Morgunblaðið - 01.04.2021, Side 15

Morgunblaðið - 01.04.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021 Allt útlit er fyrir að gosið í Geldingadölum standi yfir í lengri tíma. Bráðaaðgerðir við- bragðsaðila hafa verið vel skipulagðar og lög- regla og björgunarfólk staðið sig frábærlega. Ef væntingar jarðfræð- inga rætast gæti gosið í Geldingadölum staðið mánuðum, jafnvel árum saman. Ef það verður raunveruleikinn þarf að gera framtíð- aráætlanir um gæslu á svæðinu. Ekki er hægt að láta sjálfboðaliða sem skipa björgunarsveitirnar standa vakt á svæðinu vikum og mánuðum saman. Fólk sem flest er bundið sín- um atvinnurekendum og þarf að mæta til starfa, en nýtur velvildar á neyðarstund. Sú góða hugmynd að allir sem ganga á svæðið láti 1.000 kr. rakna til björgunarsveitanna ætti að vera öllum létt í hendi. Það sama gild- ir um lögregluna sem er bæði fáliðuð og verkefnin þar á bæ hverfa ekki. Þau kalla á allt lögregluliðið til að sinna daglegum skyldum við sam- félagið en aðrir sjái um gossvæðið. Tækifæri fyrir reynslumikið fólk Á Suðurnesjum er mesta atvinnu- leysi á landinu og margt þaulreynt fólk sem sinnt hefur eftirlits- og skoð- unarstörfum á Keflavíkurflugvelli. Unnið við að leiðbeina fólki við kom- una til landsins og er því þjálfað í að sinna og leiðbeina fólki. Flest af því talar fleira en eitt tungumál. Af hverju ekki að nýta krafta þessa fólks til eftirlits og aðstoðar ferðafólki á gosstöðvunum í Geldingadölum? Skipulag og stjórnun eftirlitsstarfsins getur að sönnu verið hjá lögreglu og viðbragðs- aðilum en störfin sem þarf að sinna og krefj- ast viðveru gætu komið frá fólki sem hefur beð- ið eftir því að losna af atvinnuleysisskrá. Nýta tækifæri til sköpunar starfa Með því að nýta þau úrræði sem Vinnu- málastofnun hefur yfir að ráða og ríkisstjórnin hefur samþykkt og fjár- magnað má skapa tugi, ef ekki hundr- uð, starfa á nýjum vettvangi. Verk- efnið er frekast í höndum Grindvíkinga en í ljósi aðstæðna er eðlilegt að SSS, Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, standi á bak við verk- efnið til að koma því af stað. Hvert nýtt starf fær greitt um 450 þús. á mánuði að viðbættu orlofi eða tæpar 500 þús. frá Vinnumálastofnun. Þá má hugsa sér að einhvers konar gjaldskylda stæði undir kostnaði sem fellur til vegna verkefnisins. Ekkert er því til fyrirstöðu að það verði einkaaðilar sem sjái um þetta verk- efni með stuðningi sveitarfélaga og ríkis þar til önnur fjármögnun verður ákveðin. Gjald eða kostnaður Það þarf frumkvæði og dug til að keyra þetta verkefni í gang og nóg er af dugnaði á Suðurnesjum. Það þarf örugglega að rekast á einhverja veggi til að láta verkin tala og koma verk- efninu sem fyrst af stað. En það má ekki verða til þess að draga þrótt úr mönnum að mistök eða minni háttar skakkaföll verði í fyrstu skrefunum. Það er alvanalegt þegar nátt- úrhamfarir eru í gangi að það þarf að hlaupa aðeins hraðar en fæturnir draga. Bílastæði, stígagerð og þjón- ustuhús eru innviðir sem mikilvægt er að koma upp sem fyrst til að hægt sé að bjóða upp á mannsæmandi að- stöðu sem eðlilegt gjald er greitt fyr- ir. Gjaldtaka er eðlilega umdeild leið en hver er ósammála því að þeir greiði sem njóti og standi undir þeim kostnaði sem annars félli á sveit- arfélögin eða ríkið? Þá er ekkert eðli- legt við það að sjálfboðaliðar í björg- unarsveitum á Suðurnesjum og víðar að af landinu standi vaktir og haldi uppi eftirliti og nýti tæki sín án nokk- urrar greiðslu þegar til lengdar læt- ur. Það mikilvæga fólk á að vera klárt í önnur verkefni sem eðlilega halda áfram að koma upp og sýna sífellt fram á mikilvægi björgunarsveita og viðbragðsaðila. Sláum tvær flugur í einu höggi Með því að skapa tugi starfa við gæslu og eftirlitsstörf í Geld- ingadölum er ráðist að atvinnuleysinu þar sem það er erfiðast og þyngst. Við eigum að skapa þá umgjörð um einstaka auðlind sem gosið er þannig að eftir því verði tekið og við vöndum okkur að gera vel. Þjónusta ferðafólk sem margir atvinnulausir hafa gert allan sinn starfsaldur í flugstöðinni og auka öryggi gesta á svæðinu með því að skapa ný og áhugaverð störf í nátt- úru Íslands og slá þannig tvær flugur í einu höggi. Eftir Ásmund Friðriksson » Af hverju ekki að nýta krafta þessa fólks til eftirlits og aðstoðar ferðafólki á gosstöðvunum í Geldingadölum? Ásmundur Friðriksson Höfundur er alþingismaður. Geldingadalir tækifæri nýrra starfa á Suðurnesjum Covid-19-faraldurinn er erfiðasta viðfangsefni alþjóðasamfélagsins frá því á fimmta áratugn- um. Með þessum orðum hefst grein sem 24 for- ystumenn ríkja- og al- þjóðasamtaka birtu í nokkrum blöðum um heim allan þriðjudaginn 30. september. Sérstökum tíðindum sætir að sameiginlega standa Boris Johnson, forsætisráð- herra Breta, Angela Merkel Þýska- landskanslari og Emmanuel Macron Frakklandsforseti að textanum. Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, er fulltrúi Norðurlandanna í hópnum. Þar eru einnig: Charles Michel, for- seti leiðtogaráðs ESB, Pedro Sánc- hez, forsætisráðherra Spánar, Joko Widodo, forseti Indónesíu og dr. Te- dros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar (WHO). Minnt er á að eftir eyðileggingu tveggja heimsstyrjalda hafi stjórn- málaleiðtogar landa heims sameinast um að koma á fót fjölþjóðlegu kerfi til að færa þjóðir saman, sporna við freistingum einangrunar- og þjóðern- ishyggju og takast á við verkefni sem aðeins megi leysa með samstöðu og samvinnu, það er vinna að friði, far- sæld, heilbrigði og öryggi. Lýst er þeirri von að eftir sameiginlegan sigur á Covid-19-faraldrinum takist að mynda kerfi alþjóðlegrar heilsuvernd- ar í þágu komandi kynslóða. Engin spurning sé um að aftur verði vegið að heilbrigði manna um víða veröld, hitt sé óljóst hvernig það gerist. Þess vegna sé nauðsynlegt að þjóðir heims séu betur í stakk búnar til að sjá fyrir, hindra, finna, meta og bregðast á þaulskipu- lagðan hátt við faröldr- um. Covid-19-faraldur- inn sé öflug og sársauka- full áminning um að enginn sé öruggur fyrr en allir séu öruggir. Hvatt er til þess að gerður verði nýr al- þjóðasáttmáli sem snúi að viðbúnaði og við- brögðum vegna heims- faraldra. Rætur hans séu í stofnsáttmála WHO með það meðal annars að markmiði að fyrir hendi sé viðvörunarkerfi, áætl- anir um dreifingu rannsóknargagna, bóluefna, lyfja og skjólbúninga fyrir hjúkrunarfólk. Athygli vekur að hvorki bandarísk- ir né kínverskir ráðamenn eiga nöfn sín undir greininni. Veiran vaknaði þó í Kína og hún hefur orðið flestum að aldurtila í Bandaríkjunum. Stjórnvöld stórþjóðanna verða þó að leggja sitt af mörkum sé raunhæft að vænta al- þjóðasamnings til varnar heimsfar- öldrunum en ekki er óeðlilegt að hvatningin um samningsgerðina komi frá stjórnendum annarra landa. Þarna er tækifæri fyrir Norður- landaþjóðirnar að láta verulega að sér kveða. Almennt njóta heilbrigðiskerfi þeirra virðingar á heimsmælikvarða og í Covid-19-faraldrinum hafa heil- brigðisyfirvöld landanna ekki öll beitt sömu aðferð. Þess vegna er unnt að kynna árangur ólíkra leiða. Af Íslands hálfu mætti til dæmis miðla gögnum um árangur landamæralokana. Hér hefur sóttvarnayfirvöldum gengið brösuglega að fóta sig á öruggu landamæraúrræði. Landamærareglur og litakóði Nú í dag ganga í gildi reglur um að við komu til landsins skuli farþegar sem framvísa bólusetningarvottorði eða vottorði um fyrri sýkingu fara í eina sýnatöku. Ferðamenn frá skil- greindum áhættusvæðum skulu dvelja í sóttkví eða einangrun í sótt- varnahúsi milli fyrri og síðari sýna- töku. Krafa um sýnatöku hjá ein- staklingum með bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu er sett vegna vísbend- inga um að þessir einstaklingar geti borið smit. Þeir þurfa ekki að sæta sóttkví en skulu bíða niðurstöðu úr sýnatöku á dvalarstað. Í nýju landamærareglunum eru áhættusvæði skilgreind með litakóða. Lönd eru dökkrauð eða grá sam- kvæmt upplýsingum frá Sótt- varnastofnun Evrópu. Þegar litið er til þessara reglna vaknar spurning um hvort ein- hverjum þyki „glæpsamlegt“ að setja þær. Á dögunum var rekið upp slíkt ramakvein vegna áforma um aðild að samræmdum evrópskum landa- mærareglum 1. maí eða síðar á grundvelli „litakóða“. Spurt var hvort við ættum síður að hleypa fullbólusettum Breta til lands- ins en Þjóðverja, þótt Bretar stæðu utan Schengen-samstarfsins. Þetta er ágæt spurning, til þess ber þó að líta að mánudaginn 29. mars var Bretum bannað að ferðast til útlanda. Án „viðunandi ástæðu“ til utanlands- ferða eiga þeir á hættu að verða sekt- aðir um allt að 5.000 pund (880.000 ISK). Bannið gildir til 30. júní en verður ef til vill endurskoðað svo að heimila megi utanlandsferðir eftir 17. maí. Þjóðverjar búa ekki við ferðabann og streyma til dæmis til Mallorka um páskahelgina. Hér gildir ekki heldur bann við utanlandsferðum án erindis. Íslendingar mega til dæmis ferðast til Tenerife um páskana. Þeir urðu þó að aflýsa skíðaferðum til Siglufjarðar eða Akureyrar. Þúsundum saman ganga svo Íslendingar og erlendir ferðamenn að jarðeldunum í Geld- ingadölum. Minni heimahömlur Sama dag og bannreglan vegna ut- anlandsferða gekk í gildi í Bretlandi var smáskref stigið þar til að létta á framkvæmd sóttvarna innanlands. Nú mega allt að sex koma saman ut- an dyra í einkagörðum, borg- argörðum og á ströndum. Þá mega menn ganga saman í fámennum hóp- um og grilla utan dyra með öðrum ef svo ber undir. Útisundlaugar verða opnaðar, tennisvellir og golfvellir. Fólk er þó varað við að faðmast, hvatt til að virða tveggja metra regluna ut- an dyra og forðast að hittast innan dyra. Öllum þessum varúðarreglum ber að fylgja í Bretlandi þótt bólusetning þar gangi betur en annars staðar í Evrópu. Meira en 30 milljónir manna hafa verið bólusettir í Bretlandi eða um 57% allra fullorðna. Hér höfðu aðeins 20.734 ein- staklingar verið fullbólusettir 29. mars eða tæp 7%, hlutfallslega aðeins fleiri en í Danmörku þar sem um helgina var losað um hömlur fyrir þá sem eru fullbólusettir. Dönsk heil- brigðisyfirvöld afnámu tveggja metra fjarlægðarregluna í samskiptum full- bólusettra og heimiluðu þeim að knúsa aðra væru þeir á heimili sínu. Lauk þar með einangrun hjá mörg- um sem höfðu búið við hana í eitt ár. Danskir sérfræðingar segja að það séu sáralitlar líkur á að smit berist á milli tveggja fullbólusettra ein- staklinga. Hugsanlega geti menn þó borið smit í aðra þótt þeir séu bólu- settir. Í almannarými eins og til dæmis verslunum verði fullbólusettir því að virða tveggja metra regluna, þrátt fyrir eigin vörn kunni þeir að geta borið smit í aðra, enginn viti þetta þó nákvæmlega en allur sé var- inn góður. Þegar fullbólusettum fjölgi verði reglurnar um umgengni í al- mannarými lagaðar að nýjum að- stæðum. Nú í marsmánuði fengu full- bólusettir Bandaríkjamenn heimild til samskipta við aðra bólusetta án þess að bera grímu eða virða fjar- lægðarmörk. Í byrjun dymbilvikunnar boðaði Joe Biden Bandaríkjaforseti að frá og með 19. apríl ættu 90% Bandaríkja- manna rétt til bólusetningar og bólu- setningastöð yrði í innan við 8 km fjarlægð frá heimili hvers og eins. Þetta er metnaðarfullt markmið en fyrir 1. maí fá allir Bandaríkjamenn þennan rétt. Á sama tíma og bólusetningar í Bretlandi hafa minnkað sókn veir- unnar þar í landi hefur hún sótt í sig veðrið í Bandaríkjunum. Þar er þó dreift 33 milljónum bóluefnaskammta í þessari viku. Bóluefnið sem hefur verið notað hér til þessa og í Bretlandi og Banda- ríkjunum krefst þess að stungið sé tvisvar með nokkurra vikna bili til að virkni efnisins skili sér að fullu. Ný- birtar bandarískar niðurstöður sýna á hinn bóginn að fyrri stungan minnkar hættuna á smiti um 80% þegar tvær vikur eru liðnar frá henni. Þótt hægt fari mjakast hér til réttrar áttar. Eftir Björn Bjarnason » Þarna er tækifæri fyrir Norðurlanda- þjóðirnar að láta veru- lega að sér kveða. Al- mennt njóta heilbrigðis- kerfi þeirra virðingar á heimsmælikvarða. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra Litakóðar – frelsi fullbólusettra Gosmáni Eldgosið í Geldingadölum við Fagradalsfjall tekur á sig nýja mynd með hverjum deginum. Ljósmyndari Morgunblaðsins var þarna á ferð snemma í gærmorgun, þegar tunglið sást vel á himni, gegnum móðuna bláu er gígarnir varpa á hana rauðum bjarma í morgunskímunni. Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.