Morgunblaðið - 26.04.2021, Page 4

Morgunblaðið - 26.04.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021 Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildur@mbl.is Drög að frumvarpi til laga um breyt- ingu á ýmsum lögum er varða eign- arráð og nýtingu fasteigna rýmka heimildir ráðherra til að veita undan- þágu frá því skilyrði að enginn megi öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum á Íslandi nema hann sé ís- lenskur ríkisborgari eða með lög- heimili á Íslandi samkvæmt lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna nr. 19/1966. Verði frumvarpið samþykkt rýmka því möguleikar einstaklinga sem bú- settir eru utan EES-svæðisins til eignarréttar að því gefnu að fast- eignin sé „skráð íbúðarhúsnæði á leigulóð í þéttbýli eða frístundahús á leigulóð á skipulögðu frístunda- svæði“, eins og segir í drögunum. Þannig verði slakað á þeim kröfum að ríkisborgarar frá ríkjum utan EES verði að hafa sterk tengsl við Ísland. Einstaklingarnir munu þó enn þurfa að sækja um undanþágu dómsmála- ráðherra til að eignast fasteign í þétt- býli eins og höfuðborgarsvæðinu. Þó eru ekki allir á því að í drög- unum sé gengið nógu langt með til- slakanirnar. Samtök atvinnulífsins, Samtök iðn- aðarins og Viðskiptaráð Íslands segja í umsögn sinni á samráðsgátt að þau telji umrædda tilslökun til bóta en samt sem áður mikilvægt að gengið sé enn lengra „enda eru núverandi takmarkanir víðtækari en nauðsyn- legt er til að ná því markmiði sem lög- gjafinn stefndi að“. Gildi ekki um frístundahúsnæði Markmiðið hafi verið að stuðla að fjölbreyttum og samkeppnishæfum landbúnaði, náttúruvernd, viðhaldi og þróun byggðar og þjóðfélagslega gagnlegri og sjálfbærri landnýtingu. „Samtökin telja í ljósi þessa mark- miðs að takmarkanir á eignarrétti eða afnotum á fasteignum hérlendis eigi ekki að eiga við um frístunda- húsnæði eða þéttbýlissvæði,“ segir í umsögn samtakanna. Samtökin gera einnig athugasemd við það að tilslökunin eigi ekki við ef viðkomandi vill kaupa fasteign sem stendur á eignarlóð sem og að mik- ilvægt sé að undanþágan nái til at- vinnuhúsnæðis. „Hér ber til þess að líta að um takmörkun á eignarrétti og atvinnufrelsi er að ræða og því mik- ilvægt að sú takmörkun sé vel rök- studd með vísan til almannahags- muna,“ segir í umsögninni. Hefði mátt ganga lengra með lagasetninguna Endurskoðunarfyrirtækið KPMG veltir því ennig fyrir sér hvort það megi ekki ganga lengra í lagasetning- unni, svo markmiði hennar sé náð. Þannig nefnir KPMG tvær leiðir: „Annars vegar að það sé ekki gert að skilyrði að samþykki ráðherra þurfi til svo einstaklingar búsettir utan EES geti keypt fasteign sem skráð er íbúðarhúsnæði á leigulóð í þéttbýli eða frístundahús á leigulóð á skipu- lögðu frístundasvæði. Hins vegar að lögaðilum utan EES verði einnig heimilt að festa kaup á fasteign sem skráð er íbúðarhúsnæði á leigulóð í þéttbýli eða frístundahús á leigulóð á skipulögðu frístundasvæði.“ KPMG telur auk þess það skilyrði frumvarpsins fyrir leyfi ráðherra að umsækjandi eigi ekki aðrar fasteignir hér á landi ganga of langt og tak- marka rétt aðila utan EES um of til fjárfestinga á eignum hér á landi en það skilyrði var sett í lög með breyt- ingarlögum í fyrra. „Á sama tíma og ferðaþjónustan stendur frammi fyrir áskorunum vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins og ríkisstjórnin reynir að gera Ísland að fýsilegri kosti fyrir erlenda sér- fræðinga skýtur skökku við að sníða sömu aðilum svo þröngan stakk í að setjast hér að. KPMG telur því vert að endurskoða þær breytingar sem gerðar voru með lögum nr. 85/2020 og þær breytingar sem boðaðar eru með þeim frumvarpsdrögum sem eru til umsagnar heildstætt með það mark- mið að gera Ísland að aðlaðandi kosti fyrir erlenda aðila.“ Búsettir utan EES geti keypt fasteignir - Telja að nýju tilslakanirnar hefðu mátt ganga lengra Morgunblaðið/Árni Sæberg Þéttbýli Einstaklingar munu enn þurfa að sækja um undanþágu hjá dóms- málaráðherra til að eignast fasteign í þéttbýli eins og höfuðborgarsvæðinu. „Mér heyrist að fólk sé jákvætt. Margir hafa sent okkur Jónasi nota- leg skilaboð á Facebook. Sumir tala um að þeir hafi ekki komist á lifandi tónleika í marga mánuði,“ segir Hjörleifur Valsson, fiðluleikari í Noregi, en hann hélt tónleika með Jónasi Þóri orgelleikara í Hallgríms- kirkju í fyrradag. Þeir héldu tvenna tónleika þar sem fólki var raðað í sæti samkvæmt ströngustu reglum um sóttvarnir. Gestum var raðað í tvö hólf hvort með sinn útganginn. Máttu vera samtals 150 manns á hvorum tónleik- um í þessum þúsund manna sal. Tel- ur Hjörleifur að vel á annað hundrað manns hafi mætt í heildina. Kveðst hann ánægður með undirtektir. Tekur Hjörleifur undir það að ástæða væri til að halda fleiri tón- leika og vildi gjarnan fara í tónleika- ferð um landið. Hann er hins vegar búsettur í Noregi þannig að erfitt er að koma því við í þessu ástandi. Hjörleifur hefur nemendur og ein- hver önnur verkefni úti. „Annars hef ég reynt að halda dampi og nýti tím- ann til æfinga. Ég upplifi þetta þann- ig að þrátt fyrir allt hafi tíminn verið fljótur að líða,“ segir hann. helgi@mbl.is Höfðu ekki komist á tónleika lengi - Hjörleifur og Jónas léku í Hallgrímskirkju Ljósmynd/Geir A. Guðsteinsson Hallgrímskirkja Hjörleifur Valsson og Jónas Þórir léku saman á laugardag. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Læknafélag Íslands (LÍ) og Læknafélag Reykjavíkur (LR) telja að reglugerð sem heilbrigð- isráðherra hefur kynnt í samráðs- gátt stjórnvalda skorti lagastoð. Fjallar hún um endurgreiðslu sjúkrakostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreina- lækna, sem starfa án samnings við SÍ. „Samningsleysi við veitendur heilbrigðisþjónustu hvorki getur né má leiða til þess að sjúkratryggðir verði sviptir lögvörðum sjúkra- tryggingum sínum samkvæmt lög- um um sjúkratryggingar,“ segir í umsögn LÍ og hvetur félagið heil- brigðisráðherra jafnframt til að gefa SÍ fyrirmæli um að leita samninga við sérgreinalækna. Í reglugerðinni er sett skilyrði um að læknar innheimti hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna þjónustu frá SÍ. Líta félögin svo á að með reglugerðinni skauti stjórn- völd framhjá skyldu SÍ til þess að endurgreiða sjúkratryggðum út- lagðan kostnað vegna heilbrigðis- þjónustu samkvæmt gjaldskrá. Er bent á 38. gr. laga um sjúkra- tryggingar sem hljóðar svo: „Séu samningar um heilbrigðis- þjónustu ekki fyrir hendi er í sér- stökum tilfellum heimilt tímabund- ið að endurgreiða sjúkratryggðum útlagðan kostnað vegna heilbrigð- isþjónustu á grundvelli gjaldskrár sem sjúkratryggingastofnunin gef- ur út.“ Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur Læknafélags Íslands, segir í nýj- asta tölublaði Læknablaðsins að sjúkratryggingarnar skuli greiða fyrir heilbrigðisþjónustu sem fellur undir lög um þær, að hluta eða öllu leyti, enda hafi verið um þær sam- ið. Ekki hafa samningar náðst milli SÍ og sérgreinalækna síðan í lok árs 2018. Heilbrigðisráðuneytið virðist ekki vera á sama máli og lækna- félögin og segir að skýrt sé tekið fram í lögunum að heimildin í 38. gr. sé tímabundið úrræði sem ein- ungis skuli nýta í sérstökum til- fellum. Kemur það fram á vef stjórnarráðsins þar sem reglugerð- ardrögin voru kynnt. Morgunblaðið/Eggert Samningar Sérgreinalæknar bíða. Telja reglugerð skorta lagastoð Samningar sérgreinalækna » Allir landsmenn eru sjúkra- tryggðir eftir að hafa átt lög- heimili á Íslandi í að minnsta kosti sex mánuði. » Samningar sérgreinalækna og SÍ um þjónustu lækna sem starfa án samnings runnu út í lok árs 2018. » LÍ og LR telja reglugerð heil- brigðisráðherra skorta laga- stoð. » Reglugerðin skyldar lækna til að innheimta hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna þjónustu frá SÍ. - Læknar gagnrýna heilbrigðisráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.