Morgunblaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021
30 ÁRA Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir
sellóleikari er fædd í Helsinki en ólst upp á Bakka í
Svarfaðardal. „Ég byrjaði snemma að spila og var
alltaf keyrð inn á Akureyri í spilatíma úr Svarf-
aðardal.“ Hrafnhildur lærði sellóleik við Listahá-
skóla Íslands, Konunglega Konservatoríið í Kaup-
mannahöfn og Jacobs School of Music við
Háskólann í Indiana.
„Ég kom heim fyrir tveimur árum og hef síðan
þá verið að taka þátt í þessu fjölbreytta tónlistarlífi
sem er á Íslandi. Það hefur þó komið bakslag í það
að undanförnu og féllu t.d. niður einleikstónleikar
sem ég ætlaði að spila með mömmu á mánudaginn,
það má segja að kóvidið hafi framlengt fæðing-
arorlofið hjá mér sem er bara yndislegt.“
Hrafnhildur er fyrsti sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands auk þess
að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum, en hún var í fyrradag að ljúka upptökum
á tónlist sem Snorri Hallgrímsson samdi fyrir spænska spennumynd, sem sýnd
verður á Netflix. Fram undan eru síðan flutningar til Kaupmannahafnar þar
sem fjölskyldufaðirinn fer í meistaranám við Konunglega Konservatoríið.
Eiginmaður Hrafnhildar er Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari og sonur
þeirra er Hákon. Foreldrar Hrafnhildar eru Guðmundur Óli Gunnarsson
hljómsveitarstjóri og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari. Eiginkona
Guðmundar Óla er Margrét Blöndal.
Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur allan þann efnivið sem
til þarf til að verkefnið þitt heppnist.
Láttu hugmyndir þínar verða að veru-
leika.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þig langar dvelja í dagdraumum í
dag, miklu frekar en að einbeita þér að
vinnunni. Forðastu að setja ástvini þína á
stall og mundu að þeir eru mannlegir rétt
eins og þú.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Haltu ró þinni og láttu vel-
gengnina ekki stíga þér til höfuðs. Með
allt á hreinu geturðu notið lífsins
áhyggjulaus.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Að lifa vel er listform og þú hefur
stundum náð fullkomnum tökum á því.
Reyndu að vinna sem mest ein/n og láttu
félagslífið aðeins bíða.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þig langar til þess að ná til annarra
í dag og ættir að leggja þig fram um það.
Losaðu þig við tilfinningaleg höft.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er hætt við að yfirmenn þínir,
foreldrar eða nánir vinir mistúlki gerðir
þínar í dag. Lifðu einföldu lífi.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Reyndu að forðast alla árekstra milli
starfs og heimilis. Dómgreind þín er ekki
upp á hundrað þessa daga. Berðu virð-
ingu fyrir þér eldra fólki.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú sérð að þú hefur reist
veggi milli þín og annarra. Ekki láta þér
bregða, þótt margt sé öðru vísi í návígi.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Að þér er sótt úr öllum áttum
af fólki sem vill leita ráða hjá þér. Ekkert
er leiðinlegt í lífinu nema þú viljir hafa
það þannig.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Leyfðu vini þínum að eiga
skjól hjá þér með tilfinningar sínar. Oft
var þörf en nú er nauðsyn að þú hugir að
heilsufari þínu og mataræði.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það getur reynst mikil kúnst
að segja nei, þegar það á við. Þú kannt
að lofa upp í ermina á þér alveg óvart.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú ert enn að reyna að koma
reglu á fjármálin. Auðvitað eru nokkrir
hlutir sem þú þarfnast – en mjög fáir.
Reyndu að vera hjálpleg/ur og veita öðr-
um stuðning.
ferð, mengun og hnattræna hlýnun.“
Eftir að þau hjónin hættu að vinna
fyrir meira en áratug hafa þau ein-
beitt sér að því að koma sér upp sum-
arstað fyrir sig og sína nánustu.
„Þetta er gömul gróðrarstöð í Gríms-
nesinu sem tengdapabbi átti og við
höfum plantað þar tveimur litlum
garðhúsum svo þarna höfum við bara
legi dánarstuðullinn. Ég talaði fyrir
sóknarstýrandi auðlindaskatti og
taldi aflakvótakerfið óréttlætanlegan
ójöfnuð og langstærsta rán Íslands-
sögunnar. Það myndi valda miklu
brottkasti og sóun. Best væri ef olíu-
framleiðsluríkin legðu á nægilega
háan auðlindaskatt til að minnka
sókn flotans á Íslandi sem og bílaum-
E
inar Júlíusson fæddist 1.
apríl 1941 í Reykjavík
og ólst upp í Vestur-
bænum. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR
1960, fyrrihlutaprófi í verkfræði við
HÍ 1963, mag.scient.-prófi í eðlisfræði
við Kaupmannahafnarháskóla í árs-
byrjun 1966 og doktorsprófi í stjarn-
eðlisfræði við Chicago-háskóla 1974.
Einar starfaði við Rannsóknar-
stofnun byggingariðnaðarins 1966-68,
starfaði áfram að doktorsnámi loknu
með Peter Meyer við rannsóknir á
kjarnasamsetningu geimgeisla til
1974 og við áþekkar rannsóknir í
Saclay-kjarnarannsóknarstöðinni í
Frakklandi 1975-76 en rannsóknir og
niðurstöður Einars á þessu sviði
vöktu mikla athygli á sínum tíma.
Einar var sérfræðingur við HÍ 1976-
79, starfaði við úrvinnslu á gögnum
frá HEAO-gervitunglunum við
Dansk rumforsikring institut í Kaup-
mannahöfn 1980-81 og í Frakklandi
1981-83. Hann var dósent í eðlisfræði
við HÍ 1983-86, stundakennari þar
1986-91, starfaði við rannsóknir á
geimgeislum við Chicago-háskóla
1991-92. Hann stundaði mennta-
skólakennslu við Menntaskólann á
Laugarvatni og við Flensborgarskól-
ann næstu fjögur árin. Hann varð
lektor og dósent við Háskólann á
Akureyri 1997, en rannsóknir hans
sneru einkum að líkanasmíði og
fræðilegum athugunum á stofnstærð-
arreikningum. Hann dvaldi við Haf-
rannsóknastofnunina í Þórshöfn í
Færeyjum og í Bergen 2005 og hætti
störfum 2008.
Einar var um tíma varaformaður
náttúruverndarsamtakanna Líf og
land. Hann ritaði mikið í dagblöð og
tímarit um stjórnun fiskveiða og
ástand fiskistofna. Á ráðstefnu um
stjórnun fiskveiða 1979 hélt Einar því
fram að ástand þorkstofnsins væri
mun verra en almennt var þá talið og
á ráðstefnu tíu árum síðar setti hann
fram tilgátuna um samband milli
styrkleika stórþorska og klak-
stærðar.
„Ég hef gagnrýnt Hafrannsókna-
stofnunina fyrir að leggja til allt of
mikla sókn í stofnana. Sóknin mætti
alls ekki ekki vera meiri en náttúru-
ágætisaðstöðu til sumardvalar.
Þarna höfum við plantað mörgum
trjám og ræktum svolítið grænmeti
og höfum meira að segja hænur hjá
okkur á sumrin.
Þetta er útiverustaður fremur en
heilsárs sumarhús en við komum
ekki oft þangað á veturna. Við viljum
þá heldur vera bara inni í okkar hlýja
Einar Júlíusson eðlisfræðingur – 80 ára
Í faðmi fjölskyldunnar Einar, Valfríður, börn, tengdabörn og barnabörn heima í Breiðholti árið 2021.
Úr geimrannsóknum í fiskifræði
Hjónin Borg Inkanna, Machu Picchu, heimsótt árið 2007. Afmælisbarnið Landnám í Grímsnesi árið 2005.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Hákon Guðbjarts-
son er fæddur 17. janúar 2020
kl. 00.06 á Landspítalanum.
Foreldrar hans eru Hrafnhildur
Marta Guðmundsdóttir og
Guðbjartur Hákonarson.
Nýr borgari
Er aftur kominn í framleiðslu
Klúbbstóllinn var framleiddur af
Stálhúsgögnum frá árinu 1959 til
ársins 2005.
Nú hefur Sólóhúsgögn, með leyfi
Stálhúsgagna, tekið við framleiðslunni
og er þessi klassíski stóll því aftur
fáanlegur.
Klúbbstóllinn
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is