Morgunblaðið - 26.04.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 26.04.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021 L augarnar í Rey k javí k w w w. i t r. i s O P N A R LAUGARNAR ERU S ý num hve r t öð ru t illi t s s e mi og virðum 2 me t ra f ja rlægða rm ö rk in Bláskógabyggð ætlar að rýmahjólhýsahverfið á Laugar- vatni og vísar í því sambandi til laga og reglna, meðal annars brunavarna. Athugasemdir hafa verið gerðar vegna brunahættu og eru þær skiljanlegar, en spurn- ingin hlýtur að vera hvort eina lausnin er að vísa öllum á brott. - - - Þarna eru um 200 hjólhýsi oghafa sum verið í fjóra áratugi. Og sveitarstjórinn sagði þetta um málið í samtali við Morgunblaðið á laugardag: „Þetta var erfið ákvörðun. Þetta hefur verið gott samfélag og staðið í langan tíma og fólkinu liðið vel. Þrátt fyrir kynslóðaskipti hefur sami góði andinn haldist.“ - - - Félag hjólhýsaeigendanna hefurskorað á sveitarstjórn að leyfa þeim að vera, en án árangurs og flestir þeirra þurfa að hverfa á braut fyrir árslok, hinir ári síðar. - - - Félagið hefur boðist til aðleggja til fé svo laga megi brunavarnir, eins og segir í fund- argerð sveitarstjórnar, en þá er því svarað til á sama stað að þetta breyti engu „um að fullnægjandi lagastoð finnist ekki fyrir því að halda úti hjólhýsasvæði með þeim hætti sem verið hefur á Laugar- vatni“. - - - Hjólhýsahverfi eru víðar á land-inu og þar er án efa góður andi eins og við Laugarvatn. - - - Getur verið að engin önnur leiðsé fær en að reka hjólhýsa- eigendur á brott? Lagastoð skortir fyrir góðum anda STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Bjarni Jónsson, fiski- og þróunar- vistfræðingur og sveitarstjórnar- fulltrúi í Skagafirði, bar sigur úr býtum í rafrænu forvali Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi sem fram fór um helgina og mun því leiða lista VG í alþingiskosningum í septem- ber. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þing- maður og sitjandi oddviti VG í Norðvesturkjördæmi, bauð sig einnig fram til að leiða lista flokks- ins í haust en hafnaði í öðru sæti í forvalinu. Lilja hefur veitt atvinnu- veganefnd Alþingis formennsku á yfirstandandi kjörtímabili. Bjarni og Lilja Rafney hafa tvisvar áður tekist á um oddvitasæti VG í Norð- vesturkjördæmi, árið 2016, þar sem Lilja hafði betur í prófkjöri og árið 2017, þar sem stillt var upp á lista. VG hlaut einn þingmann í kjör- dæminu í síðustu alþingiskosning- um. Þriðja sæti í forvalinu hlaut Sigríður Gísladóttir dýralæknir og það fjórða hlaut Þóra Margrét Lúthersdóttir sauðfjár- og skógar- bóndi. Lárus Ástmar Hannesson grunnskólakennari og bæjarfulltrúi hafnaði í fimmta sæti. Aðrir í fram- boði voru María Hildur Maack um- hverfisstjóri, Nanný Arna Guð- mundsdóttir framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi og Þóra Magnea Magnúsdóttir kennari. Bjarni Jónsson leiðir í Norðvestur - Lagði Lilju Rafneyju, sitjandi oddvita og þingmann, í þriðju tilraun í forvali Bjarni Jónsson Lilja Rafney Magnúsdóttir Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Jóhann Hjartarson (2.523), Vignir Vatnar Stefánsson (2.327) og Bragi Þorfinnsson (2.432) eru þrír efstir á Íslandsmótinu í skák að lokinni fjórðu umferð sem klár- aðist í gærkvöldi. Næstur er Guð- mundur Kjartansson, nýbakaður stórmeistari, með tvo og hálfan vinning en aðrir eru með minna. Nokkuð óvænt úrslit urðu í gær- kvöldi þar sem hinn sautján ára Alexender Oliver Mai (2.025) gerði jafntefli við Helga Áss Grétarsson stórmeistara (2.437) í dýnamískri skák. Sviptingar í fjórðu umferð Miklar sviptingar urðu í skák Jóhanns Hjartarsonar og Björns Þorfinnssonar þar sem hinn síðar- nefndi bar sigur úr býtum. Undir lokin virtist sem Jóhann væri að sigla sigrinum heim en eftir afleik í flókinni stöðu fékk Björn gott spil sem dugði til sigurs. Í viðureign Guðmundar Kjart- anssonar (2.503) og Hjörvars Grét- arssonar (2.588) fékk Guðmundur betra tafl út úr byrjuninni og vann sannfærandi sigur. Bragi Þorfinnsson (2.432) og Hannes Stefánsson (2.532) gerðu jafntefli eftir langa skák en mótið fer vel af stað fyrir hinn átján ára Vigni Vatnar Stefánsson (2.327), sem hafði betur gegn Sigurbirni Björnssyni (2.327) með sannfær- andi hætti. Næsta umferð hefst á morgun þar sem Bragi Þorfinnsson mætir Hjörvari Steini Grétarssyni, Vign- ir Vatnar stýrir svörtu gegn Hannesi og Jóhann Hjartarson fær svart gegn Helga Áss Grét- arssyni. Jóhann, Vignir og Bragi leiða mótið Morgunblaðið/Sigurður Unnar Efstir Vignir og Jóhann eru báðir með þrjá vinninga eftir 4. umferð. - Þrír leiða Íslands- mótið í skák að lok- inni fjórðu umferð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.