Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 29

Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 var glatt á hjalla, mikið spjallað og sungið og Hallveig naut sín vel. Hallveig var ekki hávaðasöm manneskja eða mikið fyrir að trana sér fram. Hún var hógvær í allri framgöngu en föst fyrir ef á reyndi. Hún var umtalsfróm, og ég minnist þess varla að hún hall- aði orði að nokkrum manni, nema ef illa meðferð dýra bar á góma, þá gat hún tekið sterkt til orða. Það var hegðun sem hún þoldi ekki og fór ekki leynt með. Hún var sann- ur dýravinur. Við hesthúsfélagar Hallveigar, Anna Guðný og Guðmundur, Anna Rún og Orri, Addi og Björg og Lilja, minnumst hennar með virðingu og þökk. Við sendum fjöl- skyldu hennar innilegar samúðar- kveðjur. Sigurgeir Þorgeirsson. Ég skildi að orð er á Íslandi til um allt sem er hugsað á jörðu. (Einar Benediktsson) Samt skortir mig þetta eina orð yfir tengsl okkar Veigu. Hún var hvorki frænka mín né foreldri og ekki bara vinur. Hún var allt í senn og eftir stendur því líklega orðið; lífsförunautur. Veiga átti marga lífsförunauta. Hún var ein fárra sem þurfti ekki að stofna til hefðbundinnar kjarnafjölskyldu til að lifa umvafin ást og virðingu. Raunar lágu ótal hjartaþræðir úr öllum heimshorn- um til Veigu – sem sló mitt í þeim vef af sinni einskæru ró, trygg- lyndi og staðfestu. Hæst rís þakklæti mitt fyrir gjafmildi hennar og örlæti. Fyrir hvernig hún deildi með mér hinum einstaka gæðingi Pardusi, studdi mig á keppnisvellinum og gladdist yfir (hófstilltum) sigrum okkar. En við glöddumst ekki síður þegar illa gekk! Þá hlógum við saman að því hvernig Pardus útfærði keppnislistir sínar með því að skammta eitt kúkasparð í einu svo birgðirnar entust tryggilega heila sýningu. Ætli það sé ekki skil- greiningin á sönnum vini þegar upp er staðið; sá sem stendur við hlið þér í sigri jafnt sem ósigri. Líf Veigu einkenndist af þess- ari sönnu vináttu. Megi lífshlaup hennar verða okkur sem eftir sitj- um hvatning til að styrkja og rækta vinasambönd milli landa og heimsálfa, milli tegunda – og nú síðast – á milli heima. Því þótt lík- ami hennar sofi þá mun sál hennar vaka og vera til staðar – rétt eins og hún hefur alltaf verið. Þannig sé ég kímni augna hennar liðast í bylgjandi faxi. Heyri hlátur hennar í ómandi hófadyn. Finn hægláta nærveru hennar – í silkimjúkum flipa. Og þegar mín stund rennur upp veit ég að Veiga mun bíða við blómabrekkufót með jarpan hest við hlið sér. En þangað til – megi líkami hennar hvíla í friði – megi sál hennar þeysa um í eilífu sumri. Síðustu jól færði ég henni ljóð um jarpa ljósið okkar Pardus – síðustu þrjú erindin eiga jafn vel við nú og þá: Með umhyggju og alúð sýndir, – öllum – þína traustu lund. Knapa óteljandi krýndir konunga um litla stund. Mitt brotna hjarta brjósti stynur, breysk er sú er lifir hálf. Nú ætíð krefjast kæri vinur, að kórónuna bæri sjálf. En skörung átti konan skarpa, skynug rétti tauminn blíð. Og þannig lifir ljósið jarpa í landsins hjörtum alla tíð. Nú lifa þau ljósin – saman tvö – í lands og heimsins hjörtum alla tíð. Fanney Hrund Hilmarsdóttir. Hallveig Fróðadóttir, aðalskrá- setjari WF, er látin. Okkar elskulega Hallveig lést eftir harða baráttu við krabba- mein. Hún skilur eftir sig stórt skarð bæði í hópi okkar vinnu- félaganna hjá WorldFeng & RML og hjá hestamönnum um allan heim. Það er erfitt að þurfa að kveðja hana núna og viljum við senda fjölskyldu hennar og vinum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Við minnumst Hallveigar sem góðs félaga sem gaman var að eyða stundum með utan vinnu- dags. Hún var brosmild, blíð og dugleg, vinnuforkur, samvisku- söm, nákvæm og úrræðagóð. Það var alltaf hægt að treysta á Hall- veigu. Hún átti stóran þátt í upp- byggingu gagna í WorldFeng, lykilpersóna í þróun kerfisins og aðaltengiliður Íslands við skrá- setjara erlendis. Hestar og hesta- mennskan átti stóran þátt í lífi hennar og hún var mikill dýravin- ur sem ekkert aumt mátti sjá. Blessuð sé minning hennar! WorldFeng-teymið og Elsa Albertsdóttir. HINSTA KVEÐJA Hungursfit 22.-23. júní 2005: Höldum nú frá Hungursfit Hópur vaskra kvenna Gyðjur, jóar, sólarglit Göfug heilög þrenna Elsku Veiga, skarð þitt í okkar hópi verður aldrei fyllt. Skessessurnar (hestaferðahópur vaskra kvenna), Bergþóra Jóseps- dóttir, Edda Þórarins- dóttir, Fanney Hrund Hilmarsdóttir, Harpa J. Reynisdóttir, Krist- ín I. Pálsdóttir, Stef- anía Geirsdóttir, Vera Roth, Þyri Sölva Bjargardóttir. - Fleiri minningargreinar um Hallveigu Fróðadótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri Elskuleg eiginkona mín, dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA VILBORG ÁRNADÓTTIR, lést á Landspítalanum mánudaginn 5. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hannes Björn Friðsteinsson Ásdís Ásgeirsdóttir Árni Jóhannes Bragason Helena Dröfn Jónsdóttir Friðsteinn G. Hannesson Hildur Björg Birnisdóttir Sólrún Lilja Hannesdóttir Jens Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur og unnusti, DANÍEL EIRÍKSSON, lést laugardaginn 3. apríl. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. apríl klukkan 13. Útförinni verður streymt á http://www.sonik.is/daniel Eiríkur Sigurbjörnsson Kristín Kui Rim Guðný Sigríður Eiríksdóttir Þórarinn Møller Jóhannes Eiríksson Cládia Sofia Cabral Santos Sverrir Einar Eiríksson Vesta Minkute Lilja Björg Randversdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, BRYNDÍS ALMA BRYNJÓLFSDÓTTIR, lést á Hrafnistu Hraunvangi þriðjudaginn 13. apríl. Útför hennar fer fram í Árbæjarkirkju þriðjudaginn 20. apríl klukkan 13. Útförinni verður streymt frá https://www.skjaskot.is/bryndis. Fjölskyldan sendir sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir einstaka umhyggju og hjartahlýju í hennar garð. Ása Oddsdóttir Axel Oddsson Laufey Oddsdóttir Bogi Jónsson Díana Oddsdóttir Gunnar Hrólfsson barnabörn og barnabarnabörnElskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN SV. JÓNSSON tannlæknir, Skálarhlíð, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Siglufirði 11. apríl. Jarðarför fer fram laugardaginn 24. apríl klukkan 11. Anna J. Jóhannsdóttir Bylgja Jóhannsdóttir Jón Tryggvi Jóhannsson Fjóla Kristjánsdóttir og barnabörn Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, REYNIR ÁSBERG NÍELSSON, lést mánudaginn 12. apríl í Brákarhlíð Borgarnesi. Útförin verður auglýst síðar. Kristján Ásberg Reynisson Jakobine Á. Reynisson Þórdís Mjöll Reynisdóttir Gísli J. Jósepsson Kristín G. Björk Reynisdóttir Kristóbert Ó. Heiðarsson Sturla Gunnar Eðvarðsson Þorleifur J. Ásberg Reynis. Guðbjörg Hjaltadóttir Karl L. Ásberg Reynisson Aina R. Ásberg afabörn og langafabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS ÁSMUNDSDÓTTIR, Austurvegi 5, Grindavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð mánudaginn 12. apríl. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Bragi Pálsson Hafdís Sigríður Jónsdóttir Páll Hlífar Bragason Elísabet Kjartansdóttir Þórdís Jóna Bragadóttir Kristinn Þór Erlendsson Reynir Bragi Bragason Kristín Elísabet Hafdís Dögg Bragadóttir og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ERLINGUR EMILSSON, Hamrahlíð 4, Vopnafirði, lést í faðmi ástvina á Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð laugardaginn 10. apríl. Að ósk hins látna fer útförin fram í kyrrþey. Aðstandendur Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EGGERT BOGASON, Litlakrika 2a, Mosfellsbæ, lést á Landakotsspítala laugardaginn 10. apríl. Jarðað verður í kyrrþey að ósk hins látna. Þórhildur Kristjánsdóttir Kristín G. Friðbjörnsdóttir Grétar Magnússon Þorvarður Friðbjörnsson Guðrún Oddsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ástvinir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SVEINBJARNARDÓTTIR, Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá Útskálakirkju miðvikudaginn 21. apríl kl. 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/groups/gudrunsveinbjarnardottir. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Slysavarnafélagið Una í Garði, kt. 540502-4630, 0157-15-550354. Anna S. Gunnlaugsdóttir Arngeir Arngeirsson Karen Mist, Rebekka Marín Hólmar Már Gunnlaugsson Sigr. Fjóla Benónýsdóttir Emelía Rut, Ásthildur Eva, Eyrún Arna Árni Gunnlaugsson Aðalheiður E. Björgvinsdóttir Arnar Freyr, Rakel Ósk Sveinbjörn Æ. Karvelsson Inga Gestsdóttir Nökkvi Blær og barnabarnabörn Elskulegi maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi TRAUSTI Ó. LÁRUSSON, f.v. framkvæmdarstjóri lést á Líknardeild Landspítalans 12. apríl. Í ljósi Covid verður tilhögun jarðarfarar auglýst síðar. Hanna M. Kjeld Auður Traustadóttir Guðmundur Á. Tryggvason Anna Kristín Traustadóttir Sigrún Traustadóttir Elín Ósk Guðmundsdóttir Ómar Bendtsen Trausti Guðmundsson Ása Bergsdóttir Sandholt Svava Dís Guðmundsdóttir Friðjón Ástmundsson Bjarni Guðmundsson Vaka Dagsdóttir og langafabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru ÞÓRLEIFAR ALEXANDERSDÓTTUR, Tótu, Hlíðarvegi 45, Siglufirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks HSN Siglufirði, heimaþjónustunnar og Kirkjukórs Siglufjarðar. Daníel Baldursson Baldur Jörgen, Sigurbjörg, Daníel Pétur og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.