Morgunblaðið - 16.04.2021, Page 32

Morgunblaðið - 16.04.2021, Page 32
EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF HEILSUDÝNUM GERIÐ GÆÐA & VERÐSAMANBURÐ NÝ NÁTTÚRULEG HEILSUDÝNA Á KYNNINGARVERÐI MARGAR STÆRÐIR Í BOÐI MIÐGARÐUR KODDA OG LÍN SPREY MIKIÐ ÚRVAL AF GÓÐUM ILMVÖRUM NÝTT Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Sýningin „Tært land“ með verkum eftir hinn kunna skoska myndlistarmann Callum Innes verður opnuð í i8 galleríi við Tryggvagötu í dag, föstudag, frá kl. 12 til 17. Á sýningunni eru fimmtíu vatnslitamyndir sem mynda eitt verk. „Tært land“ var áður sett upp í OSL con- temporary-galleríinu í Osló en þetta er þriðja sýning Innes í i8. Hann er þekktur fyrir abstraktverk sín og hafa vatnslitamyndir verið órjúfanlegur hluti þeirra undanfarna áratugi og nefnir Innes skærleika litanna sem ástæðu þess að hann snýr alltaf aftur í þann miðil. „Tært land“ með vatnslitaverkum Callums Innes á sýningu í i8 galleríi FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 106. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Þetta er flott lið með mjög góða leikmenn. Þær geta hins vegar átt sína slæmu daga og vonandi náum við að stríða þeim,“ segir Ragnheiður Júlíusdóttir landsliðs- kona í handknattleik sem er komin til Slóveníu þar sem íslenska landsliðið leikur á morgun fyrri umspilsleikinn um sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins. » 26 Þær geta átt sína slæmu daga ÍÞRÓTTIR MENNING hefur Hilmar haft það fyrir daglegan sið að athuga hvort ekki sé allt í lagi í gamla húsinu. Skömmu áður en stóra flóðið reif það með sér var hann á leiðinni þangað ásamt Haraldi Má Sigurðssyni, félaga sínum og ná- granna. „Við vorum á okkar hefð- bundna eftirmiðdagsrúnti, en vorum stoppaðir inni við gamla apótekið og sagt að við mættum ekki fara út eftir. Á meðan við ræddum málin heyrðum við þessar rosalegu drunur. Það var flóðið sem tók Dagsbrún og allt sem í húsinu var og ef við hefðum haldið áfram óhindrað er líklegt að ég hefði verið þar inni og Halli Már setið í bílnum fyrir neðan. Þá hefðum við ekki verið til frásagnar.“ Skömmu fyrir flóðin hafði barna- barn Hilmars og Ernu flutt úr hús- inu. „Sem betur fer keyptu afastrák- urinn og konan hans blokkaríbúð sem þau voru komin í ásamt tæplega eins árs dótturinni og segja má að það sé mér að þakka vegna þess að ég samþykkti ekki breytingar sem hann vildi gera á Dagsbrún.“ Missirinn hafi samt verið mikill, þótt eignirnar hafi verið tryggðar. „Það er svo margt sem ekki verður metið til fjár og bætt, til dæmis gamlar ljósmyndir og fleira. Við erum vön skriðum en þessi var mikið áfall.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Aurflóðin á Seyðisfirði skömmu fyrir nýliðin jól ollu miklu tjóni og sárin gróa seint eða aldrei. „Ég fæ alltaf sting í hjartað þegar ég kem að þar sem Dagsbrún, húsið okkar við Hafn- arstræti, var,“ segir Hilmar Eyjólfs- son, sem missti nær allt sitt í stóra flóðinu. Hilmar fæddist og ólst upp á Laugarbrekku við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Hann vann í vélsmiðjum, Héðni og lengur í Tækni, og þau Erna Halldórsdóttir, eiginkona hans sem lést 2018, höfðu það fyrir sið að fara í vinnu út á land á sumrin. „Við kölluðum það að fara í sumarfrí og eitt sinn réðum við okkur hérna á Seyðisfirði í tvo mánuði en teygst hefur úr dvölinni.“ Þau byrjuðu á því að vinna í bræðslunni en fljótlega fór Hilmar að vinna í Vélsmiðju Seyðisfjarðar og var þar lengst af starfsævinnar, en hann er 87 ára. „Það var góður vinnu- staður og við smullum inn í lífið hérna enda er Seyðisfjörður drauma- staður.“ Hrekkur og skrekkur Á síldarárunum fyrir 1970 var ið- andi líf á Seyðisfirði en grúturinn var mikill og Hilmar lét sig málið varða með góðum árangri. „Þegar bræðsl- urnar voru hérna var mikil lýsis- mengun á landi og í firðinum,“ rifjar hann upp. „Grúturinn hafði ekki góð áhrif, hvorki á fjörðinn né lífríkið. Þegar lýsið fór í fiðrið á kollunum var ekki að spyrja að leikslokum.“ Hann beitti sér fyrir því að verksmiðjurnar og skipin hættu að losa sig við úr- ganginn í sjóinn. „Ég hringdi í Nátt- úruvernd fyrir sunnan og bað um að sendir yrðu menn til að kíkja á þetta,“ upplýsir hann. Lét það fylgja með að ekki borgaði sig að láta bæjarstjórnarmenn vita. „Allt í einu birtust náttúruverndarmennirnir öll- um að óvörum og ég fékk skömm í hattinn hjá bæjarstjórninni fyrir að hafa ekki látið hana vita. En þetta hafði tilætluð áhrif; gildrum fyrir úr- ganginn var komið fyrir á viðeigandi stöðum og bátunum var bannað að dæla í sjóinn við bryggjurnar.“ Hjónin bjuggu í Dagsbrún í nær hálfa öld og eftir að þau fluttu í íbúð fyrir aldraða í eigu kaupstaðarins Slapp með skrekkinn - Hilmar segir Seyðisfjörð draumastað en aurflóðin áfall Morgunblaðið/Eggert Seyðisfjörður Mikið tjón hlaust af skriðuföllunum í desember. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Jarðbundinn Hilmar Eyjólfsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.