Morgunblaðið - 01.04.2021, Side 13

Morgunblaðið - 01.04.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021 Yfirmenn heraflans segja allir af sér Jair Bolsonaro Brasilíuforseti stendur nú frammi fyrir sinni mestu áskorun eftir að yfirmenn land- hers, flota og flughers landsins sögðu af sér og kórónuveiran er skæðari en nokkru sinni. Hin ófyrirséða afsögn yfirmanna varnarsveita Brasilíu segja stjórn- málaskýrendur að taka beri sem mótmæli við tilraunum Bolsonaro til að taka sér óviðeigandi völd yfir heraflanum. Þá hafa vinsældir Bolsonaro hrunið vegna viðbragða hans við kórónuveirufaraldrinum. Tæplega 314.000 manns hafa látist af völdum veirunnar. Í fyrradag létust 3.780 manns sama daginn sem er met. Alls hafa 12,6 milljónir smitast í Brasilíu og eru smitin aðeins fleiri í Bandaríkjunum. Er 2.286 manns dóu fyrir tíu dög- um sagði forstöðumaður yfirvalda að heilbrigðiskerfið væri að hruni komið. Hefur dauðsföllum fjölgað dag hvern eftir það. Meira en 80% sjúkrarúma á gjörgæsludeildum væru í notkun. Faraldursfræðingur í ríkinu Rio Grande do Sul sagðist við BBC óttast að Brasilía gæti ógn- að heilbrigðiskerfum á heimsvísu. Bolsonaro hefur þráfaldlega lagst gegn lokun landsins og öðrum aðgerðum á þeirri forsendu að slíkt gæti reynst dýrkeyptara og skað- legra en kórónuveiran sjálf. Hefur hann hvatt landsmenn sína til að „hætta að væla“ yfir ástandinu. BRASILÍA Jair Bolsonaro Kirsuberjatré sem setja svo mikinn svip á garða og önnur útivistasvæði í Japan eru í fullum skrúða og hafa aldrei verið það svo árla árs, að sögn veðurstofunnar í Tókýó sem tengir þróunina við hlýnun andrúms- loftsins. Í fornu höfuðborginni Kyoto náði blómi trjánna hámarki 26. mars eða 10 dögum fyrr en í meðalári og fyrr en öll árin frá 1953 er farið var að skrá vöxt og viðgang trjánna. „Rannsóknir okkar sýna að upphaf blómgunarinnar fer yfirleitt saman við meðalhita febrúar og marsmánaðar,“ segir Shunji Ambe starfsmaður veðurstofunnar. „Athuganir okkar á plöntulífi leiða í ljós að vorblómg- unin hefur tilhneigingu til að byrja fyrr en haustblómgunin aftur á móti síðar,“ segir Amber við AFP-fréttastofuna. Á myndinni njóta japanskar konur blómstrandi kirsuberjatrjánna í Inokashir-garðinum í Tókýo. agas@mbl.is Kirsuberjatrén í blóma sem aldrei fyrr AFP Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana. Gleðilega páska Ítalir ráku í gær úr landi tvo rúss- neska embættismenn eftir að skip- herra ítalskrar freigátu var staðinn að því að selja Rússunum leynilegar ítalskar skýrslur. Skipherrann var handtekinn og kærður fyrir njósnir eftir að lög- reglumenn sem fylgdust með hon- um sáu hann á „leynifundi“ með rússneskum hermálafulltrúa seint í fyrrakvöld í Róm, að sögn ítölsku lögreglunnar. Hittust þeir á bíla- stæði en þar stöðvaði sérsveit lög- reglunnar viðskipti þeirra. Var skipherrann handtekinn og birt kæra fyrir að afhenda hern- aðarleg leyndarmál gegn greiðslu. Rússneska sendiráðsmanninum var hins vegar sleppt á grundvelli dipló- matískrar friðhelgi. Luigi Di Maio utanríkisráðherra Ítalíu kallaði rússneska sendiherr- ann Sergey Razov fyrir sig í gær- morgun og afhenti formleg mót- mæli við njósnunum. Var honum skýrt frá því að tveir rússneskir embættismenn sem viðriðnir voru málið alvarlega hefðu verið reknir tafarlaust úr landi. Eleonora Tafuro, sérfræðingur um rússnesk málefni hjá hugveit- unni ISPI í Mílanó, segir sjaldan koma upp mál sem þetta á Ítalíu. „Þetta er mjög alvarlegt og færir okkur eiginlega aftur til baka til kaldastríðstímans,“ sagði hún við AFP. Fréttastofan ANSA birti nafn skipherrans, Walters Biot, og sagði hann hafa starfað í stefnumót- unardeild á skrifstofu yfirmanns alls ítalska heraflans. Deild sú fjallaði „um öll trúnaðarmál og leyniskýrslur“, þar á meðal NATO- skýrslur“, sagði blaðið Corriere della Sera. Blaðið sagði Biot hafa fengið 5.000 evrur í seðlum frá rússneskum samverkamönnum sín- um. Skipherrann tók ljósmyndir af leyniskjölum á tölvuskjá sínum og vistaði á USB-lykli sem lögreglan lagði hald á, að sögn fréttastof- unnar AGI. agas@mbl.is Njósnarar gómaðir í Róm - Skipherra lak skýrslum til Rússa AFP Njósnamál Lögreglan gómaði njósnarana í garði í Róm. Þrjú stærstu flugfélög Kína birtu í gær uppgjör sitt fyrir árið 2020 og nemur tap þeirra milljörðum doll- ara. Lagðist millilandaflug þeirra næstum af vegna kórónuveiru- faraldursins og ný afbrigði veir- unnar ógna afkomunni í ár. Stærsta flugfélag Kína hvað far- þegaflutninga varðar, China Sout- hern Airlines, tapaði 10,8 millj- örðum yuan, eða sem nemur um 205 milljörðum króna þrátt fyrir að innanlandsflug hafi rétt úr kútnum. Ríkisflugfélagið Air China færði 14,4 milljarða yuan tap til bókar og China Eastern Airlines 11,8 millj- arða yuan. Þótt tap flugfélaganna þriggja hafi verið mildað að einhverju leyti með auknu innanlandsflugi ríkir óvissa um framtíðina þrátt fyrir að Kínverjar hafi komið böndum á kórónuveiruna. Mikil óvissa um framtíð flugfélaga KÍNA Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Lokunaraðgerðir sem beitt hefur verið undanfarnar vikur á Parísar- svæðinu og nágrenni munu verða út- færðar og látnar gilda um landið allt frá 5. apríl til fjögurra vikna. Skólum verður lokað næstu þrjár vikurnar, þar á meðal fellur tveggja vikna páskafrí skólanna niður. Frá þessu skýrði Emmanuel Mac- ron forseti í sjónvarpsávarpi úr höllu sinni í gærkvöldi. Honum hafði verið legið á hálsi undanfarnar vikur ónóg- ar aðgerðir gegn kórónuveirunni sem blossað hefur upp að nýju af meiri styrk en áður í Frakklandi. Macron sagðist binda vonir við að ráðstafanirnar nýju myndu skila góðum árangri svo takast mætti að opna landið í skrefum frá byrjun maí. Framlengdi forsetinn takmark- anir við ferðalögum frá og með næst- komandi laugardegi til fjögurra vikna, en öll ferðalög lengri en 10 kílómetrar verða bönnuð frá 5. apríl. Þá verður verslunum öðrum en mat- vælabúðum lokað. Dagsett áætlun um opnun Sagði Macron að mögulega yrði kleift að opna verandir kaffihúsa og menningarstofnanir undir ströngum ráðstöfunum um miðjan maí. Þá yrði einnig birt dagsett áætlun um aflétt- ingu lokana í öðrum mannvirkjum. Sagði Macron að þær aðgerðir sem hefði verið gripið til á síðustu vikum væru allt of takmarkaðar á tímum „hraðrar uppsveiflu veirufaraldurs- ins“. Betur mætti ef duga skyldi því annars væri Frökkum sú hætta búin að glata tökum á hinu breska af- brigði veirunnar sem nú herjaði á landið. „Það er bóluefninu að þakka að leiðin út úr kreppunni er að mót- ast,“ sagði Macron. Boðaði hann bólusetningu 60 ára og eldri frá 16. apríl og frá 15. maí fyrir 50 – 59 ára. Játaði mistök sín Macron játaði að sér og stjórn sinni hefðu orðið á mistök í stríðinu gegn kórónuveirunni. Í síðustu viku sagðist hann ekki sjá neina ástæðu til að biðjast afsökunar en í gær kvað við annan tón. „Á hverju stigi farald- ursins gætum við sagt að hægt hefði verið að gera betur, að við hefðum getað betur. Það er allt rétt. En ég veit þó það, að við höfum staðið í lappirnar, dregið lærdóm og bætt okkur í hverju skrefi.“ Hinar nýju ráðstafanir stjórnar Macrons í rimmunni gegn kórón- uveirunni líkjast að meginstofni að- gerðum og lokunum í fyrstu bylgju veirunnar í mars og apríl í fyrra. Þá var fólki leyft að fara aðeins klukku- tíma á sólarhring af heimili sínu til matvælakaupa og annarra erinda. Frakkar herða aðgerðir - Macron ávarpaði þjóðina í gærkvöldi - Skólum lokað og ferðalög heft út apríl- mánuð - Segir hættu á að Frakkar missi tökin gagnvart breska afbrigðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.