Morgunblaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021
VERIÐ
VELKOMIN Í
SJÓNMÆLINGU
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
Staðnám á að hefjast að nýju á öllum
skólastigum eftir páskafrí með
ákveðnum takmörkunum, í samræmi
við tillögur sóttvarnalæknis. Þetta
kemur fram í sameiginlegri tilkynn-
ingu ráðuneyta heilbrigðis- og
mennta- og menningarmála í gær.
Kveðið er á um takmörkun á
skólastarfinu í nýrri reglugerð sem
gildir frá 1. til 15. apríl þar sem tekið
er mið af appelsínugulum lit í lita-
kóða viðvörunarkerfis fyrir skóla-
starf sem kynnt var að loknu um-
fangsmiklu samráði við
skólasamfélagið fyrr í vetur.
Í grunnskólum verður heimilaður
heildarfjöldi starfsmanna 20 manns í
hverju rými og mega þeir fara á milli
rýma. Hámarksfjöldi nemenda í
rými er 50 manns og blöndun milli
hópa innan sama skóla er heimil.
Þá verða grunnskólanemendur
undanþegnir nálægðartakmörkun
og grímuskyldu en starfsfólk þarf að
virða tveggja metra fjarlægðarreglu
sín á milli og gagnvart nemendum en
nota ella grímu.
30 manna hámarksfjöldi í
hverju rými framhaldsskóla
Í leikskólum verða engin fjölda-
eða nálægðarmörk fyrir börn á leik-
skólaaldri. Hámarksfjöldi fullorð-
inna er 20 manns í rými leikskól-
anna, en starfsmenn mega fara milli
rýma. Starfsfólk skal virða tveggja
metra fjarlægðarreglu sín á milli en
nota grímu ella.
Hámarksfjöldi nemenda í tónlist-
arskólum í rými er 50 börn á grunn-
skólaaldri. Einstaklingar fæddir
2004 eða fyrr mega vera að hámarki
20 saman í rými og er blöndun heim-
il.
Í framhaldsskólum er leyfður há-
marksfjöldi nemenda og starfs-
manna í rými 30 manns. Halda skal
tveggja metra nálægðartakmörkun
milli nemenda og starfsfólks en nota
grímu ella. Er blöndun nemenda
milli hópa heimil og starfsfólk má
fara milli rýma.
Í háskólum má hámarksfjöldi í
kennslustofu og lesrýmum vera 50
manns. Halda skal tveggja metra ná-
lægðartakmörkunum milli allra en
nota að öðrum kosti grímu og blönd-
un nemenda er ekki heimiluð sam-
kæmt reglugerðinni.
Íþróttir barna á leik- og grunn-
skólaaldri utan skóla verða áram
óheimilar. omfr@mbl.is
Staðnám leyft í
skólum eftir páska
- Skólastarf heimilt með takmörkunum
Morgunblaðið/Eggert
Skólabörn Í grunnskólunum verður
hámarksfjöldi nemenda 50.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verð á mjólk hækkar í dag, sam-
kvæmt ákvörðun verðlagsnefndar
búvara. Bændur fá 3,77% hækkun á
mjólkurlítrann og heildsöluverð frá
MS hækkar um 3,47% nema hvað
verð á smjöri hækkar um 8,47% og
heildsöluverð á mjólkurdufti verður
óbreytt. Verðhækkunin er til komin
vegna hækkunar á aðföngum og sér-
staklega launum.
Mjólkurlítrinn kostar 162 krón-
ur í heildsölu með 11% virð-
isaukaskatti en hefur kostað 156,50
kr. Útsöluverð út úr búð er frjálst
og getur verið mismunandi. Kíló af
smöri kostar 1.153,30 kr. í heildsölu
en hefur kostað 1.063,40 kr.
Verðlagsnefndin færir þau rök
fyrir 5% umframhækkun á smjöri
að heildsöluverð þess hafi verið und-
ir framleiðslukostnaði um árabil og
spurn eftir fituríkum mjólkuraf-
urðum sé meiri en eftir próteinrík-
um vörum. Sérstök hækkun á
smjöri og óbreytt verð á dufti sé til
þess gerð að ná betra jafnvægi fitu
og próteins á markaði.
Mikið ójafnvægi er í sölu á
mjólkurvörum. Sala á próteinríkari
vörum hefur ekki fylgt aukningu á
fituríkari vörum. Það skapar erfið-
leika fyrir vinnsluna enda þarf að
flytja út duft fyrir lágt verð. Elín
Margrét Stefánsdóttir, formaður
stjórnar Mjólkursamsölunnar, telur
eðlilegt að þær vörur hækki sem
meiri spurn er eftir. Hún tekur þó
fram að heildsöluverð á smjöri
standi ekki undir framleiðslukostn-
aði, þrátt fyrir þessa hækkun. Á
móti verðhækkun á smjöri koma
minni verðhækkanir á öðrum
vörum.
Lítri af mjólk til bænda hækkar
úr 94,84 kr. í 101,53 krónur. Herdís
Magna Gunnarsdóttir, formaður
Landssambands kúabænda, segir að
bændur finni fyrir hækkunum á að-
föngum sem orðið hafa frá því mjólk
var síðast verðlögð, 1. júní á síðasta
ári. Þá hafi orðið miklar hækkanir á
launum í samfélaginu og eðlilegt að
bændur fái þær einnig.
Mjólkuriðnaðurinn er í vörn
með ákveðnar vörur vegna aukinna
heimilda til tollalauss innflutnings á
ostum og fleiri afurðum. Innflutn-
ingur ætti ekki að hafa mikil áhrif á
smjörsölu þar sem lítið er flutt inn
af því. Elín telur að hækkun mjólk-
urverðs hafi ekki afgerandi áhrif á
samkeppnisstöðu íslenskra mjólk-
urvara. Hækkunin sé ekki mikil og
líklega minni en áhrif gengisbreyt-
inga á innflutningsverð.
Smjör hækkar í verði í dag um 8,47%
- Verðlagsnefnd hækkar mjólkurvörur almennt um 3,47% vegna hækkunar á aðföngum og launum
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Pökkun Osturinn hækkar í verði
eins og mjólkin, um tæplega 3,5%.
Framkvæmdir við nýjar höfuðstöðvar Landsbankans
við Austurhöfn ganga vel, samkvæmt upplýsingum
bankans. Áætlað er að starfsmenn ÞG verks ljúki upp-
steypu hússins í júní næstkomandi. Í húshlutanum sem
er næstur Geirsgötu er verið að steypa veggi á fimmtu
og efstu hæð og er byrjað að slá undir þakplötu. Nær
hótelinu er verið að steypa upp veggi á fjórðu og efstu
hæð. ÍAV sem annast fullnaðarfrágang innanhúss og
utan eru að vinna á mörgum stöðum í húsinu og gengur
verkið vel. Áætlað er að bankinn flytji í nýtt húsnæði á
seinni hluta næsta árs. Bankinn mun nýta um 60% húss-
ins en selja eða leigja frá sér afganginn. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Langt komnir með steypuvinnu
Nýtt hús Landsbankans við Austurhöfn tilbúið seinni hluta næsta árs
Allt að 500 farþegar Vita dveljast nú
á Kanaríeyjum um páskana, það er á
Tenerife og Gran Canaria. Áfanga-
staðir þessir hafa jafnan notið mik-
illa vinsælda ferðalanga og verið fjöl-
sóttir, enda þótt kórónuveiran ráði
því að færru eru á svæðinu yfir há-
tíðina en oftast áður.
„Spánn er núna kominn af lista
sem hááhættusvæði vegna kórónu-
veirunnar og hafa farþegar því ekki
áhyggjur af því að þurfa að fara í
sóttvarnahús við heimkomu. Far-
þegarnir okkar fóru flestir utan nú í
byrjun vikunnar og algengt er að
fólk sé á svæðinu í 10-12 daga, eða
eitthvað fram í vikuna eftir páska,“
sagði Þráinn Vigfússon, fram-
kvæmdastjóri Vita, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Fínt veður var á Kanaríeyjum síð-
degis í gær, 22 stiga hiti og hálfskýj-
að, að sögn Íslendinga á svæðinu.
Fjöldi fólks hefur sömuleiðis á síð-
ustu dögunum farið með leiguflugi
Vita til Alicante á Spáni, en margir
Íslendingar eiga hús þar og una sér
vel. Ferðir á þessar slóðir frá Íslandi
hafa að mestu legið niðri undanfarið
en nú er að lifna yfir. sbs@mbl.is
Margir eru flognir í sólina
- Íslendingar á Kanaríeyjum um páska - Sól og 22 stiga hiti