Morgunblaðið - 14.04.2021, Page 23
LANDSLIÐIÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu skoraði sitt fyrsta mark undir
stjórn Þorsteins Halldórssonar þegar
liðið gerði 1:1-jafntefli gegn Ítalíu í
vináttulandsleik í Flórens á Ítalíu í
gær.
Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en
þetta var annar leikur liðanna á fjór-
um dögum. Fyrri leik liðanna á laug-
ardaginn síðasta lauk með 1:0-sigri
ítalska liðsins þar sem Arianna Ca-
ruso skoraði sigurmark leiksins á 72.
mínútu.
Ítalska liðið komst yfir strax á 1.
mínútu í gær en þar var á ferðinni
Valentina Giacinti eftir laglegan und-
irbúning Valentinu Bergamaschi.
Bergamaschi átti þá sendingu fyrir
markið frá hægri sem varnarmenn ís-
lenska liðsins misreiknuðu og Giacinti
skoraði með viðstöðulausu skoti úr
markteignum.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir jafn-
aði metin fyrir íslenska liðið á 40.
mínútu eftir mjög góða sókn þar sem
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir gerði vel
í að vinna boltann djúpt á vallarhelm-
ingi Ítala.
Gunnhildur sendi boltann fyrir
markið á Berglindi Björgu Þorvalds-
dóttur sem reyndi að leika á varn-
armenn Ítala.
Boltinn hrökk til Sveindísar Jane
Jónsdóttur sem lagði hann snyrtilega
út fyrir teiginn á Karólínu Leu sem
hamraði boltann upp í samskeytin.
Margt sem gekk upp
Þorsteinn Halldórsson gerði sjö
breytingar á byrjunarliði sínu frá 1:0-
tapinu gegn ítalska liðinu á laug-
ardaginn síðasta og það tók íslenska
liðið tíma að samstilla sig.
Liðið fékk blauta tusku í andlitið
strax á upphafsmínútunum en þrátt
fyrir það tókst liðinu að vinna sig vel
inn í leikinn.
Á sama tíma fengu Ítalir ekki mörg
opin marktækifæri en þeirra besta
færi í leiknum kom eftir aukaspyrnu
frá hægri þar sem varnarmenn Ís-
lands gleymdu sér í dekkningunni.
Þá fékk íslenska liðið nokkur ágæt-
isfæri til þess að skora og Berglind
Björg Þorvaldsdóttir fékk það besta í
fyrri hálfleik þegar Sveindís Jane
sendi hana í gegn en skot hennar fór
beint á Lauru Giuliani í marki ítalska
liðsins. Elín Metta var rétt búin að
tryggja Íslandi sigur undir lokin þeg-
ar Giuliani varði hörkuskot hennar í
horn.
Íslenska liðið gerði vel í að halda
boltanum innan liðsins en varnarlínan
hefði þó mátt sýna meira hugrekki og
reyna að koma boltanum oftar inn á
miðsvæðið þegar Ítalir reyndu að há-
pressa íslenska liðið.
„Mér fannst margt í þessari ferð
ganga vel upp,“ sagði Þorsteinn Hall-
dórsson á Teams-fjarfundi með
blaðamönnum eftir leikinn.
„Við náðum að innprenta ákveðna
hluti í leikmannahópinn og ég er sátt-
ur við það. Þetta er enginn tikitaka-
bolti sem ég vil spila. Við þurfum að
halda honum þegar við getum það og
verjast þegar við erum ekki með
hann. Það fer alltaf lengri tími í að
búa til sóknarleik en varnarleik.
Við gerum okkur grein fyrir því að
við erum ekki að fara að vera ein-
hverjir töframenn hérna sem var
aldrei ætlunin. Heilt yfir er ég bara
sáttur við þessa tvo leiki og ferðina,“
bætti Þorsteinn við.
Það var margt jákvætt í leik liðsins
og liðið er klárlega á réttri leið. Alex-
andra Jóhannsdóttir, Karólína Lea
og Sveindís Jane gefa liðinu ótrúlega
mikið enda eru þær allar góðar í að
halda bolta á meðan liðið getur fært
sig ofar á völlinn.
Á sama tíma virðast margir ungir
leikmenn vera nær liðinu en oft áður
eins og t.d. Áslaug Munda Gunn-
laugsdóttir, Cecilía Rán Rúnarsdóttir
og Guðný Árnadóttir.
Eldri leikmenn þurfa því að vera á
tánum ætli þeir sér að halda sæti sínu
í næstu undankeppni HM og auðvitað
í lokakeppni EM sem fram fer á Eng-
landi næsta sumar.
Hinar yngri minntu á sig
- Ísland og Ítalía skildu jöfn í öðrum vináttulandsleik þjóðanna á fjórum dögum
- Eldri leikmenn liðsins þurfa að vera á tánum ætli þeir sér að halda sæti sínu
Ljósmynd/@azzurri
Jafntefli Miðvörðurinn trausti Glódís Perla Viggósdóttir á ferðinni í Flórens á Ítalíu en þar gerði Ísland jafntefli gegn Ítalíu í gær.
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2021
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu verður í fjórða og neðsta
styrkleikaflokki þegar dregið
verður í riðlana fyrir lokakeppni
EM sem fram fer á Englandi sum-
arið 2022.
Varð þetta endanlega ljóst þegar
úrslit réðust í umspili fyrir loka-
keppnipna í gærkvöldi.
Sá möguleiki var fyrir hendi að
Ísland myndi hafna í þriðja styrk-
leikaflokki. Til þess hefði Tékk-
land þurft að komast áfram úr um-
spili gegn Sviss. Eftir mikla
spennu hafði Sviss hins vegar bet-
ur en liðin þurftu að útkljá málið í
vítaspyrnukeppni eftir að hafa
gert jafntefli í báðum umspilsleikj-
unum.
Sviss fer því á EM eins og Norð-
ur-Írland sem vann Úkraínu 2:0 í
gær og samanlagt 4:1. Fyrr í gær
tryggðu Rússar sér sæti á EM með
1:0 sigri gegn Portúgal. Þessar
þrjár þjóðir voru því síðastar til að
tryggja sér sæti í lokakeppninni og
tvær þeirra eru í fjórða styrk-
leikaflokki eins og Ísland.
1. styrkleikaflokkur:
Holland
Þýskaland
England
Frakkland
2. styrkleikaflokkur:
Svíþjóð
Spánn
Noregur
Ítalía
3. styrkleikaflokkur:
Danmörk
Belgía
Sviss
Austurríki
4. styrkleikaflokkur:
ÍSLAND
Rússland
Finnland
Norður-Írland
Ísland í fjórða styrkleikaflokki fyrir EM kvenna
Morgunblaðið/Kris
Þjálfararnir Ásmundur Haraldsson
(aðstoðarþjálfari) og Þorsteinn
Halldórsson stýra liðinu á EM.
1:0 Valentina Giacinti 1.
1:1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 40.
MM
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
M
Glódís Perla Viggósdóttir
Alexandra Jóhannsdóttir
Karólína Lea Vilhljámsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir
Gul spjöld: Engin.
Dómari: Sabina Bolic, Króatíu.
Áhorfendur: Engir.
Lið Íslands: (4-3-3) Mark: Sandra
ÍTALÍA – ÍSLAND 1:1
Sigurðardóttir. Vörn: Hafrún Rakel
Halldórsdóttir, Anna Björk Kristjáns-
dóttir (Guðný Árnadóttir 46), Glódís
Perla Viggósdóttir, Hallbera Guðný
Gísladóttir (Áslaug Munda Gunn-
laugsdóttir 70). Miðja: Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir, Andrea Rán Snæfeld
Hauksdóttir (Karitas Tómasdóttir
84), Alexandra Jóhannsdóttir. Sókn:
Sveindís Jane Jónsdóttir, Berglind
Björg Þorvaldsdóttir (Elín Metta Jen-
sen 76), Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
(Agla María Albertsdóttir 70).
_ Handknattleiksdeild Stjörnunnar
sendi frá sér yfirlýsingu í dag sem
varðar kærumál félagsins vegna
huldumarks í leik Stjörnunnar og KA/
Þórs í Olísdeild kvenna hinn 13. febr-
úar. „Grundvallarástæða þess að
Stjarnan kærir framkvæmd þessa
leiks er að það er okkar staðfasta trú
að það sem gerist inni á vellinum og
þau mörk sem þar eru skoruð eru það
sem eigi að ráða úrslitum leikja en
ekki það sem skráð er á leikskýrslu ef
það er ekki í samræmi við það sem
raunverulega gerðist,“ segir m.a. í til-
kynningunni en hana má lesa í heild
sinni á mbl.is/sport/handbolti.
_ Stuðningsmenn Manchester City
og Tottenham fá samtals 4.000 miða
er liðin mætast á Wembley í úrslita-
leik enska deildabikarsins í knatt-
spyrnu 25. apríl. Starfsfólk í heilbrigð-
isþjónustu og íbúar í grennd við
Wembley fá hina 4.000 miðana sem í
boði eru á leikinn og verða áhorfendur
því alls 8.000.
Stuðningsmennirnir taka próf heima
hjá sér skömmu fyrir leik og síðan
fara þeir aftur í skimun fimm dögum
eftir leik. Enginn fær sæti í stúkunni
án þess að vera með sönnun fyrir nei-
kvæðu kórónuveiruprófi.
_ Landsliðsmarkvörðurinn Viktor
Gísli Hallgrímsson átti góðan leik fyr-
ir GOG frá Danmörku sem hafði betur
gegn Wisla Plock frá Póllandi á
heimavelli, 30:27, í fyrri leik liðanna í
8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í
handknattleik. Viktor varði 13 skot,
þar af tvö víti, og var með 33 pró-
senta markvörslu. Ýmir Örn Gíslason
var í liði Rhein-Neckar Löwen sem
tapaði 33:22 fyrir Medvedi í Rússlandi
en á heimaleikinn til góða og stendur
því ágætlega að vígi.
_ Forráðamenn enska knattspyrnu-
félagsins Manchester United hafa enn
þá áhuga á enska sóknarmanninum
Jadon Sancho samkvæmt Manchest-
er Evening News. Sancho, sem er 21
árs, er samningsbundinn þýska félag-
inu Borussia Dortmund til 2023. Er
hann metinn á um 100 milljónir punda
en United var ekki tilbúið að borga
uppsett verð síðasta sumar.
_ Stephen Curry fór á kostum þegar
lið hans Golden State Warriors vann
níu stiga sigur gegn Denver Nuggets í
NBA-deildinni í körfuknattleik í San
Francisco aðfaranótt þriðjudags.
Leiknum lauk með 116:107-sigri Gol-
den Sate en Curry gerði sér lítið fyrir
og skoraði 53 stig ásamt því að taka
sex fráköst og gefa fjórar stoðsend-
ingar. Með þessari frammistöðu varð
hann stigahæsti leikmaður í sögu liðs-
ins og hefur skorað samtals 17.818
stig á ferlinum.
Fór hann upp fyrir Wilt Chamberlain
sem skoraði 17.783 stig fyrir Warriors
á sjö ára tímabili. Þá
var liðið um tíma í
Philadelphiu og
fluttist til San
Francisco. Sé ferli
Wilt Chamberlain
flett upp blasir
ekki við Golden
State Warriors
heldur Phila-
delphia Warriors
og síðar San
Francisco Warriors
en íþróttalið í
Bandaríkjunum eiga
það til að flytja á
milli borga eins og
dæmin sýna ef talið sé
að grasið sé grænna
annars staðar.
Eitt
ogannað