Morgunblaðið - 16.04.2021, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021
Evrópudeild UEFA
Átta liða úrslit, seinni leikir:
Manchester United – Granada ............... 2:0
_ Man. Utd áfram, 4:0 samanlagt.
Slavia Prag – Arsenal .............................. 0:4
_ Arsenal áfram, 5:1 samanlagt.
Roma – Ajax.............................................. 1:1
_ Roma áfram, 3:2 samanlagt.
Villarreal – Dinamo Zagreb .................... 2:1
_ Villarreal áfram, 3:1 samanlagt.
_ Í undanúrslitum leikur Manchester Unit-
ed við Roma og Arsenal við Villarreal.
Danmörk
Bikarkeppnin, undanúrslit, seinni leikir:
SönderjyskE – Midtjylland..................... 3:1
- Mikael Anderson lék fyrstu 67 mínút-
urnar með Midtjylland.
_ SönderjyskE í úrslit, 3:2 samanlagt.
Randers – AGF......................................... 1:1
- Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 64
mínúturnar með AGF.
_ Randers í úrslit, 3:1 samanlagt.
Rúmenía
Meistarakeppnin:
CFR Cluj – FCSB ............................ (víti) 4:1
- Rúnar Már Sigurjónsson kom inn á hjá
CFR á 83. mínútu.
England
B-deild:
Rotherham – Coventry............................ 0:1
Staðan:
Norwich 41 27 9 5 65:28 90
Watford 41 24 10 7 59:27 82
Swansea 41 22 9 10 50:31 75
Brentford 40 20 13 7 71:40 73
Bournemouth 41 20 11 10 66:40 71
Barnsley 41 21 8 12 54:44 71
Reading 41 19 9 13 56:45 66
Cardiff 41 16 11 14 57:45 59
Millwall 41 14 16 11 41:40 58
Middlesbrough 41 16 9 16 48:45 57
QPR 41 15 11 15 48:50 56
Stoke 41 14 13 14 45:46 55
Luton 40 15 8 17 35:46 53
Bristol City 41 15 5 21 40:55 50
Nottingham F. 41 12 13 16 34:39 49
Preston 41 14 6 21 41:55 48
Blackburn 41 12 11 18 52:47 47
Coventry 41 11 12 18 37:56 45
Birmingham 41 11 12 18 31:50 45
Huddersfield 41 11 11 19 43:62 44
Derby 41 11 10 20 30:46 43
Rotherham 39 11 6 22 41:53 39
Sheffield Wed. 41 11 8 22 34:54 35
Wycombe 41 8 9 24 30:64 33
Bandaríkin
Deildabikarinn, austurriðill:
Orlando Pride – Sky Blue....................... 0:1
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék ekki
með Orlando vegna landsliðsferðarinnar.
4.$--3795.$
Þýskaland
Essen – Flensburg............................... 28:29
- Alexander Petersson skoraði eitt mark
fyrir Flensburg.
Kiel – Bergischer................................. 33:30
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði 8 mörk
fyrir Bergischer.
Leipzig – Balingen .............................. 26:18
- Oddur Gretarsson skoraði eitt mark fyr-
ir Balingen.
Ludwigshafen – Stuttgart.................. 28:24
- Viggó Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir
Stuttgart.
Staðan:
Flensburg 40, Kiel 39, RN Löwen 38,
Magdeburg 36, Göppingen 33, Füchse
Berlín 29, Wetzlar 28, Bergischer 27, Mel-
sungen 25, Leipzig 25, Lemgo 24, Erlangen
22, Stuttgart 21, Hannover-Burgdorf 18,
Minden 16, Balingen 15, Ludwigshafen 13,
Nordhorn 12, Essen 11, Coburg 8.
Vináttulandsleikir kvenna
Holland – Brasilía................................. 19:25
Danmörk – Spánn................................. 30:26
%$.62)0-#
Spánn
Manresa – Zaragoza ........................... 92:82
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði tvö stig
fyrir Zaragoza og tók sex fráköst á 18 mín-
útum.
Litháen
Siaulai – Lietkabelis............................ 97:87
- Elvar Már Friðriksson skoraði 23 stig
fyrir Siauliai, átti 11 stoðsendingar og tók
tvö fráköst á 36 mínútum.
NBA-deildin
Minnesota – Milwaukee ................... 105:130
Charlotte – Cleveland ........................ 90:103
Philadelphia – Brooklyn .................. 123:117
Toronto – San Antonio ..................... 117:112
Detroit – LA Clippers ........................ 98:100
Chicago – Orlando ............................ 106:115
New Orleans – New York................ 106:116
Houston – Indiana............................ 124:132
Oklahoma City – Golden State........ 109:147
Memphis – Dallas ............................. 113:114
Denver – Miami ................................ 123:106
Sacramento – Washington............... 111:123
4"5'*2)0-#
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Leikirnir mikilvægu gegn Slóveníu í
undankeppni HM kvenna í hand-
knattleik eru nú handan við hornið.
Á morgun mætast Slóvenía og Ís-
land í Slóveníu og aftur á Ásvöllum í
Hafnarfirði á miðvikudaginn. Leik-
irnir hafa mikla þýðingu því liðið
sem sigrar tekur þátt í lokakeppni
HM á Spáni í desember en liðið sem
tapar er úr leik.
Nokkuð er um liðið síðan kvenna-
landsliðið lék á stórmóti og gerði það
síðast á EM árið 2012. Ísland hefur
einu sinni komist á HM kvenna en
það var í Brasilíu árið 2011. Þá gekk
íslenska liðinu vel og komst í 16-liða
úrslit. Lagði til að mynda Svart-
fjallaland að velli sem sumarið eftir
lék til úrslita á Ólympíuleikunum í
London.
„Við erum orðnar mjög spenntar
fyrir leiknum. Æfingaálagið undan-
farið hefur verið mikið og við erum
bara spenntar fyrir því að mæta
Slóveníu. Það verður áhugavert að
sjá hvar við stöndum gagnvart Slóv-
eníu og við ætlum okkur góð úrslit
eftir leikina tvo,“ sagði Ragnheiður
Júlíusdóttir þegar Morgunblaðið tók
hana tali á landsliðsæfingu á mið-
vikudaginn. Eins og fram hefur kom-
ið hefur íslenska liðið fengið ágætan
tíma til að stilla strengina. Fyrst lék
liðið þrjá leiki í forkeppninni á dög-
unum en þeir fóru fram í Norður-
Makedóníu. Í framhaldinu hefur lið-
ið getað æft saman hérlendis á und-
anþágu frá yfirvöldum. Segja má að
sá tími sem liðið hefur haft hafi kom-
ið sér vel því á síðustu árum hefur
liðið leikið fáa landsleiki, meðal ann-
ars vegna heimsfaraldursins.
„Við höfum eytt svipuðum tíma í
vörn og sókn í undirbúningnum fyrir
leikina. Við vorum mjög óheppnar í
síðasta verkefni að missa bæði Stein-
unni [Björnsdóttur] og Sunnu [Jóns-
dóttur]. Það var í raun ömurlegt því
þær eru frábærir reyndir leikmenn
og einnig góðar fyrir hópinn. Við höf-
um æft á hverju einustu æfingu
hvernig best sé fyrir okkur að spila í
miðri vörninni. Við þurftum að finna
einhverjar sem gætu hlaupið í skarð-
ið en ég hef engar áhyggjur af því að
það takist ekki,“ sagði Ragnheiður
en Steinunn og Sunna léku báðir í
miðri vörninni eða sem þristar eins
og það er gjarnan kallað á hand-
boltamáli.
Góðar skyttur hjá Slóvenum
Slóvenía hefur verið á uppleið og
hefur liðið komist í lokakeppni á síð-
ustu fimm stórmótum. Hefur liðið
hafnað þrívegis í 14. sæti, einu sinni í
13. sæti og einu sinni í 16. sæti á
stórmótunum frá árinu 2016. Liðinu
hefur því ekki tekist að vera á meðal
allra bestu liðanna en nokkrir leik-
menn liðsins leika á hinn bóginn með
sumum af bestu félagsliðunum.
„Við höfum stúderað þær mjög
mikið síðustu daga hvort sem það er
á vídeófundum eða á æfingum. Úti-
línan hjá þeim er mjög góð og þær
sem spila fyrir utan hjá þeim eru all-
ar í toppliðum í Meistaradeildinni.
Þetta er flott lið með mjög góða leik-
menn. Þær geta hins vegar átt sína
slæmu daga og vonandi náum við að
stríða þeim,“ sagði Ragnheiður og
telur að mikilvægt verði fyrir ís-
lenska liðið að temja sér þolinmæði í
vörninni.
„Þær geta spilað hratt og vilja
keyra á andstæðingana. Þær eru
með góðar skyttur sem geta allar
skotið fyrir utan og eiga til dæmis
tvær mjög góðar örvhentar skyttur.
En á sama tíma er sóknarleikurinn
hjá þeim agaður og við þurfum því að
vera þolinmóðar í vörninni,“ sagði
Ragnheiður Júlíusdóttir sem skoraði
níu mörk í leikjunum þremur gegn
Norður-Makedóníu, Grikklandi og
Litháen í forkeppninni á dögunum.
Góðar skyttur
og agaður
sóknarleikur
- Landsliðskonurnar hafa skoðað lið
Slóveníu vel - Leikið á morgun
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Að Varmá Ragnheiður gerir styrktaræfingar með ketilbjöllu á æfingunni.
Elvar Már Friðriksson landsliðs-
maður í körfuknattleik átti enn
einn stórleikinn með Siauliai í gær
þegar liðið vann sinn fjórða leik í
röð í litháísku A-deildinni. Siauliai
sigraði Lietkabelis á heimavelli,
97:87, og Elvar var í stóru hlut-
verki. Hann var stigahæstur allra á
vellinum með 23 stig og auk þess
með langflestar stoðsendingar, 11
talsins, ásamt því að taka tvö frá-
köst. Þá spilaði hann mest allra, í
rúmar 36 mínútur af 40, og var með
flest framlagsstig í báðum liðum,
eða 29.
Stórleikur Elvars
og enn einn sigur
Ljósmynd/Sveinn Helgason
Litháen Elvar Már Friðriksson er
lykilmaður hjá liði Siauliai.
Handknattleiksmaðurinn Árni
Bragi Eyjólfsson mun leika með
Aftureldingu á ný á næsta keppn-
istímabili eftir að hafa spilað með
KA í vetur og með Kolding í Dan-
mörku tímabilið þar á undan. Árni
Bragi, sem er langmarkahæsti leik-
maður KA í Olísdeild karla í vetur
með 84 mörk í 14 leikjum, hefur
skrifað undir þriggja ára samning
við Aftureldingu og tekur hann
gildi í sumar. Árni lék með Aftur-
eldingu um árabil og var m.a.
markahæsti leikmaður liðsins vet-
urinn 2017-18.
Árni aftur til
Aftureldingar
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Flytur Árni Bragi Eyjólfsson er
markahæstur hjá KA í vetur.
Ensku liðin Arsenal og Manchester
United komust á sannfærandi hátt í
undanúrslit Evrópudeildarinnar í
fótbolta í gærkvöld og eru þar með
skrefinu nær því að vinna sér sæti í
Meistaradeildinni. Sigurlið Evrópu-
deildarinnar kemst í Meistaradeild-
ina og það er nánast eina von Arsen-
al um þátttöku í Evrópukeppni á
næsta keppnistímabili.
Arsenal var í erfiðri stöðu eftir
jafntefli, 1:1, við Slavia Prag á
heimavelli en fór hinsvegar á kost-
um í tékknesku höfuðborginni í gær-
kvöld. Skytturnar voru komnar í 3:0
eftir 24 mínútur og voru ekki í vand-
ræðum eftir það. Alexandre Lacaz-
ette skoraði tvö markanna, Nikolas
Pépé og Bukayo Saka eitt hvor.
Arsenal mætir Villarreal sem
vann Dinamo Zagreb 2:1 og sam-
anlagt 3:1.
Manchester United fylgdi eftir
2:0-sigri gegn Granada á Spáni með
öðrum 2:0-sigri á Old Trafford. Ed-
inson Cavani gerði út um einvígið
með laglegu marki strax á 6. mínútu
og Spánverjarnir gerðu sjálfsmark
undir lokin.
United mætir Roma sem lagði
Ajax 3:2 samanlagt eftir 1:1-jafntefli
í Róm. Edin Dzeko jafnaði og
tryggði Roma áframhald í keppn-
inni. vs@mbl.is
AFP
Stórsigur Leikmenn Arsenal fagna Alexandre Lacazette (annar frá vinstri)
sem skoraði tvö marka enska liðsins í Prag í gærkvöld.
Verður enskur
úrslitaleikur?
- Arsenal vann stórsigur í Prag