Morgunblaðið - 16.04.2021, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarmennirnir Þórir Georg og
Jóhannes Pálmason sendu á dög-
unum frá sér breiðskífuna Hvörf –
Music Library 02 en eins og nafn-
ið gefur til kynna er þetta önnur
skífa Hvarfa. Fyrsta platan kom
út árið 2019 en samstarf og vin-
átta þeirra Jóhannesar og Þóris
hófst í plötubúðinni Lucky Re-
cords sem þeir störfuðu báðir í á
tímabili.
Jóhannes segir þá Þóri fljótlega
hafa komist að því að þeir hefðu
báðir brennandi áhuga á kvik-
myndatónlist og
þá líka svokall-
aðri „library“-
tónlist sem er
sérstakur angi
kvikmynda-
tónlistar, eins og
Þórir lýsir því.
Þeir félagar segjast hafa velt því
nokkuð lengi fyrir sér að vinna
saman að tónlist og látið slag
standa. Frumburðurinn hafi komið
hratt í heiminn, orðið til á viku.
Þessi tónlistarsöfn eða -bankar
hafa einkum verið nýtt í gegnum
tíðina í ódýrar kvikmyndir og
sjónvarpsþætti, þegar ekki hefur
verið nægt fjármagn til að ráða
tónskáld í að semja tónlist fyrir
verkin. Þeir Jóhannes og Þórir
segjast báðir hafa áhuga á slíkri
tónlist og öllu í kringum hana.
„Þetta er allt frekar nafnlaust og
látlaust og „funksjónal“, snýst
bara um að búa til tónlist, að hún
sé aðgengileg og skýrt hvað þetta
er og þá er auðvelt fyrir fólk að
finna það sem það er að leita að,“
segir Þórir og Jóhannes bætir við
að þegar hann hafi kynnt sér slíka
tónlist hafi hann orðið var við að
tónlistarmenn notuðu mismunandi
nöfn þegar þeir væru að semja
slíka tónlist og gefa út. „Sami tón-
listarmaðurinn var að nota
kannski fjögur, fimm mismunandi
nöfn eftir því hvaða library-
verkefni hann var að gera. Það tók
dálítinn tíma að kveikja á því,“
segir Jóhannes.
Með keimlíkar hugmyndir
– Þegar þið fóruð að vinna sam-
an að þessu verkefni, Hvörf, kom-
ust þið þá að því að þið væruð með
svipaðar hugmyndir um tónlistina
eða þurftuð þið að samræma þær?
„Við vorum eiginlega búnir að
komast að því áður en við byrj-
uðum að við værum með mjög
keimlíkar hugmyndir. Mér fannst
við ekki þurfa að samræma mikið,
það tók kannski tvær, þrjár til-
raunir að finna út úr því hvernig
við unnum vel saman. Það hafði
kannski minna með tónlistina gera
og meira með vinnuflæðið,“ segir
Þórir og Jóhannes tekur undir
það. „Þetta var mjög þægilegt,
þetta er mjög þægilegt verkefni að
vinna,“ segir hann.
Þórir segir þá ekki hafa hist
með samin lög heldur einfaldlega
mætt í stúdíó og byrjað að skapa.
„Sum lög verða til bara á klukku-
tíma og öðrum þurfum við að
vinna meira í,“ segir Þórir og Jó-
hannes segir flæðið hafa verið
hratt í tónlistarsköpuninni og þeir
lítið fyrir að hanga yfir lögunum.
Þórir segir þá einmitt snúa sér
frekar að næsta lagi en að hanga
yfir því sama klukkustundum sam-
an. „Þetta var mjög skemmtilegt
upp á það að gera,“ segir Jóhann-
es.
Þeir félagar eru spurðir að því
hvort þeir eigi sér uppáhalds-
kvikmyndatónskáld og nefnir Jó-
hannes ítölsk tónskáld á sjöunda
og fyrri hluta áttunda áratugarins.
Þórir segir eitt og eitt kvikmynda-
tónskáld í uppáhaldi en þó frekar
tónlist úr stökum kvikmyndum.
Hann nefnir sem dæmi tékknesku
hryllingsmyndina Valerie and Her
Week of Wonders eða Valerie a
týden divù eins og hún heitir á
frummálinu og Jóhannes nefnir
franska teiknimynd, La Planète
sauvage eða Fantastic Planet eins
og hún heitir á ensku. Þeir nefna
líka sígildar myndir Johns Car-
penter, tónlist Ennios Morricone
og svo tónverk Jóhanns Jóhanns-
sonar og Hildar Guðnadóttur.
Yfirþyrmandi og ágeng
Við veltum fyrir okkur hvað ein-
kenni góða kvikmyndatónlist og
Þórir nefnir að hún þjóni fyrst og
fremst kvikmyndinni. Hann nefnir
sem nýleg dæmi tónlist Hildar við
Jókerinn sem verði nánast hluti af
myndinni, falli svo vel inn í hana,
og svo tónlist Daniels Lopotins við
Uncut Gems sem sé brjálæðislega
yfirþyrmandi og ágeng allan tím-
ann. Tónlist Lopotins sé ekki
„underscore“ heldur „overscore“,
þ.e. ofan á því sem sé að gerast í
myndinni en ekki undir. Jóhannes
segir þetta líka einkenna margar
eldri kvikmyndir. „Í mörgum af
þessum gömlu myndum er tónlist-
in eiginlega miklu áhugaverðari en
myndin sjálf,“ bendir hann á og að
hann eigi mikið safn tónlistar úr
hryllingsmyndum sem hann hafi
þó fæstar séð.
Rytmísk og rafræn
Fyrri plata Hvarfa var töluvert
ólík þeirri nýju. Á henni voru þeir
Jóhannes og Þórir að vinna meira
með akústísk hljóðfæri á borð við
gítar og píanó en á þeirri nýju eru
hljóðgervlar meira áberandi og
platan í heild rytmískari og raf-
rænni, að sögn þeirra félaga. Þórir
segir að þeir Jóhannes stefni að
því að gera þriðju plötuna og lík-
lega fleiri. Vínylútgáfan er tak-
mörkuð, aðeins 150 eintök voru
gerð af nýju plötunni og kostn-
aðurinn það mikill að þeir félagar
koma út á sléttu, að sögn Þóris.
En ætla þeir að kynna þetta
lagasafn sem möguleika fyrir kvik-
myndagerðarmenn að sækja í?
Þeir segjast ekki hafa velt því fyr-
ir sér en mögulega ættu þeir að
skoða þann möguleika, að koma
tónlistinni í einhverja gagnabanka.
„Þetta myndi svínvirka við
margt,“ segir Jóhannes og Þórir
segir þessa hugmynd alls ekki út í
hött. Tónlistin á nýju plötunni
henti til að mynda vel rökkur-
myndum, „film noir“.
Jóhannes og Þórir spila sjálfir á
öll hljóðfæri sem koma við sögu á
plötunum tveimur, hvort sem það
er gítar, bassi eða trommur. „Ég
er gítarleikari í grunninn,“ nefnir
Þórir sem hefur gefið út fjölda
platna sem sólótónlistarmaður og
Jóhannes hefur m.a. verið liðs-
maður í hljómsveitunum Epic Rain
og Dalalæðu.
Titlar vísindaskáldsagna
Lagatitlarnir eru forvitnilegir og
halda mætti að þeir væru lýsandi
fyrir lögin, til dæmis „Killer in the
Rain“ og „Rings of Saturn“. En
svo er þó ekki heldur eru þeir
sóttir í titla vísindaskáldsagna frá
sjöunda og áttunda áratugnum.
Þeir Jóhannes og Þórir hlæja að
þessu og blaðamaður bendir á að
þeir hafi sparað sér vesenið að
finna titla á lögin sem eru öll án
söngs og texta.
Við hlustum á hið fyrrnefnda
„Killer in the Rain“ og veltum fyr-
ir okkur hvað gæti verið að gerast
í kvikmynd á meðan það ómaði
undir. Einkaspæjari situr inni í
bílnum sínum og reykir. Það er
dimmt og rigning og myndin er
svarthvít. Leikarinn mögulega
Mark Ruffalo af því hann tekur
sig svo vel út í svarthvítu.
Þannig býr tónlistin auðveldlega
til myndir í huga manns sem verð-
ur þó ekki vel lýst í blaðaviðtali en
viðtalið við þá félaga með tón-
dæmum má finna í nýjasta þætti
kvikmyndahlaðvarpsins Bíós á
mbl.is, undir dálkinum „fólk“ og á
hlaðvarpssíðu mbl.is á slóðinni
mbl.is/hladvarp.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samstarfsmenn Jóhannes Pálmason og Þórir Georg Jónsson kynntust þegar þeir störfuðu saman í Lucky Records.
Ruffalo í rökkri og rigningu
- Jóhannes Pálmason og Þórir Georg hafa gefið út tvær plötur með lögum sem nota mætti í kvik-
myndir eða sjónvarpsefni - Hafa brennandi áhuga á kvikmyndatónlist og stefna að frekari útgáfu
Dómnefnd skipuð landsþekktum
tónlistarmönnum hefur nú valið tíu
verk til þátttöku í Upptaktinum, tón-
sköpunarverðlaunum barna og ung-
menna, á Akureyri. Yfir 20 verk
voru send inn.
Upptakturinn gefur ungu fólki
tækifæri á því að vinna að hug-
myndum sínum með fulltingi lista-
fólks og afrakstur samstarfsins má
sjá og heyra á tónleikum Upptakts-
ins í Menningarhúsinu Hofi 9. maí
næstkomandi. Á þeim munu at-
vinnuhljóðfæraleikarar flytja verk-
in. Tónlistarfólkið Greta Salóme og
Kristján Edelstein vinna með krökk-
unum áfram að útsetningum lag-
anna fyrir flutning á tónleikunum.
Upptakturinn er samstarfsverk-
efni Menningarhússins Hofs og Upp-
taktsins í Hörpu og er það styrkt af
SSNE, Samtökum sveitarfélaga og
atvinnuþróunar á Norðurlandi
eystra.
Tíu verk valin í
Upptaktinn
Morgunblaðið/Hanna
Leiðbeinir Greta Salóme Stef-
ánsdóttir fiðluleikari.