita
svara við spurningum launafólks. Er fé-
haustid 1981
lögum BSRB bent á að þeir geta komið
spurningum sínum til umsjónarmanna
sem eru fræðslufulltrúi BSRB og nám-
stjóri MFA.
Handbók BSRB
Fyrstu þættir í Handbók BSRB eru
komnir út: Lög um kjarasamninga
BSRB B-1.02 og Lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins D-1.10
Fræðslustarfid