Morgunblaðið - 17.04.2021, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021
Síðumúli 35 (gengið inn að aftanverðu)
108 Reykjavík - S. 568 3920 - Opið 11.00-18.00
Borðtennisborð á lager
Playback
71.500 kr.
Nordic
78.700 kr.
Space saver
175.500 kr.
Basic
54.500 kr.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ráðast þarf í miklar framkvæmdir
til að hægt sé að lækka hámarks-
hraða ökutækja í einstökum göt-
um borgarinnar. Setja þarf upp
hlið, þrengja götur og gera á þær
hlykki og merkja. Reiknað er með
að unnið verði
að framkvæmd-
inni næstu fimm
ár og að kostn-
aðurinn verði
1.200 til 1.500
milljónir króna.
Áætlað er að
samfélagslegur
sparnaður af
færri umferðar-
slysum verði
meiri en nemur kostnaðinum.
Samþykkt skipulags- og sam-
gönguráðs Reykjavíkurborgar um
áætlun um að lækka hámarks-
hraða á götum borgarinnar hefur
verið kynnt í borgarráði og verður
væntanlega afgreidd þaðan eftir
hálfan mánuð og að því búnu lögð
fyrir borgarstjórn.
Borið undir lögregluna
Pawel Bartoszek, varaformaður
skipulags- og samgönguráðs og
forseti borgarstjórnar, segir að
samþykkt stefnumörkunarinnar
feli ekki í sér endanlega ákvörðun
um hámarkshraða á einstaka göt-
um. Kynna þurfi breytingar á nán-
ar tilteknum götum fyrir lögregl-
unni og fá umsögn hennar áður en
endanleg ákvörðun verður tekin.
Tekur hann fram að lögreglan hafi
fengið áætlunina til umsagnar og
hún hafi ekki lagst gegn tillög-
unum en bent á að ráðast þurfi í
breytingar á umhverfi gatnanna
áður en endanlegar ákvarðanir
verði teknar.
Tímarammi framkvæmdar áætl-
unarinnar er eitt til fimm ár, að
sögn Pawels, enda þurfi í mörgum
tilvikum aðgerðir til að lækka
hraða innan hverfanna.
Aðgerðir sem kalla
á andstöðu
Vonast Pawel til að hægt verði
að fara í fyrstu breytingar í sumar
eða haust. Þá verði valdir staðir
sem auðvelt verði að breyta. Göt-
ur sem kalli á miklar fram-
kvæmdir, til dæmis í tengslum við
borgarlínu, verði seinna á dag-
skránni og nefnir Pawel lækkun
ökuhraða á Suðurlandsbraut sem
dæmi um það.
Sjálfum þykir honum upplagt að
ráðast í lækkun hraða í Laugar-
dalnum og gera hann allan að 30
kílómetra hverfi en nú er 50 km
hámarkshraði á Sundlaugavegi og
einnig þurfi að lækka hraðann á
Langholtsvegi og fleiri tengigöt-
um. Tekur hann fram að á þessari
stundu sé ekki vitað hvaða hverfi
eða götur verði fyrst í röðinni.
Áætlun um lækkun hámarks-
hraða á götum borgarinnar er lið-
ur í umferðaröryggisáætlun
Reykjavíkurborgar sem samþykkt
var á síðasta ári. Markmið hennar
var að fækka slysum í umferðinni
og lækkun hámarkshraða var
meðal margvíslegra aðgerða sem
þar voru boðaðar. Pawel segir að
umræður um lækkun hámarks-
hraða hafi þó staðið mun lengur
og rifjar upp að á árinu 1983 hafi
fyrstu 30 kílómetra hverfin í Vest-
urbænum verið ákveðin. Þau hafi
gefist vel og enginn vilji snúa til
baka með þau. Síðan hafi hverfum
með 30 kílómetra hámarkshraða
fjölgað mjög. „Það sem nú er ver-
ið að gera er sjálfsagt og eðlilegt
framhald af þeirri þróun auk þess
sem rétt þykir að búa til nýjan
flokk fyrir tengibrautir sem nú
eru margar með 50 kílómetra há-
markshraða og lækka hann í 40
kílómetra.“
Stefna meirihlutans í Reykjavík
hefur verið umdeild. Hluti minni-
hlutans í borgarstjórn og ýmsir
utan borgarstjórnar hafa gagnrýnt
hana. Spurður hvort ekki hafi ver-
ið rétt að fara hægar í sakirnar og
reyna að ná samstöðu um aðgerð-
irnar segir Pawel að nú þegar
heildartillögurnar eru komnar
fram sé rétti tíminn til að efna til
umræðna. Fólk geti mátað tillög-
urnar við sitt eigið hverfi.
„Ég er raunsær á það að að-
gerðir sem takmarka umferðar-
hraða kalla oft á andstöðu þegar
þær eru settar fram,“ segir Pawel
og bendir á að umdeildar aðgerðir
sem gripið var til á hluta Snorra-
brautar fyrir nokkrum árum hafi
leitt til mun færri alvarlegri slysa.
Ávinningur fyrirhugaðra að-
gerða verður að mati Pawels mun
færri slys, sérstaklega á gangandi
og hjólandi vegfarendum, og ekki
síst færri alvarleg slys. Það er
meginmarkmið breytinganna, að
hans sögn. Rannsókn sem nýlega
var kynnt bendir til að minna svif-
ryk spænist upp með lækkuðum
ökuhraða en Pawel segir að það sé
ekki meginástæða aðgerðanna en
komi sem bónus.
2,6 milljarða sparnaður
Við vinnslu áætlunarinnar var
lagt mat á kostnað við að ná fram
hraðalækkun (1,2 til 1,5 milljarðar
kr.), kostnað vegna lengri ferða-
tíma (12%) og ávinning af færri
umferðarslysum. Niðurstaðan var
að samfélagslegur ávinningur þess
að draga úr hraða ökutækja er
ótvíræður. Var sparnaðurinn áætl-
aður 2,6 milljarðar króna.
Ráðast þarf í miklar aðgerðir
- Ætlunin er að áætlun um lækkun hámarkshraða á götum borgarinnar komi til framkvæmda á næstu
fimm árum - Stefnt að fyrstu framkvæmdum í sumar eða haust en óákveðið hvar þá verður borið niður
Áætlun um lækkun hámarkshraða á borgargötum Reykjavíkur
Kostnaður við framkvæmdViðmið um hámarkshraða gatna
90-95
500-600
600-800
Götumerkingar Þrengingar 30 km hlið
Verkefni Fjöldi Kostnaður
30 km hlið,
ný og endurnýjuð
401 600-800
Þrengingar og aðrar
hraðahindrandi aðgerðir
80 500-600
Götumerkingar 1.700 90-95
Samtals (m.kr.) 1.200-1.500
Hámarkshraði, km/klst.
Göngugötur og eftir atvikum vistgötur. 5 km
Vistgötur almennt. Húsagötur án sérstakra gangstétta.
Mögulega húsagötur með gangstétt öðrummegin.
Verslunargötur. Bílastæði/bílastæðagötur.
10 km
Húsagötur og götur sem gegna bæði hlutverki safngatna og
húsagatna. Götur á útivistarsvæðum. Götur vegna verslunar og
þjónustu á hafnarsvæðum, samanber það sem þegar er gert á
Grandagarði ogÆgisgarði.
30 km
Aðrar safngötur. Húsagötur í iðnaðarhverfum.Mögulega
50-100 m kaflar með 30 km/klst. við mikilvægar gönguleiðir t.d. í
grennd við íbúðir aldraðra, framhaldsskóla og íþróttamiðstöðvar.
40 km
Stofngötur/borgargötur. Mögulega 50-100 m kaflar með
30 km/klst. við mikilvægar gönguleiðir t.d. í grennd við íbúðir
aldraðra, framhaldsskóla og íþróttamiðstöðvar.
50 km
Stofnvegir á vegumVegagerðarinnar Óbreytt
Götur á vegum Faxaflóahafna Óbreytt
Milljónir kr.
0
30
0
0
Morgunblaðið/Eggert
Á rauðu ljósi Nú þegar er stór hluti Vesturbæjarins með 30 kílómetra hámarkshraða. Breytingarnar ná því meira til annarra hverfa borgarinnar.
Pawel Bartoszek
Morgunblaðið/Eggert
Hraði Leyfilegur hámarkshraði á Hringbraut var lækkaður í 40 km/klst.