Morgunblaðið - 14.04.2021, Qupperneq 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2021
Gos Ljósmyndari Morgunblaðsins náði stórbrotnum myndum af eldgosinu í Geldingadölum á flugi yfir svæðið í gær. Fjögur ný gosop mynduðust í gærmorgun og ekkert lát er á hraunflæðinu.
Kristinn Magnússon
Hægt en örugglega
er að verða til jarð-
vegur fyrir tvöfalt heil-
brigðiskerfi. Þannig er
grafið undan sáttmál-
anum um að tryggja
öllum jafnan aðgang að
nauðsynlegri heilbrigð-
isþjónustu óháð efna-
hag. Drög að reglugerð
um endurgreiðslu
kostnaðar vegna þjón-
ustu sjálfstætt starfandi sér-
greinalækna sem starfa án samnings
við Sjúkratryggingar Íslands er
dæmi um hvernig jarðvegurinn er
undirbúinn. Réttindi sjúkratryggðra
eru lögð til hliðar og aukin ríkisvæð-
ing boðuð. Afleiðingin verður þvert á
yfirlýst markmið: Kostnaður mun
aukast og þjónustan verður verri.
Kerfi biðlista festist enn betur í
sessi.
Þjónusta sjálfstætt starfandi sér-
fræðilækna byggist á gömlum
grunni sem reistur var árið 1909
þegar fyrsta sjúkrasamlagið var
stofnað. Samningur Sjúkratrygg-
inga Íslands við sérfræðilækna tók
gildi í byrjun árs 2014 en hann rann
út árið 2018. Frá þeim tíma hafa
samningar ekki tekist og sjálfsagt á
hér við hið fornkveðna, að sjaldan
veldur einn þegar tveir deila.
Sjúkratryggðir – við öll – hljóta að
gera þá kröfu jafnt til heilbrigðisyf-
irvalda og sérfræðilækna að margra
ára þrasi verði lokið með samn-
ingum. Hafi aðilar ekki
burði til að ná samn-
ingum virðist skyn-
samlegt að leggja deil-
una fyrir sérstakan
gerðardóm.
Þrátt fyrir samn-
ingsleysið hefur réttur
sjúklinga til endur-
greiðslu verið tryggður
með reglugerð. Þessu
ætla yfirvöld heilbrigð-
ismála að breyta og í
raun svipta ákveðna
sjúklinga sjúkratrygg-
ingum, sem við öll höfum greitt fyrir
með sköttum og gjöldum. Með
reglugerðinni verður innleidd mis-
munun milli fólks eftir því til hvaða
sérfræðinga það leitar eftir nauð-
synlegri þjónustu. Þeir sem leita til
sérfræðinga sem fella sig ekki við
einhliða kröfur Sjúkratrygginga
verða sviptir sjúkratryggingum –
réttinum til endurgreiðslu hluta
kostnaðar.
Hagsmunir „kerfisins“
Hér ráða því ekki þarfir og rétt-
indi hinna sjúkratryggðu. Hags-
munir sjúkratryggðra eru lagðir til
hliðar til að þjóna hagsmunum
„kerfisins“. Í frétt sem birtist á
heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins
kemur fram að Sjúkratryggingum
hafi verið falið að „greina hvaða verk
sérgreinalækna skuli verða tilvís-
unarskyld til framtíðar“. Og til að
taka af öll tvímæli um að hverju er
stefnt segir orðrétt:
„Stofnuninni er einnig falið að
gera tillögu til ráðherra um hvaða
verk á gjaldskrá Sjúkratrygginga
Íslands skuli fella brott með það fyr-
ir augum að þjónustan skuli fremur
veitt innan opinberra stofnana.“
Sem sagt: Ríkisvæðing heilbrigð-
isþjónustunnar er í fullum gangi.
Sjálfstæðir læknar eru settir út í
kuldann en verst er að það verður al-
menningur sem ber kostnaðinn. Val-
frelsi í heilbrigðisþjónustu er skert.
Stjórn Læknafélags Íslands hefur
ítrekað lýst áhyggjum af stöðu sér-
hæfðrar heilbrigðisþjónustu utan
sjúkrahúsa. Án samninga sé raun-
veruleg hætta á að tvöfalt heilbrigð-
iskerfi þróist.
Sú stefna sem birtist í reglugerð-
ardrögunum verður til þess að þeir
sem ekki hafa fjárhagslega burði til
að nýta þjónustu sérfræðilækna
neyðast til að leita á náðir opinberra
sjúkrahúsa og annarra ríkisrekinna
heilbrigðisstofnana. Það er hins veg-
ar útilokað að opinberar heilbrigð-
isstofnanir geti tekið við skjólstæð-
ingum sérfræðilækna – næg eru
verkefnin fyrir. Lausn „kerfisins“
verður að búa til nýja biðlista, lengja
þá sem fyrir eru og jafnvel búa til
biðlista eftir að komast á biðlista.
Hvaða hagsmunum er verið að
þjóna? Heilbrigðisþjónustan versn-
ar, kostnaðurinn eykst og lífsgæði
landsmanna verða lakari.
Fyrirheit án innihalds
Sárast er að horfa upp á hvernig
skipulega er verið að leggja grunn
að tvöföldu heilbrigðiskerfi með
einkareknum sjúkratryggingum. Al-
menningur verður að sætta sig við
þjónustu innan ríkisrekins trygg-
ingakerfis á sama tíma og efnafólk
fær skjóta og góða þjónustu sjálf-
stætt starfandi lækna og annarra
heilbrigðisstarfsmanna. Fyrirheitið
um að allir eigi jafnan og greiðan að-
gang að nauðsynlegri heilbrigð-
isþjónustu óháð efnahag verður án
innihalds. Ég óttast að þá bresti ým-
islegt annað í íslenskri þjóðarsál.
Tregða heilbrigðisyfirvalda til að
nýta kosti einkaframtaksins í heil-
brigðisþjónustu og vinna að sam-
þættingu og samvinnu opinbers
rekstrar og sjálfstætt starfandi aðila
er óskiljanleg. Dregið er úr val-
möguleikum fólks, unnið gegn hag-
kvæmri nýtingu fjármuna og álag á
opinber sjúkrahús er aukið.
Í sjálfheldu
Hægt og bítandi er verið að
hneppa heilbrigðisþjónustuna í
fjötra fábreytileika og aukinna út-
gjalda. Við munum eiga stöðugt erf-
iðara með að fylgja öðrum þjóðum
eftir á sviði heilbrigðisvísinda. Sam-
keppnishæfni okkar við að laða til
landsins vel menntað og hæfi-
leikaríkt heilbrigðisstarfsfólk, eftir
langt sérnám, verður verri.
Ein stærsta áskorun sem við
stöndum frammi fyrir á komandi ár-
um er að tryggja mönnun heilbrigð-
iskerfisins – að hæfileikaríkt starfs-
fólk á öllum sviðum fáist til starfa
innan íslenska heilbrigðiskerfisins.
Við erum og verðum í harðri sam-
keppni við aðrar þjóðir um að laða til
okkar ungt fólk með sérfræðiþekk-
ingu, sem er tilbúið til að miðla af
þekkingu sinni og þjónusta okkur
þegar þess er þörf. Læknar, hjúkr-
unarfræðingar, sjúkraþjálfarar, líf-
fræðingar, lyfjafræðingar, sálfræð-
ingar og aðrir sérhæfðir
heilbrigðisstarfsmenn eru alþjóðlegt
vinnuafl – heimurinn er þeirra vett-
vangur. Það umhverfi sem er verið
að búa heilbrigðisstarfsfólki hér á
Íslandi er ekki sérlega aðlaðandi.
Þegar yfirvöld skilja ekki að
læknavísindin eru þekkingariðnaður
sem nærist á fjölbreytileika, ekki
síst í rekstrarformi, er sú hætta
raunveruleg að í stað framþróunar
verði stöðnun. Ríkisvæðing elur ekki
af sér nýsköpun, tryggir ekki lífs-
nauðsynlega nýliðun, gengur gegn
atvinnufrelsi heilbrigðisstarfsmanna
og kannski það sem er verst; dregur
úr þjónustu og öryggi sjúklinga.
Er þetta sú framtíðarsýn sem ætl-
unin er að kynna landsmönnum fyrir
komandi alþingiskosningar?
Eftir Óla Björn
Kárason » Sem sagt: Ríkis-
væðing heilbrigðis-
þjónustunnar er í fullum
gangi. Sjálfstæðir
læknar eru settir út
í kuldann en verst er
að almenningur ber
kostnaðinn.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Byggt undir tvöfalt heilbrigðiskerfi