Morgunblaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Trine Dyrholm mun fara með titil-
hlutverkið í sjónvarpsseríunni
Danskan konan í leikstjórn Bene-
dikts Erlingssonar, sem hann skrif-
aði í samvinnu við Ólaf Egil Egils-
son. „Það stefnir í að upptökur geti
hafist í Reykjavík næsta vor á
Dönsku konunni sem er sex þátta
sjónvarpssería sem RÚV og DR
koma að ásamt öðrum.
Líkt og titillinn gefur til kynna
fjallar serían um danska konu sem
flytur til Íslands og tekur yfir fjöl-
býlishús þar sem hún svífst einskis
til að kenna nágrönnum sínum
skandinavíska hugsun. Ég vil taka
það sérstaklega fram að þetta er
ekki uppgjör við hjónaband mitt við
mína yndislegu dönsku fyrrverandi
eiginkonu,“ segir Benedikt, sem um
árabil var giftur leikhúslistakonunni
Charlotte Bøving.
Gætum lært af Dönum að
setja okkur nýja stjórnarskrá
„Ég skrifaði hlutverkið fyrir
hana, en á endanum sagði hún sig
frá verkefninu. Í hennar stað kemur
Trine Dyrholm, sem er mjög spennt
fyrir þessu verkefni. Hún hafði séð
Kona fer í stríð og kveikti strax á
Dönsku konunni þegar hún las
handritið,“ segir Benedikt og lýsir
seríunni sem leyniþjónustudrama.
„Þarna lýstur saman dönsku,
sænsku og íslensku leyniþjónust-
unni. Þetta er mikil stúdía á öllu því
fallega og góða sem við höfum lært
af Dönum og einnig því sem við ætt-
um að læra en höfum kannski átt
erfitt með, eins og samvinnu, sam-
ábyrgð og því að búa sér til stjórn-
arskrá og setja sér reglur og fara
eftir þeim – sem okkur finnst óþol-
andi. Danska konan kann sinn Kier-
kegaard, Grundtvig og Brandes og
fylgir þessum dönsku hugsjónum,
en vandi hennar er að hún svífst
einskis þar sem hún trúir því að til-
gangurinn helgi meðalið.“
Spurður hvers vegna sjónvarps-
sería hafi orðið fyrir valinu sem frá-
sagnarmáti en ekki kvikmynd svar-
ar Benedikt: „Það er mikil gróska í
sjónvarpsþáttagerð um þessar
mundir og ein ástæðan er ekki síst
efnahagsleg.
Hörmungarklám og popp
Virðiskeðjan í evrópskri kvik-
myndagerð hefur verið að brotna
síðustu árin með stafrænni tækni
þar sem art house-myndum er stolið
og dreift. Kvikmyndahúsin börðust
því í bökkum áður en kófið brast á,
en húsin hafa nú staðið tóm í á ann-
að ár þannig að lindin er alveg þorn-
uð upp. Bíóið er komið að fótum
fram,“ segir Benedikt og tekur fram
að hann muni í væntanlegri sjón-
varpsseríu bjóða upp á spennu, ást-
ir, kynlíf, dauða, ofbeldi og
hörmungarklám. „Og ekki má
gleyma músíkinni. Ég lofa flottum
popplögum frá áttunda áratugnum –
auðvitað dönskum lögum,“ segir
Benedikt að lokum.
Þess má geta að Benedikt hefur
tvívegis hlotið Kvikmyndaverðlaun
Norðurlandaráðs, fyrst árið 2014
fyrir Hross í oss og aftur árið 2018
fyrir Kona fer í stríð. Handritið að
seinni myndinni skrifaði hann í sam-
vinnu við Ólaf Egil Egilsson.
Ljósmynd/Det danske filminstitut
Stjarna Trine Dyrholm er ein
þekktasta leikkona Dana. Frá því
hún hóf ferilinn fyrir 30 árum hefur
hún leikið um 70 hlutverk ýmist í
kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum.
Danska konan leikin af Trine Dyrholm
- Benedikt Erlingsson leikstjóri og
höfundur reiknar með að tökur á
sjónvarpsseríunni hefjist næsta vor
Morgunblaðið/Eggert
Margverðlaunaður Benedikt
Erlingsson hefur m.a. tvisvar hlotið
Kvikmyndaverðlaun Norðurlanda-
ráðs, fyrst 2014 fyrir Hross í oss og
síðan 2018 fyrir Kona fer í stríð.
Úthlutað hefur verið úr Tónlistar-
sjóði Rótarý á Íslandi styrk til tón-
listarnema sem verið hafa í meist-
aranámi og þykja skara fram úr.
Styrkinn í ár hljóta Bryndís Guð-
jónsdóttir sópransöngkona og Erna
Vala Arnardóttir píanóleikari og
hlýtur hvor þeirra 800 þúsund kr.
Alls bárust 26 umsóknir í ár, 11 frá
körlum og 15 frá konum.
„Tónlistarsjóðurinn var stofn-
aður árið 2005 og hefur síðan verið
úthlutað úr honum árlega, ýmist til
eins eða tveggja styrkþega í senn.
Styrknum er ætlað að veita ungu
tónlistarfólki viðurkenningu í formi
veglegs fjárstyrks til frekari
náms,“ segir í tilkynningu frá
sjóðnum. Stjórn sjóðsins skipa
Heiðrún Hákonardóttir, Jón Hlöð-
ver Áskelsson, Kjartan Sigurjóns-
son, Sveinn Hjörtur Hjartarson og
Stefán Baldursson formaður.
„Bryndís Guðjónsdóttir er 27 ára.
Hún stundaði söngnám við Lista-
háskóla Íslands en hélt síðan til
Tónlistarháskólans Mozarteum í
Salzburg þar sem hún lauk bakk-
alárprófi 2019. Hún hélt þar áfram
meistaranámi og mun ljúka því á
þessu ári. Bryndís hefur hlotið
fjölda viðurkenninga og verðlauna
og hún hefur komið fram bæði í
óperusýningum og á tónleikum í
Austurríki, Þýskalandi og Ítalíu á
síðustu misserum. Bryndís var ein
af sigurvegurum keppninnar Ungir
einleikarar 2017 á vegum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands og söng með
hljómsveitinni 2018 og í 9. sinfóníu
Beethovens með Ungsveit Sinfóní-
unnar 2019. Hún er komin í úrslit
hinnar frægu Belvedere-söngvara-
keppni sem verður haldin síðar á
þessu ári og hefur verið boðið að
syngja Næturdrottninguna á næsta
ári bæði á tónleikum Sinfóníunnar
og í uppfærslu í München.
Erna Vala Arnardóttir er 25 ára.
Hún lauk bakkalárprófi í píanóleik
frá Listaháskóla Íslands 2017 og
lauk síðan meistaragráðu frá
Sibelíusarakademíunni í Helsinki. Í
báðum þessum háskólum hefur hún
einnig lagt stund á tónsmíðar. Hún
hefur komið fram sem píanóleikari
á ýmsum tónlistarhátíðum í Evr-
ópu, m.a. á Spáni, Frakklandi, Ítal-
íu og í London og verið einleikari
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hún hefur unnið til fjölda verð-
launa og viðurkenninga bæði heima
og erlendis. Hún sigraði í EPTA-
píanókeppninni á Íslandi og hlaut
1.verðlaun í keppninni Ungir ein-
leikarar. Árið 2018 hlaut hún heið-
ursorðuna Hvítu rósina, sem forseti
Finnlands veitir. Erna Vala stundar
nú doktorsnám í píanóleik við USC
Thornton-tónlistarháskólann í Los
Angeles,“ segir í tilkynningu.
Til stóð að styrkþegarnir kæmu
fram á árlegum Rótarýtónleikum í
Hofi á Akureyri á skírdag en vegna
sóttvarnatakmarkana verður að
fresta þeim um óákveðinn tíma.
Tónlistarnemar sem þykja skara fram úr
- Bryndís Guðjónsdóttir og Erna Vala
Arnardóttir hljóta Rótarýstyrkinn í ár
Hæfileikaríkar Bryndís Guðjónsdóttir og Erna Vala Arnardóttir.
GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
VIÐ MÆTUM AFTUR
15. APRÍL
EÐA FYRR EF AÐ COVID LEYFIR.
Risa Páskaknús á ykkur öll og
hlökkum til að hitta alla í bíó aftur.
VÆ
NT
AN
LEG
Í B
ÍÓ
VÆNTANLEG Í BÍÓ
ÓSKARS-
TILNEFNINGA
MYNDIRNAR
MÆTA AFTUR