Morgunblaðið - 26.04.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.04.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Morgunblaðinu hefur borist yfirlýs- ing frá Valborgu Önnu Ólafsdóttur, formanni heilbrigðisnefndar Kjós- arsvæðis, vegna viðtals við Reyni Guðmundsson sem birtist í Morgun- blaðinu á laugardag um dagsektir sem leggja á á Vöku. „Þann 3. mars sendir Reynir á mig póst og óskar ítrekað eftir að hitta mig, formann heilbrigðis- nefndar Kjósarsvæðis, á fundi. Áður var hann búinn að óska eftir fundi við mig og benti ég honum þá á að ræða við framkvæmdastjóra heil- brigðiseftirlits Kjósarsvæðis sem sinnir eftirliti fyrir Kjósarsvæðið. Þann 4. mars sendi ég honum svar þar sem fram kom að ég hafi ekki haft það fyrir venju að hitta aðila ein, sem þurfa að ræða málefni heil- brigðisnefndar Kjósarsvæðis. Benti ég honum á að senda inn erindi til framkvæmdastjóra heilbrigðis- eftirlits Kjósarsvæðis, sem muni þá setja málið á dagskrá og nefndin muni ræða það mál. Það var hins vegar ekki gert,“ segir Valborg í yfirlýsingunni og bætir við: „Fyrirtækið Vaka hefur ekki starfsleyfi, og hefur ekki haft. Er nefndin að sinna þeim málum sem henni ber að sinna og fylgja eftir.“ Málið kom ekki á dagskrá - Yfirlýsing frá nefndarformanni Fiskmarkaðshúsið við Fornubúðir í Hafnarfirði hefur verið rifið, en það gjöreyðilagðist í eldsvoða sem kom upp í vesturhluta hússins í byrjun sum- ars 2019. Í nýju rammaskipulagi Hafnarfjarðarbæjar er gert ráð fyrir að á lóðinni, sem er við hlið nýrra höfuðstöðva Hafrannsóknastofnunar, rísi nokkurra hæða skrifstofuhúsnæði. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir lóðina vera meðal þeirra sem eru til skoðunar undir ný húsakynni Tækniskólans sem hefur leitað til bæjarins vegna áforma um að sameina starfsemi skólans á einn stað. Húsið sem nú hefur verið rifið var 4.000 fermetrar að stærð og sérstak- lega hannað fyrir gólfmarkað, en þar hóf fyrsti fiskmarkaður á Íslandi starfsemi árið 1987. Hafnarfjarðarhöfn stóð ásamt hafnarsjóði bæjarins að framkvæmdinni og sá Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar um stofnun hluta- félags um rekstur markaðarins. gso@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Jöfnuðu fiskmarkað við jörðu Húsnæði sem byggt var fyrir fyrsta fiskmarkaðinn á Íslandi rifið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gefnir verða um 25 þúsund skammt- ar af bóluefni vegna kórónuveirunn- ar í þessari viku, ef áætlanir ganga eftir. Verður þetta þá stærsta vikan í bólusetningum til þessa. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis- ins hefur boðað sex þúsund manns í Laugardalshöllina á morgun, þriðju- dag, til að fá bólusetningu og níu þúsund manns á miðvikudag. Fyrri daginn er gefið bóluefnið frá Pfizer, í flestum tilvikum fyrri sprauta hjá fólki á öllum aldri með undirliggjandi langvinna sjúkdóma. Bóluefnið frá AstraZeneca verður notað á miðvikudaginn. Það verður í öllum tilvikum fyrri bólusetning 60 ára og eldri með undirliggjandi sjúk- dóma en í hópnum er einnig fólk á þeim aldri sem ekki er með slíka sjúkrasögu. Komið hefur fram að í vikunni verði einnig í boði bóluefni frá Jans- sen þar sem ein bólusetning veitir fulla virkni. Óskar S. Reykdalsson, forstjóri heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, segir að fólk sé boðað í bólusetningu samkvæmt upplýsing- um frá sóttvarnalækni. Reiknar hann með að nýjar upplýsingar ber- ist í dag, meðal annars um notkun Janssen-bóluefnisins, og þá sé hægt að bæta stórum bólusetningardegi við á fimmtudag. Hvað það verða margir skammtar og hvaða hópar verða boðaðir liggur ekki fyrir. Hlutfallslega jafn margir verða bólusettir á landsbyggðinni og á höf- uðborgarsvæðinu. Á vef heilbrigðis- ráðuneytisins kemur fram að í vik- unni verða gefnir 25 þúsund skammtar af þessum þremur teg- undum bóluefnis, þar af 23 þúsund sem fyrri skammtur. Flestir 60 ára og eldri boðaðir Samkvæmt upplýsingum sem koma fram á upplýsingavefnum covid.is hafa liðlega 113 þúsund bólu- efnaskammtar verið gefnir og tæp- lega 81 þúsund hafa fengið annan eða báða. Útlit er fyrir að í lok vik- unnar hafi um 104 þúsund manns fengið bólusetningu, að minnsta kosti þá fyrri. Segir Óskar að ef meira bóluefni berist verði hægt að ljúka bólusetningu allra í aldurshópn- um 60 til 69 ára í vikunni. Samkvæmt bólusetningardagatali sóttvarnalæknis gæti bólusetning heilbrigðisstarfsmanna, fólks á aldr- inum 60-69 og fólks með undirliggj- andi langvinna sjúkdóma staðið fram yfir mánaðamótin apríl-maí. Í maí- mánuði er áformað að hefja bólusetn- ingu starfsfólks leik-, grunn- og fram- haldsskóla og tiltekins starfsfólks í félags- og velferðarþjónustu. Bólusetningar á höfuðborgarsvæð- inu fara í þessari viku fram í sal gömlu Laugardalshallarinnar. Sú aðstaða býður að sögn Óskars upp á öðruvísi möguleika og verður nýtt fyrirkomu- lag reynt þar á þriðjudag. 25 þúsund fá bólusetningu í vikunni - Stærsta vikan í bólusetningum til þessa - Útlit fyrir að 104 þúsund manns verði búin að fá eina eða tvær bólusetningar í lok vikunnar - Bólusetningar á höfuðborgarsvæðinu færðar í gömlu Höllina Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bólusetning Sprautur teknar til. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verð á minkaskinnum hefur hækkað um það bil 20% á uppboði sem stend- ur yfir í Kaupmannahöfn þessa dag- ana, frá því verði sem fékkst á febr- úaruppboði, og öll framboðin skinn seljast. Verðið hefur meira en tvö- faldast á þessum tveimur uppboðum og stendur nú undir framleiðslu- kostnaði eftir mikinn taprekstur bú- anna síðustu fimm árin. „Þetta er virkilega ánægjulegt og gott fyrir þá bændur sem enn starfa í greininni,“ segir Einar Eð- vald Einarsson, loðdýrabóndi á Syðra-Skörðugili og formaður Sam- bands loðdýrabænda. Eftirspurn að aukast á ný Skinnauppboðið í Kaupmanna- höfn var netuppboð, eins og upp- boðið í febrúar, og tiltölulega fá skinn til sölu í sögulegu samhengi. Dregið hefur úr framleiðslunni í heiminum vegna tapreksturs und- anfarin ár. Þá fór drjúgur hluti framleiðslu ársins í gryfjur í Dan- mörku þegar stjórnvöld fyrirskip- uðu niðurskurð allra minka í landinu vegna afbrigðis af kórónuveirunni sem fannst á minkabúum. Ástæðan fyrir góðri sölu er ekki einungus lítið framboð heldur hefur eftirspurnin vaknað af dvala. Einar segir að hjól atvinnulífsins séu farin að snúast í Kína og víðar og þar vanti skinn til að vinna úr í verk- smiðjunum. Tvö stór uppboð eru eftir á árinu í Kaupmannahöfn og er vonast til að þar geti kaupendur mætt í eig- in persónu, skoðað framboðið og boðið í skinnin. Verð á minkaskinni er nú komið í um sex þúsund krónur, sem er yfir framleiðslukostnaði. Í niðursveifl- unni sem hófst árið 2016 fór verðið niður fyrir hálft framleiðslukostn- aðarverð, þegar verst lét. Heimsmarkaðsverð á minka- skinnum hefur tvöfaldast - Verðið dugar nú fyrir framleiðslukostnaði og vel það

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.