Morgunblaðið - 14.04.2021, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 4. A P R Í L 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 86. tölublað . 109. árgangur .
VELTA KEMI
JÓKST MJÖG
Í FARALDRINUM
HIN GULLNA
BORG LÚXOR
FUNDIN
ÍSLENSKA LIÐIÐ
KLÁRLEGA Á
RÉTTRI LEIÐ
FORNLEIFAFUNDUR Í EGYPTALANDI 25 ÍTALÍA-ÍSLAND 23VIÐSKIPTAMOGGINN
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
e
v
a
0
2
8
0
6
2
Gunnar Már Sigurfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Icelandair Cargo,
segir óhappið í Súez-skurðinum hafa
aukið spennuna í fraktflugi. Verð
fyrir fraktina hafi verið á uppleið
vegna framboðsbrests af völdum
kórónuveirufaraldursins.
Gunnar Már segir verð á flugfrakt
milli Bandaríkjanna og Evrópu hafa
hækkað um allt að 70%. Þessi þróun
hafi haft í för með sér að arðbært
varð fyrir Icelandair Cargo að fljúga
með frakt í flutningavélum til
Bandaríkjanna. Tekjur Icelandair
Cargo hafi aukist um 10% milli ár-
anna 2019 og 2020.
Spurður hvort ástandið muni vara
fram á haustið segir hann erfitt að
svara því. „Það veit enginn. Sumir
vilja meina að þetta vari í nokkur ár
en aðrir vilja meina að þetta verði
búið í haust,“ segir Gunnar Már.
Rætt er við hann í Viðskipta-
Mogganum í dag.
Mikil eftirspurn leiðir til
verðhækkana á flugfrakt
Ljósmynd/Icelandair
Skapar tækifæri Icelandair Cargo
hefur aukið umsvifin í faraldrinum.
foreldrar kornabarna skulu láta börn sín sofa
í vagni innandyra. Helgi Guðjónsson hjá heil-
brigðiseftirlitinu segir við Morgunblaðið að ef
brennisteinsdíoxíð í andrúmsloftinu fer yfir
350 míkrógrömm á rúmmetra geti viðkvæmir
fundið fyrir einkennum í öndunarfærum. Fari
magn brennisteinsdíoxíðs yfir 2.600 míkró-
grömm á rúmmetra fari jafnvel heilbrigðir
einstaklingar að finna fyrir einkennum.
Fylgjast má með mælingum á vef Umhverf-
Oddur Þórðarson
Guðni Einarsson
Líklegt er að brennisteinsdíoxíð streymi frá
eldgosinu í Geldingadölum yfir höfuðborg-
arsvæðið í dag. Heilbrigðiseftirlit Reykjavík-
ur varar þá við sem eru viðkvæmir fyrir.
Lungna- og hjartasjúklingum er ráðlagt að
hafa lyf sín tiltæk, astmasjúklingar eru beðn-
ir um að fylgjast með loftgæðamælingum og
fræðigrein í vísindaritinu Nature Comm-
unications.
Ilyinskaya segir í samtali við blaðið að gas-
mengun sé ekki eins mikil vegna goss í Geld-
ingadölum og var í Holuhrauni. Hins vegar er
gosið í Geldingadölum nær byggð. Hún bend-
ir einnig á „ósýnilega“ mengun sem spár
gerðu ekki ráð fyrir.
isstofnunar, þar sem einnig er að finna ráð til
þeirra sem eru viðkvæmir fyrir.
Gas frá Holuhrauni var heilsuspillandi
Eldgosið í Holuhrauni 2014-2105 hafði í för
með sér aukningu á tíðni öndunarfærasjúk-
dóma, vegna brennisteinsdíoxíðmengunar.
Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem dr.
Evgenia Ilyinskaya, dósent í eldfjallafræði
við Leeds-háskóla, leiddi og kynnti í nýrri
Spúa gasi yfir borgina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
- Heilbrigðiseftirlitið varar við - Rannsókn sýnir aukningu öndunarfærasjúkdóma eftir gos í Holuhrauni
MEldfjallagasið hafði áhrif á ... »2, 6, 13
Móða Upp úr
nýju gígaröðinni
streymir eitrað gas
án nokkurs afláts.
_ Sala á ferðavögnum er margföld
miðað við sama tíma í fyrra. Á vef
Samgöngustofu má sjá að það sem
af er þessu ári hafa 90 hjólhýsi ver-
ið nýskráð. Á sama tíma í fyrra, frá
janúar til mars, hafði til sam-
anburðar 21 hjólhýsi verið skráð.
Arnar Barðdal framkvæmda-
stjóri Víkurverks segir í samtali við
ViðskiptaMoggann í dag að salan á
þessu ári sé farin fram úr því síð-
asta, sem var metár. „Það er rosa-
lega mikið að gera og meira en í
fyrra. Það lítur út fyrir að allir nýir
ferðavagnar verði uppseldir í maí-
júní,“ segir Arnar. „Við höfum
mestar áhyggjur af því að verða
með tóma búð í sumar.“
Hann segir að vandinn sé sá að
ferðavagnar séu að verða uppseldir
alls staðar í Evrópu. „Það eru allir
að ferðast innanlands vegna veiru-
faraldursins. Þetta hefur aldrei
verið svona á
þeim þrjátíu ár-
um sem ég hef
verið í þessum
bransa, að það
verði uppselt hjá
framleiðendum
og ekki hægt að
anna eftirspurn.“
Arnar segir að
fyrirtækið sé nú
að panta vagna fyrir næsta ár,
2022.
Húsbíla er ekki lengur hægt að
kaupa hjá fyrirtækinu, enda engir
nýir bílar í boði. „Ef þú pantar í dag
færðu bílinn afhentan eftir 14-16
mánuði.“
Notaðir vagnar seljast líka vel.
„Það er góð sala í þeim einnig. Ég
tek líka eftir að fólk hefur aldrei
verið eins snemma á ferðinni að
leggja inn pantanir.“
Sala ferðavagna margfaldast á milli ára
Arnar Barðdal