Morgunblaðið - 26.04.2021, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2 6. A P R Í L 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 96. tölublað . 109. árgangur .
ÓSANNFÆRANDI
FRANSKA OG
HOLLENSKA
ÓK STRÆTÓ
MEÐ FLYGLI
OG LJÓSAKRÓNU
SKÓLASTARF
ER Í EÐLI SÍNU
AFAR SKAPANDI
EVA MARÍA FIMMTUG 24-25 ÞÓRA OG FAB LAB 6HÖGGORMURINN 29
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
e
v
a
0
2
8
0
6
2
Bóluefni sem berst til landsins eykst með
hverri vikunni sem líður. Í þessari viku koma
um 28 þúsund skammtar frá fjórum framleið-
endum. Verða þeir væntanlega notaðir við
bólusetningu eftir viku. Til samanburðar má
geta þess að í síðustu viku komu 14 þúsund
skammtar til landsins, fyrir utan 16 þúsund
skammta af bóluefni AstraZeneca sem fengust
að láni frá Noregi. Bóluefnið sem kemur beint
frá framleiðendum í þessari viku er því tvöfalt
meira en barst í liðinni viku. Skammtarnir sem
komu í síðustu viku verða að miklu leyti notaðir
í þessari viku til að bólusetja fólk með lang-
vinna undirliggjandi sjúkdóma. 25 þúsund
manns fá bólusetningu, aðallega fyrri bólu-
setningu, og er þetta stærsta bólusetningar-
vikan frá upphafi. Næsta vika verður enn
stærri gangi áform stjórnvalda eftir.
Þessi þróun mun halda áfram miðað við af-
hendingaráætlanir, að sögn Júlíu Rósar Atla-
dóttur, framkvæmdastjóra dreifingarfyrirtæk-
isins Distica. Hún getur þess að flutningur
efnanna til landsins og dreifing hafi gengið vel.
Enginn skammtur hafi farið til spillis. »2
Tvöfalt fleiri skammtar núna
- Von á 28 þúsund bóluefnaskömmtum til landsins í þessari viku - Fleiri bólusettir í næstu viku
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Höllin Bólusett verður á nýjum stað á höfuðborgarsvæðinu í vikunni, í sal gömlu Laugardalshallarinnar, og með nýju fyrirkomulagi. Búið er að raða upp stólum á gólfi salarins, eins og þörf er á.
Fjögur ný kórónuveirusmit fengust
staðfest í Þorlákshöfn í gærkvöldi.
Enn var verið að vinna úr sýnatökum
þegar Morgunblaðið fór í prentun en
samkvæmt heimildum blaðsins er
um hópsmit að ræða í bæjarfélaginu.
„Brauðið er ekki komið úr ofnin-
um, það er enn verið að skoða þetta.
Það er staðfest að einhverjir eru með
smit en þetta er ekki stór hópur,“
segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Ölfusi. Vonast er til að nægilega
snemma hafi verið gripið inn í út-
breiðsluna til að veiran hafi ekki
dreift frekar úr sér. „Miðað við
reynsluna sem við höfum af undan-
förnum misserum er ljóst að nokkuð
stór hópur þarf að fara í sóttkví.
Þetta virðist þó vera afmarkað og við
vonum að þetta nái ekki samfélags-
smiti,“ segir Elliði. Ekki liggur fyrir
hvort þeir smituðu hafi verið í sóttkví
þegar þeir greindust með veiruna.
Almannavarnir greindu um
helgina frá samtals þrjátíu nýjum
kórónuveirusmitum innanlands.
Greint var frá þrettán smitum í gær
og voru allir viðkomandi í sóttkví við
greiningu. Á laugardag var greint
frá sautján smitum en einn af þeim
sem greindust var utan sóttkvíar.
Almannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra varðist allra fregna í gær-
kvöldi. »2
Hópsmit komið
upp í Þorlákshöfn
- Fjögur staðfest smit - Sýni í greiningu
„Lögin ganga of langt í að girða fyrir
eignarhald erlendra aðila á eignum á
Íslandi,“ segir Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri Samtaka iðn-
aðarins. Í fyrra var gerð lagabreyt-
ing þar sem takmarkað var að út-
lendingar gætu keypt jarðir.
Samtök iðnaðarins benda á að þá
hafi verið gengið alltof langt og að
drög að nýju frumvarpi dugi
skammt til að leiðrétta það. Erlendir
aðilar verði enn að sækja um leyfi
hjá ráðherra til að kaupa fasteign.
„Við erum alltaf að tala um að það
þurfi að efla fjórðu stoðina sem er
hugverkaiðnaður og til þess að gera
það þarf erlenda sérfræðinga til
landsins,“ segir
Sigurður og
bendir á að hug-
verkaiðnaðurinn
þurfi erlenda
fjárfestingu og
þetta sé hindrun.
„Það verður
bara ákjósan-
legra fyrir fjár-
festa og erlenda
sérfræðinga að
horfa til annarra landa,“ segir Sig-
urður og bætir við: „Það er bara
kristaltært, þetta dregur úr sam-
keppnishæfni Íslands ef það verður
ekki brugðist við þessu.“ »4
Lögin draga úr sam-
keppnishæfni Íslands
- Ný frumvarpsdrög dugi skammt
Sigurður
Hannesson