Morgunblaðið - 16.04.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.04.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021 Samfylkingin hefur ekki klofnaðformlega en þegar horft er til frétta síðustu vikna er ljóst að mik- ill klofningur er innan flokksins þó að hann hafi ekki leitt til stofnunar annars flokks. Í gær sagði Pétur G. Markan, fyrrver- andi varaþingmað- ur, sig úr flokknum með þeim orðum að Samfylkingin hefði „breyst frá því að vera breiðfylking yfir í pólitískt jað- arsamfélag vina“. Fyrr á árinu sagði Birgir Dýrfjörð sig úr valnefnd flokksins vegna vals á lista eftir að honum ofbauð bolabrögð og leynimakk gegn þingmanninum Ágústi Ólafi Ágúts- syni, sem flokksforystan hefur ákveðið að fái ekki að bjóða sig fram aftur. - - - Í febrúar sagði varaþingmað-urinn Jóhanna Vigdís Guð- mundsdóttir sig úr flokknum. Hún gagnrýndi einnig hvernig staðið var að vali á lista flokksins í Reykjavík. - - - Þá gerðist það í liðinni viku aðframkvæmdastjóri flokksins, Karen Kjartansdóttir, sagði upp. Hún var, líkt og Birgir var vegna starfa sinna í valnefndinni, bundin trúnaði um starfslokin og vildi því ekki tjá sig um þau þegar mbl.is leitaði skýringa. Þó kom fram að hugmyndir hennar og nýkjörins formanns framkvæmdastjórnar, Kjartans Valgarðssonar, væru of ólíkar til að þau gætu unnið sam- an. - - - Fyrir nokkrum árum munaðisáralitlu að Samfylkingin hyrfi af þingi. Hún slapp fyrir horn og fékk nýjan formann sem hefði mátt ætla að vildi umfram annað treysta flokkinn í sessi. Þess í stað hafa nú farið fram hreinsanir. Er það rétta leiðin til að mynda breið- fylkingu jafnaðarmanna? Logi Einarsson Klofin Samfylking STAKSTEINAR Sérgreinalæknar hafa fengið fjöl- margar verðlagshækkanir frá því síðasti samningur þeirra við Sjúkra- tryggingar Íslands var gerður. Yfir- lýsingar formanns Læknafélags Reykjavíkur um annað standast því ekki skoðun að því er fram kom í yfirlýsingu frá Maríu Heimisdóttur, forstjóra SÍ, í gær. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra hefur kynnt áform um breytingu á reglugerð um endur- greiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við SÍ. Felur breytingin m.a. í sér að sjúklingar þeirra lækna sem rukka aukakostn- að samkvæmt gjaldskrá muni ekki njóta kostnaðarþátttöku SÍ. Í yfirlýsingu SÍ kemur fram að greiðslur ríkisins til sérgreinalækna hafi fylgt verðlagsþróun til ársins 2021 frá árslokum 2018, þegar síð- asti samningur féll úr gildi. „Allan samningstímann var gjaldskrá samningsins verðbætt tvisvar á ári og eftir að hann rann út hefur gjald- skráin áfram verið verðbætt, allt fram til ársins 2021, bæði með tilliti til launaþróunar og þróunar rekstrarkostnaðar,“ segir þar. Enn fremur er rakið að strax eftir að síðasti samningur rann út, í árs- byrjun 2019, hafi farið að bera á því að sérgreinalæknar innheimtu auka- gjöld af sjúklingum umfram það sem þeim ber að greiða samkvæmt gjald- skrá hins opinbera. „Þessi aukagjöld hafa farið vaxandi á síðustu tveimur árum og eru langt umfram verðlags- þróun. Sérgreinalæknar hafa ekki birt nein gögn sem sýna fram á að aukagjöldin tengist hækkunum á kostnaði þeirra umfram verðlag.“ Aukagjöld umfram verðlagsþróun - Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir sérgreinalækna hafa fengið hækkanir Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Spennan hefur verið að magnast í vikunni og miðasalan aukist sam- fara því. Ég veit ekki hversu marg- ir miðar munu seljast á endanum en miðað við þá gríðarlegu sölu sem var í gær og fyrradag er ljóst að það verður horft á tónleik- ana á fjölmörgum heimilum,“ segir Ísleifur Þórhalls- son, tónleikahald- ari hjá Senu live. Stórtónleikar í tilefni sjötugs- afmælis Björg- vins Halldórs- sonar fara fram í Borgarleikhúsinu í kvöld og verða þeir aðgengilegir í gegnum myndlykla Símans og í netstreymi. Jólagestir Björgvins og Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens voru sendir út með þess- um hætti og þóttu heppnast framar vonum. Ísleifur segir aðspurður að tónleikahaldararnir skynji að lands- menn séu búnir að læra á streymis- tónleika og kunni vel að meta form- ið. „Björgvin ætlar að halda partí með þjóðinni í kvöld klukkan átta. Þetta verður heimilisleg og notaleg stemning með góðum gestum; frá- bæru bandi, bakraddasöngv- urunum Eyfa, Regínu Ósk og Frið- riki Ómari og gestasöngvurunum KK, GDRN, Jóhönnu Guðrúnu og Svölu og Krumma. Þá fengum við nokkra þjóðþekkta einstaklinga til að spjalla við okkur um Björgvin og sýnum upptökur af þeim við- tölum,“ segir Ísleifur en meðal þeirra eru Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra, Helgi Björns og Diddú. Ísleifur segir að Björgvin muni fara yfir ótrúlegan hálfrar aldar feril sinn í tali og tónum en auk þess verður allskonar myndefni sýnt. Hann segir aðspurður að ekki hafi reynst erfitt að velja og hafna efni fyrir tónleikana, samstarfið við Björgvin hafi verið gott eins og áð- ur. „Við höfum byggt upp náið traust á 14 árum. Samstarf okkar byrjaði reyndar á eftirminnilegan hátt. Það fyrsta sem hann sagði við mig á fyrsta fundi okkar var: „Hver ert þú, af hverju ertu hérna, ég á engar plötur með þér.“ Eftir það hefur samband okkar verið yndislegt,“ segir Ísleifur og hlær. Ógleymanleg byrjun á samstarfi við Bó - Sjötugsafmæli fagnað með stórtónleikum Björgvin Halldórsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.