Morgunblaðið - 01.04.2021, Page 4

Morgunblaðið - 01.04.2021, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir áhættusvæðum í dag. Gylfi segir ómögulegt að segja hversu margir verði sendir í sóttkví eða hve lengi þetta stærsta hótel landsins dugi. Að sögn Maríu Heimisdóttur, for- stjóra Sjúkratrygginga, er reiknað með að 300 herbergi nýtist í Foss- hóteli í Þórunnartúni. Þeir sem ferð- ist einir fái sér herbergi en reiknað sé með að fjölskyldur gisti saman. Hægt er að setja viðbótarrúm inn í herbergin fyrir börn. Sjúkratryggingar hafa samið við 701 Hótel á Hallormsstað en þar eru 92 herbergi. Það er frekar hugsað fyrir farþega Norrænu. Hún kemur næst á þriðjudag og því meiri tími til stefnu þar. Samningar við nokkur önnur hótel til viðbótar með alls um 300 herbergi eru í vinnslu. eli í gang. Það þarf að tryggja allar sóttvarnir, innskráningu gesta og öll herbergin þurfa að vera tilbúin en hótelið hefur verið mikið lokað í heilt ár. Svo þarf að þjálfa starfsfólkið,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, for- stöðumaður sóttvarnahúsa Rauða kross Íslands, en hann tók til hend- inni í gær í Fosshóteli við Þórunn- artún með öðru starfsfólki. Félaga- samtökin annast rekstur sótt- kvíarhótelanna fyrir Sjúkratryggingar Íslands. Búið er að ráða fimmtíu starfsmenn auk starfsmanna frá hótelinu og starfs- manna fyrirtækis við öryggisgæslu. Fjöldinn óviss Nýju reglurnar taka gildi í dag og er von á þremur flugvélum frá há- Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sjúkratryggingar Íslands hafa sam- ið við tvö hótel í Reykjavík og á Hall- ormsstað með alls tæplega 400 rými til að nota sem sóttkví fyrir fólk sem kemur frá hááhættusvæðum vegna kórónuveirunnar. Hægt er að koma fyrir allt að 600-800 manns eftir því hvernig fjölskyldur raðast í her- bergi. Er verið að semja um 300 her- bergi til viðbótar. Kostnaður ríkisins er óviss en áætla má að húsnæði og rekstur í mánuð gæti kostað 150 til 200 milljónir kr. Þá á eftir að reikna mat og á móti gjald sem innheimt verður frá 11. apríl. „Þetta gengur samkvæmt áætlun. Hér er unnið á fullu við að koma hót- Morgunblaðið/Árni Sæberg Sóttkvíarhótel Gylfi Þór Þorsteinsson undirbýr Fosshótel í Þórunnartúni fyrir móttöku fólks sem von er á í dag. Kostnaður skiptir hundruðum milljóna - Sjúkratryggingar hafa tryggt 400 herbergi fyrir sóttkví Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjöldinn sem starfsfólk Covid- deildar Landspítalans og barnaspít- ala Hringsins hefur eftirlit með eykst dag frá degi, í takti við fjölg- un greindra. Runólfur Pálsson, yfirlæknir Covid-deildarinnar, ótt- ast bylgju veikinda vegna breska afbrigðisins. Brugðist er við þessu með meiri mönnun deildarinnar um páskana en venja er. Í gær voru 113 Covid-smitaðir í eftirliti hjá starfsfólki Covid- deildarinnar og barnaspítalans og einn sjúklingur var á almennri legudeild. Í þessum hópi eru 79 full- orðnir og 34 börn, allir með lítil ein- kenni nema einn sem var með meðalslæm einkenni. Sjúklingarnir eru heima hjá sér og eftirlitið fer fram símleiðis nema hvað einn til tveir eru kallaðir inn til skoðunar á hverjum degi. „Stað- an er því ágæt að þessu leyti. Af því að margir eru með breska afbrigði veirunnar getum við átt von á breytingum, að hærra hlutfall greindra veikist meira. Þess vegna erum við með viðbragð um páskana og höfum tryggt betri mönnun,“ segir Runólfur. Unnið verður að þessum málum um páskana, eftirliti sinnt og fólk kallað inn til skoðunar alla daga. Þá segir Runólfur að spítalinn sé í viðbragðsstöðu, ef álagið skyldi aukast. Spurður hvort breska afbrigðið leiði til minni veikinda hér en reynslan sýnir í nágrannalönd- unum segir Runólfur of snemmt að segja til um það. Alvarleg veikindi geti komið upp viku eftir að fólk fær veiruna og bendir hann á að margir hafi greinst að undanförnu. Tryggja mönnun yfir páskana - Óttast meiri veikindi á næstunni Eftir seinni bólu- setningu hjá 340 starfsmönnun Landspítalans 65 ára og eldri sem fram fór fyrir hádegið í gær eru 2.900 starfs- menn spítalans fullbólusettir eða nærri helmingur allra starfs- manna spítalans. Þetta upplýsir Hildur Helgadóttir, verkefnastjóri hjá farsóttarnefnd Landspítalans. Í gær var einnig lokið við fyrri bólusetningu hjá 2.100 starfs- mönnum. Seinni bólusetning þeirra er fyrirhuguð dagana 16. til 20. apríl. Eftir það verða nær allir starfsmenn fullbólusettir en alls starfa 6.100 manns á spítalanum. Stefna Landspítalans er að bólu- setja alla starfsmennina, hvort sem þeir vinna við umönnun Covid- smitaðra og í framlínu á öðrum víg- stöðvum eða annars staðar. Samkvæmt uppýsingum Hildar eru nú eftir um 200 starfsmenn víðsvegar á spítalanum og um 90 verktakar. Auk þess hefur spítalinn hug á að bólusetja sumarafleys- ingafólk en á hverju sumri koma um 800 starfsmenn til afleysinga. „Staðan er góð og gleði ríkir með framgang og skipulagningu bólu- setningarinnar,“ skrifar Hildur blaðamanni. helgi@mbl.is Bólusetning allra starfsmanna Land- spítala langt komin Covid Vel gengur að bólusetja. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Ragnhildur Þrastardóttir Vísbendingar eru um að hópur þeirra sem greinist með kórónuveir- una utan sóttkvíar fari stækkandi, en í fyrradag greindust átta með kór- ónuveiruna innanlands. Fimm þeirra voru utan sóttkvíar. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna í gær. Rakning og raðgreining vegna smitanna stendur yfir en engar upplýsingar eru um tengsl þessara einstaklinga. Smitin komu öll upp á suðvesturhorninu og á Suðurlandi. Frá því að hertar aðgerðir tóku gildi hafa 38 greinst innanlands, þar af 10 utan sóttkvíar og eru þau öll af völdum undirtegunda svonefnds bresks afbrigðis kórónuveirunnar og flestir þeir sem greinst hafa í sóttkví tengjast smitum sem upp hafa komið í grunnskólum á höfuðborgarsvæð- inu. Tengsl þessara smita við landamærasmit eru óljós, segir Þór- ólfur. Óvarlega farið Hvað varðar smit utan sóttkvíar er talið að þau tengist ferðamönnum sem greinst hafi í seinni skimun og farið óvarlega meðan á sóttkví stóð. Vonast Þórólfur til þess að hægt verði að ná utan um ástandið á næstu tveimur vikum, en núverandi að- gerðir gilda til 15. apríl. Búast megi við því að fleiri smit komi upp meðal þeirra hundruða sem nú eru í sóttkví. Þá segir hann stöðuna á Landspít- alanum í tengslum við kórónuveir- una góða. Þar liggur einn inni með kórónuveirusmit en ekki á gjör- gæslu. Hins vegar liggi fyrir að al- varleg veikindi komi yfirleitt ekki upp fyrr en 1-2 vikum eftir að sýking greinist og því megi búast við fleiri innlögnum næstu vikur. Veikleikar lagaðir Á þeim sjö dögum síðan hertar að- gerðir tóku gildi hafa sex greinst með virkt smit á landamærum, þar af fimm í seinni skimun. Þórólfur er ánægður með nýja reglugerð heil- brigðisráðherra sem kveður á um sýnatöku meðal barna og fólks með vottorð, auk þess sem fólki frá áhættusvæðum verður gert að dvelja í sóttkví á sóttvarnahóteli þannig að betur sé hægt að hafa með þeim eft- irlit. Þetta hafi verið veikleikar í landamærakerfinu sem nú sé búið að bregðast við með viðeigandi hætti. Ekki sömu skilaboð og í fyrra Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryf- irlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, sagði á upplýs- ingafundi almannavarna í gær að blæbrigðamunur væri á þeim tilmæl- um sem beint er til almennings fyrir páskana í ár og því sem var fyrir síð- ustu páska, þegar fólk var hvatt til að „ferðast innanhúss“. Sagði Rögnvaldur að í stað þess að vara við ferðalögum ætti fólk að hafa í huga það sem ráðlagt var fyrir jólin og að búa sér til páskakúlu, þ.e. að takmarka þann hóp sem fólk eigi í samskiptum við. Margir hafa undrast það misræmi í sóttvörnum að skíðasvæði séu lok- uð, á meðan þúsundir manna flykkj- ast að gosstöðvunum. Í samtali við RÚV í gær sagðist Rögnvaldur skilja gremju skíðafólks, en þríeykið hefur mælst gegn því að fólk fjöl- menni að gosinu á meðan hætta sé á nýrri bylgju faraldursins. Smit utan sóttkvíar æ fleiri - Öll átta kórónuveirusmit í fyrradag á Suður- og Suðvesturlandi - Sóttvarna- læknir segir landamærin loks orðin vatnsþétt, fólk í sóttkví fari frekar óvarlega 8 ný innanlandssmitgreindust sl. sólarhring 405 einstaklingareru í sóttkví 1.603 einstaklingareru í skimunarsóttkví 118 eru meðvirkt smit og í einangrun Fjöldi smita Heimild: covid.is Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum júlí ágúst september október nóvember desember janúar febrúar mars Fullbólusettir: 20.734 einstak-lingar ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.