Morgunblaðið - 17.04.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 17.04.2021, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Síðasta vetrardag, miðvikudaginn 21. apríl, verður þess minnst með ýmsu móti að slétt hálf öld er frá því Íslendingar fengu fyrstu ís- lensku handritin afhent frá Dönum. Svo skemmtilega vill til að 21. apríl árið 1971 bar einnig upp á síðasta vetrardag. Þessi tímamót urðu í kjölfar áralangra umleitana af hálfu Íslendinga, en lausn handritamáls- ins hafi að margra mati verið loka- áfangi sjálfstæðisbaráttunnar. „Handritin og fornsögurnar eru menningararfur Íslendinga og lögðu Íslendingar ríka áherslu á að fá handritin heim eftir lýðveldis- töku. Lausn handritamálsins var stórmerkileg í alþjóðlegu tilliti,“ segir Guðrún Nordal, forstöðu- maður Stofnunar Árna Magnús- sonar í Íslenskum fræðum við Há- skóla Íslands. Hátíð fyrir börnin og hús í byggingu Klukkan 10 að morgni 21. apríl verður efnt til hátíðar fyrir grunn- skólabörn, með sérstakri skír- skotun til Konungsbókar eddu- kvæða og eddukvæðanna, og verður dagskránni frá Hörpu streymt beint í alla skóla landsins og einnig á RÚV. Síðar sama dag verður lagður hornsteinn að Húsi íslenskunnar við Suðurgötu í Reykjavík, sem fullgert verður árið 2023. Í húsinu verður sett upp nú- tímaleg handritasýning, auk starf- semi Árnastofnunar og íslensku- deildar Háskóla Íslands. Sama dag kemur einnig út sagan Bál tímans eftir Arndísi Þórarinsdóttur, sem segir spennandi sögu Möðruvalla- bókar og er ætluð lesendum á öll- um aldri. Þótt Ísland hafi orðið frjálst og fullvalda ríki 1. desember 1918 og lýðveldi verið stofnað 17. júní 1944 litu margir svo á að sjálfstæði lands og þjóðar væri ekki að fullu endur- heimt nema með afhendingu hand- ritanna sem geymdu menningararf þjóðarinnar. Farið var með hand- ritin úr landi á 17. öld í safn Dana- konungs og raunar einnig til Svía- konungs, en síðan hóf Árni Magnússon (1663-1730) skipulega söfnun handrita um allt land og flutti handritin til Kaupmannahafn- ar þar sem hann bjó og starfaði. Markmiðið var að rannsaka efni handritanna og gefa þau út og miðla. Árni ánafnaði Kaupmanna- hafnarháskóla handritasafn sitt við andlát sitt og og því litu Danir á handritin sem sína eign rétt eins og Íslendingar gerðu líka. Íslendingar tóku formlega upp kröfuna við lýðveldistöku og náðist loks samkomulag við Dani árið 1961 um afhendingu um helmings handrita úr safni Árna Magnús- sonar og um 140 handrita úr Kon- ungsbókhlöðu. Áfram var þó deilt um málið, meðal annars á hinum pólitíska vettvangi í Danmörku og í tvígang fyrir dómstólum. Endanleg niðurstaða fyrir dómstólum fékkst loks í marsmánuði 1971 og strax í mánuðinum þar á eftir komu fyrstu tvö handritin til Íslands; Konungs- bók eddukvæða og Flateyjarbók, rit sem höfðu verið varðveitt í Kon- ungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn frá seinni hluta sautjándu aldar. „Mér finnst áhugavert að bera saman baráttu Íslendinga á áratug- Menningararfur og auðlind - Hálf öld frá endurheimt íslensku handritanna - Áralangar umleitanir í lokaáfanga sjálfstæðisbar- áttu - Tímamóta minnst með hátíð fyrir börnin - Framkvæmdir við Hús íslenskunnar standa yfir Morgunblaðið/Eggert Handritamál „Lausnin var stórmerkileg í alþjóðlegu tilliti,“ segir Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar við HÍ. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framkvæmdir Hús íslenskunnar á Melunum í Reykjavík verður tilbúið eftir tvö ár. Hornsteinn að því verður lagður næstkomandi miðvikudag. Handritin sem Íslendingar fengu eru í eldtraustum járnklefa í Árnagarði við Suðurgötu í Reykjavík. Á bak við þykkar dyr eru háar hillur og kjörgripir í hverri þeirra. Í Árnastofnun vinna svo fræðimenn að margvíslegum rann- sóknum á fornum textum, sem sumir eru til í mörgum handritum. Stöðugt er unnið að nýjum útgáfum sagna og kveðskapar, og eftir þessu efni eru gerðar kvikmyndir, tölvuleikir og annað stafrænt efni. „Við finnum fyrir miklum áhuga á handritunum og efni þeirra. Hingað í Árnastofnun koma kvikmyndgerðarmenn víðsvegar að úr heiminum til að mynda handritin vegna kvikmyndagerðar og sjónvarpsþátta. Stöðugt er unnið að nýjum þýð- ingum Íslendingasagna á erlend tungumál, sem er grundvöllur miðlunar á menningararfinum til annarra þjóða,“ segir Guðrún Nordal og bætir við: „Skírskotað var sérstaklega til þessa öfluga þýðingastarfs þegar safn Árna Magnússonar á Íslandi og í Danmörku var sett á lista UNESCO yfir Minni heimsins, eða Memory of the world, sem geymir skráðan menningar- arf. Þá er þessi arfur hluti af daglegu lífi fólksins í landinu, eins og við finn- um svo vel. Þannig líður tæpast sá dagur að ekki berist símtöl eða bréf frá almenningi, fólk sem reifar og ræðir efni sagna eða kvæða, hefur meiningar um efnið, kemur með tilgátur og hefur skýringar á ýmsum álitaefnum.“ Hugsað til framtíðar Handrit í hálfa öld – hver er staðan nú? Því svarar Guðrún Nordal: „Á þess- um tímamótum höfum við lagt áherslu á að hugsa til framtíðar og að kynna handritin fyrir yngri kynslóðinni. Við höfum lengi kappkostað að kynna handritin, efni þeirra og sjálfa bókagerðina, fyrir skólafólki og haft safn- kennara í fullu starfi í 25 ár sem hefur unnið algjört brautyðjandastarf. En okkur langaði að nota þessi stóru tímamót til að gera enn meira. Verkefnið Handritin til barnanna, sem stofnunin hefur haldið úti allt síðasta ár og var styrkt sérstaklega af Barnamenningarsjóði, tengist þeirri stefnu.“ Hátíðin í Hörpu nk. miðvikudag verður hápunkturinn á þessu sérstaka kynn- ingarátaki og segir Guðrún Nordal ánægjulegt að skólabörn um allt land geti notið hennar samtímis. Sama dag verða kynnt verkefni sem hljóta viður- kenningu í handritasamkeppni sem efnt var til meðal grunnskólabarna. Sameina krafta og efla miðlunarstarf „Við höfum fengið jákvæð viðbrögð við þessu átaki, og finnum hve mikil- vægt er að ná til skólabarna. Því er við hæfi að hornsteinn að Húsi íslensk- unnar verði einmitt lagður á þessu degi því einmitt þar verður hægt að sam- eina krafta og efla miðlunarstarfið og taka vel á móti öllum þeim sem vilja koma og kynnast þeirri ótrúlegu auðlegð sem býr í handritunum og auðvitað öðrum söfnum sem Árnastofnun geymir,“ segir Guðrún. sbs@mbl.is Minni heimsins eru hluti af daglegu lífi fólksins í landinu UNNIÐ AÐ ÞÝÐINGUM OG GERÐ TÖLVULEIKJA OG KVIKMYNDA SEM BYGGJAST Á ÍSLENSKU HANDRITUNUM Merkisdagur Danskir sjóliðar bera handritin af skipsfjöl síðasta vetrardag á því herr- ans ári 1971. Litla stúlkan sem er lengst til hægri á myndinni er Guðrún Nordal. 50 ár frá heimkomu handritanna + +

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.