Morgunblaðið - 26.04.2021, Blaðsíða 26
HANDBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH
virðast vera að slíta sig frá öðrum lið-
um í Olís-deild karla í handknattleik.
Haukar eru með 27 stig á toppnum
eftir 16 umferðir en í gær vann liðið
öruggan sigur á KA á Ásvöllum,
32:23.
FH er fjórum stigum á eftir í öðru
sæti en einnig fjórum stigum fyrir of-
an ÍBV og Aftureldingu sem eru með
19 stig í 3. og 4. sæti.
„Haukar byrjuðu leikinn af gíf-
urlegum krafti og voru komnir í 4:0
eftir aðeins fjögurra mínútna leik.
Gestirnir í KA komust ekki nær en
að vera fjórum mörkum undir í fyrri
hálfleiknum. Varnarleikur KA-
manna var í miklum ólestri og fékkst
engin markvarsla fyrr en seint og
síðar meir í fyrri hálfleiknum, eða
eftir 20 mínútur. Varnarleikur
Hauka var hins vegar fyrsta flokks
og varð þess valdandi að KA-menn
töpuðu boltanum trekk í trekk. Auk
þess áttu norðanmenn engin svör við
frábærum sóknarleik Hauka, þar
sem hægriskyttan Ólafur Ægir
Ólafsson var fremstur í flokki með
sex mörk úr sex skotum í fyrri hálf-
leiknum.
Í síðari hálfleik reyndist skaðinn
skeður fyrir KA-menn. Haukar
héldu góðum dampi og bættu bara í,“
skrifaði Gunnar Egill Daníelsson
meðal annars í umfjöllun sinni um
leik Hauka og KA á mbl.is.
Mikilvægur sigur Þórs
Þórsarar, sem eru í næstneðsta
sæti, náðu í tvö afar mikilvæg stig
þegar þeir skelltu Valsmönnum 25:22
á Akureyri. Fyrir vikið er Þór nú að-
eins tveimur stigum á eftir Gróttu
sem er í 10. sæti. Þar fyrir ofan er
Fram með 16 stig og ÍR er langneðst
án stiga. Flest bendir því til þess að
harður slagur sé fram undan á milli
nýliðanna Þórs og Gróttu um réttinn
til að leika aftur í efstu deild að ári.
Valur er í 7. sæti með 17 stig en
sigur Þórs var sannfærandi þrátt
fyrir það því Þór var með fimm
marka forskot um tíma í síðari hálf-
leik. Ihor Kopyshynskyi átti stórleik
fyrir Þór en hann skoraði 9/3 mörk
og var með frábæra skotnýtingu en
hann skaut tíu sinnum á markið. Jov-
an Kukobat varði 17 skot í marki
Þórs. Róbert Aron Hostert var
markahæstur hjá Val með fjögur
mörk.
ÍBV fór upp í 3. sæti
ÍBV náði í tvö stig í Safamýri með
sigri gegn Fram, 30:29, og fór upp í
þriðja sæti deildarinnar. Hákon Daði
Styrmisson skoraði 9/4 mörk fyrir
IBV og Kári Kristján Kristjánsson
skoraði átta mörk og var með 100%
nýtingu. Þorgrímur Smári Ólafsson
skoraði fimm mörk fyrir Fram.
Stjarnan vann mikilvægan sigur á
Aftureldingu á laugardaginn, 35:33.
Stjarnan er með 18 stig en liðið hefur
smám saman bætt stöðu sína eftir
heldur rólega byrjun á tímabilinu.
Selfoss vann ÍR 28:23 á Selfossi en
Selfyssingar eru með 18 stig í 5. sæti.
Starri Friðriksson var markahæstur
Stjörnunnar með níu mörk og Björg-
vin Hólmgeirsson skoraði átta. Blær
Hinriksson átti stórleik fyrir Mosfell-
inga og skoraði tæplega helming
marka þeirra eða 14 talsins úr 18
skotum.
Selfoss vann ÍR 28:23 á Selfossi en
Selfyssingar eru með 18 stig í 5. sæti.
ÍR er eins og áður án stiga á botn-
inum. Atli Ævar Ingólfsson og Her-
geir Grímsson skoruðu sjö mörk
hvor fyrir Selfoss. Hjá ÍR-ingum var
Dagur Sverrir Kristjánsson marka-
hæstur með sjö mörk.
Hafnarfjarðarlið-
in að slíta sig frá
- Barátta á milli Þórs og Gróttu
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Á Akureyri Gísli Jörgen Gíslason skoraði fjögur mörk gegn Val í gær.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021
Mjólkurbikar karla
1. umferð:
Víkingur Ó. – Gullfálkinn....................... 18:0
Dalvík/Reynir – Samherjar..................... 7:1
Álafoss – GG.............................................. 2:1
Berserkir – KFS....................................... 5:6
Selfoss – Kórdrengir................................ 0:1
Fram – Hörður ......................................... 8:0
SR – RB..................................................... 1:0
Kormákur/Hvöt – Hamrarnir ................. 2:3
Höttur/Huginn – Einherji ....................... 7:1
Kría – Afríka ........................................... 13:1
Ýmir – KFR .............................................. 1:2
Hamar –Vestri.......................................... 0:3
KFB – Stokkseyri .................................... 0:5
Snæfell – Skallagrímur............................ 1:5
ÍBV – Reynir S ......................................... 4:1
Ægir – Uppsveitir .................................... 4:0
Vatnaliljur – ÍH ........................................ 2:3
KM – Haukar............................................ 0:4
England
Wolves – Burnley..................................... 0:4
- Jóhann Berg Guðmundsson var ónotað-
ur varamaður hjá Burnley.
Liverpool – Newcastle ............................. 1:1
West Ham – Chelsea................................ 0:1
Sheffield United – Brighton.................... 1:0
Leeds – Manchester United.................... 0:0
Aston Villa – WBA ................................... 2:2
Staða efstu liða:
Manch. City 33 24 5 4 69:24 77
Manch. United 33 19 10 4 64:35 67
Leicester 32 18 5 9 58:37 59
Chelsea 33 16 10 7 51:31 58
West Ham 33 16 7 10 53:43 55
Liverpool 33 15 9 9 55:39 54
Tottenham 33 15 8 10 56:38 53
Everton 32 15 7 10 44:40 52
Leeds United 33 14 5 14 50:50 47
Arsenal 33 13 7 13 44:37 46
Aston Villa 32 13 6 13 46:37 45
Wolves 33 11 8 14 32:45 41
West Ham – Everton ............................... 0:0
- Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn
með West Ham.
Meistaradeild kvenna
Undanúrslit, fyrri leikur:
Bayern München – Chelsea.................... 2:1
- Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ónot-
aður varamaður hjá Bayern München.
Þýskaland
Freiburg – Eintracht Frankfurt............ 0:3
- Alexandra Jóhannsdóttir var ónotaður
varamaður hjá Eintracht Frankfurt.
Ítalía
Atalanta – Bologna.................................. 5:0
- Andri Fannar Baldursson kom inn á sem
varamaður hjá Bologna á 56. mínútu.
C-deild:
Carpi – Padova ........................................ 0:1
- Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með
Padova.
Holland
Ajax – AZ Alkmaar ................................. 2:0
- Albert Guðmundsson lék fyrstu 73 mín-
uturnar með AZ Alkmaar.
Grikkland
PAOK – Panathinaikos........................... 0:0
- Sverrir Ingi Ingason kom inn á sem
varamaður á 80. mínútu hjá PAOK.
Olympiacos – AEK Aþena ...................... 2:0
- Ögmundur Kristinsson varði mark
Olympiacos.
Portúgal
SL Benfica – Famalicao .......................... 3:1
- Cloé Lacasse lék allan leikinn með SL
Benfica og skoraði þriðja mark liðsins.
Austurríki
St. Pölten – Wacker Innsbruck.............. 6:0
- Kristrún Rut Antonsdóttir kom inn á
sem varamaður á 58. mínútu hjá St. Pölten.
Skotland
Hearts – Glasgow City ............................ 0:4
- Arna Sif Ásgrímsdóttir lék allan leikinn
með Glasgow City.
Danmörk
Bröndby – Randers ................................. 2:0
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
AGF – Köbenhavn ................................... 1:2
- Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 62
mínúturnar með AGF.
Bandaríkin
New England – DC United 1:0
- Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 81
mínútuna með New England.
Svíþjóð
AIK – Hammarby .................................... 2:0
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Hammarby.
Rosengård – Hammarby ........................ 3:1
- Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
AIK – Linköping ...................................... 1:2
- Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan
leikinn með AIK.
Piteå – Eskilstuna.................................... 0:2
- Hlín Eiríksdóttir lék allan leikinn með
Piteå.
Örebro – Vittsjö ....................................... 1:0
- Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leik-
inn með Örebro. Cecilía Rán Rúnarsdóttir
var ónotaður varamaður.
50$99(/:+0$
Skautafélag Akureyrar varð um
helgina Íslandsmeistari kvenna í ís-
hokkíi eftir 5:0-sigur á Fjölni í
oddaleik liðanna í úrslitaeinvígi Ís-
landsmótsins í skautahöllinni á
Akureyri.
Úrslitarimman var vægast sagt
sveiflukennd því SA vann fyrsta
leikinn 13:1 á Akureyri en Fjölnir
vann annan leikinn í Grafarvogi
eftir framlengingu og vítakeppni.
Staðan var markalaus eftir fyrsta
leikhluta í oddaleiknum en Jónína
Guðbjartsdóttir kom heimakonum í
forystu í öðrum leikhluta og rétt
áður en honum lauk varð staðan 2:0
þökk sé marki Sögu Sigurðar-
dóttur. Saga bætti svo við öðru
marki sínu snemma í þriðja leik-
hluta og þær Arndís Sigurðardóttir
og Kolbrún Garðarsdóttir bættu við
mörkum á lokamínútunum til að
innsigla sigurinn.
Akureyringar eru heilt yfir verð-
skuldaðir sigurvegarar Íslands-
mótsins. Liðið vann alla sjö deild-
arleiki sína í vetur og hafði svo
betur í úrslitaeinvíginu gegn Fjölni.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Fögnuður Íslandsmeistararnir skauta með bikarana um Skautahöllina.
Enn einn sigurinn
hjá Akureyringum
Valskonur eru einar á toppi úr-
valsdeildar kvenna í körfuknatt-
leik, Dominos-deildarinnar, eftir
tíu stiga sigur gegn Fjölni í Dal-
húsum í Grafarvogi á laugardag-
inn.
Leiknum lauk með 74:64-sigri
Valskvenna en Kiana Johnson
skoraði 25 stig fyrir Valskonur,
ásamt því að taka tólf fráköst og
gefa fjórar stoðsendingar.
Valur er með 28 stig á toppi
deildarinnar og hefur tveggja
stiga forskot á Keflavík og Hauka
þegar fjórar umferðir eru eftir af
tímabilinu en liðið á eftir að mæta
bæði Keflavík og Haukum í loka-
leikjum sínum.
Þá mættust Keflavík og Snæfell
í Blue-höllinni í Keflavík þar sem
Keflavík vann stórsigur, 91:67.
Daniela Wallen átti enn einn
stórleikinn fyrir Keflavík, skoraði
36 stig og tók fimmtán fráköst.
Keflavík á eftir að mæta Breiða-
bliki, ásamt þremur efstu liðum
deildarinnar á lokasprettinum.
Haukar eiga einnig möguleika á
því að tryggja sér deildarmeistara-
titilinn en liðið vann sex stiga sig-
ur gegn Breiðabliki í Ólafssal á
Ásvöllum, 74:68.
Alyesha Lovett skoraði 19 stig
fyrir Hauka sem mæta þremur
efstu liðum deildarinnar í loka-
leikjunum, sem og KR.
Skallagrímur vann átta stiga
sigur gegn botnliði KR í DHL-
höllinni í Vesturbæ, 88:80, en
Keira Robinson, leikmaður Skalla-
gríms, var stigahæsti leikmaður
vallarins með 37 stig.
KR og Snæfell eru í neðstu sæt-
um deildarinnar með fjögur stig,
sex stigum frá öruggu sæti, en
Breiðablik og Skallagrímur sigla
nokkuð lygnan sjó um miðja deild.
Þrjú lið berjast
um deildarbikarinn
Morgunblaðið/Eggert
Öflug Kiana Johnson átti stórleik.
_ Sveindís Jane Jónsdóttir átti
stórleik fyrir Kristianstad þegar liðið
fékk Djurgården í heimsókn í
sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
á laugardaginn. Leiknum lauk með
2:1-sigri Kristianstad en Sveindís
lagði upp fyrra mark Kristianstad á
49. mínútu eftir að Nellie Lilja hafði
komið Djurgården yfir á 36. mínútu.
Sveindís skoraði svo sigurmark
leiksins á 83. mínútu en hún lék all-
an leikinn í liði Kristianstad. Sif
Atladóttir kom inn á sem varamaður
hjá Kristianstad í
uppbótartíma en
Guðrún Arn-
ardóttir lék allan
leikinn í vörn
Djurgården.
Kristianstad, und-
ir stjórn Elísabet-
ar Gunnars-
dóttur, er í fjórða
sæti með fjögur stig eftir tvo leiki
en þetta var annað mark Sveindísar
á tímabilinu.
_ Skautafélag Akureyrar vann 2:1-
sigur á Fjölni í fyrsta leik liðanna í
baráttunni um Íslandsmeistaratitil
karla í íshokkíi er liðin mættust í
Skautahöllinni á Akureyri á laug-
ardag. Eftir mikla spennu tyggði
Andri Skúlason
sigurinn með
marki þegar inn-
an við hálf mín-
úta var eftir.
Fjölnismenn tóku
forystuna í öðr-
um leikhluta
þegar Einar
Guðnason skor-
aði. Heimamenn svöruðu með tveim-
ur mörkum í þriðja og síðasta leik-
hluta. Axel Orongan skoraði
jöfnunarmark SA.
Annar leikur liðanna fer fram í Egils-
höll annað kvöld og sá þriðji fer
fram á Akureyri á fimmtudag. Ef
þörf er á mætast liðin svo 2. og 4.
maí en vinna þarf þrjá leiki til að
verða Íslandsmeistari.
_ Knattspyrnumaðurinn Guð-
mundur Þórarinsson skoraði eitt
fimm marka New York City þegar
liðið vann 5:0-stórsigur gegn Cinc-
innati í bandarísku atvinnu-
mannadeildinni í New York á laug-
ardaginn. Guðmundur, sem var í
byrjunarliði New York City, skoraði
þriðja mark liðsins á 57. mínútu úr
aukaspyrnu en þetta var hans fyrsta
mark fyrir félagið. New York City er
með þrjú stig í fjórða sæti austur-
deildarinnar.
_ Körfuboltadómarinn reyndi Krist-
inn Óskarsson náði merkilegum
áfanga í gær þegar hann dæmdi í
þúsundasta skipti leik í efstu deild
karla á Íslandsmótinu. Kristinn var
einn dómaranna á leik Tindastóls og
Eitt
ogannað