Morgunblaðið - 01.04.2021, Side 11

Morgunblaðið - 01.04.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021 Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is Lokað 1-5 apríl í versluninni, alltaf opið í vefversluninni PÁSKAGLAÐNINGUR Við tökum þátt í 1111.is 20% afslátt af öllu í vefverslun okkar 2-5 apríl Um þrír af hverjum fjórum Íslend- inga (77%) telja hlutina vera að þróast í rétta átt en tæpur fjórðung- ur (23%) telur þá á rangri braut. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR, en spurt var hvort landsmenn teldu mál á Íslandi vera að þróast í rétta átt. Könnunin var gerð 12. til 18. febrúar sl. og alls svöruðu 919 manns spurningum. Alls 80% kvenna sögðust telja hlutina vera á réttri leið en 85% karla. Svarendur í elsta aldurshópi reyndust jákvæðastir, en 84% 68 ára og eldri sögðu hlutina stefna í rétta átt, samanborið við 79% svarenda 18-29 ára, 76% 50-67 ára og 75% 30- 49 ára. Þá er fólk sem býr á höfuð- borgarsvæðinu almennt líklegra en það sem býr úti á landi til þess að telja þróunina jákvæða. 80% fólks í borginni telja svo vera, en 72% land- byggðarfólks. Stuðningsfólk ríkisstjórnarflokk- anna þriggja lítur almennt svo á að þróun mála nú sé jákvæð. Sú er að minnsta kosti skoðun 88% sjálfstæð- ismanna, 85% framsóknarmanna og 85% stuðningsfólks VG. Um 73% þeirra sem styðja Viðreisn, Samfylk- ingu, Pírata og Miðflokks eru þess- arar skoðunar. Morgunblaðið/Eggert Sprettur Þjóðin er bjartsýn, enda væntanlega ekki langt í mark í þeim langa og stranga leiðangri sem baráttan við kórónuveiruna hefur verið. Flestir telja þróun mála jákvæða - Ísland fer í rétta átt skv. könnun MMR Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hraðvaxta gullinrafi bætist á næst- unni í eldisker Stolt Sea Farm á Reykjanesi. Áformað er að flytja inn nú í vor hátt í tíu þúsund seiði úr eldisstöð á Spáni og annað eins næsta haust. Miðað er við 30 tonna framleiðslu á ári í þessu til- raunaverkefni, en ef vel gengur er líklegt að hressi- lega verði bætt við á næstu árum. Fyrir er Stolt Sea Farm með eldi á senegal- flúru á Reykja- nesi og hefur framleiðslan gjarnan numið um 400 tonnum á ári. Þá eru 200 styrjur þar í tilraunaeldi. Víða áhugi á gullinrafa Sigurður Helgi Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Stolt Sea Farm á Ís- landi, segir að víða sé áhugi á þess- ari fisktegund, sem fullvaxin er oft um metri að lengd. Hann sé hrað- vaxta og eldið eigi að vera arðbært þar sem fiskurinn sé notaður í há- gæðavöru eins og sushi og flök eða steikur, sem stundum komi í staðinn fyrir túnfisk. Fiskurinn sé hátt verð- lagður á mörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum, þeim sömu sem fyrirtækið selur senegal-flúruna á. Sigurður segir að spennandi verði að þróa eldi á þessari tegund hér á landi. Áhugi sé á þessu tilraunaeldi og mikil spurn eftir fiskinum. Tveimur starfsmönnum verði bætt við í stöðinni á Reykjanesi þannig að þar verði fljótlega 20 störf. Vatn frá HS-orku Um 35 gráðu heitt vatn frá HS- orku er forsenda eldisins hjá Stolt Sea Farm og er það síðan blandað sjó þar til réttu hitastigi er náð. Sig- urður segir að á Reykjanesi hafi fyrirtækið leyfi til tvö þúsund tonna ársframleiðslu, en aðeins um þriðj- ungur stöðvarinnar hafi verið byggður. Nú sé vilji til að bæta við og fullbyggja stöðina á næstu árum. Verið sé að þróa viðskiptamódel stöðvarinnar til framtíðar svo há- marka megi arðsemina og fram- leiðslugetuna í tvö þúsund tonna stöð. Hvort það verði gert með sene- gal-flúru eða gullinrafa eða báðum tegundunum eigi eftir að koma í ljós. 3-4 kíló á 14 mánuðum Gullinrafi, eða Seriola dumerili, finnst villtur víða í höfum heimsins, einkum á suðlægari slóðum þar sem hitastig sjávar er 22-24 gráður. Nefna má Japanshaf, Indlandshaf, við strendur Afríku og Ástralíu, en einnig Miðjarðarhafið. Nokkuð hef- ur verið um eldi á gullinrafa í Japan og þá er ungviðið gjarnan veitt og alið áfram. Í Evrópu hefur hollensk stöð verið með eldi á gullinrafa síð- ustu misseri. Gullinrafaseiðin eru keypt frá stöð á Spáni og eru um eitt gramm að þyngd þegar þau koma til Stolt Sea Farm á Reykjanesi. Þar eru þau alin í tönkum fyrstu vikurnar en þá flutt í útiker. Eftir um 14 mánuði er miðað við að fiskurinn verði orðinn 3-4 kíló og kominn í sláturstærð. Sigurður segir að flókið umsókn- arferli hafi staðið yfir undanfarið og þó svo endanleg svör séu ekki komin hafi viðbrögð hingað til verið já- kvæð. Meðal annars fjallar nefnd um innflutning á framandi tegund- um á vegum Umhverfisstofnunar um umsóknina og sömuleiðis fisk- sjúkdómanefnd á vegum Matvæla- stofnunar. Lifir ekki við Ísland Sigurður segir að gullinrafi lifi ekki í sjó undir 14 gráðum og muni því drepast komist hann í sjó við Ís- land. Hann segir að eigi að síður muni fyrirtækið gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að ekki verði slysasleppingar. Stolt Sea Farm er alþjóðlegt fyrirtæki, stofnað í Noregi, og er með eldisstöðvar í Noregi, Frakk- landi, Spáni, Portúgal og Íslandi. Gullinrafi í eldi á Reykjanesi - Tilraunaverkefni hjá Stolt Sea Farm á Reykjanesi - Hágæðavara notuð í sushi eða steikur - Hraðvaxta fiskur og hátt verðlagður - Stolt Sea Farm hugar að því að fullbyggja eldisstöðina Ljósmynd/Wikipedia Commons Gullinrafi Fiskurinn finnst víða í hlýjum sjó og verður alinn við 22-24 gráður í eldiskerjum á Reykjanesi. Uppbygging Áform eru um að stækka eldisstöð Stolt Sea Farm á Reykja- nesi og nýta að fullu leyfi til að framleiða tvö þúsund tonn af fiski á ári. Sigurður Helgi Ólafsson Jarðskjálftarnir á Reykjanesi fyrr í vetur höfðu áhrif á fiskana sem eru í eldi hjá Stolt Sea Farm. Sig- urður Helgi, framkvæmdastjóri, segir að þegar skjálftarnir voru hvað mestir hafi fiskarnir orðið „stressaðir“ og hætt að taka fóður. Þeir hafi þó verið fljótir að jafna sig þegar dró úr skjálftum og frá því eldgosið hófst hafi allt verið með kyrrum kjörum. Fiskarnir stressuðust JARÐSKJÁLFTAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.