Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
F
rá því Covid skall á þá hefur
kennslan hér heima hjá Peter Máté
við Menntaskóla í tónlist að mestu
farið fram í raunheimum, en
kennslan hjá rússneska kennaranum mínum
við Barratt Due í Osló, henni Marinu Plias-
sova, hefur farið fram í netheimum. Fyrir
Covid hafði ég farið þangað í hverjum mán-
uði til að sækja tíma,“ segir Ásta Dóra
Finnsdóttir, 14 ára stelpa sem þrátt fyrir
ungan aldur hefur náð mjög langt í píanóleik.
Hún hóf tónlistarnám aðeins fjögurra ára og
hefur unnið til fjölda verðlauna í píanókeppn-
um hérlendis sem erlendis. Hún hefur einnig
tekið þátt í og verið boðið að spila á hátíðum
og viðburðum í Finnlandi, Danmörku, Grikk-
landi, Belgíu, Noregi og á Íslandi.
„Mér finnst fínt að þurfa ekki að vakna á
nóttunni einu sinni í mánuði til að fara til
Noregs í tíma hjá Marinu. Mér finnst líka
auðveldara að taka þátt í keppnum á netinu,
því þá er ég ekki að stíga fram á svið og spila
fyrir framan fólk, heldur sendi ég inn mynd-
band af mér að leika verk á píanóið. Ein
keppnin fór reyndar fram í beinu streymi,“
segir Ásta Dóra og tekur fram að hún hlakki
til að fara aftur út til Marinu þó henni finnist
frábært að fá pásu frá mánaðarlegum ferða-
lögum til Noregs. „Ég hef haft meiri tíma til
að vera með vinum og fjölskyldu hér heima,
og ég missi líka minna úr skólanum.“
Æfir sig á píanóið í fjóra tíma á dag
Covid-árið hefur líka verið sérstakt hjá
Ástu Dóru því hún hefur tekið þátt í ellefu
keppnum á netinu og unnið sex sinnum
fyrstu verðlaun í þeim. Einu sinni fékk hún
önnur verðlaun, tvisvar þriðju verðlaun og
einnig landaði hún Grand Prix-verðlaunum
og fékk sérstök verðlaun fyrir bestan leik á
verki frá rómantíska tímabilinu. Keppnir
þessar fóru fram um víða veröld, í Frakk-
landi, Rússlandi, Sviss, Póllandi, Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, Spáni, Kanada,
Ungverjalandi, Singapúr og Úkraínu. Núna
stendur yfir afar virt og erfið keppni í Rúss-
landi sem heitir Vladimir Krainev Moscow
International Piano Competition og er Ásta
Dóra meðal þátttakenda. Það var mikill
áfangi að verða valin í undanúrslit keppn-
innar og hún er mjög spennt að komast að
því hverjir komast í úrslitaumferðina.
„Meðal þeirra píanóleikara sem taka
þátt í þessari keppni eru stór nöfn og þetta
er alvörukeppni,“ segir Ásta Dóra sem tekur
píanónámið föstum tökum, hún æfir sig í
fjórar klukkustundir á degi hverjum. „Stund-
um langar mig að æfa og stundum ekki, en
ég þarf að gera það, ef ég vil vera góð á pí-
anó, og það vil ég. Svo þetta er ekkert mál.“
Með Spotify-spilara inni í höfðinu
Ásta segir að foreldrar hennar séu ekki
tónlistarfólk en afi hennar hafi spilað á píanó.
„Ég var mjög lítil þegar ég heillaðist af
honum að spila djass og ég á frændur og
frænkur sem spila á hljóðfæri. Mér finnst
gaman að vera hluti af tónlistarfjölskyldu,“
segir Ásta Dóra sem var aðeins þriggja ára
þegar foreldrar hennar gáfu henni leik-
fangapíanó.
„Mér fannst það æðislegt og ég spilaði
stanslaust á það. Foreldrar mínir gáfu mér í
framhaldinu lítið rafmagnspíanó og svo fékk
ég alvöru píanó þegar ég var fjögurra ára og
búin að vera í fjóra mánuði í píanónámi,“
segir Ásta Dóra sem á margar góðar minn-
ingar frá því hún var lítil stelpa í tónlistar-
námi.
„Þar kynntist ég fyrstu vinum mínum,
Emmu, Austin og fleirum og ég á líka góðar
minningar að tjaldabaki, til dæmis rétt áður
en við Anais vinkona mín fórum á svið, þá
æfðum við okkur á borðum sem voru þar,
með ósýnileg nótnaborð. Ég hef líka eignast
marga vini í útlöndum þegar ég hef tekið
þátt í keppnum þar eða námskeiðum,“ segir
Ásta Dóra sem man eftir sér lítilli í rólu í frí-
mínútum í skólanum þar sem hún kallaði
fram í huganum tónlist tónskáldsins César
Franck.
„Ég lagði tónlistina hans á minnið, ég
var með Spotify-spilara inni í höfðinu,“ segir
Ásta Dóra og hlær. „Ég elska að semja lög,
en ég elska líka að teikna og semja sögur.
Þegar ég teikna þá hlusta ég á tónlist, það
kveikir á sköpunarkraftinum í mér.“
Eins og í einhverjum fantasíuheimi
Þegar Ásta Dóra er spurð að því hvernig
henni líði þegar hún spilar á píanóið, segir
hún erfitt að útskýra það.
„Margir ímynda sér allskonar myndir
þegar þeir eru að spila, en hjá mér eru það
frekar tilfinningar en eitthvað sjónrænt.
Stundum líður mér eins og ég sé í leik eða
stödd í einhverjum fantasíuheimi. Það er ein-
hver sérstakur píanóheimur sem opnast þeg-
ar ég er stödd í tónlistinni, og það er frá-
bært. Stundum líður mér eins og ég sé stödd
í njósnamynd. Þegar ég var tíu ára og spilaði
í fyrsta sinn á tónleikum í Eldborg í Hörpu
með hljómsveit, fannst mér það töfrum lík-
ast.“ En er hún aldrei með sviðsskrekk?
„Jú, ég fæ alltaf hnút í magann og svitna
í lófunum rétt áður en ég fer á sviðið, en um
leið og ég sest við píanóið finn ég að ég er
örugg og allt er kunnuglegt.“
Ásta Dóra segist ætla að halda áfram að
gera sitt besta og hún vonast til að fá fleiri
tækifæri til að spila með hljómsveit og taka
þátt í keppnum.
„Framtíðin fer eftir því hvert tónlistin
leiðir mig og hvaða tækifæri bjóðast,“ segir
Ásta Dóra sem heldur upp á tónskáldið og
píanistann Clöru Schumann.
„Ég elska hljómana í tónlistinni hennar,
hún er snillingur. Ég hef spilað eitt verk eftir
hana og ég ætla mér að spila meira af hennar
verkum í framtíðinni.“
Ásta var níu ára þegar hún vakti heims-
athygli fyrir færni sína í píanóleik þegar hún
lék feilnótulaust og blaðlaust tyrkneskan
mars eftir Mozart á almenningspíanói á lest-
arstöð í London. Daily Mail sýndi myndband
af viðburðinum á netmiðili sínum og fjallaði
um ungu íslensku stúlkuna sem sýndi þessa
miklu snilli. Myndbandið vakti gríðarlega at-
hygli á netinu og milljónir manna hafa horft
á það. Hægt er að sjá það á youtubesíðu
Ástu: youtube.com/user/feyoneteoh.
Sigrar í keppnum um víða veröld
Píanónám á tímum Covid getur verið snúið, sérstaklega hjá þeim sem stunda námið í fleiri en einu landi. Síðastliðið ár hefur verið við-
burðaríkt hjá Ástu Dóru Finnsdóttur, 14 ára stelpu sem nemur píanóleik bæði á Íslandi og í Noregi. Margir viðburðir og tækifæri hafa
farið forgörðum, en Ásta Dóra hefur tekið þátt í píanókeppnum víða um heim í gegnum netið með eftirtektarverðum árangri.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ásta Dóra „Það er einhver sérstakur píanóheimur sem opnast þegar ég er stödd í tónlistinni.“
Nú styttist í að úrslit verði kynnt í
vali þjóðar á fugli ársins, en kosning
fer fram á vef Fuglaverndar, fugla-
vernd.is. Á sjálfan sumardaginn
fyrsta verður valið kunngjört og full
ástæða er til að hvetja fólk til að
taka þátt þá daga sem eftir eru, en
samkvæmt nýjustu fréttum hjá
Fuglavernd þá streyma atkvæðin
inn. Engin aldursmörk eru á kjör-
gengi og velja má allt að fimm fugla
sem 1.-5. val. Sérstakir talsmenn
eða kosningastjórar eru fyrir hvern
fugl og hafa þeir verið duglegir við
að vekja athygli hver á sínum fugli.
Kolbeinn Sæmundur Hrólfsson er
kosningastjóri grágæsarinnar og
hefur hann á Instagram og Facebook
stofnað síðu fyrir grágæsina og sett
þar inn margt skemmtilegt og fróð-
legt um þennan fugl sem mörgum
finnst kannski of venjulegur til að
vera með. Hér er ein af færslum Sæ-
mundar: „Vissuði að flestar grágæs-
ir parast fyrir lífstíð og að um 20%
þessara para eru samkynhneigð? Þá
aðallega karlgæsir og þar sem þeir
þurfa ekki að fæða og ala upp unga
eru þeir oft í verndarhlutverkum fyr-
ir hjörðina.“
Tuttugu fuglar keppa um titilinn góða
Nú er lag að kjósa fugl ársins,
kosningastjórar gefa í
Morgunblaðið/Eggert
Barátta um brauð Hún getur verið hörð hjá fuglum við Reykjavíkurtjörn.
Baráttan um brauðið er háð daglega við Tjörnina.