Morgunblaðið - 17.04.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.04.2021, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 unum eftir lýðveldistöku, svo að segja samtímis, fyrir endurheimt handritanna og svo fyrir fullum yfirráðum yfir fiskimiðunum um- hverfis landið. Í báðum málum liggja auðlindir okkar til grundvall- ar og ákvörðunarréttur okkar yfir þeim. Bæði málin leystust síðan upp úr 1970,“ segir Guðrún. Þúsundir handrita og fornbréfa varðveittar á Íslandi Fræg urðu og eru orð Helge Larsen menntamálaráðherra Dana sem hinn sögulega vordag 1971 af- henti Gylfa Þ. Gíslasyni, íslenskum starfsbróður sínum, handritin og sagði: „Vær så god, Flatøbogen.“ Komið var með fleiri handrit á næstu árum en gengið var frá loka- samningum vegna málsins árið 1986. Síðasta sending handrita kom svo til Íslands ellefu árum síðar. Í vörslu Árnastofnunar í Reykjavík eru nú alls 1.666 handrit og um 7.360 fornbréf úr Árnasafni auk 141 handrits úr Konungsbókhlöðu. Handrit sem hingað komu þurftu að vera skrifuð á Íslandi og fjalla um íslensk málefni. Í Kaupmanna- höfn urðu eftir um 1.350 handrit í Árnasafni, þar af eru 700 íslensk, auk fjölda handrita í Konungs- bókhlöðu. Einnig má finna íslensk handrit í Svíþjóð, Bretlandi, Banda- ríkjunum og víðar. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Afhending Helge Larsen menntamálaráðherra Dana færði Gylfa Þ. Gíslasyni, íslenskum starfsbróður sínum, gersemar og sagði: „Vær så god, Flatøbogen.“ Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Dýrgripir Flateyjarbók og Konungsbók eddukvæða komu 22. apríl 1971. Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri verður haldið í Borgarnesi síðustu helgina í ágúst. Mótshaldari er Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) í samstarfi við Borgar- byggð. „Við erum gríðarlega spennt að halda Landsmót UMFÍ 50+ í Borg- arnesi í lok ágúst. Við teljum að þá verði búið að bólusetja stærst- an hluta þjóð- arinnar og öruggt að halda mótið. En að sjálfsögðu mun- um við gæta okk- ar í hvívetna og gæta fyllsta ör- yggis án þess að það komi niður á gleðinni,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, fram- kvæmdastjóri móta UMFÍ, í til- kynningu frá félaginu. Nóg verður um að vera hjá UMFÍ í ágúst næstkomandi en um verslunarmannahelgina stendur til að halda Unglingalandsmótið á Sel- fossi. Öllum mótum og flestum við- burðum UMFÍ var frestað á síðasta ári vegna veirufaraldursins, þar á meðal Landsmóti UMFÍ 50+ og Unglingalandsmótinu auk Íþrótta- veislunnar. Ómar segir stjórn UMFÍ og landsmótsnefnd UMFÍ 50+ binda vonir við að ástand til mótahalds verði orðið hagfellt í lok ágúst. Hreyfing og keppni „Við vonum að hægt verði að halda fjölmenn mót í samræmi við þær sóttvarnaaðgerðir sem verða mögulega í gildi í lok sumars. Að- stæður verða að sjálfsögðu metnar eftir því sem nær dregur mótinu í Borgarnesi og gripið til nauðsyn- legra aðgerða ef þarf. Í lok ágúst verður vonandi aldeilis kominn tími til að gleðjast,“ segir Ómar Bragi. Landsmót 50+ er blanda af íþróttakeppni og hreyfingu af ýms- um toga sem stuðlar að ánægju fólks á besta aldri til að njóta þess að hreyfa sig saman. Mótið hefur farið fram árlega víða um land síð- an árið 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára á þessu ári – og öllum eldri. Engin krafa er um að vera skráð- ur í íþróttafélag til að geta tekið þátt í viðburðum UMFÍ. Þátttöku- gjald á mótið er 4.900 krónur. Landsmót 50+ í Borgarnesi - UMFÍ vonast til að búið verði að bólusetja flesta lands- menn í lok ágúst í sumar - Unglingalandsmót á Selfossi Ljósmynd/UMFÍ Landsmót Síungir spretthlauparar á Landsmóti fyrir 50 ára og eldri.Ómar Bragi Stefánsson Fyrsti rampur átaksins „Römpum upp Reykjavík“ var tekinn í notkun við verslunina Kokku á Laugavegi við hátíðlega athöfn í gær. Með átakinu stendur til að koma upp 100 römpum vítt og breitt um borgina til þess að auka aðgengi þeirra sem nota hjólastól. Mark- miðið er að ramparnir 100 verði all- ir komnir á sinn stað fyrir 10. mars á næsta ári. Viðstödd athöfnina voru meðal annars Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri, Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Þuríður Harpa Sigurðardóttir for- maður Öryrkjabandalags Íslands. Í tilkynningu vegna málsins segir að stofnaður hafi verið sjóður með aðkomu opinberra aðila, félaga- samtaka og fjölmargra fyrirtækja og aðila sem muni standi straum af kostnaði fyrir þá verslunar- og veit- ingahúsaeigendur sem taki þátt í verkefninu. Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins og helsti styrktaraðili. „Með römpunum verður öllum gert kleift að sækja veitingastaði og verslanir þátttakenda í Reykja- vík. Unnið verður í góðu samstarfi við eigendur viðkomandi bygginga og skipulagsyfirvöld en borgin er stofnaðili að verkefninu og mun tryggja góðan framgang þess.“ Reykjavík römpuð upp - Bæta á aðgengi þeirra sem nota hjólastól Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Átak Þuríður Harpa Sigurðardóttir hjá Öryrkjabandalaginu fagnaði átak- inu í ræðu sinni við athöfnina í versluninni Kokku við Laugaveg í gær. + + + = 19.990 kr. A L LT ÓTA K M A R K A Ð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.