Morgunblaðið - 26.04.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.04.2021, Blaðsíða 11
það. Nú eru níu af þessum 23 í námi svo þau eru hjá okkur kannski tvo daga í viku.“ – Heldurðu að hér séu öll þau ung- menni sem þurfa á þessu úrræði að halda? „Nei, það eru miklu fleiri þarna úti. Við höfum lengst af getað sinnt þeim sem hafa verið sendir til okkar, en því miður hafa verið að byggjast upp biðlistar í um eitt ár núna. Við getum ekki tekið við öllum og þess vegna hef ég verið að reyna að koma fleirum í nám, svo fleiri geti verið hér dag og dag. Við erum ekki með enda- laus verkefni hér innanhúss, en þá eru verkefni einhverra að vera í námi.“ Þorvarður segir heimsfaraldurinn ekki síður hafa haft áhrif á starfsem- ina en slæmt atvinnuástand því sam- komutakmarkanir hafi gert það að verkum að skipta hefur þurft vinnu- stundum niður og þá hafi virkni þeirra dottið niður þá daga sem þau eru ekki í Fjölsmiðjunni. „Síðastliðið ár hefur samt sem áður verið gott rekstrarlega því fólk hefur þurft að vera heima og fleiri hafa nýtt tímann til að taka til hjá sér og breyta. Við höfum því fengið mikið af vörum gef- ins, sem síðan eru seldar. Sóttvarn- irnar hafa þó tekið sinn toll í öllum rekstrinum,“ segir Þorvarður. Almenningur sér aðeins brot af starfseminni Kompan nytjamarkaður er stærsta verkefni Fjölsmiðjunnar og rúmt ár er síðan húsnæði Komp- unnar var stækkað til muna. Að auki rekur Fjölsmiðjan reiðhjólaverk- stæði og tvo sendiferðabíla því boðið er upp á búslóðaflutninga fyrir fólk, ásamt því að sækja vörur til gefenda og skutla til kaupenda. Að sögn Þor- varðar eru bílarnir á fullu allan dag- inn alla daga sem opið er. Þau eru því fjölbreytt verkefnin sem ungmennin fá að spreyta sig á undir leiðsögn verkstjóranna og forstöðumanns. „Almenningur sér bara brot af þeirri starfsemi sem hér fer fram en hér í vinnurýminu eru mörg handtök á hverjum degi. Við tökum á móti vörum frá gefendum, það þarf að yfirfara rafmagnstæki áður en þau fara í sölu, húsgögnin eru yfirfarin og löguð í smíðadeildinni ef þarf og reiðhjólin sem berast Kompunni í reiðhjólaverkstæðinu eru yfirfarin. Þá þarf að verðmerkja alla hluti, þrífa vinnusvæði og verslun og af- greiða vörurnar.“ – Hverju ertu stoltastur af? „Ég er stoltastur af því að við er- um að hjálpa unga fólkinu að byggja undirstöður og koma því áfram í líf- inu. Stundum eru dagarnir erfiðir, en þetta er drifkrafturinn minn og það er gott að geta litið til baka í dagslok og séð hverju maður hefur áorkað. Ég er líka stoltur af því hvað Fjöl- smiðjan er opnari nú en hún var, þröskuldarnir hingað inn og héðan út eru lægri. Ég á svo margar fallegar sögur héðan af ungmennum sem hafa náð góðum tökum á lífinu og spjarað sig vel.“ Facebook: Fjölsmiðjan á Suðurnesjum Instagram: kompan_ nytjamarkadur um að fá að koma hingað“ Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Reiðhjól Júlíus Sævar Júlíuson er verkstjóri reiðhjólaverkstæðisins, en þar er bæði boðið upp á viðgerðarþjónustu ásamt því að yfirfara hjól og laga sem berast til Kompunnar í formi gjafa. Nóg hefur verið að gera í þessu. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021 Missið ekki af áhugaverðum þætti um starfsemi Klíníkurinnar í Ármúla þar sem rætt er við Kristján Skúla Ásgeirsson brjóstaskurðlækni um brjóstnámsaðgerðir og þá þjónustu sem Klíníkin býður þeim konum sem þangað leita. Einnig er rætt við hjúkrunarfræðing um undirbúning aðgerða og eftirfylgni í kjölfar þeirra. Þátturinn var áður á dagskrá Hringbrautar í október 2019. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ Á dagskráHringbrautar í kvöld kl. 20.00 Einkarekin heilbrigðisþjónusta á tímum biðlista – þriðji hluti Brjóstnám kvennameð BRCA-gen hjá Klíníkinni í Ármúla í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskráHringbrautar kl. 20.00 í kvöld • Fyrirbyggjandi og áhættuminnkandi brjóstnámsaðgerðir hjá konum í áhættuhópum • Konur með stökkbreytingu í BRCA-genum eru í 60-80% áhættu um að fá krabbamein á lífsleiðinni • Íslensk erfðagreining býr yfir gagnagrunni sem getur sagt til um hvort einstaklingur er með BRCA-einkenni • Við brjóstnám kvennameð BRCA-genminnka líkur á brjóstakrabbameini um 95-97%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.