Morgunblaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 1
Í KVÖLD KL. 19:00Á MBL.IS/BINGO TAKTU
ÞÁTT
VERTU MEÐ ÍBINGÓGLEÐINNI
F I M M T U D A G U R 1. A P R Í L 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 77. tölublað . 109. árgangur .
ALLIR ERU JAFN
BERSKJALDAÐIR
Á JAKOBSVEGI INNLENT FERÐASUMAR
LANDSMENN Á FERÐ OG FLUGI 14HANNA ÓLADÓTTIR 28
Bíó, leikhús, öldurhús, líkamsrækt, veisluhöld, íþróttir, sund-
laugar, fjölmenn fjölskylduboð — allt bannað um páskana. Þá
er lán í óláni að eldgos hófst fyrir 13 dögum með tilheyrandi
sjónarspili og í þægilegu akstursfæri við höfuðborgina.
Almannavarnir hafa áhyggjur af mannmergð á svæðinu um
páskana enda nokkuð um samfélagssmit af Covid-19.
Náttúran eftirsótt þegar fátt annað býðst til dægradvalar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
_ Nýjar reglur um farsóttarhús
taka gildi í dag og er von á þremur
flugvélum frá hááhættusvæðum yf-
ir daginn. Gylfi Þór Þorsteinsson,
forstöðumaður sóttvarnahúsa
Rauða kross Íslands, segir ómögu-
legt að segja hversu margir verði
sendir í sóttkví eða hve lengi. Foss-
hótel Reykjavík, stærsta hótel
landsins, muni duga til að taka á
móti fólki, en reiknað er með að 300
herbergi þar nýtist.
Kostnaður ríkisins af farsótt-
arhúsunum er óviss en áætla má að
húsnæði og rekstur í mánuð geti
kostað á bilinu 150 til 200 milljónir
kr. Þá á eftir að reikna mat og á
móti gjald sem innheimt verður frá
11. apríl. »4
Kostnaður geti
hlaupið á milljónum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Farsóttarhús Fosshótel Reykjavík verður
farsóttarhús frá og með deginum í dag.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Birgir Þór Bieltvedt, sem í samfloti
við hóp fjárfesta hefur eignast Dom-
ino’s á Íslandi þriðja sinni, segir mik-
il vaxtartækifæri
fyrir fyrirtækið.
Það eigi ekki að-
eins við um mark-
aðinn hér heima
heldur einnig á
Norðurlöndum.
Hann er í eig-
endahópi starf-
seminnar í Nor-
egi og Svíþjóð
auk þess sem
hann er sérleyfishafi að rekstrinum í
Finnlandi.
Í viðtali í Dagmálum, sem að-
gengileg eru áskrifendum Morgun-
blaðsins á mbl.is, segir Birgir að
hann sjái tækifæri í því að sameina
reksturinn í Skandinavíu og skrá
fyrirtækið á markað.
„Ég held að skráning geti veitt
tækifæri á að vaxa hraðar, það er
ljóst,“ segir Birgir og gefur því undir
fótinn að slíkt félag gæti vaxið út fyr-
ir þann ramma sem rekstrinum er
settur nú.
„[...] það er enginn sem segir að
Skandinavía sé bara Skandinavía.
Domino’s í Ástralíu er komið til Dan-
merkur og það er komið til Japan.“
Gæti orðið hluti af stærri heild
Birgir nefnir að það sé ekki sjálf-
gefið að íslenska fyrirtækið verði
hluti af stærra og sameinuðu félagi á
Norðurlöndum en að það komi þó vel
til greina.
„Það getur vel hugsast en það er
eitthvað em hluthafar þurfa að ræða
saman um og liggur ekkert á að taka
ákvörðun um, en af hverju ekki?“
Hann segir að mörg dæmi séu um
að sérleyfishafar Domino’s séu
skráðir á markað og að það hafi gef-
ist vel. Þá bendir hann á að þótt
Domino’s hafi mjög sterka stöðu á ís-
lenska markaðnum þá sé fyrirtækið í
harðri samkeppni við mjög stórar
pizzakeðjur á hinum mörkuðunum.
Þá segir hann að samkeppnin sé afar
hörð hér á landi. Kaupin á Domino’s
bíða nú samþykkis eða synjunar
Samkeppniseftirlitsins en Birgir
segir að ef kaupin verði heimiluð séu
spennandi tímar fram undan. Það sé
vont fyrir fyrirtæki og starfsmenn
þeirra að hafa söluferli lengi hang-
andi yfir sér. Nú sé stefnan á að
sækja fram á nýjan leik, rétt eins og
gert hafi verið árið 2011, eftir að
hann keypti fyrirtækið öðru sinni.
Skoðar skráningu
Domino’s á markað
- Birgir Þ. Bieltvedt sér vaxtartækifæri á Norðurlöndum
Birgir Þór
Bieltvedt
MTækifæri í að fjölga »10
Ísland fékk sín fyrstu stig í und-
ankeppni heimsmeistaramóts karla í
fótbolta í gærkvöld með því að sigra
Liechtenstein örugglega í Vaduz,
4:1. Birkir Már Sævarsson, Birkir
Bjarnason, Guðlaugur Victor Páls-
son og Rúnar Már Sigurjónsson
skoruðu mörkin.
Ísland er með þrjú stig eftir þrjár
umferðir en þær sjö umferðir sem
eftir eru fara fram í haust og Ísland
leikur næstu fimm leiki sína á
heimavelli. Gríðarlega óvænt úrslit
urðu í riðlinum í gærkvöld. Þjóð-
verjar töpuðu og Armenar eru einir
á toppnum. »27
AFP
Mark Birkir Bjarnason skoraði.
Fyrstu
stig í höfn