Morgunblaðið - 14.04.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 14.04.2021, Qupperneq 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2021 Gos Ljósmyndari Morgunblaðsins náði stórbrotnum myndum af eldgosinu í Geldingadölum á flugi yfir svæðið í gær. Fjögur ný gosop mynduðust í gærmorgun og ekkert lát er á hraunflæðinu. Kristinn Magnússon Hægt en örugglega er að verða til jarð- vegur fyrir tvöfalt heil- brigðiskerfi. Þannig er grafið undan sáttmál- anum um að tryggja öllum jafnan aðgang að nauðsynlegri heilbrigð- isþjónustu óháð efna- hag. Drög að reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjón- ustu sjálfstætt starfandi sér- greinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands er dæmi um hvernig jarðvegurinn er undirbúinn. Réttindi sjúkratryggðra eru lögð til hliðar og aukin ríkisvæð- ing boðuð. Afleiðingin verður þvert á yfirlýst markmið: Kostnaður mun aukast og þjónustan verður verri. Kerfi biðlista festist enn betur í sessi. Þjónusta sjálfstætt starfandi sér- fræðilækna byggist á gömlum grunni sem reistur var árið 1909 þegar fyrsta sjúkrasamlagið var stofnað. Samningur Sjúkratrygg- inga Íslands við sérfræðilækna tók gildi í byrjun árs 2014 en hann rann út árið 2018. Frá þeim tíma hafa samningar ekki tekist og sjálfsagt á hér við hið fornkveðna, að sjaldan veldur einn þegar tveir deila. Sjúkratryggðir – við öll – hljóta að gera þá kröfu jafnt til heilbrigðisyf- irvalda og sérfræðilækna að margra ára þrasi verði lokið með samn- ingum. Hafi aðilar ekki burði til að ná samn- ingum virðist skyn- samlegt að leggja deil- una fyrir sérstakan gerðardóm. Þrátt fyrir samn- ingsleysið hefur réttur sjúklinga til endur- greiðslu verið tryggður með reglugerð. Þessu ætla yfirvöld heilbrigð- ismála að breyta og í raun svipta ákveðna sjúklinga sjúkratrygg- ingum, sem við öll höfum greitt fyrir með sköttum og gjöldum. Með reglugerðinni verður innleidd mis- munun milli fólks eftir því til hvaða sérfræðinga það leitar eftir nauð- synlegri þjónustu. Þeir sem leita til sérfræðinga sem fella sig ekki við einhliða kröfur Sjúkratrygginga verða sviptir sjúkratryggingum – réttinum til endurgreiðslu hluta kostnaðar. Hagsmunir „kerfisins“ Hér ráða því ekki þarfir og rétt- indi hinna sjúkratryggðu. Hags- munir sjúkratryggðra eru lagðir til hliðar til að þjóna hagsmunum „kerfisins“. Í frétt sem birtist á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að Sjúkratryggingum hafi verið falið að „greina hvaða verk sérgreinalækna skuli verða tilvís- unarskyld til framtíðar“. Og til að taka af öll tvímæli um að hverju er stefnt segir orðrétt: „Stofnuninni er einnig falið að gera tillögu til ráðherra um hvaða verk á gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands skuli fella brott með það fyr- ir augum að þjónustan skuli fremur veitt innan opinberra stofnana.“ Sem sagt: Ríkisvæðing heilbrigð- isþjónustunnar er í fullum gangi. Sjálfstæðir læknar eru settir út í kuldann en verst er að það verður al- menningur sem ber kostnaðinn. Val- frelsi í heilbrigðisþjónustu er skert. Stjórn Læknafélags Íslands hefur ítrekað lýst áhyggjum af stöðu sér- hæfðrar heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa. Án samninga sé raun- veruleg hætta á að tvöfalt heilbrigð- iskerfi þróist. Sú stefna sem birtist í reglugerð- ardrögunum verður til þess að þeir sem ekki hafa fjárhagslega burði til að nýta þjónustu sérfræðilækna neyðast til að leita á náðir opinberra sjúkrahúsa og annarra ríkisrekinna heilbrigðisstofnana. Það er hins veg- ar útilokað að opinberar heilbrigð- isstofnanir geti tekið við skjólstæð- ingum sérfræðilækna – næg eru verkefnin fyrir. Lausn „kerfisins“ verður að búa til nýja biðlista, lengja þá sem fyrir eru og jafnvel búa til biðlista eftir að komast á biðlista. Hvaða hagsmunum er verið að þjóna? Heilbrigðisþjónustan versn- ar, kostnaðurinn eykst og lífsgæði landsmanna verða lakari. Fyrirheit án innihalds Sárast er að horfa upp á hvernig skipulega er verið að leggja grunn að tvöföldu heilbrigðiskerfi með einkareknum sjúkratryggingum. Al- menningur verður að sætta sig við þjónustu innan ríkisrekins trygg- ingakerfis á sama tíma og efnafólk fær skjóta og góða þjónustu sjálf- stætt starfandi lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna. Fyrirheitið um að allir eigi jafnan og greiðan að- gang að nauðsynlegri heilbrigð- isþjónustu óháð efnahag verður án innihalds. Ég óttast að þá bresti ým- islegt annað í íslenskri þjóðarsál. Tregða heilbrigðisyfirvalda til að nýta kosti einkaframtaksins í heil- brigðisþjónustu og vinna að sam- þættingu og samvinnu opinbers rekstrar og sjálfstætt starfandi aðila er óskiljanleg. Dregið er úr val- möguleikum fólks, unnið gegn hag- kvæmri nýtingu fjármuna og álag á opinber sjúkrahús er aukið. Í sjálfheldu Hægt og bítandi er verið að hneppa heilbrigðisþjónustuna í fjötra fábreytileika og aukinna út- gjalda. Við munum eiga stöðugt erf- iðara með að fylgja öðrum þjóðum eftir á sviði heilbrigðisvísinda. Sam- keppnishæfni okkar við að laða til landsins vel menntað og hæfi- leikaríkt heilbrigðisstarfsfólk, eftir langt sérnám, verður verri. Ein stærsta áskorun sem við stöndum frammi fyrir á komandi ár- um er að tryggja mönnun heilbrigð- iskerfisins – að hæfileikaríkt starfs- fólk á öllum sviðum fáist til starfa innan íslenska heilbrigðiskerfisins. Við erum og verðum í harðri sam- keppni við aðrar þjóðir um að laða til okkar ungt fólk með sérfræðiþekk- ingu, sem er tilbúið til að miðla af þekkingu sinni og þjónusta okkur þegar þess er þörf. Læknar, hjúkr- unarfræðingar, sjúkraþjálfarar, líf- fræðingar, lyfjafræðingar, sálfræð- ingar og aðrir sérhæfðir heilbrigðisstarfsmenn eru alþjóðlegt vinnuafl – heimurinn er þeirra vett- vangur. Það umhverfi sem er verið að búa heilbrigðisstarfsfólki hér á Íslandi er ekki sérlega aðlaðandi. Þegar yfirvöld skilja ekki að læknavísindin eru þekkingariðnaður sem nærist á fjölbreytileika, ekki síst í rekstrarformi, er sú hætta raunveruleg að í stað framþróunar verði stöðnun. Ríkisvæðing elur ekki af sér nýsköpun, tryggir ekki lífs- nauðsynlega nýliðun, gengur gegn atvinnufrelsi heilbrigðisstarfsmanna og kannski það sem er verst; dregur úr þjónustu og öryggi sjúklinga. Er þetta sú framtíðarsýn sem ætl- unin er að kynna landsmönnum fyrir komandi alþingiskosningar? Eftir Óla Björn Kárason » Sem sagt: Ríkis- væðing heilbrigðis- þjónustunnar er í fullum gangi. Sjálfstæðir læknar eru settir út í kuldann en verst er að almenningur ber kostnaðinn. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Byggt undir tvöfalt heilbrigðiskerfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.