Morgunblaðið - 26.04.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.04.2021, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021 Raðauglýsingar Um er að ræða. 100% stöðu í íþrótta- og sundkennslu bæði á leik- og grunnskólastigi ásamt kennslu í íþróttatengdum valgreinum. Í Húnavalla- skóla er samkennsla árganga og eru u.þ.b. 35 nemendur í grunnskóladeild og 20 nemendur í leikskóladeild. Í skólanum er góður skólabragur þar sem áhersla er lögð á samstöðu, vináttu og virðingu. Í skólanum er unniðmark- visst með jákvætt og vaxandi hugarfar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Húnavatnshreppur hunavatnshreppur.is Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k og skal umsókninni fylgja ferilskrá og staðfesting á kennsluréttindum. Umsóknir skulu sendar á netfangið skolastjori@hunavallaskoli.is eða til skólastjóra Húnavallaskóla, Húnavöllum, 541 Blönduós. Nánari upplýsingar: Sigríður B. Aadnegard í síma 455 0021 og 847 2664 eða í gegnum netfangið skolastjori@hunavallaskoli.is Laus eru til umsóknar íþróttakennarastaða við Húnavallaskóla frá 1. ágúst 2021 • Kennsluréttindi sem og hæfnispróf til sundkennslu. • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum. • Góðir skipulagshæfileikar og góð tölvukunnátta. • Ábyrgð og stundvísi. • Faglegurmetnaður og sjálfstæð vinnubrögði. • Áhugi á að vinnameð börnum og unglingum. • Góð íslenskukunnátta æskileg. • Hreint sakavottorð. Hæfniskröfur: Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu kl. 10.10, Grandavegi 47 kl. 10.15 og Afla- granda kl. 10.20. Útskurður kl. 13. Kaffi kl.14.30-15.20. Vegna fjölda- takmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur og jafnframt er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Leikfimi með Hönnu kl. 10. Félagsfundur kl. 11. Opin vinnustofa kl. 9-12. Handavinnuhópur kl. 12- 16. Enskukennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411 2600. Boðinn Myndlist með leiðb. kl. 13, munið sóttvarnir. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Mannamál með Helgu Margréti kl. 12.40-13.30. Handavinnuhornið kl. 13-14.30. Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og 11. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Zumba í sal í kjallara Vídalínskirkju kl. 16.30 og 17.15. Vatnsleikfimi Sjál kl. 14 og 14.40. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Jóga með Kristrúnu kl. 9.15 Minningahópur kl. 10. Jóga með Ragnheið Ýr á netinu kl. 11.15. Stólaleikfimi 13.30. Gönguhópur – lengri ganga kl. 13.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 8.30 í Borgum, Ganga kl. 10, gengið frá Borgum, þrír styrkleikahópar, gengið frá Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Sjúkraleikfimi með Elsu frá Hæfi kl. 11 í dag í Borgum. Prjónað til góðs og frjáls skartgripagerð kl. 13 í Borgum. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 og línudans með Guðrúnu í Borgum kl. 14. Grímuskylda og fjöldatakmarkanir í gildi. Kaffi á könnunni. Seltjarnarnes Námskeiðin í leir og gleri eru í samráði við leiðbeinendur. Billjard í Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga í salnum á Skólabraut kl. 10. og 11. Handavinna, sam- vera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13-16. 200 mílur Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Toyota Auris Active 5/2016 Sjálfskiptur. Dráttarkrókur. Hraðastillir sem er sjaldgæft í þessum bílum. Ekinn 183 þús. km. og var í leiguakstri og því verið í toppviðhaldi. Tilboðsverð aðeins 990.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. ✝ Gunnar Lúðvík Björnsson skriftvélavirki fæddist í Reykja- vík 14. ágúst 1947. Hann lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans í Foss- vogi 17. apríl 2021. Foreldrar hans voru Björn Daníel Hjartarson, f. 6. júní 1919, d. 30. nóv. 1992, og Vilborg Vigfús- dóttir, f. 9. ágúst 1912, d. 24. apríl 1978. Systkini hans eru: Auðunn, f. 5. júlí 1940, Ingunn Hjördís, f. 27. júlí 1942, d. 7. des. 2016, Vigfús G., f. 4. sept. 1945, d. 31. mars 2019, og Guð- laug, f. 6. ágúst 1950. Fyrrverandi eiginkona Gunnars var Erna Guðrún Sig- urjónsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, f. 30. sept. 1949, d. 21. jan. 2004. Börn þeirra eru: 1) Ragnheiður Ármey viðskipta- fræðingur, f. 13. des. 1970, börn hennar eru Erna Guðrún Stefánsdóttir, f. 6. ágúst 1990, Björn Elvar Steinarsson, f. 24. mars 1992, og Sandra Björk Steinarsdóttir, f. 19. apríl 1996. 2) Hildur Birna uppistandari, f. 30. júní 1974, sonur hennar er Sindri Snær Bergsson, f. 21. ágúst 1995. 3) Gunnar Lúðvík skipstjóri, f. 1. jan. 1978, kvæntur Re- bekku Ingadóttur, f. 21. mars 1983. Börn þeirra eru Júlía Klara, f. 12. maí 2008, Dagmar Lilja, f. 25. júlí 2012, Jenný Lilja, f. 25. júlí 2012, d. 24. okt. 2015, og Mika- el Ingi, f. 3. okt. 2016. Seinni sambýliskona Gunn- ars var Heiðbjört Ingv- arsdóttir, f. 3. júní 1955, og áttu þau saman einn son, Val- berg, f. 1. maí 1985, d. 21. sept. 1997. Barnabarnabörn Gunnars eru fjögur. Það eru þau Anika Ýr Harðardóttir, f. 25. maí 2013, Ármey Alba Ernudóttir Waage, f. 4. nóv. 2013, Óliver Dan Björnsson, f. 31. okt. 2019, og Matthías Tumi Harðarson, f. 21. jan. 2021. Útför fer fram frá Linda- kirkju kl. 13. Elsku afi. Við erum þakklát fyrir allar minningarnar sem við eigum um þig og við geymum þær í hjörtum okkar. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þín Júlía Klara, Dagmar Lilja og Mikael Ingi. Gunnar Lúðvík Björnsson Elsku mamma, þetta eru þungar skriftir sem ég reiknaði ekki með að þurfa að gera strax. Ég elska þig svo mikið og sakna og mig langar svo til að segja þér af hverju. Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig. Þú varst besta mamman og amman í öllum heim- inum. Ég á þér svo margt að þakka. Ég er svo stoltur yfir því að vera sonur þinn. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig þegar ég þurfti á þér að halda. Þú lýstir upp líf mitt. Frá þér streymdi kærleikur og hlýja. Þú varst skilningsrík og um- hyggjusöm. Það er svo margt sem þú kenndir mér um lífið og tilveruna. Kristjana Vilborg Árnadóttir ✝ Kristjana Vil- borg Árnadótt- ir fæddist 28. júní 1950. Hún lést 5. apríl 2021. Útför hennar fór fram í kyrrþey. Ég veit að ég væri ekki sá maður sem ég er í dag ef ég hefði ekki átt þig að. Þú vissir alltaf á hverju ég þurfti að halda og hvenær ég þurfti uppörvun. Þú þekktir mig svo vel. Ég vissi að til þín gæti ég alltaf leitað. Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mik- ils virði þú varst mér. Ég hef kannski allt of oft tekið þér sem sjálfsögðum hlut. En það sem máli skiptir í þessu öllu er að þú vitir að ég elska þig. Þú varst best. Þinn sonur, Árni. Elsku amma. Hvar á maður að byrja? Minningarnar eru ótal margar. 34 ára varstu þegar ég kom í heiminn, viðstödd fæð- inguna og rígmontin af litlu al- nöfnunni sem þú fékkst. Þau voru nokkur skiptin sem þið afi komuð og sóttuð mig norð- ur og tókuð mig með í ferðalag með appelsínugula hústjaldið í farteskinu. Minnisstæðast var stoppið á Egilsstöðum þar sem ég var dúð- uð upp fyrir haus vegna smá hita- vellu og á Kirkjubæjarklaustri þar sem við dvöldum í góðan tíma. Þegar ég fór að nálgast þann aldur sem langamma, þú og pabbi urðuð foreldrar fórst þú að bíða eftir langömmubarni. Í fimm ár beiðstu og þegar við sögðum þér að loks væri von á barni hélt ég að þakið færi af húsinu, slík voru fagnaðarlætin, þú þá að verða 57 ára. Kyn barnsins átti að vera leyndarmál, en þú sást fljótt í gegnum það þegar við sátum saman kvöld eftir kvöld að prjóna skírnarkjólinn. Tíminn leið og brátt kom að fæðingu, þú hafðir ýjað að því við mig að þér þætti gaman að fá að vera með, en við vorum harð- ákveðin í að vera bara tvö. En fæðingin var löng, gekk illa og ekki leið á löngu þar til hringt var í ömmu … tveimur mínútum seinna varst þú mætt og fórst ekki heim fyrr en 14 tímum seinna með nýjan titil; langamma. Eva Natalie fékk að njóta góðs af því að eiga langömmu sem prjónasnilling og fékk hún þau gen og dundaði nokkrar stundir með þér á Bókhlöðustígnum. Eftir því sem árin liðu fóruð þið afi að búa ykkur undir að hætta að vinna og komuð þið ykkur upp litla sæta húsinu í sveitinni, þangað sem þið svo fluttuð. Þar leið þér vel og gast undað þér við prjónaskapinn, litabækurnar, safnað fallegum steinum og hjálpað afa að dytta að þrátt fyrir að kroppurinn væri orðinn þreyttur. Aldrei kvartaðirðu þrátt fyrir sára verki löngum stundum, þú hugs- aðir fyrst og fremst um aðra. Örfáum mínútum áður en þú kvaddir sat ég hjá þér grunlaus um hvað væri í vændum og spjölluðum við um allt milli him- ins og jarðar, ég sýndi þér mynd- ir af nýfermdri Evu Natalie og litla skottinu henni Nadiu Liv og ljóminn í augunum leyndi sér ekki, svo stolt varstu af öllum þínum afkomendum. Við kvöddumst, kysstumst og knúsuðumst og þú vinkaðir mér bless og bauðst góða nótt ör- stuttu áður en þú flaugst í sum- arlandið þar sem langafi tók vel á móti þér, það verð ég ævinlega þakklát fyrir. Elsku amma, við munum gera okkar besta í að passa upp á afa og langömmu, heiðra minningu þína og varðveita allar þær góðu minningar sem við eigum um ömmu og langömmu Kiddu. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. (Halldór Jónsson frá Gili) Það verða þung skrefin sem við göngum í dag og kveðjum þig í hinsta sinn, klettinn okkar sem alltaf varst til staðar, alveg sama hvað. Ég kveð þig með þínum síð- ustu orðum: „Elska þig gullið mitt, góða nótt.“ Þín Kristjana Vilborg Árnadóttir. Elsku Kristjana okkar er látin, sjötug að aldri. Við minnumst hennar með hlýju og þakklæti. Hún var stuðningsfulltrúi við Vesturbæjarskóla um árabil. Hún starfaði lengst sem stuðn- ingsfulltrúi nemenda. Kristjana var ekki síður stuðningur fyrir kennara og starfsfólk skólans. Hún var gegnheil og trygglynd og gott að leita til hennar. Kristjana átti auðvelt með að tengjast nemendum og áttu þeir margir skjól hjá henni. Hún var hlý og traust og gaf sér alltaf tíma til að hlusta. Hún hafði góða nær- veru og öllum þótti vænt um þessa jákvæðu og hressu konu. Hún var skvísa með gull á fingrum, lakkaðar neglur og fékk sitt fyrsta tattú fimmtug. Fjólublái liturinn var hennar og hún hafði sérstakt dálæti á fiðr- ildum. Kristjana var fagurkeri og list- ræn. Það lék allt í höndunum á henni og hún leyfði öðrum að njóta. Við nutum þess að eiga hana að, hvort sem það voru hannyrðir eða augnabrúnalitun. Jens Hallgrímsson, föðurbróð- ir Kristjönu, var kennari til margra áratuga við Vesturbæjar- skóla. Þegar til stóð að gera skólasöng bað Kristjana föður sinn, Árna Hallgrímsson, að semja textann, sem lýsir þeirri góðvild og virðingu sem Krist- jana bar til þeirra sem urðu henni samferða. Takk fyrir allt. Nú með gleði hér syngjum við saman þennan söng sem að öllum er kær. Og í dag verður gleði og gaman þar sem góðvild og virðingin grær. Og þá saman við höldumst í hendur því að hamingjan gefur þér traust. Þar er enginn sem útundan stendur sem að einmana kom hér í haust. (Höf. Árni Hallgrímsson) Innilegar samúðarkveðjur til Hannesar og fjölskyldu Krist- jönu. Samstarfskonur frá Vestur- bæjarskólaárunum, Guðfinna, Hulda, Lilja Margrét, María Kristín, Ragnheiður og Þóra. Ástkær móðir okkar, systir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN BIRNA HANNESDÓTTIR tónlistarkennari, sem lést miðvikudaginn 14. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 27. apríl klukkan 15. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Útförinni verður streymt á http://beint.is/streymi/gudrunbirna Sigrún Sigurðardóttir Jóhann Sigurðarson Guðrún Sesselja Arnardóttir Ólöf Sigurðardóttir Stígur Snæsson Þorsteinn Gauti Sigurðsson og aðrir ástvinir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.