Morgunblaðið - 01.04.2021, Page 25

Morgunblaðið - 01.04.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021 „EN SVO SPURÐI LÖGGAN OKKUR HVORT VIÐ VISSUM UM EINHVERN SEM EKKI VILDI SKAÐA ÞIG.“ „ÉG FÓR TVEIMUR STUNDUM FYRR Á FÆTUR TIL ÞESS AÐ SÆKJA UM ÞETTA STARF!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... oft á hraðferð. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG FINN EKKI NÝJA SÍMANN MINN ÞIÐ VERÐIÐ AÐ SKILA JÓNI SÍMANUM EN VIÐ ERUM ENN AÐ HORFA Á MYNDINA VIÐ HÖFUM ALDREI SÉÐ HANA Á BREIÐTJALDI! ÚFF! ÉG ER DAUÐÞREYTT! ÉG SKIL ÞAÐ EKKI … BLÁR Á AÐ VERA SVO AFSLAPPANDI LITUR! húsi í Breiðholtinu, fara í leikhús og á tónleika eða horfa á óperur í heima- bíói okkar. Fá yndislegu barnabörn- in okkar niður til okkar til að stytta okkur stundirnar, en þau búa fyrir ofan okkur í sama húsi. Þau koma svo oft með okkur eða til okkar í sveitina á sumrin svo þetta er hið ljúfa líf. Undanfarna vetur höfum skotist til Kanaríeyja til að stytta að- eins veturinn. Myrkrið og sólarleysið fer ekkert allt of vel í mig, en konan kveikir þá bara marglit jólaljós úti um allt og er alltaf í jólaskapi.“ Fjölskylda Kona Einars er Valfríður Gísla- dóttir, f. 23.6. 1944, kennari. For- eldrar Valfríðar eru Gísli Gíslason, f. 9.4. 1909, d. 29.9. 1985, gjaldkeri við Landssmiðjuna, og Áslaug Benja- mínsdóttir, f. 10.9. 1918, d. 9.8. 1995, símavörður hjá Reykjavíkurborg. Börn Einars og Valfríðar eru 1) Gísli Einarsson, f. 20.4. 1968, fram- kvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík. Sambýliskona hans er Rakel Ósk Þorgeirsdóttir, f. 11.3. 1986, há- skólanemi; 2) Júlíus Karl Einarsson, f. 17.11. 1977, óperusöngvari, búsett- ur í Reykjavík. Eiginkona hans er Elín Smáradóttir, f. 26.9. 1977, sýn- ingarstjóri. Börn þeirra eru Val- fríður Helga Júlíusdóttir, f. 10.1. 2012, og Áslaug Brynhildur Júl- íusdóttir, f. 27.4. 2015; 3) Áslaug Ein- arsdóttir, f. 2.1. 1985, fram- kvæmdastýra, búsett í Reykjavík. Eiginmaður hennar er Nicholas Robinson, f. 25.1. 1983, grænmet- isbóndi. Dóttir þeirra er Freyja Vallí Áslaugardóttir Robinson, f. 16.12. 2020. Systkini Einars eru Sigríður, f. 23.4. 1944, fv. skrifstofumaður, bú- sett í Reykjavík; Jón, f. 21.4. 1947, tæknifræðingur og fv. bóndi á Mýr- um í Skriðdal, búsettur á Egils- stöðum; Áslaug, f. 10.9. 1950, kenn- ari, búsett á Seltjarnarnesi; Björn, f. 16.12. 1951, búfræðingur og yfirverk- stjóri garðyrkju hjá Reykjavík- urborg. Foreldrar Einars voru Júlíus Jónsson, f. 6.9. 1911, d. 14.7. 1985, verkstjóri hjá ÁTVR í Reykjavík, og Ingibjörg Einarsdóttir, f. 10.9. 1914, 14.6. 2008, húsmóðir í Reykjavík. Einar Júlíusson Ástríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og Reykjavík Sveinbjörn Stefánsson sjómaður og smiður í Hafnarfirði og Reykjavík Ágústa Sveinbjarnardóttir húsfreyja í Reykjavík Einar Hróbjartsson póstfulltrúi í Reykjavík Ingibjörg Einarsdóttir húsmóðir í Reykjavík Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja í Húsum og Reykjavík Hróbjartur Ólafsson bóndi í Húsum í Holtum, Rang., síðar í Reykjavík Ástrún Friðriksdóttir húsfreyja á Þverfelli Björn Sveinbjörnsson bóndi á Þverfelli í Lundarreykjadal Sigríður Björnsdóttir húsfreyja í Miðbæ Jón Björnsson bóndi í Miðbæ í Norðfirði Helga Hildibrandsdóttir húsfreyja í Miðbæ Björn Jónsson bóndi í Miðbæ Úr frændgarði Einars Júlíussonar Júlíus Jónsson verkstjóri í Reykjavík Þar sem páskahelgin er að gangaí garð greip ég ljóðmæli séra Matthíasar Jochumssonar og fletti upp þar sem heitir ýmisleg kvæði og vísur. Þar varð þessi staka fyrst fyrir mér: List er það líka og vinna, að ljóða dálítið minna, og melting meira sinna í maganum okkar hinna. Og síðan kemur: Þótt þú hugsir, leitir lags, lesir talir, skrifir, nýtirðu aldrei neins til gagns nema Guði lifir. Matthías orti til bróðursona sinna í Lærða skólanum 1882: Heyrðu Mangi, Matti, Jón, miklu sterku andans ljón, – heyrið mína hjartans bón; hættið þið nú að vera flón! Matti, lærðu mathematík, Mangi, lestu póetík, gleymdu ei, Nonni, grammatík, en gutlið ei við pólitík. Lærið guðspjöll Gyðinga, göfuglyndi Araba, snilld og fegurð Forngrikkja, frægð og hreysti Rómverja. Hugarfjör af Hómeró, hreinan stíl af Ciceró, föðurlandsást af Fabíó og fræðin eftir Lútheró. Tímans not af Títusi, trúræknina af Ingólfi, verkasnilld af Völundi og vit af Karlamagnúsi. Hreystiþrótt af Herkúli, heilagleik af Mósesi, orðfærið af Aroni, andans fjör af Pindari. Hér verða kaflaskil í kvæðinu og heldur áfram með grískri tilvitnun sem útleggst „þekktu sjálfan þig“: „Gnóþi sauton“ Grikkinn kvað; gott er að læra og meira en það; en hvað er list og lærdómsþvaður ef lærirðu ekki að vera maður. Úr bréfi til Herdísar Benedikt- sen: Besta dyggð er bindindi, besta vopnið kærleiki, besta hyggni hreinskilni, hæsta speki guðrækni. Úr bréfi til Páls Ólafssonar: Litla Brún um torg og tún tekst mér skást að bera, í gær á sund þann hófahund hleypti ég Rangá þvera. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Svo kvað séra Matthías PÁ fy 110 PÁ AT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.