Morgunblaðið - 01.04.2021, Page 26

Morgunblaðið - 01.04.2021, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021 Undankeppni HM karla J-RIÐILL: Armenía – Rúmenía ................................. 3:2 Liechtenstein – Ísland ............................. 1:4 Þýskaland – Norður-Makedónía ............ 1:2 Staðan: Armenía 3 3 0 0 6:2 9 N-Makedónía 3 2 0 1 9:4 6 Þýskaland 3 2 0 1 5:2 6 Rúmenía 3 1 0 2 5:6 3 Ísland 3 1 0 2 4:6 3 Liechtenstein 3 0 0 3 1:10 0 B-RIÐILL: Grikkland – Georgía................................. 1:1 Spánn – Kósóvó ........................................ 3:1 _ Spánn 7, Svíþjóð 6, Grikkland 2, Georgía 1, Kósóvó 0. C-RIÐILL: Litháen – Ítalía ......................................... 0:2 Norður-Írland – Búlgaría........................ 0:0 _ Ítalía 9, Sviss 6, Norður-Írland 1, Búlgarí 1, Litháen 0. D-RIÐILL: Bosnía – Frakkland.................................. 0:1 Úkraína – Kasakstan ............................... 1:1 _ Frakkland 7, Úkraína 3, Finnland 2, Bosnía 1, Kasakstan 1. F-RIÐILL: Austurríki – Danmörk ............................. 0:4 Moldóva – Ísrael....................................... 1:4 Skotland – Færeyjar................................ 4:0 _ Danmörk 9, Skotland 5, Ísrael 4, Aust- urríki 4, Færeyjar 1, Moldóva 1. I-RIÐILL: Andorra – Ungverjaland ......................... 1:4 _ Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmdi. England – Pólland.................................... 2:1 San Marínó – Albanía............................... 0:2 _ England 9, Ungverjaland 7, Albanía 6, Pólland 4, Andorra 0, San Marínó 0. Vináttulandsleikir karla Svíþjóð – Eistland .................................... 1:0 Sviss – Finnland ....................................... 3:2 EM U21 árs karla C-RIÐILL: Danmörk – Rússland ............................... 3:0 Ísland – Frakkland................................... 0:2 Lokastaðan: Danmörk 3 3 0 0 6:0 9 Frakkland 3 2 0 1 4:1 6 Rússland 3 1 0 2 4:6 3 Ísland 3 0 0 3 1:8 0 Meistaradeild kvenna 8-liða úrslit, seinni leikir: Wolfsburg – Chelsea................................ 0:3 _ Chelsea áfram, 5:1 samanlagt. Manchester City – Barcelona ................. 2:1 _ Barcelona áfram, 4:2 samanlagt. Þýskaland Eintracht Frankfurt – Duisburg ........... 3:0 - Alexandra Jóhannsdóttir var ekki í hópnum hjá Frankfurt. 4.$--3795.$ Meistaradeild karla 16-liða úrslit, fyrri leikir: Nantes – Kielce.................................... 24:25 - Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er frá keppni vegna meiðsla. Pick Szeged – Kiel ................................ 28:33 Þýskaland Leverkusen – Metzingen .................... 24:24 - Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Leverkusen. _ Efstu lið: Dortmund 48, Bietigheim 39, Blomberg-Lippe 36, Metzingen 35, Thür- inger 33, Neckarsulmer 33, Bensheim- Auerebach 27, Leverkusen 22. B-deild: Konstanz – Bietigheim ....................... 27:23 - Aron Rafn Eðvarðsson varði 3 skot (20%) í marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. Gummersbach – Wilhelmshavener ... 32:28 - Elliði Snær Viðarsson lék ekki með Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið sem er með 37 stig í öðru sæti en Hamburg er með 39 stig á toppnum. %$.62)0-# Evrópudeildin Valencia – Olympiacos ....................... 79:88 - Martin Hermannsson lék ekki með Olympiacos vegna meiðsla. Spánn B-deild: Girona – Ourense ................................ 89:77 - Kári Jónsson skoraði 7 stig fyrir Girona, tók tvö fráköst og átti eina stoðsendingu á 18 mínútum. Lið hans er efst í neðri hlut- anum þar sem leikið er um sæti 10 til 18. NBA-deildin Washington – Charlotte................... 104:114 Denver – Philadelphia........................ 104:95 LA Clippers – Orlando....................... 96:103 Phoenix – Atlanta ............................. 117:110 4"5'*2)0-# Vesna Elísa Smiljkovic, ein leikja- hæsta knattspyrnukona landsins, hefur lagt skóna á hilluna eftir 25 ára feril í meistaraflokki í Serbíu og á Íslandi. Hún hefur leikið á Ís- landi frá 2005 með Keflavík, Þór/ KA, ÍBV, Val og Fylki og er áttunda leikjahæst í sögu efstu deildar með 229 leiki og sú 21. markahæsta með 84 mörk. Hún lék alla 15 leiki Fylk- is í deildinni á síðasta tímabili. Vesna, sem er 38 ára gömul og með tvöfalt ríkisfang, var landsliðsfyr- irliði Serbíu um árabil og lék 77 landsleiki. Hætt eftir 25 ár í meistaraflokki Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hlíðarendi Vesna Elísa Smiljkovic lék með Val frá 2015 til 2019. Átta leikmenn íslenska kvenna- landsliðsins í knattspyrnu, sem leika með íslenskum liðum, þurfa að óbreyttu að dvelja í fimm daga í sóttvarnahúsi eftir að hafa tekið þátt í tveimur vináttulandsleikjum á Ítalíu 10. og 13. apríl. Klara Bjart- marz framkvæmdastjóri KSÍ stað- festi þetta við mbl.is í dag. Ítalía er sem stendur á lista yfir skilgreind áhættusvæði. Í gær var staðfest að leiknir yrðu tveir leikir við Ítali í Flórens en áður hafði ekki verið ljóst hverjir yrðu mótherjarnir í fyrri leiknum í ferðinni. Morgunblaðið/Eggert Heimkoma Elín Metta Jensen er ein þeirra sem þarf að fara í sóttkví. Í sóttvarnahús eftir Ítalíuferð ÍSLAND – FRAKKLAND 0:2 0:1 Matteo Guendouzi 17. 0:2 Odsonne Édouard 38. M Andri Fannar Baldursson Mikael Anderson Brynjólfur Andersen Willumsson Kolbeinn Þórðarson Gul spjöld: Kolbeinn F. 12., Claude- Maurice 65. Dómari: Lawrence Visser, Belgíu. Áhorfendur: Engir. _ Lið Íslands: (5-3-2) Mark: Elías Rafn Ólafsson. Vörn: Valgeir Lunddal Frið- riksson, Finnur Tómas Pálmason, Ari Leifsson (Alex Þór Hauksson 85), Ró- bert Orri Þorkelsson, Kolbeinn Finns- son (Stefán Teitur Þórðarson 85). Miðja: Mikael Anderson, Andri Fannar Bald- ursson, Kolbeinn Þórðarson (Þórir Jó- hann Helgason 74). Sókn: Brynjólfur Willumsson (Hörður Ingi Gunnarsson 85), Valdimar Þór Ingimundarson (Bjarki Steinn Bjarkason 74). _ Ari Leifsson var fyrirliði Íslands í sín- um síðasta leik í þessum aldursflokki. Hann lék jafnframt sinn 20. landsleik og er níundi Íslendingurinn frá upphafi sem nær þeim leikjafjölda fyrir 21 árs landsliðið. _ Ísak Óli Ólafsson lék ekki vegna meiðsla og þá voru Sveinn Aron Guð- johnsen, Jón Dagur Þorsteinsson, Will- um Þór Willumsson og Ísak Bergmann Jóhannesson farnir til Liechtenstein til móts við A-landsliðið. EM U21 ÁRS Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslenska U21 árs landslið karla í knattspyrnu hefur lokið leik í loka- keppni EM 2021 í Slóveníu og Ung- verjalandi. Ísland átti fá svör við stórliði Frakklands í lokaumferð C-riðils lokakeppninnar þegar liðin mættust í Györ í Ungverjalandi í gær en leikn- um lauk með 2:0-sigri Frakka. Frakkar gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik en franski fyrirliðinn Matteo Guendouzi kom liðinu yfir strax á 17. mínútu með fríu skoti úr teignum eft- ir varnarmistök íslenska liðsins. Odsonne Édouard tvöfaldaði for- ystu franska liðsins á 38. mínútu eftir einfalda stungusendingu en Édouard vippaði boltanum afar snyrtilega yfir Elías Rafn Ólafsson í marki íslenska liðsins. Þrátt fyrir 2:0-tap voru Frakkar með tögl og hagldir á leiknum allan tímann og stjórnuðu ferðinni frá A til Ö. Efniviðurinn til staðar Andri Fannar Baldursson var besti leikmaður íslenska liðsins en hann stýrði sóknarleik Íslands af mikilli yf- irvegun og átti varla misheppnaða sendingu í leiknum. Þá hefðu varnarmenn íslenska liðs- ins klárlega mátt sýna meiri hugrekki í að koma boltanum oftar á miðju- manninn enda komu hættulegustu sóknir Íslands í leiknum eftir lag- legar sendingar frá Andra Fannari sem hefði ef til vill mátt fá mun fleiri mínútur á mótinu. Það er óhætt að segja að íslenska liðið hafi mætt ofjörlum sínum í þess- ari lokakeppni en liðið var einfaldlega skrefi á eftir í öllum þremur leikjum sínum á mótinu, gegn Rússlandi, Danmörku og Frakklandi. Þrjú töp í þremur leikjum og að- eins eitt mark skorað gegn átta fengnum á sig segir í raun allt sem segja þarf um lokakeppnina 2021. Jákvæðu punktarnir eru hins veg- ar þeir að Elías Rafn Ólafsson, Finn- ur Tómas Pálmason, Valgeir Lunddal Friðriksson, Róbert Orri Þorkelsson, Andri Fannar Baldursson, Brynj- ólfur Andersen Willumsson og Kol- beinn Þórðarson eru allir gjaldgengir með U21 árs landsliðinu í næstu und- ankeppni EM 2023 sem hófst í lok mars. Þeir sjö voru allir í byrjunarliðinu gegn Frökkum og þá komu þeir Bjarki Steinn Bjarkason og Þórir Jó- hann Helgason báðir inn á í leiknum en þeir eru einnig gjaldgengir í næstu undankeppni. Þjálfarinn Davíð Snorri Jónasson var ekki í öfundsverðu hlutverki að þurfa að stýra sínum fyrstu leikjum sem þjálfari liðsins í lokakeppni EM gegn sterkustu þjóðum Evrópu. Hann fær góðan tíma til að und- irbúa sitt lið fyrir komandi und- ankeppni sem hefst hjá íslenska lið- inu gegn Hvíta-Rússlandi á útivelli 1. september en Ísland leikur í 4. riðli undankeppninnar ásamt Kýpur, Grikklandi, Hvíta-Rússlandi, Liech- tenstein og Portúgal. Þjálfarinn er reynslunni ríkari eftir erfitt mót og þá ætti hann að vera far- inn að þekkja leikmenn liðsins ágæt- lega enda er það oft þannig að menn sýna sinn raunverulega karakter þegar í harðbakkann slær, líkt og raunin varð í lokakeppni EM. Reynslunni ríkari eftir erfitt mót Morgunblaðið/Eggert Sterkur Hinn nítján ára gamli Andri Fannar Baldursson var bestur íslensku strákanna og er hér í hörðum slag við Frakkana í leiknum í Györ. - U21 árs landsliðið mætti ofjörlum sínum í lokakeppni EM í Ungverjalandi Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er komin í íslenska kvennalandsliðið í handknattleik á nýjan leik en hún er í 21 manns æfingahópi sem Arnar Pét- ursson landsliðsþjálfari tilkynnti í gær. Sá hópur býr sig undir umspilsleikina gegn Slóveníu um sæti í lokakeppni heimsmeist- aramótsins en leikið verður 16. og 21. apríl, fyrst í Slóveníu og síðan á Ásvöllum í Hafnarfirði. Anna er í hópi reyndustu handknattleikskvenna landsins en hún lék sinn 101. og síðasta landsleik gegn Sviss fyrir fimm árum. Frá þeim tíma hefur hún tvívegis lagt handboltaskóna á hilluna, í seinna skiptið í apríl 2020, og hafði þá ekkert spil- að með Val á tímabilinu 2019-20. Hún tók þá hins vegar fram á nýjan leik nú í febrúar og hafði leikið tvo leiki með Val, undir stjórn Ágústs Jóhanns- sonar, aðstoðarþjálfara landsliðsins, áður en gert var hlé á Íslandsmótinu nú um miðjan mars. Steinunn Björnsdóttir er úr leik eftir að hafa slitið krossband í hné í Norður-Makedóníu á dög- unum en landsliðshópurinn sem Arnar tilkynnti í gær er þannig skipaður: Markverðir: Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Vendsyssel ............ 28/0 Katrín Ósk Magnúsdóttir, Fram........................ 5/0 Saga Sif Gísladóttir, Val ...................................... 2/0 Aðrir leikmenn: Andrea Jacobsen, Kristianstad ...................... 22/19 Anna Úrsula Guðmundsdóttir, Val............. 101/221 Ásdís Guðmundsdóttir, KA/Þór ......................... 5/9 Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV .................... 61/125 Díana Dögg Magnúsdóttir, Sachsen .............. 22/19 Eva Björk Davíðsdóttir, Stjörnunni............... 39/32 Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV ............................ 3/4 Helena Rut Örvarsdóttir, Stjörnunni ............ 40/79 Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV......... 37/68 Karen Knútsdóttir, Fram............................ 102/369 Lovísa Thompson, Val ..................................... 22/41 Mariam Eradze, Val............................................. 1/0 Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram ...................... 29/36 Rut Jónsdóttir, KA/Þór ................................. 97/205 Sigríður Hauksdóttir, HK............................... 19/43 Sunna Jónsdóttir, ÍBV..................................... 58/43 Thea Imani Sturludóttir, Val .......................... 43/55 Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK ........................... 3/5 Anna í landsliðið eftir fimm ára hlé

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.