Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 32
LSR hefur sett sér metnaðarfulla stefnu í upplýsinga-
tækni, einkum um bætta þjónustu við sjóðfélaga. Þar
má nefna aukna þjónustu á vefnum, en einnig aukna
sjálfvirkni í innri starfsemi og í hagnýtingu gagna.
Framundan eru því fjölbreytt og spennandi verkefni.
LSR leitar að reyndum, skipulögðum og drífandi
verkefnastjóra til að hafa umsjón með þessari veg-
ferð. Viðkomandi verður einnig stjórnendum til ráð-
gjafar og aðstoðar.
Meðal verkefna framundan
• Aukin þjónusta við sjóðfélaga á vefnum
og sjálfvirknivæðing ferla.
• Uppbygging á vöruhúsi gagna.
• Hagnýting gagna við stjórnun, þjónustu
og afstemmingu milli kerfa.
• Innleiðing á skilvirkum og öruggum gagna-
samskiptum við ytri aðila sjóðsins.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis
tölvunarfræði eða verkfræði.
• Menntun eða víðtæk reynsla af verkefnastjórnun
á sviði upplýsingatækni.
• Þekking á uppbyggingu tölvukerfa og samskiptum
þeirra á milli.
• Þekking og reynsla af samningatækni.
• Lipurð í mannlegum samskiptum og drifkraftur.
• Reynsla af samstarfi við ráðgjafa og sérfræðinga
í upplýsingatækni.
• Gott vald á íslensku og ensku, jafnt í töluðu sem
rituðu máli.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir,
framkvæmdastjóri Hagvangs, katrin@hagvangur.is.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2021.
Umsókninni þarf að fylgja starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Hjá LSR njótum við þess að starfa í jákvæðu
umhverfi með metnað og bjartsýni að leiðarljósi.
Við búum að mikilli reynslu og þekkingu og vitum
að það krefst ábyrgðar og framsýni að stýra elsta
og stærsta sjóði landsins í gegnum örar breytingar
í þágu komandi kynslóða.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
REYNSLAOG METNAÐUR
VERKEFNASTJÓRI STAFRÆNNAUMBREYTINGA
DRIFKRAFTUR,
Reginn hf. óskar eftir að ráða fjármálafulltrúa í fjölbreytt skrifstofustarf á fjármálasvið
fyrirtækisins. Við leitum að öflugum aðila til að taka þátt í krefjandi og fjölbreyttum
verkefnum.
FJÁRMÁLAFULLTRÚI
Starfssvið
• Umsjón með innheimtu tekna og greiðslu
reikninga
• Samskipti við viðskiptamenn vegna
útistandandi krafna
• Aðkoma að ákvörðun um úrlausn
vanskilamála og samskipta vegna
löginnheimtu
• Umsjón með greiðslu lána og skráðra
verðbréfa
• Aðkoma að gerð greiðsluáætlana
og ávöxtun lausafjár
• Umsjón með tengdri skýrslugerð
og skjalavörslu
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla og þekking á innheimtu er skilyrði
• Reynsla af gjaldkerastörfum æskileg
• Góð samskipta- og skipulagshæfni
• Nákvæm og öguð vinnubrögð
• Góð kunnátta í Excel og Navision fjárhagskerfi
er skilyrði
Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem
fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á
atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins telur
114 fasteignir og er heildarstærð safnsins um
380 þúsund fermetrar. Félagið er hlutafélag
í dreifðu eignarhaldi og skráð í Kauphöll
Íslands.
Félagið hefur í gildi jafnlauna- og
jafnréttisstefnur ásamt jafnlaunakerfi
sem fyrirbyggir beina og óbeina mismun
vegna kyns. Við ráðningar er leitast við
að jafna hlutföll kynjanna að uppfylltum
hæfniskröfum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Nánari upplýsingar veitir Yrsa Þorvaldsdóttir,
yrsa@hagvangur.is