Morgunblaðið - 16.04.2021, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.04.2021, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021 ✝ Halldór Jörgen Gunnarsson fæddist í Vest- mannaeyjum 7. október 1965. Hann lést 2. apríl 2021. Foreldrar hans: Jóhanna Andersen, f. 9. febrúar 1938, d. 2. júní 2016 og Gunnar Hall- dórsson, f. 9. janúar 1940, þau slitu sam- vistum. Saman eignuðust þau fjögur börn: 1) Guðrún Ágústa, f. 13. febrúar 1959, d. 13. apríl 1964, 2) óskírð, f. 21. júlí 1960, d. 1984. Börn þeirra: Erla Rut, Halldór Breki og Eldey Inga. 2) Gunnar Ásgeir, f. 21. júní 1993, kærasta hans er Kolbrún Marín Wolfram, f. 6. mars 1998. 3) Hjörtur Ingi, f. 15. desember 1999, kærasta hans er Ída María Halldórsdóttir, f. 26. júlí 2000. Halldór útskrifaðist frá Stýri- mannaskólanum í Vestmanna- eyjum og átti sjómennskan hug hans allan alveg frá barnæsku. Árið 2004 lendir Halldór í slysi á sjó sem hafði þær afleiðingar að hann gat ekki stundað sjó- mennsku lengur. Hann kláraði stúdentspróf frá Framhalds- skólanum í Vestmannaeyjum ár- ið 2004. Fjölskyldan fluttist á Bifröst þar sem Halldór útskrif- aðist sem viðskiptalögfræðingur árið 2007. Halldór og fjölskylda fluttu til Spánar þar sem Hall- dór lærði spænsku við háskól- ann í Alicante. Árið 2008 út- skrifaðist Halldór með meistaragráðu í skattalögfræði frá Háskólanum á Bifröst. Fjöl- skyldan hefur búið í Hafnarfirði sl. ár. Halldór lagði mikinn metnað í að fylgja börnunum sínum á alla íþróttaviðburði og þegar barnabörnin bættust við í hópinn þá varð hann þeirra helsti stuðningsmaður. Hann sá um að keyra á æfingar og að- stoðaði þau með heimalærdóm- inn. Útför Halldórs fer fram í dag, föstudaginn 16. apríl, frá Víði- staðakirkju kl. 13. Í ljósi að- stæðna verða eingöngu nánustu aðstandendur en útförinni verð- ur streymt á heimasíðu Víði- staðakirkju. Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat/ 21. júlí 1960, 3) Helgi Þór, f. 6. maí 1962, kvæntur Auð- björgu Svövu Björgvinsdóttur, f. 8. september 1959. Seinni eiginkona Gunnars er Valdís Magnúsdóttir, f. 25. ágúst 1954. Halldór kvæntist 1. júlí 1989 Jó- hönnu Ingu Hjart- ardóttur, f. 1. júlí 1966. Börn þeirra eru: 1) Margrét Rut, f. 14. apríl 1988, maki Viktor Ingi Ingibergsson, f. 15. október Elsku hjartans Halldór minn, ég elska þig fyrir að hafa gefið mér elsku börnin okkar. Þrjár heilbrigðar manneskjur, svo flott, dugleg og fylgin sér. Þú varst mér allt, enda vorum við búin að vera gift í bráðum 32 ár og saman í 35 það er hell- ingur. Elsku ástin mín, ég sit hér og hugsa um allt það fallega sem þú gafst mér og hvað við gerðum saman. Við elskuðum að vera saman á Spáni. Þar leið þér allt- af vel, þar var lífið okkar full- komið í alla staði. Ferðin þegar við fórum með strákunum okkar þegar ég var 50 ára var full- komin. Ferðin með Margréti Rut, Bróa, Erlu Rut, Halldóri Breka og Eldeyju Ingu, þá þriggja mánaða, þessi ferð var fullkomin. Þú elskaðir að hafa okkur öll í kringum þig, vildir alltaf fá að vita hvað börnin okkar voru að gera, passaðir þig samt á því að vera ekki of spurull (eins og ég). Ég veit að þú elskaðir það samt því ég var forvitin um allt þeirra og þar fékkst þú fréttirnar því þú varst maður fárra orða og fékkst þá fréttir frá mér. Árið 2002 þegar þú slasaðist og gast ekki haldið áfram að stunda sjóinn. Það var þér erfitt og þú saknaðir þess alltaf að komast ekki á sjóinn. En þú gafst ekki upp, skráðir þig í framhaldsskólann og kláraðir stúdentsprófið með stæl. Þú varst mjög stoltur þegar þú dimmiteraðir í sæðisfrumubún- ingi með útskriftarsystkinum þínum. Heimilið okkar var eins og kaffihús, til okkar voru vinir okkar alltaf velkomnir og það var alltaf gaman. Besta lýsingin var þegar Margrét Rut sagði hér um daginn að þegar hún ung- lingurinn kom niður að borða var oft einhver við eldhúsborðið að spjalla við okkur. Við bjuggum á Bifröst árin 2004-2007, það voru yndisleg ár, þar fengum við margar perlur á perlufestina okkar sem vini. Það var svo gaman að fylgjast með því hvernig þú náðir að tengjast krökkunum í skólanum. Þið hjálpuðuð hvert öðru og við vor- um alltaf elsta fólkið á svæðinu og við elskuðum það. Það var alltaf líf og fjör í litla Urðar- kotinu okkar. Svo fluttum við til Spánar og vorum þar í eitt ár. Þetta ár var dásamlegt, svo gaman að vera saman og skoða allt sem okkur langaði til að skoða. Þú elskaðir að fá fólkið okkar í heimsókn til Spánar, þá voru veislur á hverju kvöldi og aldrei fékkstu leiða á því að sýna þeim það sem okkur fannst fallegast í nærumhverfinu okkar. Eftir Spánardvölina fluttum við til Hafnarfjarðar og þar leið okkur vel. Við vorum nálægt fólkinu okkar sem gaf okkur mikið. En ég fann oft hvað þú saknaðir þess að fá sjóarana í heimsókn frá Eyjum. Ég ætla að hugsa um sam- band okkar með kærleika. Síð- ustu 10 ár hafa oft reynst okkur mjög erfið en einhvern veginn höfum við stillt saman strengi. Ferðin okkar til Spánar 2019 þar sem þér leið svo vel og minn- ingar frá þessum tíma ylja mér. Þegar við komum heim þá horfði ég oft á dökka skýið koma eins og dalalæða sem kom hægt og rólega yfir veika kroppinn þinn. Elsku ástin mín, ég elskaði þig eins og þú varst og ég elskaði þig fyrir góðu stundirnar okkar, fyrir börnin okkar og barnabörn- in. Þú þarft ekki, ástin mín, að hafa áhyggjur af mér, ég mun standa mig. Ég mun minnast þín og segja börnunum og barna- börnunum okkar hvað þú varst góður maður og með fallega nærveru og hvað þú elskaðir okkur öll mikið og hvað þú varst ótrúlega stoltur af okkur öllum. Ég elska þig. Þín Jóhanna Inga. Elsku pabbi! Mikið ofboðslega er sárt og erfitt að sætta sig við að þú sért farinn frá okkur. Hjartað mitt grætur stanslaust. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, Bróa og elsku afabörnin þín. Það sem hjartað þitt stækkaði mikið þegar við Brói eignuðumst frumburðinn okkar og þú fékkst afatitilinn, þú rifnaðir næstum úr stolti. Svo ungur afi, aðeins 43 ára gamall. Erla Rut og Halldór Breki, afagimsteinarnir þínir, gráta og spyrja hver eigi að hjálpa þeim að læra, skutla þeim á æfingar og allt það góða sem afi gerði fyrir þau. Eldey Inga, elsku afarósin þín til þriggja ára, spyr um afa Hall- dór. Þú varst okkar besti vinur. Ég lofa þér því pabbi að ég mun tala um þig og minnast þín dag- lega. Ég hjálpa þeim að læra eins vel og ég get, elsku pabbi. Námið og íþróttir skiptu þig svo miklu máli og ég skil það svo vel og ætla að gera mitt besta í öllu sem ég geri. Þú varst svo stoltur af okkur öllum, hélst okkur systkinunum vel upplýstum hverju um annað. Það var alltaf svo gott að tala við þig um allt og leita ráða. Þú áttir svör við öllu, sama hvað það var. Pabbi, pabbi minn er farinn frá okkur og hjartað mitt er í molum. Lífið verður aldrei eins án þín. Ég lofa þér því að passa mömmu. Þú ert líka gimsteinninn minn. Sjáumst aftur seinna. Þín Margrét Rut. Besti vinur minn lést 2. apríl sl. Pabbi minn sem var bara fimmtíu og fimm ára. Hann var besti pabbi í heiminum. Hann reyndi að gera allt fyrir alla. Þótt hann gæti það ekki þá reyndi hann eins og hann gat. Pabbi var fyrirmyndin mín í því að vera pabbi. Þegar ég eignast börn þá ætla ég að verða eins góður pabbi og þú varst. Börnin mín munu fá að heyra allt sem afi Halldór var bestur í og heyra allar góðu sögurnar af honum. Minningin hans mun vera með okkur alltaf. Hann verður alltaf hjá okkur. Síðasta skiptið sem ég talaði við pabba þá var hann að skamma mig fyrir að vera að þessu röfli um meistararitgerð- ina mína og hann hvatti mig áfram. Það var alltaf best að hringja í pabba og pústa aðeins. Ég veit að hann á eftir að lesa hana þar sem hann er núna. Hann sá alltaf um að stappa í mig stálinu. Það var líka lang- best að hringja í pabba og tala um allar íþróttir heimsins. Ræða málin aðeins, hversu fáránlega góður Hjörtur bróðir var í leikn- um um kvöldið eða spjalla um leik okkar manna í Liverpool. Við áttum alltaf eftir að fara á Anfield saman, en þegar ég fer verður hann hjá mér allan tím- ann. Það er pottþétt. Það var alltaf best að koma heim til mömmu og pabba þar sem pabbi sat í sófanum og horfði á allar þær íþróttir sem sýndar eru, skipti þar engu máli hvaða íþrótt. Horft var á allar íþróttir og það helst á hæstu stillingu, mömmu til mikillar gleði! Ég á eftir að sakna þess að geta ekki hringt í þig og spyrja hvort þú viljir ekki bjóða mér og Kolbrúnu í mat. Hann vildi helst alltaf hafa allt fólkið sitt hjá sér og helst að elda fyrir okkur öll. Þótt hann borðaði sjaldan með okkur, því hann var alltaf búinn að borða áður en allir settust til borðs. Þegar ég fór í Lýðháskóla í Danmörku fór pabbi með mig út, hann vildi ekki að ég færi einn. Hann sat stoltur með mér í flug- vélinni, ég var 21 árs, hann skil- aði mér í skólann og flaug svo til baka. Hann var bara passa upp á strákinn sinn sem hefði líklegast endað í Austur-Evrópu ef pabbi hefði ekki komið með. Þannig maður var pabbi minn, hann var bestur. Ég elska þig pabbi og mun ég passa upp á mömmu, Margréti og Hjört núna. Ég mun láta í mér heyra úr stúkunni. Ég mun stappa í mömmu stálinu. Ég mun flytja Margréti og Bróa inn í nýja húsið, ég mun hjálpa Erlu, Halldóri Breka og Eldeyju að læra alveg eins og þú gerðir. Ég mun passa þau öll. Við ætlum að muna eftir góðu stundunum sem við áttum öll saman og minnast þeirra með hlýju. Bið að heilsa ömmu Andersen og öllum hinum þegar þú hittir þau loksins. Veit að þér mun líða betur hjá þeim núna og þið pass- ið okkur. Elska þig. Þinn Gunnar Ásgeir. Takk pabbi fyrir að vera besti vinur minn í öll þessi ár. Flestir klukkutímar lífs míns hafa farið fram með þig hjá mér eða að fylgjast með mér á einn eða ann- an hátt og fyrir það er ég þakk- látur. Eins og þegar við bjugg- um á Spáni og þú sóttir mig á vespunni í skólann og komst með mér á allar fótboltaæfingarnar. Okkur fannst oft ógeðslega gam- an að hlæja að því þegar ég var á fótboltaæfingu og þú alltaf með vatnsflösku handa mér og ég og Hector komum til þín, Hector bað um sopa og kláraði allt úr flöskunni. Það sem við höfum oft hlegið þegar við rifj- uðum upp þessa sögu. Takk pabbi fyrir að vera alltaf stuðningsmaður númer eitt. Ég á eftir að sakna þess gífurlega að heyra ekki í djúpu röddinni hvar sem ég er að keppa. Erfitt verður að koma heim eftir leiki. Ég var vanur því að þú beiðst eftir mér í sófanum, tilbúinn að fara yfir leikinn með mér og hrósa mér vel ef átti við en einn- ig að spyrja af hverju það gekk ekki nógu vel. Þér tókst samt alltaf að sjá allt það góða. Ef ég var ekki nógu sáttur, þá varstu ekki lengi að snúa við blaðinu hjá mér. Fyrir mér er ég heppnasti maður í heimi að hafa átt þig sem pabba og er ég endalaust þakklátur fyrir þau ár sem ég fékk með þér. Takk pabbi fyrir að sýna mér leiðir lífsins og gera mig að þeim manni sem ég er í dag. Ég mun halda áfram alla daga að gera þig stoltan og verða að þeim manni sem þú óskaðir að ég yrði. Ég elska þig og mun sakna þín alla daga. Þar til næst, bless besti vinur minn og pabbi minn. Þinn Hjörtur Ingi. Ég var átta ára þegar Halldór kom í Norðurvangsfjölskylduna okkar. Jóhanna systir hafði farið til Vestmannaeyja með nokkrar flíkur í tösku og ætlaði aðeins að skreppa á vertíð í tvær vikur. Á þessum tveimur vikum kynntist systir mín Halldóri sínum. Hún tilkynnti mömmu og pabba það í síma að hún kæmi ekki alveg strax heim frá Eyjum, hún ætl- aði að vinna lengur í fiskinum og kynnast þessum peyja sem var með strípur í hárinu. Fyrstu jólin þeirra á Norð- urvanginum, ég varð heldur bet- ur montin þegar Halldór bættist í hópinn. Ég sá það fljótt að ég gat vafið honum um fingur mér. Allt sem ég gerði og sagði var fyndið og hann hló að öllu. Hvert sem þau Jóhanna fóru, var ég alltaf tekin með. Á hverju sumri í nokkur ár fór ég til Vest- mannaeyja og vann þar í ung- lingavinnunni og þegar Margréti Rut og Gunnar Ásgeir bættust í hópinn passaði ég þau. Halldór var mjög upptekinn af því að ég væri að passa Jóhönnu á meðan hann væri á sjónum. Eyjasumrin voru dásamleg. Hann fór með mig út um alla Eyju, í heimsókn til vina þeirra, á Heiðarveginn og til ömmu Andersen. Ég minn- ist þess þegar við fórum á skot- svæðið þar sem hann nýtti held- ur betur áhugann minn á umhverfinu og lét mig hlaupa út um allt eftir tómum skothylkj- um. Ég hlýddi einu og öllu, eins og lítill veiðihundur, og var svo stolt af því að fá að vera með honum. Halldór kenndi mér að spranga, þú getur ekki verið ættuð frá Vestmannaeyjum og kunna ekki að spranga, sagði hann alltaf. Honum fannst frá- bært þegar ég kom á haustin þegar lundapysjurnar voru byrj- aðar að koma. Jóhanna systir, þessi kvöldsvæfa, var þá löngu sofnuð en við og krakkarnir fór- um að brasa að leita að lunda- pysjum. Þegar Baldur kom í lífið okk- ar þá var Halldór mjög ánægður með kærastavalið. Baldur þessi mikli Liverpool-maður, alveg eins og hann hefði valið hann fyrir mig. Við Baldur nýttum frí- tímana okkar til að skreppa til Eyja og vera með þeim, hvort sem það var um páska, á þrett- ándanum eða á þjóðhátíð. Alltaf vorum við velkomin, því fleiri því betra. Enda var heimilið þeirra alltaf fullt af vinum og vanda- mönnum. Yndislegur tími. Þegar fjölskyldan flutti til Spánar fór- um við fjölskyldan með Andra Frey þá þriggja ára í heimsókn. Þar voru grillaðar stórsteikur á hverju kvöldi, setið og spjallað fram á rauðanótt. Tíminn leið alltof hratt og við rifjuðum oft upp samveruna okkar á Spáni. Að hafa farið til Liverpool á Anfield með þér og systkinunum er dásamleg minning sem yljar okkur núna. Það sem við skemmtum okkur vel. Þið strák- arnir í fréttamannastúkunni, eins og lítil börn í tívolíi í bún- ingsherberginu og brosið náði til eyrnanna á vellinum. Þið töluðuð um sigra ykkar manna og þið voruð svo stoltir að vera þarna. Gamlárskvöldin hér eftir verða öðruvísi, það verður skrýt- ið að hafa þig ekki á þínum stað hjá okkur. Maturinn var alltaf „alveg meiriháttar“, nautalundin hans Baldurs alveg upp á tíu og sósan mín var sú allra besta og þú sagðir oft í gríni að þú mynd- ir vilja fá sósuna bara í glasi næst. Elsku Halldór, við munum passa elsku Jóhönnu okkar og alla fjölskylduna þína. Við vitum að það kemur enginn í þinn stað, en við skulum reyna okkar allra besta. Þín Hjördís Ósk og Baldur Páll. Það er alltaf erfitt að setjast niður og skrifa minningargrein um góða vini sem falla frá langt fyrir aldur fram. En þá er alltaf gott að ylja sér við góðu minn- ingarnar og rifja þær upp. Halldór og Jóhanna kona hans hafa verið góðir vinir okkar síðustu 25 ár. Við höfum ým- islegt brallað, verið dugleg að hittast og gera skemmtilega hluti saman. Við kynnumst fyrst í Vest- mannaeyjum þar sem Halldór ólst upp og fljótlega kom í ljós að við áttum vel saman. Halldór var mjög skemmtilegur maður, fróður um marga hluti og gaman að tala við hann. Honum þótti einstaklega vænt um börnin sín, Margréti Rut, Gunnar Ásgeir og Hjört Inga, fylgdist mjög vel með hvað þau voru að gera og það leyndi sér ekki þegar hann talaði um þau hversu mikils virði þau voru honum og hversu stolt- ur hann var af þeim. Hann var mikill áhugamaður um íþróttir, sérstaklega hand- bolta, sem synir hans stunduðu af krafti, og fótbolta, þar voru ÍBV og Liverpool í uppáhaldi. Þeir voru ófáir leikirnir sem við horfðum á saman. Halldór mætti á alla leiki hjá strákunum og ekki fór á milli mála að hann var á svæðinu. Hann var duglegur að hvetja sitt lið og átti það líka til að segja dómurunum aðeins til ef honum fannst þeir ekki standa sig. Við bjuggum á Spáni á ár- unum 2007-2008 og svo skemmtilega vildi til að Halldór, Jóhanna og synir bjuggu þar líka á sama tíma. Við vorum dugleg að eyða tíma saman og eigum mikið af frábærum minn- ingum sem aldrei gleymast. Af mörgu er að taka, t.d. þegar þau gleymdu afmæli, Big Mama- kvöldinu og fjölmörgum kvöld- verðum og stundum sem við átt- um saman. Halldór var mjög góður vinur sem gaman var að umgangast, hann var frábær fjölskyldufaðir sem þótti einstaklega vænt um konu sína, börn og barnabörnin sem áttu hug hans allan. Góður drengur er farinn allt of snemma en vonandi líður þér betur núna elsku vinur. Missir fjölskyldunnar er mikill en það er gott að ylja sér við þær mörgu góðu minningar sem þau eiga. Við biðjum góðan Guð að styrkja þau öll á þessum erfiðu tímum og munum við gera það sem í okkar valdi stendur til að reynast þeim vel. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Farðu í friði elsku vinur, kær- ar þakkir fyrir allt. Árni og Unnur. Halldór Jörgen Gunnarsson Bróðir okkar og mágur, STEINÞÓR KRISTJÁNSSON, vörubílstjóri frá Geirakoti, lést þriðjudaginn 13. apríl á Fossheimum Selfossi. Katrín Kristjánsdóttir Sigrún Kristjánsdóttir Gunnar Kristmundsson Ólafur Kristjánsson María Hauksdóttir Elskuleg mamma okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GERÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, lést á heimili sínu að kvöldi 12. apríl. Útför hennar verður auglýst síðar. Inga Steinlaug Guðmundsd. Einar Helgason Þorgeir Axel Örlygsson Hrefna Sigríður Örlygsdóttir Aðalbjörg Kolfinna Örlygsd. Soffía Örlygsdóttir Runólfur Þór Sigurðsson Örn Örlygsson Fanney Gunnlaugsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.