Morgunblaðið - 26.04.2021, Side 15

Morgunblaðið - 26.04.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021 Útivist í borginni Það má vel æfa sig á gönguskíðum í Fossvogi þó svo enginn sé snjórinn. Eggert Fyrir stuttu varð ég þess heiðurs aðnjótandi að vera sett- ur á svartan lista hjá Kínverska alþýðulýðveldinu, eins og ein- hverjir hafa vafalaust tekið eft- ir. Ástæðan virðist vera sú, að ég hafði skrifað nokkrar blaða- greinar í Morgunblaðið í gegn- um árin, sem Kínverjunum hef- ur ekki líkað. Hafa þeir nú notað tækifærið og sett mig á svartan lista til að sýna van- þóknun sína á mér og þá ekki síst vegna stuðningsyfirlýsingar íslensku ríkisstjórn- arinnar við Úígúra, sem Kínverjar virðast fara með eins og skepnur. Þjóð sem heim- urinn hefur fulla samúð með, eins og yf- irlýsingar ýmissa þjóða sýna, jafnframt skrif í blöðum og tímaritum, en sem ekki má nefna í eyru kínverskra stjórnvalda, frekar en snöru í hengds manns húsi. Sama gildir líka varðandi Kínaveiruna. Hversu óþægilegar sem þessar staðreyndir eru Kínverjum, þá geta þeir ekki endalaust neitað þeim, því þetta er nokkuð sem allur heimurinn veit um. Stöðug neitun á al- kunnum staðreyndum dregur bara úr trú- verðugleika Kínverja varðandi heims- valdasýn þeirra. Ekki bætir úr, þegar lesa má í blaðagreinum sendiherra Kína og líka formanns vinafélags Íslands og Kína lýs- ingar á því, hvernig það eigi í dag að vera mulið undir Úígúrana í Kína, sem er þvert á staðreyndir. Margir hafa furðað sig á því, að fjölmennasta ríki heims, Kína, sé að beina spjót- um sínum að einstaklingnum mér, þ.e ellilífeyrisþega. (Fjöl- fatlaður ellilífeyrisþegi í hjóla- stól hefði hljómað betur.) Þá má líka undrast, að verið sé að klaga mig á þann hátt, sem vælandi smákrakkar myndu kannski gera: Jónas er alltaf að hrekkja okkur! Þetta eru vart sæmandi vinnubrögð fyr- ir stórþjóð, sem vill láta taka mark á sér. Það sem undrar mig þó mest varðandi þessa svartlistun Kínverja á mér er hversu marklaus og bitlaus hún er og skilar akk- úrat engu fyrir Kínverja, þvert á það, sem hlýtur að hafa verið stefnt að. Svartlistunin hefur aðeins gert mig frægan í nokkra daga og fært mér mikinn stuðning almennings, sem örugglega hefur ekki verið ætlunin hjá kínverskum stjórnvöldum. Stöðluð aðferð þeirra að banna viðkomandi að ferðast til Kína, og jafnframt að eiga í banka- viðskiptum þar, dugar e.t.v á þá, sem eru t.d í föstum viðskiptasamböndum og ferða- lögum til Kína og skaðar þá þar af leiðandi. Þetta á ekki við mig, sem átti að vera starfsmönnum kínverska sendiráðsins ljóst, enda tilgangurinn greinilega að koma á mig höggi, en ekki mylja undir mig eða koma því til leiðar, að mér yrði hampað á þeirra kostnað, eins og raunin varð. Eins og alltaf þá verða menn að vanda sig, sama hvaða verk er verið að vinna. Það er í öllum til- vikum tilgangslaust að göslast af stað með eitthvað án þess að vera viss um, að það skili einhverjum árangri eða a.m.k. virki að einhverju gagni fyrir viðkomandi. Hand- arbaksvinnubrögð, eins og þarna voru á ferðinni varðandi mig, ættu að leiða til þess, að Kínverjar vandi sig betur næst, þegar þeir ætla að sýna vanþóknun sína vegna einhvers, sem þriðji aðili á að hafa gert þeim til miska að þeirra mati eða þá ein- hver einstaklingurinn. Eins og áður sagði, þá voru það nokkrar blaðagreinar eftir mig, sem birtust í Morg- unblaðinu á síðustu árum, sem fóru í taug- arnar á Kínverjum og sú fyrsta árið 2013. Núningurinn byrjaði þó löngu fyrr eða árið 2005, þegar þeir í kínverska sendiráðinu, sem þá var á Víðimel 29, vildu fá að leggja lóð hússins undir bílastæði og láta hrófla þar upp nokkrum bílskýlum. Sem næsti ná- granni kom það ekki til greina af minni hálfu. Sendi ég skipulagsyfirvöldum ítarleg- an sex blaðsíðna rökstuðning um hvers vegna það ætti ekki að gerast. Niðurstaðan varð sú, að þessari beiðni Kínverjanna var hafnað og varð því ekkert af umbeðnum framkvæmdum. Eins og allir vita, þá vinna menn ekki alltaf, nokkuð sem gildir jafnt um Kínverja sem alla aðra í heiminum. Þá má benda á þá alkunnu staðreynd, að það er ekki magnið eða fjöldinn, sem ræður úr- slitum, heldur gæðin. Því fór sem fór fyrir Kínverjunum í þessu máli. Svo ég að endingu leiði hugann aftur að illri meðferð Kínverja á Úígúrum, þá undr- ar það mann nokkuð, hvað það virðist vera lítið um það, að múslímar víðsvegar um heiminn styðji baráttu trúbræðra sinna og -systra, Úígúra í Kína, í þeirri erfiðu stöðu, sem þeir eru í. Sérstaklega þegar það er haft í huga, hvað múslimar hafa oft staðið þétt saman, þegar þeir telja stöðu sinni og ekki síst trúarbragðaiðkun ógnað. Hér er alls ekki verið að tala um neitt annað en friðsamleg mótmæli eða stuðning við til- verurétt þessarar ofsóttu þjóðar af hálfu Kínverja. Til þess þarf þó bæði kjark og öfl- ugan samhug til að geta sýnt kínversku heimsvaldasinnunum, að heiminum er ekki sama um það, hvernig farið er með Úígúr- ana í Kína, og tími kominn til að reyna að stöðva þessar ofsóknir á hendur þeim. Eftir Jónas Haraldsson » Svartlistunin hefur aðeins gert mig frægan í nokkra daga og fært mér mikinn stuðning almennings, sem örugglega hefur ekki verið ætlunin hjá kínverskum stjórnvöldum. Jónas Haraldsson Á svörtum lista kínverskra heimsvaldasinna Höfundur er lögfræðingur. Sumir eru á því að það séu ekki mannréttindi að eignast börn. Því er ég sammála. Ég er heldur almennt ekki á því að það sé góð hugmynd að útvatna mannréttindi með því að setja stöðugt fleira undir þeirra hatt. En á sama hátt er ég þeirrar skoðunar að sjálfsákvörðunar- réttur einstaklinga sé mikil- vægur og að ríkinu beri ekki að skipta sér mikið af, eða hafa skoðanir á lífi fólks nema þegar ríkar ástæður séu til. Fólki er oftast treystandi en ríki eiga jú til að gleyma sér ef ekki er stöðugt fylgst með þeim. Nóg er til af þröskuldum Það er ekki sjálfsagður hlutur að geta eignast barn og því langar mig að minnast á nokkur atriði þar sem ég tel að við getum gert betur svo kerfið geti frekar aðstoðað fólk í þeirri vegferð í stað þess að reynast þröskuldur. Nóg er til af þröskuldum í heiminum og skynsamlegt að fækka þeim þar sem hægt er. Kerfið í kringum tæknifrjóvganir hefur batnað að miklum mun síðustu ár. Ég hugsa með mikilli hlýju og samúðar til allra þeirra sem hér á árum áður stóðu í eflaust mjög sársaukafullri baráttu án þeirrar þekkingar, tækni og umræðu sem við búum við nú. En þótt kerfið hafi tekið stakkaskiptum má enn endurskoða það svo að ríkið sé frek- ar til aðstoðar en trafala gagnvart fólki sem langar einfaldlega til að skapa líf og hlúa að því. Af illskiljanlegum ástæðum er sem dæmi lagt bann við því að gefa tilbúinn fósturvísi þótt bæði sé heimilt að gefa sæði og egg. Fólk sem vill fara í tæknifrjóvgun skal sömuleiðis vera skráð í staðfesta sambúð. Við skilnað verður að eyðileggja fósturvísi jafnvel þótt einstaklingarnir vilji samt eign- ast barnið eða fyrir liggi samþykki beggja aðila fyrir því að annað þeirra nýti fóstur- vísinn. Eins má nefna að ef par telur full- reynt að eignast barn sjálft, sem oft gerist á síðustu metrum frjósemisaldurs, gera ætt- leiðingareglur þeim ekki auðveldara fyrir. Par verður þá að hafa verið gift í þrjú ár eða skráð í staðfesta sambúð í fimm ár, þá tekur við líffræðilegt þak þar sem fólk má ekki hafa náð 45 ára aldri til að mega ætt- leiða – né reyndar vera í yfirþyngd. Treystum fólki Allt þetta er eflaust, eða var, hægt að rökstyðja út frá ýmsum ástæðum líkt og flest. En ég er ósammála því að þessar reglur þurfi. Ríkið á ekki að óþörfu að hafa skoð- un eða miðstýra því hvernig fólk kýs að búa til fjölskyldu. Við eigum þvert á móti að treysta fólki. Reglur eiga að vera fáar og skýrar eins og kostur er, annars skapast í þessu eins og öðru hætta á að sífellt þurfi að plástra og bæta við reglurnar til að koma til móts við ólík sjón- armið. Það sem meira er; rík- ið á þá enn erfiðara með að bregðast við því að samfélagið er í sífelldri mótun. Aldur hefur t.d. breyst mikið, við kynnumst seinna en áður, hugum að barneignum seinna en áður og höldum heilsu og orku lengur en áður. Hagsmunir barna eru tryggðir Sterkustu rök kerfisins fyrir reglunum eru hagsmunir barna. Hagsmunir barna skipta miklu máli, en við höfum reglur í samfélaginu sem gæta hagsmuna barna – og við getum alveg treyst því að þær eigi við sama hvaðan og hvernig börnin koma. Hið opinbera hefur áður sett íþyngjandi reglur vegna hagsmuna barna sem var svo horfið frá. Það er ekki ýkja langt síðan af- numið var bann við því að systir konu gæti gefið gjafaegg þar sem þá var talið of erfitt að alast upp í svo flóknu fjölskyldumynstri. Sömuleiðis takmarkaði ríkið áður rétt sam- kynhneigðra til að eignast börn með þeim rökum að það væri of erfitt fyrir börn að alast upp hjá samkynja foreldrum. Það má vera þakklátur fyrir margt í um- hverfinu sem við búum við í dag. Ég tel að hugurinn að baki reglunum sé góður og að við viljum auðvelda sem flestum að eignast börn. En reglur eiga að vera fyrir fólkið og við eigum aldrei að vera hrædd við að end- urskoða þær. Við eigum að taka til skoð- unar að taka enn fleiri skref til aukins frels- is og stuðnings gagnvart fólki sem vill eignast börn. Við eigum að auðvelda fólki að eignast börn Eftir Hildi Sverrisdóttur Hildur Sverrisdóttir »Ríkið á ekki að óþörfu að hafa skoðun eða miðstýra því hvernig fólk kýs að búa til fjölskyldu. Við eigum þvert á móti að treysta fólki. Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. hildur.sverrisdottir@anr.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.