Morgunblaðið - 01.04.2021, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021
Nú kveð ég Maríu
sem alltaf hefur ver-
ið til. Við kynntumst
sex ára og ég man
ekki lífið öðruvísi en
með Maríu í heiminum. Við fylgd-
umst að í gegnum lífið með hléum.
Það er með suma að þótt tími
líði á milli samtala þá er alltaf eins
og síðasta samtal hafi átt sér stað
fyrir stuttu.
Þannig var vinátta okkar Mar-
íu. Við fylgdumst að frá því að vera
litlar stelpur í ungar konur, og nú
síðast sem fullorðnar konur.
María var einstaklega ljúf
manneskja, meira en margur. Hún
var þessi engill í hópnum sem
gerði engum illt og lenti ekki í
neinu misjöfnu en var alltaf til
staðar fyrir aðra.
Hún gat hins vegar gripið í
svartan húmor og beitti honum oft.
Hún hafði alla tíð mikla ástríðu
fyrir fötum og tísku og taldi það
ekki eftir sér að lána okkur vin-
konum fötin sín. Hún taldi það
heldur aldrei eftir sér að skutlast
með vinkonur.
Hún taldi aldrei neitt eftir sér.
Það bar aldrei á biturð hjá
henni þótt líf hennar hafi á stund-
um verið henni þungt og með ein-
stakri þolinmæði tókst hún á við
veikindi síðustu ára.
Elsku Melkorka, Jenný, Guð-
mundur, Helga og Róbert ég vona
innilega að spor ykkar muni smám
saman léttast með styrk minninga
um elsku Maríu ljúfu.
Hrygg en þakklát kveð ég Mar-
íu ljúfu með þessum orðum:
Kominn er tíminn, nú þarf að kveðja.
Saman áttum kærar stundir,
þessar sem syrgja, þessar sem gleðja.
Seinna okkar verða fundir.
Sigrún Eðvaldsdóttir.
Ég minnist þess þegar María
okkar kom til mín í starfsviðtal ár-
ið 2014. Hún var hlédræg og nokk-
uð feimin, en það var eitthvað sem
greip mig og hún var ráðin til okk-
ar í tolladeildina hjá Eimskip.
Frá og með fyrsta degi sýndi
Guðmunda María
Guðmundsdóttir
✝
Guðmunda
María Guð-
mundsdóttir fædd-
ist 1. júní 1972. Hún
lést 12. mars 2021.
Útförin fór fram
24. mars 2021.
hún mikinn áhuga
fyrir starfinu. María
var hörkudugleg og
mjög vinnusöm. Hún
var fljót að læra og
náði vel utan um
starfið en starfið
hennar krafðist mik-
ils hraða, vandvirkni
og þjónustulundar.
Hún fór síðar al-
farið í tollskýrslu-
gerðina og þar sann-
aði hún sig enn og aftur, hversu
fljót hún var að ná hlutunum.
María var mjög samviskusöm og
þurftu samstarfsmenn stundum
að pikka í hana og spyrja hvort
hún ætlaði nú ekki standa aðeins
upp með þeim og fá sér kaffibolla
því það mætti nú alveg.
Hún var alltaf að og veigraði sér
ekki við að taka að sér flókin verk-
efni og sagði þá að þetta færi nú
bara í reynslubankann.
Það var okkur mikið áfall þegar
María tilkynnti okkur að hún væri
komin með illvígan sjúkdóm.
Hennar allra nánustu samstarfs-
menn veittu henni allan þann
stuðning og skilning sem hægt
var.
María sigraðist á þessu meini
eftir tæplega tveggja ára baráttu
og kom aftur til starfa hjá okkur
þar til annað áfall kom sjö mán-
uðum síðar og hún tilkynnti okkur
að meinið væri komið aftur á stjá.
Við vorum alltaf bjartsýn að hún
myndi sigrast á þessu meini en það
sigraði að lokum.
Það er ýmislegt brallað í deild-
inni okkar og erum við mikið fyrir
að gera eitthvað saman, eitt af því
er að fara saman erlendis. Mér er
minnisstæð ferðin til Brighton árið
2018 en þá var María í lyfjameð-
ferð en skellti sér samt með okkur.
Og hvað hún skemmti sér með
okkur og átti góða ferð þrátt fyrir
að vera að kljást við sín veikindi og
þar náði hún að njóta og leiða hug-
ann frá sínum veikindum.
Það er okkur mikill missir að
hafa ekki Maríu lengur hjá okkur.
Hún var okkur góður samstarfs-
félagi og ekki síður sönn vinkona.
Fyrir hönd samstarfsfélaga
Maríu hjá Eimskip sendum við
elskulegu Melkorku, Elmari Eron,
foreldrum og systkinum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Minningin um Maríu lifir, hvíli
hún í friði.
Arndís Aradóttir
Elsku hjartans
amma mín er fallin
frá.
Það er sárt að
sakna en ég er svo lánsöm að eiga
margar yndislegar og skemmti-
legar minningar um ömmu mína.
Allt frá því ég var lítil og hún var
að passa mig til þess er við eydd-
um klukkustundum saman í
verslunum að sinna sameiginlegu
áhugamáli (kaupa föt!) og nutum
þess að fara í hádegismat saman
og utanlandsferðir. Hún hefur
alltaf stjanað við mig og dekrað
og reynst mér svo vel. Eitt sum-
arið er hún var að passa mig elt-
um við til dæmis Brúðubílinn og
horfðum á sýningu hans hvern
einasta dag allt sumarið. Í dag,
verandi búin að fara með dætur
mínar á sömu sýningu, geri ég
mér enn frekari grein fyrir fórn-
fýsi hennar og þolinmæði. Hún
var besta amma sem hægt er að
hugsa sér og stelpunum mínum
dásamleg langamma.
Fyrir nokkrum árum fórum
við á konukvöld þar sem Sigga
Kling stjórnaði bingói. Amma
vann auðvitað til verðlauna eins
Þorbjörg
Valgeirsdóttir
✝
Þorbjörg Val-
geirsdóttir
fæddist 14. júní
1927. Hún lést 20.
mars 2021.
Útför Þor-
bjargar fór fram
29. mars 2021.
og svo oft áður. Þeg-
ar hún fór upp á
sviðið að sækja
vinninginn sinn dáð-
ist Sigga Kling að
útliti hennar og
aldri og amma benti
á fullt borð af kon-
um sem voru með
henni þetta kvöld.
Hitti Sigga naglann
á höfuðið þegar hún
sagði að það væri
ekki skrítið að allir vildu hafa
hana með því það stirndi af henni
eins og stjörnuljósi. Amma mín
var líka bros- og hláturmildasta
kona sem ég hef á ævinni kynnst.
Hún var jákvæð og alltaf til í allt.
Það var bjart yfir henni og núna
er hún skærasta stjarnan á himn-
inum.
Amma mín og afi voru frábær-
ar fyrirmyndir og ég óska þess að
mér lánist að eldast og njóta efri
áranna líkt og þau gerðu. Þau
voru yndislega samstiga og aktíf,
ferðuðust og léku sér auk þess að
sinna sér og sínum. Afi sagði að
þau myndu lifa áfram í gegnum
afkomendur sína, sem ég trúi, og
því mikilvægt að lifa lífinu lifandi,
gleðjast, njóta og hlæja fyrir þau
líka.
Minningin um yndislega
ömmu og afa, gleðina og gamanið
sem þeim fylgdi, lifir áfram.
Guð blessi elsku ömmu mína
og afa.
Auður Björg Jónsdóttir.
Það eru svo
margar og góðar
minningar sem ég á
um elsku ömmu mína. Hún var
alltaf svo jákvæð, drífandi og um-
hyggjusöm.
Það er svo dýrmætt að eiga
margar góðar minningar um
hana og afa. Þau voru svo falleg
saman og miklar fyrirmyndir.
Sögurnar sem hún sagði okkur
systrum þegar við vorum litlar
munum við enn og erum farnar
að segja börnum okkar þær sög-
ur. Ímyndunaraflið var einstakt
enda var hún mikill prakkari þeg-
ar hún var yngri.
Amma skóf aldrei neitt utan af
hlutunum og kryddaði sögurnar
sínar oft vel.
Ég var svo heppin að fá að
eyða miklum tíma með henni
ömmu í eldhúsinu og ég fylgdist
með aðdáunaraugum hvernig
hún hristi fram hverja kökuna á
Anna María Elísa-
bet Þórarinsdóttir
✝
Anna María El-
ísabet, Elsa,
eins og hún var allt-
af kölluð, fæddist
10. júní 1927. Hún
lést 10. mars 2021.
Útför Elísabetar
fór fram 22. mars
2021.
fætur annarri.
Skemmtilegast
fannst mér að baka
kleinur og vínar-
brauð með henni og
ég held þeirri hefð
áfram fyrir fjöl-
skylduna.
Við deildum sama
áhuga á handavinnu
og hún var dugleg
að kenna mér bæði
prjónatökin og einn-
ig að telja og sauma í. Það gleður
mig að horfa á handavinnulista-
verkin eftir hana á veggjunum
heima hjá mér.
Það kemur engum á óvart að
hún amma hafi oft verið kölluð
drottning.
Hún var með hjarta úr gulli og
hugsaði vel um okkur öll. Henni
þótti ekkert tiltökumál að fara
inn í tískuverslanir í Florida og
versla á okkur barnabörnin allt
það nýjasta.
Hún lagði ýmislegt á sig til að
kaupa hettupeysur í Hollister í
„bölvuðum hávaða og myrkri“
eins og hún orðaði það.
Ég veit að þið afi vakið yfir
okkur og haldið verndarhendi yf-
ir okkur.
Þín ömmustelpa,
Karen.
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Skarðsbók, Ljóðabók Jóns
Þorlákssonar, Bægisá, Svarf-
dælingar 1-2.,Um Grænland að
fornu og nýju, Árbækur Espolíns
1. - 12. útg. Ævisaga Árna
Þórarinssonar 1 - 6, Aldafar og
örnefni í Önundarfirði, Gestur
Vestfirðingur 1 - 5, Stjórnar-
tíðindi 1885 - 2000, 130. bindi,
Manntalið 1703. Kollsvíkurætt,
Ponzi 18. og 19. öldin, Fjalla-
menn, Hæstaréttardómar 1920 -
1960, 40. bindi, Þjóðsögur Jóns
Árnasonar, Kvennablaðið 1.- 4.
árg, Bríet 1895, Ódáðahraun 1-3,
Fritzner orðabók 1- 4, Flateyjar-
bók 1-4, Ferðabók Eggerts og
Bjarna 1981, Íslenskir Sjávar-
hættir 1-5, Tímarit Verkfræðinga
Íslands 1-20 árg., Tímarit hins
íslenska Bókmenntafélags 1-25,
Ársskýrsla sambands íslenskra
Rafveitna 1942 - 1963. Hín 1.-44.
árg., Skýrsla um Landshagi á
Íslandi 1-5, Töllatunguætt 1-4,
Síðasti musterisriddarinn Parce-
val, Austantórur 1-3, Ferðabók Þ.
TH., 1- 4, önnur útg., Ættir Aust-
firðinga 1- 9, Heimsmeistara-
einvígið í skák 1972, Landfræði-
saga Íslands 1- 4, Lýsing Íslands
1- 4, plús minningarbók Þ. HT.,
Almanak hins Íslenska Bók-
menntafélags 1875 - 2006, 33
bindi, Inn til fjalla 1- 3, Fremra
Hálsætt 1- 2, Kirkjuritið 1.- 23.
árg., Bergsætt 1- 3, V-Skaftfell-
ingar 1- 4. Sunnudagsblað
Tímars, ib. Náttúrfræðingurinn 1.
- 60. árg., ób., Lestrarbók handa
alþýðu á Íslandi 1874.
Uppl. í síma 898 9475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
Laga ryðbletti á
þökum og tek að
mér ýmis smærri
verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum
Framhald uppboðs, til slita á sameign, verður háð á
skrifstofu embættisins að Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi,
2.hæð sem hér segir á eftirfarandi eign :
TF-BLU, Pitts M12, fnr. 1003 , þingl. eig. BjörnThoroddsen,
gerðarbeiðandi Össur Willardsson, fimmtudaginn 8. apríl nk.
kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
31 mars 2021
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Stóragerði 38, Reykjavík, fnr. 203-3717 , þingl. eig. Andri Már
Hagalín, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 8. apríl
nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
31 mars 2021
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
með
morgun-
!$#"nu
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýju og vinarhug við andlát
og útför okkar elskulega
TÓMASAR GUNNARS
SÆMUNDSSONAR
frá Hrútatungu.
Sérstakar þakkir og kveðjur sendum við
starfsfólki lyflækningadeildar HSU fyrir einstaka umönnun.
Sigrún Erna Sigurjónsdóttir
Sigurjón Tómasson
Þorgerður Tómasdóttir Guðmundur E. Jóhannesson
Arndís Tómasdóttir Frímann B. Baldursson
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
BIRGIR ÖRN HARÐARSON,
KR-ingur og snillingur,
Kleifarseli 2, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á heimili
sínu föstudaginn 20. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Ingibjörg Björnsdóttir
Björk Birgisdóttir Þorsteinn Guðmundsson
Björn Birgisson Hjalma Poulsen
Björg Birgisdóttir
Bryndís Birgisdóttir
Berglind Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vinarhug og sendu hlýjar
kveðjur við andlát og útför okkar ástkæru
systur, mágkonu og frænku,
INGIBJARGAR MATTHÍASDÓTTUR,
fyrrv. flugfreyju
frá Vík.
Kolbrún Matthíasdóttir
Einar Matthíasson Halldóra Svanbjörnsdóttir
og fjölskyldur