Morgunblaðið - 26.04.2021, Side 27

Morgunblaðið - 26.04.2021, Side 27
KÖRFUBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Baráttan í úrvalsdeild karla í körfu- knattleik, Dominos-deildinni, hefur sjaldan verið jafn hörð þegar rúm- lega fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu. Haukar unnu lífsnauðsynlegan sigur gegn KR í DHL-höllinni í Vesturbæ þar sem Hansel Atencia, leikmaður Hauka, reyndist örlaga- valdurinn. Atencia tryggði Haukum þriggja stiga sigur með flautukörfu eftir að hafa stolið boltanum af Matthíasi Orra Sigurðarsyni, leikmanni KR, þegar nokkrar sekúndur voru til leiksloka í stöðunni 69:69 en leiknum lauk með 72:69-sigri Hauka. Jalen Jackson var stigahæstur Hauka með 20 stig og títtnefndur Atencia skoraði 17 stig. Brandon Nazione var stigahæstur KR-inga með 17 stig. Með sigrinum fóru Haukar upp í ellefta sæti deildarinnar og úr botn- sætinu sem þeir hafa setið í nánast allt tímabilið. Þetta var jafnframt annar sigur Hafnfirðinga í röð en liðið er nú með 10 stig, tveimur stigum minna en Njarðvík og fjórum stigum minna en ÍR. ÍR og Njarðvík eiga hins vegar leik til góða á Hauka, sem og Höttur, sem er í neðsta sæti deildarinnar með átta stig. Þá tryggði Flenard Whitfield Tindastóli afar dýrmætan sigur gegn Þór frá Þorlákshöfn þegar liðin mættust í Síkinu á Sauðárkróki. Whitfield fékk tvö vítaskot þegar 0,2 sekúndur voru til leiksloka í stöð- unni 91:90, Þórsurum í vil. Whitfield setti bæði skotin niður og Stólarnir fögnuðu eins stigs sigri, 92:91. Antanas Udras var stigahæstur Tindastóls með 19 stig en Larry Thomas skoraði 22 stig fyrir Þórs- ara. Tindastóll er í fimmta sæti deild- arinnar með 18 stig, tveimur stigum meira en Grindavík og Þór frá Akur- eyri, en bæði lið eiga leik til góða á Tindastól og því ljóst að Sauðkræk- ingar þurfa að hafa fyrir sæti sínu í úrslitakeppninni í ár. Á sama tíma eru Þórsarar frá Þorlákshöfn nokkuð öruggir með sitt sæti í úrslitakeppninni í öðru sæti deildarinnar með 24 stig. Jordan Roland átti enn einn stór- leikinn fyrir Valsmenn þegar liðið vann 99:68-stórsigur gegn Þór frá Akureyri á Hlíðarenda. Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en eftir það tóku Valsmenn öll völd á vellinum og létu forystuna aldrei af hendi. Roland skoraði 24 stig fyrir Vals- menn og Jón Arnór Stefánsson 17. Dedrick Basile var stigahæstur Þórsara með 24 stig. Valsmenn fara með sigrinum upp í fimmta sæti deildarinnar í 20 stig. Liðið hefur nú unnið sex leiki í röð en það þarf mikið að gerast svo Vals- menn missi af sæti í úrslitakeppn- inni í ár. Þórsarar, sem virkuðu til alls lík- legir og höfðu unnið fimm leiki í röð áður en æfinga- og keppnisbann var sett á hér á landi í mars, hafa ekki fundið taktinn eftir að keppni hófst á nýjan leik og hafa nú tapað tveimur leikjum í röð. Það verður mikið að gerast ef þeir eiga að sogast niður í fallbaráttuna á nýjan leik en liðið þarf að finna takt- inn hratt ef þeir ætla sér að leika í úrslitakeppninni í vor. Blóðug barátta fram undan - Hafnfirðingar opnuðu fallbaráttuna - Mikil dramatík á Sauðárkróki Ljósmynd/Árni Torfason Mikilvægur Hansel Atencia, t.v., kom Haukum til bjargar í Vesturbæ. Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson Verðlaunahafar Steingerður Hauksdóttir, Jóhanna Elín Guð- mundsdóttir og Dagbjört Hlíf Ólafs- dóttir á verðlaunapallinum í Laug- ardalnum um helgina. Fimm náðu lágmarki fyrir Evr- ópumeistaramótið í sundi með árangri sínum á Íslandsmeist- aramótinu í 50 metra laug sem lauk í Laugardalslauginni í gær: Steingerður Hauksdóttir í 50 metra baksundi, Dadó Fenrir Jasminuson og Símon Elías Stat- kevicius í 50 metra skriðsundi, Kristinn Þórarinsson í 50 metra baksundi og Freyja Birkisdóttir í 1.500 metra skriðsundi. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir náði lág- markinu í tveimur greinum; 50 metra skriðsundi og 50 metra flugsundi. Steingerður átti besta afrek mótsins samkvæmt stigatöflu al- þjóðasundsambandsins og hlaut fyrir það Ásgeirsbikarinn. Stein- gerður synti 50 metra baksund á tímanum 29,60 sekúndum og fékk fyrir það 757 stig. Ýmis met féllu í mótinu og hér er rétt að geta þess að Már Gunn- arsson setti heimsmet í 200 metra baksundi í flokki blindra en frá því var greint í blaðinu á laug- ardag. Daði Björnsson setti piltamet í 100 m bringusundi. Tíminn er millitími úr 200 m bringusundi og var millitíminn 1:04,52. Freyja Birkisdóttir setti stúlkna- met í 1500 m skriðsundinu á 17:32,11. Fannar Snævar Hauksson setti piltamet í 50 m á tímanum 25,60 sek. Sex náðu lágmörk- um fyrir EM í sundi Þórs frá Þorlákshöfn sem fram fór á Króknum. _ Fátt virðist geta komið í veg fyrir að ensku knattspyrnufélögin Chelsea og Leicester leiki í Meist- aradeild Evrópu á næstu leiktíð. Chelsea vann 1:0-sigur gegn West Ham í London á laugardaginn og á sama tíma gerði Liverpool 1:1- jafntefli gegn Newcastle á Anfield. Þá tapaði Manchester United stig- um gegn Leeds þegar liðin mætt- ust á Elland Road en leiknum lauk með markalausu jafntefli. United er nú tíu stigum á eftir toppliði Manchester City, Leicester er með 59 stig og Chelsea 58 stig en West Ham, sem er í fimmta sætinu, er með 55 stig og Liverpool er með 54 stig í sjötta sæti deildarinnar. _ Rúnar Már Sigurjónsson varð á laugardag- inn fyrsti Íslend- ingurinn til þess að skora deild- armark í Rúmeníu þegar hann skoraði fyrir CFR Cluj gegn Universitatea Craiova í úr- slitakeppninni um rúmenska meist- aratitilinn. Rúnar jafnaði 1:1 á 53. mínútu en Cluj tapaði 1:2. CFR Cluj er í öðru sæti úrslitariðilsins með 38 stig, einu stigi minna en FCSB. _ Guðmundur Þórður Guðmunds- son landsliðsþjálfari hefur kallað inn Tandra Má Kon- ráðsson, leik- mann Stjörn- unnar, í A-landsliðshóp karla í handknatt- leik eftir að ljóst varð að Arnór Þór Gunnarsson og Elvar Ásgeirs- son hafi báðir þurft að draga sig úr hópnum. Fram undan eru þrír leikir í undankeppni EM 2022 á næstu dögum. Gegn Ísrael og Litháen ytra og gegn Ísrael heima. _ Ísak Bergmann Jóhannesson fór mikinn fyrir Norrköping þegar liðið tók á móti Halmstad í sænsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í gær. Ísak Bergmann lagði upp jöfn- unarmark Norrköping á 64. mínútu fyrir Samuel Adegbenro áður en hann skoraði sigurmark leiksins á 79. mínútu í 2:1-sigri Norrköping. Ari Freyr Skúlason var í byrjunarliði Norrköping en ekki þeir Finnur Tóm- as Pálmason og Oliver Stefánsson. Norrköping er í áttunda sæti deild- arinnar með fjögur stig eftir þrjá leiki. _ Handknattleiksmaðurinn Magnús Orri Axelsson er genginn til liðs við Viking frá Stafangri, sem leikur í norsku úrvalsdeildinni. Magnús Orri kemur frá varaliði Elverum og gerir þriggja ára samning. Magnús er 20 ára og fæddur á Íslandi en hefur bú- ið stærstan hluta ævinnar í Noregi. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021 Aymeric Laporte reyndist hetja Manchester City þegar liðið tryggði sér enska deildabikarinn í knatt- spyrnu gegn Tottenham í úrslita- leik á Wembley í London í gær. Leiknum lauk með 1:0-sigri City en Laporte skoraði sigurmark leiksins á 82. mínútu með laglegum skalla eftir aukaspyrnu Kevins De Bruynes frá vinstri. City-menn voru mun sterkari að- ilinn allan tímann og hefðu hæg- lega getað gert út um leikinn í fyrri hálfleik. Alls áttu City-menn 16 mark- tilraunir í leiknum gegn tveimur marktilraunum Tottenham. Þetta var fjórða árið í röð sem City vinnur enska deildabikarinn og í áttunda sinn í sögu félagsins. Með sigrinum jafnaði City Eng- landsmeistara Liverpool yfir þau félög sem hafa oftast unnið enska deildabikarinn en Liverpool vann keppnina síðar árið 2012. Aston Villa, Manchester United og Chelsea koma þar á eftir með fimm sigra hvert. AFP Fyrirliði Fernandinho hefur deildabikarinn á loft í áttunda sinn í sögu City. Deildabikarmeistarar fjórða árið í röð KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Hertz-hellir: ÍR – Keflavík .................. 18.15 MG-höllin: Stjarnan – Grindavík ........ 18.15 Njarðtaksgryfja: Njarðvík – Höttur .. 19.15 Í KVÖLD! Dominos-deild karla Tindastóll – Þór Þ................................. 92:91 KR – Haukar......................................... 69:72 Valur – Þór Ak ...................................... 99:68 Staðan: Keflavík 17 15 2 1593:1339 30 Þór Þ. 18 12 6 1752:1613 24 Stjarnan 17 11 6 1572:1503 22 Valur 18 10 8 1529:1509 20 KR 18 10 8 1597:1619 20 Tindastóll 18 9 9 1638:1621 18 Grindavík 17 8 9 1517:1579 16 Þór Ak. 18 8 10 1567:1685 16 ÍR 17 7 10 1516:1542 14 Njarðvík 17 6 11 1402:1463 12 Haukar 18 5 13 1496:1606 10 Höttur 17 4 13 1489:1589 8 Dominos-deild kvenna Haukar – Breiðablik............................. 74:68 Keflavík – Snæfell ................................ 91:67 KR – Skallagrímur ............................... 80:88 Fjölnir – Valur ...................................... 64:74 Staðan: Valur 17 14 3 1310:1051 28 Keflavík 17 13 4 1363:1221 26 Haukar 17 13 4 1267:1133 26 Fjölnir 17 11 6 1296:1234 22 Skallagrímur 17 8 9 1188:1222 16 Breiðablik 17 5 12 1089:1153 10 Snæfell 17 2 15 1209:1387 4 KR 17 2 15 1146:1467 4 Spánn Valencia – Bilbao................................. 99:90 - Martin Hermannsson skoraði átta stig fyrir Valencia, gaf fimm stoðsendingar og tók eitt frákast á tuttugu mínútum. Þýskaland Fraport – Mitteldeutscher ................. 76:81 - Jón Axel Guðmundsson skoraði 12 stig fyrir Fraport, gaf þrjár stoðsendingar og tók eitt frákast á 24 mínútum. Litháen Siauliai – Zalgiris Kaunas ................ 86:105 - Elvar Már Friðriksson skoraði níu stig fyrir Siauliai, gaf sjö stoðsendingar og tók tvö fráköst á 25 mínútum. >73G,&:=/D Olísdeild karla Stjarnan – Afturelding......................... 35:33 Þór – Valur............................................ 25:22 Haukar – KA......................................... 32:23 Selfoss – ÍR ........................................... 28:23 Fram – ÍBV........................................... 29:30 Staðan: Haukar 16 13 1 2 458:385 27 FH 16 10 3 3 475:435 23 ÍBV 16 9 1 6 465:442 19 Afturelding 16 9 1 6 425:424 19 Selfoss 16 8 2 6 414:398 18 Stjarnan 16 8 2 6 448:435 18 Valur 16 8 1 7 459:435 17 KA 16 6 5 5 423:416 17 Fram 16 7 2 7 416:413 16 Grótta 16 3 4 9 402:421 10 Þór Ak. 16 4 0 12 368:434 8 ÍR 16 0 0 16 372:487 0 Þýskaland Erlangen – Magdeburg ...................... 30:28 - Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Kristjánsson er frá keppni vegna meiðsla á öxl. Lemgo – RN Löwen ............................ 28:34 - Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk fyrir Lemgo. - Ýmir Örn Gíslason skoraði komst ekki á blað hjá Löwen. Stuttgart – Göppingen........................ 28:26 - Viggó Kristjánsson skoraði fimm mörk fyrir Stuttgart. - Gunnar Steinn Jónsson komast ekki á blað hjá Göppingen. Janus Daði Smárason er frá vegna meiðsla. Danmörk Úrslitakeppnin, 1. riðill: Bjerringbro/Silkeborg – GOG .......... 34:34 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði þrjú skot í marki GOG. Úrslitakeppnin, 2. riðill: Skanderborg – Skjern ........................ 27:29 - Elvar Örn Jónsson skoraði tvö mörk fyr- ir Skjern. Svíþjóð Undanúrslit, þriðji leikur: Skövde – Kristianstad......................... 23:22 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði tvö mörk fyrir Skövde. - Teitur Einarsson skoraði sex mörk fyrir Kristianstad og Ólafur Guðmundsson þrjú. _ Skövde áfram, samanlagt 3:0. %$.62)0-#

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.