Morgunblaðið - 16.04.2021, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021
Allir leikmenn og þjálfarar þýska
knattspyrnuliðsins Hertha Berlín eru
komnir í fjórtán daga einangrun, frá
og með deginum í dag. Félagið til-
kynnti þetta á heimasíðu sinni í gær-
kvöld. Á miðvikudag greindist Marvin
Plattenhardt, leikmaður Herthu, með
kórónuveiruna og í kjölfarið sömuleið-
is þeir Pal Dardai knattspyrnustjóri,
Admir Hamzagic aðstoðarþjálfari og
sóknarmaðurinn Dodi Lukebakio.
„Við neyðumst til að fara í fjórtán
daga einangrun. Út frá heilbrigðissjón-
armiði er það það eina rétta í stöð-
unni,“ sagði Arne Friedrich íþrótta-
stjóri félagsins á heimasíðunni.
Á næstu tveimur vikum á Hertha að
mæta Mainz, Freiburg og Schalke í
þýsku 1. deildinni og félagið hefur ósk-
að eftir því að þeim verði frestað.
_ Íslandsmótið í körfuknattleik fer
aftur af stað næsta miðvikudag, 21.
apríl. Þá verður leikin heil umferð í úr-
valsdeild kvenna, Dominos-deildinni.
Dagana 22. og 23. apríl verður leikin
umferð í úrvalsdeild karla, Dominos-
deildinni. Sex umferðir eru eftir í báð-
um deildum. Keppni í þeim á að ljúka
8. til 10. maí og þá tekur við úrslita-
keppni um Íslandsmeistaratitlana.
_ Íslandsmótið í handknattleik fer af
stað sunnudaginn 25. apríl með tveim-
ur frestuðum leikjum í úrvalsdeild
karla, Olísdeildinni. Þar eru sjö um-
ferðir eftir en samt verður ekki leikið
þar á ný fyrr en 9. maí vegna lands-
leikja. Keppni í deildinni lýkur ekki fyrr
en 3. júní og þá er úrslitakeppnin eftir.
Í úrvalsdeild kvenna, Olísdeildinni, eru
hins vegar aðeins tvær umferðir eftir
og þær verða leiknar laugardagana 1.
og 8. maí.
_ Þá er eftir að leika að nýju leik
Stjörnunnar og KA/Þórs í Olísdeild
kvenna en áfrýjunardómstóll HSÍ hef-
ur vísað frá kröfu KA/Þórs um að úr-
skurður dómstólsins þar að lútandi
yrði gerður ógildur. Yfirlýsingar beggja
félaga um málið er að finna á mbl.is/
sport/handbolti.
_ Stefan Savic, svartfellskur varnar-
maður í knattspyrnuliði Atlético Mad-
rid, hefur verið úrskurðaður í fjögurra
leikja bann í Evrópukepnpni af UEFA.
Savic var rekinn af velli í leik liðsins
við Chelsea í sextán liða úrslitum
Meistaradeildarinnar í síðasta mánuði
eftir gróft brot og sendi dómaranum
rækilega tóninn á leið sinni af velli.
_ Argentínumaðurinn Marcelo Bielsa,
knattspyrnustjóri Leeds United, segir
að fréttir um að hann sé í þann veginn
að skrifa undir nýjan samning við fé-
lagið til tveggja ára séu rangar. Arg-
entínska blaðið La Nacion sagði í frétt
að Bielsa og Leeds væru komin mjög
nálægt samkomulagi. Bielsa tók við
Leeds árið 2018 og kom liðinu upp í
úrvalsdeildina síðasta
sumar eftir sextán
ára fjarveru þess það-
an. Liðið er búið að
festa sig vel í sessi
um miðja deild í vet-
ur. „Þessar upplýs-
ingar eru rangar og
óhætt að hunsa
þær. Aðeins
tveir aðilar, ég
eða félagið, get-
um skýrt frá þessu, við
erum þeir einu sem
vitum hvar málin
standa. Ef einhverjar
nýjar upplýsingar væru
til staðar myndi ég
skýra frá því,“ sagði
Bielsa við BBC.
Eitt
ogannað
VÍKINGUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari knatt-
spyrnuliðs Víkings úr Reykjavík, er
reynslunni ríkari eftir erfitt síðasta
tímabil þar sem Víkingar, sem ætl-
uðu sér að berjast um Íslandsmeist-
aratitilinn, höfnuðu í tíunda og
þriðja neðsta sæti úrvalsdeild-
arinnar.
Þjálfarinn framlengdi samning
sinn í Víkinni um tvö ár í gær og er
hann óuppsegjanlegur af beggja
hálfu en Arnar, sem er 48 ára gam-
all, tók við Víkingsliðinu eftir tíma-
bilið 2018 og gerði það að bikar-
meisturum sumarið 2019.
„Ég er mjög sáttur með að vera
búinn að skrifa undir nýjan samn-
ing hérna í Víkinni,“ sagði Arnar í
samtali við Morgunblaðið á blaða-
mannafundi í Víkinni í gær.
„Mér líður virkilega vel hérna og
ég nýt mikils stuðnings, bæði frá
stjórnarmeðlimum, leikmannaráði
og stuðningsmönnum. Þegar and-
rúmsloftið er svona gott á vinnu-
staðnum er engin ástæða til þess að
vera að breyta eitthvað til og þetta
er líka ákveðin viðurkenning á mín-
um störfum. Þeir eru ekki bara að
taka einhverja áhættu með mig
heldur er ég líka að taka áhættu á
þeim sem klúbbi.
Ég er ungur þjálfari og óreyndur
ef svo má segja. Þetta er mitt þriðja
ár sem aðalþjálfari og þetta er
virkilega flókið starf. Það er margt
sem þarf að læra, margar gildrur
sem hægt er að falla í og það varð
aðeins raunin í fyrra. Þetta er starf
þar sem þú þarft stöðugt að vera að
leita þér þekkingar svo þú verður
ekki eftir á þannig að síðasta ár fer
í reynslubankann og það er bara
eitthvað sem ég ætla mér að læra
af,“ bætti Arnar við.
Enginn afsláttur gefinn
Það var margt sem fór úrskeiðis í
Víkinni á síðustu leiktíð en liðið
vann aðeins þrjá leiki af átján.
„Veturinn var frábær en svo
kemur langt hlé vegna kórónuveiru-
faraldursins í aðdraganda mótsins.
Eftir á að hyggja þá gerðum við
kannski ekki nóg í þeirri pásu og
gáfum ákveðinn afslátt af æfingum.
Núna var enginn afsláttur gefinn og
við hlupum mun meira í þessu hléi
en fyrir ári.
Við vorum yfirlýsingaglaðir í
fyrra, bæði vegna þess að okkur
gekk virkilega vel á undirbúnings-
tímabilinu, og eins af því að við vor-
um með frábært lið í höndunum,
sérstaklega byrjunarlið, og það var
erfitt að finna annað lið með jafn
sterkt byrjunarlið og okkar.
Okkur gekk hins vegar illa að
halda mönnum heilum, marga leiki í
röð, og það kom upp ákveðinn
óstöðugleiki. Við teljum okkur vera
komna með betra jafnvægi í hópinn
núna, með tilkomu Pablos Punyeds
inn á miðsvæðið sem dæmi.“
Láta verkin tala
En hver eru markmið Víkinga
fyrir komandi keppnistímabil?
„Maður er reynslunni ríkari frá
síðasta tímabili og það er betra að
halda bara kjafti núna held ég. Við
ætlum okkur að láta verkin tala inni
á vellinum í sumar og við mætum í
hvern einasta leik til þess að gera
okkar besta og gefa andstæðingum
okkar alvöru leik.
Við þurfum hins vegar að setja
meiri kraft í það sem við erum að
gera og leggja meira á okkur. Við
sáum það í Meistaradeildinni í vik-
unni að þau lið sem fóru áfram í
undanúrslitin lögðu meira á sig en
mótherjar þeirra í átta liða úrslit-
unum.
Við þurfum að vera miklu
ákveðnari í okkar varnarleik því á
síðustu leiktíð fengum við einfald-
lega á okkur allt of mikið af klaufa-
mörkum. Allir ellefu leikmenn liðs-
ins verða að verja markið sitt betur
og veturinn hefur farið mikið í það
að taka til í varnarleiknum okkar.
Markmiðið er að vera mun þéttara
lið inni á vellinum í sumar.“
Arnar hefur þroskast mikið sem
þjálfari frá því hann tók fyrst við
Víkingum haustið 2018.
Mikið breyttir starfshættir
„Þjálfarastarfið er gríðarlega
skemmtilegt og gefandi starf en það
eru samt svo margir þættir sem
þarf að huga að. Maður heldur að
maður viti eitthvað um fótbolta en
svo er að koma því áfram og reyna
að miðla því til leikmannanna.
Maður heldur kannski einn dag-
inn að maður sé að gera eitthvað
rétt en svo þann næsta kemur í ljós
að maður var að gera það kolvit-
laust. Ég hef því breytt mínum
starfsháttum mikið frá því í fyrra
og ennþá meira en fyrir tveimur ár-
um. Þetta er því stanslaus lærdóm-
ur ef svo má segja.
Í dag erum við lið sem velur sér
ákveðin augnablik í leikjunum þar
sem annaðhvort er kveikt á öllum
perum eða engri. Við þurfum að
vera lið þar sem er kveikt á öllum
perum, allan leikinn, og þá getum
við farið að blanda okkur í barátt-
una við bestu lið landsins.“
Þarf margt að ganga upp
Þrátt fyrir óstöðugleika hefur það
aldrei komið til greina hjá þjálf-
aranum að breyta um hugmynda-
fræði.
„Það erfiðasta við þetta starf er
að sætta sig við það að það er ekki
nóg að vera með góða hugmynda-
fræði til þess að vinna fótboltaleiki.
Það þarf ansi margt að ganga upp
til þess að vinna.
Þú getur verið meira með bolt-
ann, fengið fleiri horn, fleiri færi en
samt tapað. Það hefur verið erfitt
að sætta sig við það að svona er fót-
boltinn stundum. Ég hef þess vegna
notað tölfræðina mikið til þess að
sanna fyrir bæði mér og leikmönn-
unum að þrátt fyrir tap þá þarf ekki
alltaf að breyta miklu því stundum
falla hlutirnir ekki með manni.
Á sama tíma hef ég aldrei efast
um eigin hugmyndafræði því töl-
fræðin bakkar það upp að ég er að
gera eitthvað rétt. Mín áskorun er
að gera þá leikmenn sem ég er með
betri. Það eru hins vegar nokkrir
heimskingjar sem eru þjálfarar, þar
með talinn ég sjálfur, sem þrjóskast
við og vilja fara aðrar leiðir en þess-
ar hefðbundnu.
Ef þú ert með gott lið og góða
leikmenn er alltaf hægt að spila
bara 4-4-2 og þú nærð árangri en
ég vil taka skrefið lengra og reyna
að bæta leikinn aðeins í leiðinni. Ég
stend og fell með minni hugmynda-
fræði,“ sagði Arnar Gunnlaugsson
við Morgunblaðið.
„Betra að halda kjafti“
- Arnar Gunnlaugsson þjálfar Víkinga næstu þrjú tímabil - Þjálfarastarfið er
stanslaus lærdómur - Ætlar að standa og falla með sinni hugmyndafræði
Morgunblaðið/Eggert
Víkingur Arnar Gunnlaugsson er að hefja sitt þriðja tímabil með Víkingsliðið og þau eiga að verða allavega fimm.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir
sigraði á alþjóðlegu stórsvigsmóti í
Finnlandi í gær og sigraði um leið á
FIS-móti í fyrsta skipti á ferlinum.
Keppendur komu frá sjö löndum
og ætti Hólmfríður að styrkja stöðu
sína frekar á styrkleikalistanum
eins og hún hefur gert að undan-
förnu. Hólmfríður Dóra fór fyrri
ferðina á 54,97 sekúndum og hina
síðari á 52,40 sekúndum. Saman-
lagður tími hennar var 1:47,37 mín-
útur. Mjótt var á mununum því Kia-
Emilia Hakala frá Finnlandi kom
næst á 1:47,38 mínútum.
Fyrsti sigurinn
hjá Hólmfríði
Ljósmynd/SKÍ
Vann Hólmfríður Dóra Friðgeirs-
dóttir var best í Finnlandi.
Hamarsmenn úr Hveragerði eru
orðnir deildarmeistarar karla í
blaki eftir að Blaksamband Íslands
ákvað að ljúka aðeins tveimur
þriðju hlutum af yfirstandandi
deildakeppni. Öllum leikjum sem
áttu að fara fram 25. mars til 15.
apríl hefur verið aflýst en þeir leik-
ir sem eftir voru verða spilaðir.
Með fækkun leikja er ljóst að ekk-
ert lið nær Hamri sem hefur unnið
alla ellefu leiki sína og varð þar að
auki bikarmeistari í vetur. Úrslita-
keppnin um Íslandsmeistaratitilinn
fer síðan fram í maí.
Annar titill Ham-
ars er í höfn
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Bikar Hamarsmenn fögnuðu bikar-
meistaratitlinum í marsmánuði.