Morgunblaðið - 16.04.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.04.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarmennirnir Þórir Georg og Jóhannes Pálmason sendu á dög- unum frá sér breiðskífuna Hvörf – Music Library 02 en eins og nafn- ið gefur til kynna er þetta önnur skífa Hvarfa. Fyrsta platan kom út árið 2019 en samstarf og vin- átta þeirra Jóhannesar og Þóris hófst í plötubúðinni Lucky Re- cords sem þeir störfuðu báðir í á tímabili. Jóhannes segir þá Þóri fljótlega hafa komist að því að þeir hefðu báðir brennandi áhuga á kvik- myndatónlist og þá líka svokall- aðri „library“- tónlist sem er sérstakur angi kvikmynda- tónlistar, eins og Þórir lýsir því. Þeir félagar segjast hafa velt því nokkuð lengi fyrir sér að vinna saman að tónlist og látið slag standa. Frumburðurinn hafi komið hratt í heiminn, orðið til á viku. Þessi tónlistarsöfn eða -bankar hafa einkum verið nýtt í gegnum tíðina í ódýrar kvikmyndir og sjónvarpsþætti, þegar ekki hefur verið nægt fjármagn til að ráða tónskáld í að semja tónlist fyrir verkin. Þeir Jóhannes og Þórir segjast báðir hafa áhuga á slíkri tónlist og öllu í kringum hana. „Þetta er allt frekar nafnlaust og látlaust og „funksjónal“, snýst bara um að búa til tónlist, að hún sé aðgengileg og skýrt hvað þetta er og þá er auðvelt fyrir fólk að finna það sem það er að leita að,“ segir Þórir og Jóhannes bætir við að þegar hann hafi kynnt sér slíka tónlist hafi hann orðið var við að tónlistarmenn notuðu mismunandi nöfn þegar þeir væru að semja slíka tónlist og gefa út. „Sami tón- listarmaðurinn var að nota kannski fjögur, fimm mismunandi nöfn eftir því hvaða library- verkefni hann var að gera. Það tók dálítinn tíma að kveikja á því,“ segir Jóhannes. Með keimlíkar hugmyndir – Þegar þið fóruð að vinna sam- an að þessu verkefni, Hvörf, kom- ust þið þá að því að þið væruð með svipaðar hugmyndir um tónlistina eða þurftuð þið að samræma þær? „Við vorum eiginlega búnir að komast að því áður en við byrj- uðum að við værum með mjög keimlíkar hugmyndir. Mér fannst við ekki þurfa að samræma mikið, það tók kannski tvær, þrjár til- raunir að finna út úr því hvernig við unnum vel saman. Það hafði kannski minna með tónlistina gera og meira með vinnuflæðið,“ segir Þórir og Jóhannes tekur undir það. „Þetta var mjög þægilegt, þetta er mjög þægilegt verkefni að vinna,“ segir hann. Þórir segir þá ekki hafa hist með samin lög heldur einfaldlega mætt í stúdíó og byrjað að skapa. „Sum lög verða til bara á klukku- tíma og öðrum þurfum við að vinna meira í,“ segir Þórir og Jó- hannes segir flæðið hafa verið hratt í tónlistarsköpuninni og þeir lítið fyrir að hanga yfir lögunum. Þórir segir þá einmitt snúa sér frekar að næsta lagi en að hanga yfir því sama klukkustundum sam- an. „Þetta var mjög skemmtilegt upp á það að gera,“ segir Jóhann- es. Þeir félagar eru spurðir að því hvort þeir eigi sér uppáhalds- kvikmyndatónskáld og nefnir Jó- hannes ítölsk tónskáld á sjöunda og fyrri hluta áttunda áratugarins. Þórir segir eitt og eitt kvikmynda- tónskáld í uppáhaldi en þó frekar tónlist úr stökum kvikmyndum. Hann nefnir sem dæmi tékknesku hryllingsmyndina Valerie and Her Week of Wonders eða Valerie a týden divù eins og hún heitir á frummálinu og Jóhannes nefnir franska teiknimynd, La Planète sauvage eða Fantastic Planet eins og hún heitir á ensku. Þeir nefna líka sígildar myndir Johns Car- penter, tónlist Ennios Morricone og svo tónverk Jóhanns Jóhanns- sonar og Hildar Guðnadóttur. Yfirþyrmandi og ágeng Við veltum fyrir okkur hvað ein- kenni góða kvikmyndatónlist og Þórir nefnir að hún þjóni fyrst og fremst kvikmyndinni. Hann nefnir sem nýleg dæmi tónlist Hildar við Jókerinn sem verði nánast hluti af myndinni, falli svo vel inn í hana, og svo tónlist Daniels Lopotins við Uncut Gems sem sé brjálæðislega yfirþyrmandi og ágeng allan tím- ann. Tónlist Lopotins sé ekki „underscore“ heldur „overscore“, þ.e. ofan á því sem sé að gerast í myndinni en ekki undir. Jóhannes segir þetta líka einkenna margar eldri kvikmyndir. „Í mörgum af þessum gömlu myndum er tónlist- in eiginlega miklu áhugaverðari en myndin sjálf,“ bendir hann á og að hann eigi mikið safn tónlistar úr hryllingsmyndum sem hann hafi þó fæstar séð. Rytmísk og rafræn Fyrri plata Hvarfa var töluvert ólík þeirri nýju. Á henni voru þeir Jóhannes og Þórir að vinna meira með akústísk hljóðfæri á borð við gítar og píanó en á þeirri nýju eru hljóðgervlar meira áberandi og platan í heild rytmískari og raf- rænni, að sögn þeirra félaga. Þórir segir að þeir Jóhannes stefni að því að gera þriðju plötuna og lík- lega fleiri. Vínylútgáfan er tak- mörkuð, aðeins 150 eintök voru gerð af nýju plötunni og kostn- aðurinn það mikill að þeir félagar koma út á sléttu, að sögn Þóris. En ætla þeir að kynna þetta lagasafn sem möguleika fyrir kvik- myndagerðarmenn að sækja í? Þeir segjast ekki hafa velt því fyr- ir sér en mögulega ættu þeir að skoða þann möguleika, að koma tónlistinni í einhverja gagnabanka. „Þetta myndi svínvirka við margt,“ segir Jóhannes og Þórir segir þessa hugmynd alls ekki út í hött. Tónlistin á nýju plötunni henti til að mynda vel rökkur- myndum, „film noir“. Jóhannes og Þórir spila sjálfir á öll hljóðfæri sem koma við sögu á plötunum tveimur, hvort sem það er gítar, bassi eða trommur. „Ég er gítarleikari í grunninn,“ nefnir Þórir sem hefur gefið út fjölda platna sem sólótónlistarmaður og Jóhannes hefur m.a. verið liðs- maður í hljómsveitunum Epic Rain og Dalalæðu. Titlar vísindaskáldsagna Lagatitlarnir eru forvitnilegir og halda mætti að þeir væru lýsandi fyrir lögin, til dæmis „Killer in the Rain“ og „Rings of Saturn“. En svo er þó ekki heldur eru þeir sóttir í titla vísindaskáldsagna frá sjöunda og áttunda áratugnum. Þeir Jóhannes og Þórir hlæja að þessu og blaðamaður bendir á að þeir hafi sparað sér vesenið að finna titla á lögin sem eru öll án söngs og texta. Við hlustum á hið fyrrnefnda „Killer in the Rain“ og veltum fyr- ir okkur hvað gæti verið að gerast í kvikmynd á meðan það ómaði undir. Einkaspæjari situr inni í bílnum sínum og reykir. Það er dimmt og rigning og myndin er svarthvít. Leikarinn mögulega Mark Ruffalo af því hann tekur sig svo vel út í svarthvítu. Þannig býr tónlistin auðveldlega til myndir í huga manns sem verð- ur þó ekki vel lýst í blaðaviðtali en viðtalið við þá félaga með tón- dæmum má finna í nýjasta þætti kvikmyndahlaðvarpsins Bíós á mbl.is, undir dálkinum „fólk“ og á hlaðvarpssíðu mbl.is á slóðinni mbl.is/hladvarp. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Samstarfsmenn Jóhannes Pálmason og Þórir Georg Jónsson kynntust þegar þeir störfuðu saman í Lucky Records. Ruffalo í rökkri og rigningu - Jóhannes Pálmason og Þórir Georg hafa gefið út tvær plötur með lögum sem nota mætti í kvik- myndir eða sjónvarpsefni - Hafa brennandi áhuga á kvikmyndatónlist og stefna að frekari útgáfu Dómnefnd skipuð landsþekktum tónlistarmönnum hefur nú valið tíu verk til þátttöku í Upptaktinum, tón- sköpunarverðlaunum barna og ung- menna, á Akureyri. Yfir 20 verk voru send inn. Upptakturinn gefur ungu fólki tækifæri á því að vinna að hug- myndum sínum með fulltingi lista- fólks og afrakstur samstarfsins má sjá og heyra á tónleikum Upptakts- ins í Menningarhúsinu Hofi 9. maí næstkomandi. Á þeim munu at- vinnuhljóðfæraleikarar flytja verk- in. Tónlistarfólkið Greta Salóme og Kristján Edelstein vinna með krökk- unum áfram að útsetningum lag- anna fyrir flutning á tónleikunum. Upptakturinn er samstarfsverk- efni Menningarhússins Hofs og Upp- taktsins í Hörpu og er það styrkt af SSNE, Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Tíu verk valin í Upptaktinn Morgunblaðið/Hanna Leiðbeinir Greta Salóme Stef- ánsdóttir fiðluleikari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.