Morgunblaðið - 16.04.2021, Síða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021
✝
Eggert Berg-
sveinsson fædd-
ist 15. ágúst 1956 á
Steðja í Reykholts-
dalshreppi. Hann
lést á Landspít-
alanum Hringbraut
þann 7. apríl 2021.
Foreldrar hans
voru Elías Berg-
sveinn Jóhannsson,
f. 31. júlí 1915 í
Húnavatnssýslu, d.
18. desember 2006, og Anna
Eggertsdóttir, f. 25. febrúar 1930
1959 á Bíldudal. Anna og Eggert
kynntust 1977 og giftu sig 29.
september 2015. Börn þeirra eru
Anna Elsa Eggertsdóttir, f. 22.
október 1983, maki Arilíus Borg-
fjörð Kristjánsson, f. 24. des.
1973, börn: Anna Jóna Odds-
dóttir, f. 2. nóvember 2005, Mán-
ey Líf Arilíusardóttir, f. 28. ágúst
2009, og Eggert Borgfjörð Arilí-
usarson, f. 5. október 2012, Stef-
án Jóhann Eggertsson, f. 8. ágúst
1991, og Marinó Eggertsson, f. 5.
september 1997.
Útför Eggerts verður gerð frá
Digraneskirkju í dag, 16. apríl
2021, og hefst athöfnin kl. 13.
Streymt verður frá athöfninni
á:
http://streyma.is/streymi/
Hlekk á streymi má einnig finna á:
https://www.mbl.is/andlat
á Melum á Skarðs-
strönd, d. 17. apríl
2006. Systkini hans
eru Jóhann Berg-
sveinsson, f. 22.
febrúar 1950, Krist-
mundur Berg-
sveinsson, f. 8. jan-
úar 1963, og
Margrét Guðrún
Bergsveinsdóttir, f.
25. desember 1965.
Eftirlifandi eig-
inkona Eggerts er Anna Þor-
gerður Högnadóttir, f. 23. ágúst
Elsku hjartans ástin mín, nú er
komið að kveðjustund.
Ég kveð þig með sorg og trega í
hjarta mínu, ég mun ávallt minn-
ast þín og muna allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman öll
þessi ár. Ó, hvað ég mun sakna
þess að fá morgunknúsið mitt og
koss á kinn. Ég elska þig gullið
mitt. Hvíl í friði elsku engillinn
minn.
Anna Þorgerður
Högnadóttir.
Elsku pabbi, það er svo ótrú-
lega sárt og ósanngjarnt að þurfa
að kveðja þig svona snemma. Þú
hefur kennt mér svo ótalmargt og
gert mig að þeim manni sem ég er
í dag. Þú hefur alltaf verið mér til
halds og trausts í öllu því sem ég
hef tekið mér fyrir hendur og þið
mamma voruð alltaf mætt á völl-
inn eldsnemma um helgar til þess
að styðja mig í öllum þeim íþrótt-
um sem voru í tísku hjá mér um
tíma, sama þótt ég hafi verið alveg
vonlaus í fótbolta. Veröldin er svo
mikið fátækari án þín og skarðið
sem þú skilur eftir þig verður
aldrei fyllt. Þegar ég var lítill og
meiddi mig varstu vanur að segja
við mig: „Það grær áður en þú
giftir þig.“ Ég veit fyrir víst að
þessi sár munu aldrei gróa að fullu
en allar minningarnar sem við eig-
um saman og skemmilegu sögurn-
ar sem þú skilur eftir þig munu
veita mér örlitla hlýju í hjarta. Það
er mér mikill heiður og sönn
ánægja að vera þeirra forréttinda
njótandi að fá að kalla þig pabba
minn og mun ég segja mínum
börnum og barnabörnum stoltur
frá því hversu mikill öðlingur afi
þeirra var. Ég heiti því að halda
minningu þinni á lofti svo lengi
sem ég lifi. Þar til næst elsku
pabbi.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Marinó Eggertsson.
Í orðabók er orðið „hetja“ skil-
greint sem hraustmenni og af-
reksmaður. Það var pabbi minn í
orðsins fyllstu merkingu. Í þau 30
ár sem ég fékk með honum var
hann hetjan mín, fyrirmynd og
kennari.
Í yfir 30 ár starfaði pabbi hjá
Íslyft sem vélvirki og það var nán-
ast ekkert sem hann gat ekki lag-
að og gefið nýtt líf.
Ég fékk þann heiður að fá að
starfa með honum í yfir sjö ár og á
þeim tíma lærði ég mikið af hon-
um um lífið, tilveruna og viðgerðir.
Hann var nautsterkur eins og
hann lýsti sjálfur og af þeim ófáu
sjómönnum sem ég skoraði á hann
í sigraði hann alla og sagði: „Þetta
kemur næst hjá þér.“
Stefán Jóhann Eggertsson.
Elsku besti pabbi minn.
Ég varla trúi því að þú sért far-
inn langt fyrir aldur fram en því
miður gera veikindi ekki boð á
undan sér.
Þú varst og ert heimsins besti
pabbi og afi. Mér finnst ég sú allra
heppnasta að hafa fengið þig sem
pabba enda algjör pabbastelpa.
Það var ansi margt sem við bröll-
uðum saman og margar minning-
ar til, eins og þegar við fórum í bíl-
túr, þá var farið í næstu sjoppu og
keypt kók og Prins Póló. Ein af
mörgum góðum minningum. Þú
varst og ert heimsins besti pabbi
og afi, ljúfur, góður, falleg sál og
bara sá allra besti. Ég er ansi stolt
að vera dóttir þín. Hann pabbi var
góður maður, vildi öllum vel og var
alltaf tilbúinn að rétta fram hjálp-
arhönd. Svona var hann pabbi
minn, ljúfur og góður maður sem
elskaði og hugsaði vel um sitt fólk.
Elsku pabbi, takk fyrir allt og
ég lofa að hugsa vel um ættbálk-
inn þinn.
Megi guð og englar geyma þig.
Elska þig svo mikið.
Þín Anna Elsa.
Þótt döpur sé nú sálin
þó mörg hér renni tárin
mikla hlýju enn ég finn
þú verður alltaf pabbi minn
(Heba Dögg Jónsdóttir)
Anna Elsa
Eggertsdóttir.
Eggert minn, það þykir mér af-
ar miður og ósanngjarnt að kveðja
þig svona snöggt og snemma.
Eldri bræður ættu aldrei að fylgja
sínum yngri bræðrum til grafar,
það er eitthvað rangt og hreinlega
stórskrýtið við það. Eitt veit ég
fyrir víst, að þín verður sárt sakn-
að, ekki bara af mér og mínum,
heldur víðar. Það var ekki nema 6
ára aldursmunur á milli okkar
tveggja, þess vegna man ég varla
eftir mér nema með þig með mér í
för. Þær eru ófáar æskuminning-
arnar úr sveitinni okkar fögru að
Steðja. Þar ólumst við upp og öll
okkar fjölskylda á sínar rætur að
rekja þangað. Þegar við urðum
eldri fórum við systkinin að
byggja okkur sumarhús á fallegu
æskuslóðunum. Ekki vantaði
dugnaðinn í þér elsku bróðir við að
hjálpa okkur við allt tilfallandi
sem að því stóð. Þú varst svo mik-
ill bílakall og ef það þurfti að kíkja
undir húdd eða skoða gang í bíl
var alltaf hægt að treysta á þína
hjálp. Þú gafst þér líka alltaf tíma
til að hjálpa strákunum okkar í
öllu bílastússi og varst svo snið-
ugur og úrræðagóður kennari
enda lærðu Svenni minn og Maggi
mikið af þér sem þeir munu búa að
alla ævi og ég er þér þakklátur
fyrir það. Eggert minn, þú varst
góðmennskan uppmáluð, það var
ekki til í þér óþolinmæði eða
stress. Þú hafðir svo hlýja og
örugga nærveru og gast talað við
alla og það var gagnkvæmt. Við
bræðurnir áttum svo sannarlega
marga góða tíma saman. Bæði hér
um árið í Klúbbnum góða og svo
voru það öll ferðalögin sem við
lögðum í saman, bæði hér innan-
lands og frábærar ferðir erlendis.
Við Súsanna munum svo sannar-
lega sakna þess að ferðast með
þér en nú ertu lagður af stað í
ferðalagið langa sem við getum
ekki fylgt þér í og við kveðjumst
að sinni. Elsku bróðir, mágur og
frændi, að lokum þar til við hitt-
umst á ný segjum við söngur og
hestar eins og við gerðum ávallt í
okkar ferðalögum.
Jóhann Bergsveinsson
og Súsanna María
Magnúsdóttir.
Eggert
Bergsveinsson
✝
Kolbrún Garð-
arsdóttir fædd-
ist í Hafnarfirði 26.
júní 1958. Hún lést
3. apríl 2021 á
krabbameinsdeild
Landspítalans við
Hringbraut. For-
eldrar hennar voru
Garðar Finn-
bogason, f. 29. des.
1932, d. 13. des.
2013, og Gréta
Kristjánsdóttir (Grethe Bogel-
und Rasmussen), f. 31. mars
1937, d. 24. mars 1987.
Systkini: Linda, f. 1959, Krist-
ján, f. 1961, d. 1961, Karl Krist-
ján, f. 1963, Hjörtur Preben, f.
Alma Margrét Karn, f. 14. nóv.
2015; b) Steinar Björgvin Karn, f.
9. apríl 2018.
3) Edda María, f. 28. mars
1991. M.: Birkir Þór Heimisson, f.
11. júní 1988. Þeirra börn: a)
Maídís María, f. 14. apríl 2013; b)
Benedikt Hólm, f. 22. febrúar
2018.
Kolbrún giftist ung eigin-
manni sínum og áttu þau heimili
sitt alla tíð í Reykjavík, lengst af
í eigin íbúð í Seláshverfi. Hún
starfaði nær samfellt hjá Ála-
fossi/Ístex. Árið 2006 eignaðist
hún með eiginmanni sínum sum-
arbústað í Kerhrauni í Gríms-
nesi.
Útför Kolbrúnar verður frá
Árbæjarkirkju í dag, 16. apríl
2021, kl. 13. Streymt verður frá
athöfninni:
https://youtu.be/G0H2Ipc8VuA
Hlekk á streymi má einnig
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
1967.
Kolbrún giftist 16.
júní 1976 Kjartani
Jónassyni, f. 1955,
og eignuðust þau
þrjú börn. Þau eru:
1) Garðar Hólm,
fæddur 12. febrúar
1978. K.: Sigrún
Guðnadóttir, fædd 9.
júlí 1979. Þeirra
börn: a) Emma Kol-
brún, f. 12. apríl
2004; b) Guðni Dagur, f. 29. mars
2006; c) Markús Kjartan, f. 8.
sept. 2014.
2) Elvar Steinn, f. 16. nóv.
1986. K.: Leonie Maria Karn, f.
31. júlí 1987. Þeirra börn: a)
Elsku Kolla mín, kveðjustund-
in er erfið. Efst í huga mér er
þakklæti fyrir vináttuna og sökn-
uður. Við áttum eftir að gera svo
margt saman vinkonurnar eða
ömmurnar eins og við kölluðum
hópinn okkar. Við kynntumst á
Raufarhöfn ungar stúlkur, en þar
vorum við báðar í sumarvinnu í
frystihúsinu, þú í verbúðinni með
vinkonum þínum úr Hafnarfirði
en ég hjá afa og ömmu í Sjón-
arhóli. Ég sótti til ykkar í verbúð-
ina því þar var alltaf gaman hjá
okkur stelpunum. Alltaf nóg að
bralla og endalaust hægt að
spjalla. Áfram héldum við saman
í gegnum lífið því ég kynnti þig
fyrir Kjartani bróður mínum sem
síðan varð eiginmaður þinn. Fjöl-
skyldan var þinn fjársjóður og þú
ávallt stolt af þínum börnum og
barnabörnum.
Þegar við Ragnar byrjuðum
búskap í Álftahólum leið ekki á
löngu áður en þið voruð einnig
komin í blokkina og við gátum
hjálpast að með börnin, Eddu
Rún okkar og Garðar Hólm ykk-
ar. Ferðalög norður og sumarbú-
staðaferðir voru einnig í uppá-
haldi og hópurinn ykkar
stækkaði, Elvar Steinn og Edda
María bættust við barnalán ykk-
ar hjóna. Þú vannst hjá Álafossi,
síðar Ístex við spuna á lopa og
varst ávallt mikil handavinnu-
kona. Ég fór í kennslu í grunn-
skóla og síðar skólastjórnun. Við
áttum ávallt okkar góðu stundir
saman með fjölskyldum og
saumaklúbbnum okkar, ömmun-
um. Fórum í yndislega ferð sam-
an ömmurnar til Hönnu vinkonu
okkar sem býr í Svíþjóð og þá var
nú mikið spjallað um börn og
buru, lífið og tilveruna.
Þú varst ætíð ljúf og hógvær,
föst fyrir og stolt af þínu fólki. En
síðustu ár hafa verið erfið barátta
við erfiðan sjúkdóm. Ekki kvart-
aðir þú heldur tókst á við þín
veikindi með sömu hógværð og
önnur verkefni sem þér voru falin
á lífsleiðinni.
Ég minnist síðustu samveru
hjá okkur ömmum þann 18. mars
síðastliðinn þar sem við ræddum
börnin okkar, barnabörnin og
hvað fram undan væri hjá okkur
vinkonum á þessu aldursskeiði
tímamóta hjá okkur. Þú varst
glöð og glíman við krabbameinið
virtist vera á réttri leið. En fljótt
skipast veður í lofti, kæra vin-
kona, og komið er að kveðju-
stund. Við eigum yndislegar
minningar sem fylla huga okkar,
hlýja hjörtum og geymast um
dýrmæta vinkonu sem sárt er að
kveðja svo fljótt.
Við Ragnar sendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur til
ykkar, elsku Kjartan, Garðar,
Elvar, Edda María og fjölskyld-
ur. Megi minningarnar um elsku
Kollu veita ykkur styrk á erfiðum
tíma. Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Soffía Jónasdóttir.
Kolbrún
Garðarsdóttir
✝
Ásgerður Jó-
hanna Guð-
bjartsdóttir fæddist
11. maí 1929 á Efri-
Húsum í Önundar-
firði. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð 5.
apríl 2021.
Foreldrar Ás-
gerðar voru hjónin
Guðbjartur Sig-
urður Guðjónsson,
f. 2. febrúar 1904, d. 10. febrúar
1992, og Petrína Friðrikka Ás-
geirsdóttir, f. 6. júní 1904, d. 16.
ágúst 1992. Ásgerður ólst upp í
stórum systkinahópi þar sem
systkinin voru 13.
Ásgerður eign-
aðist tólf börn, þau
eru: Elín Halldóra,
Erla Petrína, Guð-
björn, Elsa, Heið-
björg Hulda, Guð-
bjartur, Aldís, Erla
Berit, Aldís Drífa,
Gunnþór Georg,
Ingunn Lind og
Karen Eva. Barna-
börn hennar eru 25
og barna-
barnabörnin 37.
Ásgerður starfaði lengst af
sem verkakona.
Útförin fer fram í Garða-
kirkju í dag, 16. apríl 2021,
klukkan 15.
Nú er elsku móðir mín horfin á
braut. Hún skilur eftir mikið
tómarúm í hjarta mínu. Ég lærði
margt gott af henni í sambandi við
fjármál, að nýta hlutina vel og
eyða ekki um efni fram. Ég á eftir
að sakna þess að geta hringt í
hana á leiðinni heim úr vinnunni
en ég hef gert það í mörg ár. Við
horfðum líka oft saman á fótbolta-
leiki en hún fylgdist vel með því.
Við fórum saman til Noregs að
heimsækja Erlu Berit og var það
eftirminnileg ferð og hún hafði
mjög gaman af því. Við vorum
mjög góðir vinir þótt við værum
ekki alltaf sammála. Ég sakna
hennar mikið, en á margar góðar
minningar sem munu ylja mér um
ókomin ár.
Hvíl í friði.
Þinn sonur,
Gunnþór.
Elsku mamma mín.
Nú er komið að kveðjustund-
inni. Þótt maður viti að hverju
stefnir kemur það alltaf á óvart
þegar kallið kemur. Ég kynntist
þér ekki fyrr en um fermingarald-
ur, en við náðum strax vel saman
og vorum í góðu sambandi alla tíð.
Lífið var þér ekki auðvelt og þú
varst ekki allra, en þú mildaðist
með árunum. Fortíðina vildir þú
lítið ræða, en við vitum að það var
erfitt. En þú barðist áfram, stóðst
á eigin fótum – eignaðist þína eig-
in íbúð – varst alger nagli. Ég á
margar góðar minningar frá sam-
veru okkar í sumarbústaðnum,
ferðalögum og fjölskylduboðum.
Þetta eru góðar minningar sem
munu lifa um ókomin ár. Ég á eftir
að sakna þess að hringja í þig og
spjalla, þú varst mjög fróð og
hafðir sterkar skoðanir á öllu.
Nú er komið að leiðarlokum.
Ég kveð þig með söknuði, en góð-
ar minningar lifa.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem)
Þín dóttir
Erla.
Ásgerður Jóhanna
Guðbjartsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Elskuleg móðir okkar,
GUÐFINNA JENSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 31. mars.
Útförin hefur þegar farið fram.
Fjölskyldan þakkar auðsýnda samúð
og vinarhug.
Sigríður, Ágústa, Sólveig og María Hjaltadætur
Elskuleg dóttir mín, systir okkar, stjúpsystir
og mágkona,
HALLVEIG FRÓÐADÓTTIR,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
laugardaginn 17. apríl klukkan 15.
Athöfninni verður streymt.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið og
Ljósið. Fyrir hönd aðstandenda,
Hólmfríður Kofoed-Hansen
Ragna Fróðadóttir og fjölskylda
Björn Fróðason Lovísa V. Bryngeirsdóttir
Hólmfríður Fróðadóttir
Ingólfur Þorsteinsson Þorbjörg Kristinsdóttir
Hanna Valdís Þorsteinsdóttir Sheer El-Showk
Sambýlismaður minn, faðir okkar og bróðir,
RAGNAR ALEXANDER ÞÓRSSON,
Selfossi,
lést á heimili sínu sunnudaginn 11. apríl.
Daiga Jirjena
Guðmundur Andri Ragnarsson
Helga María Ragnarsdóttir
Júlía Sif Liljudóttir
Nína Þórsdóttir