Morgunblaðið - 14.04.2021, Qupperneq 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2021
- heimili, hönnun, tíska
og samkvæmislífið
Lífstílsvefurinn okkar
- fylgt landsmönnum í 10 ár
SMARTLAND
MÖRTUMARÍU
Vertu með
á nótunum
60 ÁRA Guðmundur Óli Gunnarsson
er hljómsveitarstjóri að mennt frá
Tónlistarháskólanum í Utrecht í Hol-
landi og hefur starfað mest við hljóm-
sveitarstjórn. Hann var fyrsti að-
alstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands sem var stofnuð 1993 og
stjórnaði henni til 23 ára. Hann stjórn-
ar ennþá Kammerkór Norðurlands
þótt hann búi núna á Selfossi, en kórinn
gaf út þriðja hljómdiskinn síðastliðið
haust í tilefni af því að 100 ár eru liðin
frá útkomu ljóðabókarinnar Svartar
fjaðrir eftir Davíð Stefánsson. Á plöt-
unni eru lög sem samin hafa verið við
ljóðin í bókinni, bæði gömul og ný.
„Í dag eru ekki kjöraðstæður fyrir
þá sem lifa af tónlistarverkefnum svo
ég hef verið meira í kennslu þennan
veturinn en alla jafna,“ en Guðmundur
Óli kennir á píanó, tónfræði og stjórnar
hljómsveitum við Tónlistarskólann í
Kópavogi og Tónlistarskóla Árnesinga.
Guðmundur Óli vinnur nú að því að
koma á laggirnar Sinfóníuhljómsveit Suðurlands. „Við vorum með skóla-
tónleika í haust, náðum að lauma okkur milli Covid-bylgna, og svo er búið að
ráða okkur til að spila á Oddahátíð sem verður haldin í júlí í sumar.“ Búið er
leggja fjármagn í að koma í gagnið Menningarsal Suðurlands svo það verður
hægt að halda tónleika í honum á næsta ári eða því þar næsta en salurinn er
hluti af byggingu Hótels Suðurlands. „En grundvallarhugsunin varðandi
hljómsveitina er að hún sé fyrir allt Suðurland og komi sem víðast fram, allt frá
Þorlákshöfn til Hafnar.“
Eiginkona Guðmundar Óla er Margrét Blöndal, f. 1961, fjölmiðlakona. Börn
Guðmundar eru Hrafnhildur Marta sellóleikari, f. 1991, Melkorka María húsa-
smiður, f. 1994, og Álfgrímur Gunnar, stúdent í Kaupmannahöfn, f. 1998. Stjúp-
dætur Guðmundar eru Sigyn Blöndal fjölmiðlakona, f. 1982, og Sara Hjördís
Blöndal leikmynda- og búningahönnuður, f. 1989. Barnabörnin eru orðin sjö.
Guðmundur Óli Gunnarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Loksins er allt komið í þann farveg
sem þú vildir og þú sérð árangur erfiðis
þíns.
20. apríl - 20. maí +
Naut Fjölskyldan er hornsteinninn hvort
heldur er í gleði eða sorg. Reyndu að halda
í við aðstreymið þótt þú vandir þig.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þér tekst einkar vel þessa stund-
ina að bæta fjárhag þinn í gegnum vini og
kunningja. En leitaðu ekki langt yfir
skammt; svörin finnurðu innra með þér.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þótt þú sinnir nú mikilvægu
ábyrgðarstarfi er óþarfi að taka sjálfan sig
of hátíðlega.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Kátínan hefur ráðið ríkjum hjá þér um
tíma og engin ástæða til annars en að
halda henni við. Hvernig þú skreytir þig
ræður því hvernig þér líður þegar þú mætir
veröldinni.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þér finnst þú til í hvað sem er og
ættir að láta það eftir þér að reyna á
dirfsku þína og hugkvæmni. Kannski verð-
ur undarleg eða óvenjuleg manneskja á
vegi þínum.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Að einbeita sér að einhverju öðru en
ást eða skorti á ást er litið með velþóknun.
Leyfðu vinum þínum að umvefja þig kær-
leika nú.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Settu þig aftur í samband við
einhvern eða eitthvað sem gegndi þýðing-
armiklu hlutverki í þroska þínum. Mundu
að samvinna getur einnig komið þér til
góða.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú þarft að komast í smáfrí til
að endurnýja sjálfan þig til sálar og líkama.
Fyrirgefðu fólki og slakaðu á um leið og þú
sýnir fólki að þér þykir vænt um það.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Til þín er litið um forustu og þú
átt ekki annarra kosta völ en að axla þá
ábyrgð. Taktu tíma til að einbeita þér og
safna orku.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þið eigið mjög auðvelt með að
leysa af hendi þau verkefni sem ykkur eru
falin.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Látið það ekki á ykkur fá þó hlut-
irnir gangi ekki upp. Leitaðu ráða hjá þér
reyndari mönnum.
félaginu og Landsbréfum var unnið
brautryðjendastarf á fjármálamark-
aðnum. Ýmsar nýjungar á sviði verð-
bréfasjóða, hlutabréfasjóða, frjálsra
lífeyrissjóða, hlutabréfaútboða og er-
lendra verðbréfaviðskipta bera því
vitni. Þá má ekki gleyma tímamóta-
starfi Landsbréfa í verkefnafjár-
mögnun lífeyrissjóða á Hvalfjarðar-
göngunum.“
Samstarf Landsbréfa við alþjóðlega
bandaríska sjóðastjórnunarfyrirtækið
AllianceBernstein í New York varð til
þess að AllianceBernstein bauð Gunn-
ari Helga starf við að leiða innkomu
sína á Norðurlöndunum. „Það varð úr
og hætti ég störfum hjá Landsbanka-
samstæðunni haustið 1999. Starfinu
fylgdu krefjandi ferðalög og fjarvistir
að heiman. Þetta gekk þó allt upp og
lauk ég störfum hjá AllianceBernstein
í árslok 2009, þess albúinn að hefja
eftirlaunastörfin.“
En það átti ekki að gerast strax því
að tæpum mánuði seinna var Gunnar
Helgi beðinn að taka að sér for-
mennsku í stjórn Landsbankans sem
þá beið endurreisnar eftir fjármála-
hrunið 2008. „Landsbankinn og ís-
lenska hagkerfið voru þétt sam-
tvinnuð rétt eftir fjármálahrunið og
því var viðfangsefnið risavaxið og
margslungið við fordæmalausar að-
stæður. Þetta leystist þó farsællega
en lykillinn var að mínu mati afar
festingarfélagi Íslands, þá í fullu starfi
sem framkvæmdastjóri. „Það gekk
bærilega og var mér t.a.m. óvænt veitt
viðurkenning 1985 frá Junior Cham-
ber Íslandi sem Framúrskarandi ein-
staklingur.“
Haustið 1989 færði Gunnar Helgi
sig um set og tók við starfi forstjóra
Landsbréfa, dótturfélags Landsbank-
ans, sem þá hugðist hefja innreið sína
á hin ýmsu svið verðbréfamarkaðar-
ins. Síðar eða á árinu 1997 varð hann
einnig framkvæmdastjóri nýs sjóða-
stjórnarsviðs innan Landsbankans.
„Á tíma mínum hjá Fjárfestingar-
G
unnar Helgi Hálfdanar-
son fæddist 14. apríl
1951 í Reykjavík og bjó í
foreldrahúsum lengst af
í Holtunum. „Leiksvið
mitt á uppeldisárunum var að mestu
bundið við gamla Framvöllinn og
næsta nágrenni Sjómannaskólans en
að auki dvaldi ég níu sumur frá 5 ára
aldri hjá móðursystur minni Elsu
Guðbjörgu og hennar manni Jóni á
Ketilsstöðum á Völlum við Egilsstaði.
Alla mína æsku naut ég góðs atlætis
þrátt fyrir lítil efni, borðaði fisk flesta
daga og fékk gott andlegt fóður í
Sunnudagaskólanum og KFUM. Dvöl
mín fyrir austan stækkaði leiksviðið
umtalsvert en sumardvölin þar reynd-
ist mér afar þroskandi og eftir-
minnileg.“
Gunnar Helgi gekk í Ísaksskóla,
Æfingadeild Kennaraháskólans,
Hlíðaskóla og varð stúdent frá Versl-
unarskólanum 1972. Hann tók virkan
þátt í félagslífinu í Verslunarskólanum
og var m.a. forseti Nemendafélagsins
1969-70. Þá kynntist Gunnar Helgi
æskuástinni sinni Gunnhildi J. Lýðs-
dóttur á 1. des.-ballinu 1969 en þau
giftu sig 1. desember fjórum árum síð-
ar. Vorið 1976 lauk Gunnar Helgi
námi við viðskiptadeild Háskóla
Íslands.
Starfsferillinn
Eftir útskrift úr viðskiptadeildinni
hóf Gunnar Helgi störf undir traustri
leiðsögn hjá Hagvangi hf. við ýmis
ráðgjafarstörf. Samtímis tók hann
einnig þátt í brautryðjandastarfi hjá
Fjárfestingarfélagi Íslands en á veg-
um þess var stuttu síðar komið á
skipulegum opinberum markaði fyrir
íslensk ríkisskuldabréf og veðskulda-
bréf. Í kjölfarið stóð Fjárfestingar-
félagið einnig að stofnun Frjálsa líf-
eyrissjóðsins, þess fyrsta sinnar
tegundar á Íslandi.
Árið 1981 hlaut Gunnar Helgi
rausnarlegan heilsársnámsstyrk frá
Rotary International. Styrkveitingin
varð til þess að hann fór í 2ja ára
meistaranám (MBA) við McMaster-
háskólann í Kanada ásamt eiginkonu
sinni og tveimur sonum. Að loknu
framhaldsnáminu í júní 1983 hóf
Gunnar Helgi aftur störf hjá Fjár-
samhent bankaráð þess tíma svo og
velheppnuð ráðning Steinþórs Páls-
sonar sem bankastjóra en hann skilaði
framúrskarandi starfi í þágu bankans
og þjóðarinnar.“
Auk stjórnarformennsku í Lands-
bankanum, sem lauk í apríl 2013,
gegndi Gunnar Helgi stjórnarfor-
mennsku í Háskólasjóði H/f Eim-
skipafélags Íslands 2011-2013, var for-
maður skólanefndar Verslunarskóla
Íslands 1998-2006, sat í stjórn Verð-
bréfaþings Íslands (forvera Kaup-
hallar Íslands) og stjórn Samtaka
verðbréfafyrirtækja frá stofnun til
1995 auk þess sem hann sat í fjölda
annarra stjórna sjóða og félaga í
gegnum tíðina.
Gunnar Helgi sat auk þess í ýmsum
nefndum er vörðuðu t.a.m. endur-
skoðun húsbréfakerfisins, skipulagn-
ingu löggildingarnáms verðbréfa-
miðlara, undirbúning að stofnun
Verðbréfþings Íslands og stofnun Við-
skiptaháskólans í Reykjavík. Þá skrif-
aði Gunnar Helgi fjölda greina um
fjármál og kenndi á námskeiðum
tengdum verðbréfamarkaðnum.
Áhugamálin
„Áhugamál okkar hjóna eru fjöl-
mörg en við reynum þó að skipa
heilsurækt í öndvegi enda er góð
heilsa grunnurinn sem allt byggist á.
Við hjónin stundum golf af krafti og
förum til laxveiða reglulega auk þess
sem ég fer árlega með sonunum þrem-
ur í góðan veiðitúr á Norðaustur-
landið. Við erum jafnframt svo lánsöm
að eiga hlutdeild í landareign vestur á
Snæfellsnesi þar sem við ásamt börn-
um og barnabörnum getum stundað
veiðar og golf eins og veður og árstíðir
leyfa. Þá er ég í um fimm ólíkum hóp-
um sem hittast reglulega á veturna.
Hver hópur er með sína forsögu og
viðfangsefni, t.d. brids, skák, stjórn-
mál, efnahagsmál og mannrækt.
Við hjónin höfum enn fremur alltaf
notið þess að ferðast í tímans rás. Eft-
ir að starfið hætti að þvælast fyrir mér
höfum við víkkað sjóndeildarhringinn
allhressilega og farið til ýmissa áhuga-
verðra landa, m.a. í Asíu og S-
Ameríku, landa sem við höfðum ekki
pælt sérstaklega í áður, t.d. Mjanmar,
S-Kóreu, Fídji-eyja og Kólumbíu.“
Gunnar Helgi Hálfdanarson, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi forstjóri – 70 ára
Í Mexíkó F.v.: Helgi, Vigdís Ósk, Lýður, Arnar Freyr, Gunnar Helgi, Heiðar
Ingi, Gunnhildur, Gunnar Helgi yngri, Hálfdan, Ásgerður Sara, Þórhildur,
Gunnhildur Lilja og Anna Katrín á Playa del Carmen um áramótin 2017/18.
Frumkvöðulsstarf í fjármálum
Í Bútan Hjónin við búddahofið
Tiger’s Nest árið 2018.
Til hamingju með daginn