Morgunblaðið - 17.04.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021
báknið!
Burt með
Látum kerfið þjóna
fólkinu, einföldum reglur
og aukum skilvirkni.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Icelandair hefur í varúðarskyni tekið
eina Boeing 737 MAX-vél úr rekstri
á meðan skoðun fer fram og úrbætur
eru gerðar samkvæmt tilmælum
Boeing og bandarískra flugmála-
yfirvalda. Boeing tilkynnti í síðustu
viku um mögulegt tæknilegt atriði
sem tengdist rafkerfi í tilteknum vél-
um, sem í kjölfarið voru teknar tíma-
bundið úr rekstri hjá nokkrum flug-
félögum.
„Eftirlitsstofnun í Bandaríkjunum
sem fylgist með hönnun allra flug-
véla hefur fylgst sérstaklega vel með
þessum [Boeing M737 MAX] vélum,
umfram aðrar í ljósi þess sem kom
upp á. Þeir vilja meina að svokölluð
jarðtenging í ákveðnum hlutum á
vélunum sé ekki nægilega góð og
hana þurfi að bæta,“ segir Haukur
Reynisson, flugrekstrarstjóri Ice-
landair, um málið.
Haukur segir að ekki liggi fyrir að
svo stöddu á hvaða hátt þurfi að
bæta jarðtenginguna en aðgerðin
ætti að vera einföld og taka aðeins
hluta úr degi.
„Það er nú einu sinni þannig í flug-
bransanum að það eru allir hlutir
flóknir. Við megum ekki gera þessa
einföldu viðgerð fyrr en Boeing gef-
ur út nákvæm tilmæli um hvernig
hún skal vera gerð. Svo við bíðum
bara eftir því.“ karitas@mbl.is
Bæta þarf jarðtengingu í MAX 737
- 737 MAX-vél tekin úr rekstri í örygg-
isskyni - Aðgerðin ætti að vera einföld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
737-MAX-vél Úrbætur verða gerð-
ar samkvæmt tilmælum Boeing.
Icelandair er það fyrirtæki sem
hafði um mánaðamótin febrúar/
mars fengið mestan stuðning úr rík-
issjóði vegna greiðslu á hluta launa-
kostnaðar á uppsagnarfresti eða
samtals tæpa 3,7 milljarða króna
vegna 1.918 starfsmanna. Þetta
kemur fram á nýju yfirliti skattsins.
Næst í röðinni eru Flugleiðahótel
sem hafa fengið um 627 milljónir kr.
vegna 493 starfsmanna, Bláa lónið
um 603 milljónir vegna 550 starfs-
manna, Íslandshótel um 593 millj-
ónir vegna 468 starfsmanna og Mið-
bæjarhótel/Centerhotels um 260
milljónir vegna 226 starfsmanna.
Fram kom á yfirliti sem fjármála-
ráðuneytið birti í vikunni um að-
gerðir og styrki og stuðning vegna
veirufaraldursins að hinn 14. apríl
höfðu borist 1.555 umsóknir um
styrk vegna greiðslu hluta launa-
kostnaðar á uppsagnarfresti og
höfðu allar umsóknirnar verið af-
greiddar. Samtals hafa þá verið
greiddir um 12,15 milljarðar króna
vegna þessa stuðnings en úrræðið
var lögfest í lok maí í fyrra vegna
afleiðinga faraldursins.
Skatturinn hefur nú einnig birt
upplýsingar um þá sem fengið hafa
greidda tekjufallsstyrki og við-
spyrnustyrki miðað við stöðuna 14.
apríl sl. Birt eru nöfn allra fyrir-
tækja og lögaðila sem hafa fengið
tekjufallsstyrk og viðspyrnustyrk
og fjárhæð til hvers og eins ef hún
er yfir sem nemur 100 þúsund evr-
um (um 15,1 milljón ísl. kr.).
Fram kemur í umfjöllun
fjármálaráðuneytisins í vikunni að
yfir tveir milljarðar króna hafa nú
verið greiddir í viðspyrnustyrki sem
ætlað er að aðstoða rekstraraðila,
þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir
tekjufalli vegna heimsfaraldurs
kórónuveiru. 14. apríl höfðu skatt-
inum, sem fer með framkvæmd úr-
ræðisins, borist um 2.050 umsóknir
um styrkina og höfðu um 1.740 ver-
ið afgreiddar.
Þá hafa um 9,5 milljarðar verið
greiddir í tekjufallsstyrki og um 2, 3
milljarðar króna í lokunarstyrki. A
yfirliti skattsins má sjá að ríflega
130 lögaðilar hafa fengið tekjufalls-
styrki sem eru hærri en 100 þúsund
evra fjárhæðin sem miðað er við
varðandi birtingu upplýsinga um
styrkþega. omfr@mbl.is
12,1 milljarður í
uppsagnastyrki
- Icelandair hefur fengið 3,7 milljarða
vegna launakostnaðar á uppsagnarfresti
Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðar-framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, rak endahnútinn á
Viðskiptablaðið í vikunni. Hún
skrifaði um ólíkar launahækkanir
hér á landi og ann-
ars staðar á
Norðurlöndum. Í
Noregi hafi fyrr í
vikunni verið sam-
ið um 2,7% hækkun
meðallauna á milli
áranna 2020 og
2021. Í Svíþjóð hafi
í lok liðins árs ver-
ið samið um meðalhækkun á ári
upp á 1,8% á tímabilinu 2020 til
2023.
- - -
Svo segir Ásdís: „Til sam-anburðar hækkuðu laun á Ís-
landi um ríflega 6% í fyrra og í
febrúar síðastliðnum hækkaði
launavísitalan um tæplega 11%
milli ára. Á Norðurlöndunum
snúast deilur um það hvort 2%
launahækkanir hamli fjölgun
starfa og skaði samkeppnisstöðu
atvinnulífsins en á Íslandi virðast
flestir telja að launahækkanir
geti aldrei orðið of miklar.“
- - -
Hún bætir því við að sam-dráttur landsframleiðsl-
unnar hafi í fyrra mælst 6,6% hér
á landi en 0,8% í Noregi og 2,8% í
Svíþjóð.
- - -
Þá minnir hún á hve mikið at-vinnuleysið er hér á landi og
bætir við: „Það er furðuleg staða
að miklar launahækkanir eigi sér
stað á sama tíma og atvinnuleysi
er í methæðum og stærsta út-
flutningsgrein landsins í lama-
sessi.“
- - -
Hvernig stendur á því að ís-lensk verkalýðsfélög eru,
ólíkt öðrum norrænum verkalýðs-
félögum, svona illilega laus við
raunveruleikatengingu?
Ásdís
Kristjánsdóttir
Hvar eru tengslin
við veruleikann?
STAKSTEINAR