Morgunblaðið - 16.04.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.04.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021 ÚRVAL AF LJÓSUM FRÁ BELID www.rafkaup.is „Veðrið í dag verður kannski ekkert spennandi en vonandi þokkalegt,“ segir Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn hjá lög- reglunni á Suðurnesjum. Gert er ráð fyrir því að gossvæðið verði opnað á hádegi í dag og verði opið til miðnættis. Gunnar segir í samtali við Morgunblaðið að það hafi sýnt sig að rétt var að hafa gossvæðið lokað í gær. Sjálfvirk veðurstöð á Fagradalsfjalli hafi sýnt að 20 metrar voru á sekúndu og 41 í vindhviðum með rigningu. „Við lásum rétt í stjörnurnar þar. Það er alltaf smá áhætta tekin með því að loka fram í tímann en við þekkjum nú hvernig íslensk veðrátta er.“ Aðspurður segir Gunnar að hann hafi ekki upplýsingar um það að nokkur hafi farið á gossvæðið í gær ef frá er skilið að björgunarsveitarbíll var sendur þangað til að kanna aðstæður fyrir lögreglu. „Ég held ekki einu sinni að vísindamennirnir hafi vogað sér þangað.“ Talsverður fjöldi fólks var hins vegar við gosstöðvarnar á miðvikudagskvöldið þegar myndin hér að ofan var tekin. Taln- ing á stikaðri leið þangað sýndi að ríflega þúsund manns börðu gosið augum þann daginn. Fram kom á vef Veðurstofunnar í gær að frá því að ný gosop mynduðust á þriðjudaginn sé hægt að tala um að kvika komi nú upp á átta stöðum við Fagradalsfjall. Hraun hefur runnið frá nýjustu opunum yfir nýja gönguslóðann – gönguleið A – en það gerðist síðdegis á miðvikudag. hdm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Sjónarspil Talsverður fjöldi var við gosstöðvarnar á miðvikudagskvöld þegar þessi mynd var tekin. Lokað var í gær vegna veðurs en útlit er skaplegt fyrir daginn í dag. Vitlaust veður hélt öllum frá gosinu - Vindstyrkur fór í 41 metra á sekúndu á gossvæðinu í gær - Opnað verður að nýju á hádegi í dag Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Í sumaráætlun Baldurs er gert ráð fyrir að siglt verði einu sinni á dag á milli Stykkishólms og Brjánslækj- ar með viðkomu í Flatey á báðum leiðum. Að sögn Gunnlaugs Grett- issonar, framkvæmdastjóra Sæ- ferða, er sá fyrirvari við þessa áætl- un að viðbótarframlag fáist frá ríkinu. Gunnlaugur segir að í fyrra hafi Sæferðir fengið um 13 milljónir á mánuði yfir sumarmánuðina þrjá úr neyðarsjóði á vegum stjórnvalda, alls um 39 milljónir, til að tryggja þessar mikilvægu samgöngur á tím- um kórónuveirufaraldursins. Sam- kvæmt fjárlögum fá Sæferðir 270 milljónir á ári vegna siglinga yfir Breiðafjörð og gildir samningurinn frá byrjun september til maíloka ár hvert en enginn samningur er um siglingar Baldurs yfir sumartímann. Í eðlilegu árferði eins og 2019 og ár- in þar á undan hafi verið farnar tvær ferðir á dag yfir sumartímann. Aðstæður gerbreyttar Með kórónuveirufaraldrinum hafi aðstæður í rekstrinum gerbreyst og erlendir ferðamenn nánast horfið úr farþegahópnum. Fyrirtækið hafi því þurft á þessu framlagi að halda í fyrra til að geta sinnt þessum sigl- ingum, en hafi ekki nýtt önnur úr- ræði stjórnvalda sem í boði hafi ver- ið vegna faraldursins. Gunnlaugur segir að ekki sé búið að semja fyrir sumarið, en segist skynja góðan hug og skilning á mál- inu. „Niðurstaðan hefur afgerandi áhrif á það hvað við getum gert. Verði ástandið svipað í sumar og það var á síðasta ári er viðbótar- framlag alger forsenda þess að hægt verði að vera með eins miklar siglingar og nú eru ráðgerðar. Við gætum trúlega verið með einhverj- ar siglingar í Flatey, en það hefði þá mikil áhrif á Vestfirði og fjölda ferðamanna þangað. Ef útlit væri fyrir að hér fylltist allt af túristum myndum við ekki leita eftir viðbót- arframlagi,“ segir Gunnlaugur. Særún leysir af Baldur fer í slipp í næsta mánuði og leysir tvíbytnan Særún skipið af í tvær vikur frá 2. maí. Ráðgert er að sigla til Flateyjar 3-4 sinnum í viku þennan tíma. Er Baldur bilaði á miðju síðasta sumri hljóp Særún einnig í skarðið og þá var í einhver skipti siglt til Brjánslækjar og er sá möguleiki líka núna fyrir hendi ef með þarf. Sæferðir leita eftir viðbótarframlagi - Ráðgera eina ferð á dag yfir Breiðafjörð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.