Morgunblaðið - 01.04.2021, Qupperneq 19
Lögfræðingur
Félag grunnskólakennara er fjölmennasta
aðildarfélag Kennarasambands Íslands með
rúmlega 5.300 félagsmenn. Með stofnun
félagsins í nóvember 1999 sameinuðust allir
grunnskólakennarar landsins í fyrsta sinn í
einu félagi.
Hlutverk félagsins er að vera málsvari þeirra
félagsmanna Kennarasambands Íslands sem
sinna kennslu eða ráðgjöf í grunnskólum.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Félag grunnskólakennara (FG) auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings. Verkefni FG eru fjölbreytt
og krefjandi. Lögfræðingur heyrir undir formann Félags grunnskólakennara, æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið:
• Lögfræðileg ráðgjöf í málefnum félagsmanna.
• Þjónusta við FG, einkum á sviði vinnuréttar.
• Aðstoð við gerð og túlkun kjarasamninga FG.
• Umsagnir lagafrumvarpa og þátttaka í nefndum f.h. FG.
• Samskipti og samstarf við hagsmunaaðila.
• Kennsla á námskeiðum á vegum FG.
• Málflutningur og önnur lögfræðileg störf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættis- eða meistarapróf í lögum. Hdl. réttindi skilyrði.
• Reynsla sem nýtist í starfi er æskileg.
• Þekking á vinnurétti og túlkun kjarasamninga.
• Þekking á störfum félagasamtaka.
• Góð samskipahæfni og geta til að vinna í krefjandi umhverfi.
• Sjálfstæði í starfi, ögun í vinnubrögðum og hæfni til að miðla málum og ná sáttum.
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Umsjón með starfinu hafa Audur Bjarna-
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Hildur Jóna
Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Skipulagsstofnun sinnir stefnumótun,
stjórnsýslu og leiðbeiningum um skipulag
og framkvæmdir með sjálfbæra nýtingu
auðlinda og vandaða byggð að leiðarljósi.
Stofnunin vinnur í víðtæku samráði
við sveitarfélög, önnur stjórnvöld og
hagsmunaaðila.
Skipulagsstofnun starfar á grundvelli skipu-
lagslaga, laga um skipulag haf- og strand-
svæða, laga um mat á umhverfisáhrifum og
laga um umhverfismat áætlana og heyrir
undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið.
Hjá stofnuninni ríkir góður starfsandi
og í boði er góð starfsaðstaða. Nánari
upplýsingar má finna á www.skipulag.is.
Umsókn um starf þarf að fylgja ítarleg
starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við fjölbreytt verkefni í skipulagsmálum
með áherslu á deiliskipulag og staðarmótun.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt viðfangsefni og getu til að leysa
verkefni bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
Umsjón með starfinu hafa Auður
Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is)
og Hildur Jóna Ragnarsdóttir
(hildur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Sérfræðingur í skipulagsgerð
og staðarmótun
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu Vinnvinn, www.vinnvinn.is.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til að vinna að fjölbreyttum verkefnum við vinnslu,
greiningu og miðlun skipulags og umhverfismats í vefsjám og landupplýsingakerfum.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt viðfangsefni og getu til að leysa
verkefni bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
Sérfræðingur í landupplýsingum
Helstu verkefni
• Ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsgerð sveitarfélaga,
sérstaklega varðandi gerð og afgreiðslu deiliskipulags.
• Ýmis verkefni við stefnumótun, leiðbeiningar og miðlun um
skipulagsmál, sérstaklega tengt gerð deiliskipulags og staðarmótun.
Helstu verkefni
• Þróun og rekstur landfræðilegra gagnasafna og vefsjáa Skipulagsstofnunar.
• Þróun á stafrænu skipulagi.
• Gerð uppdrátta og vinnsla landfræðilegra upplýsinga vegna ýmissa verkefna stofnunarinnar.