Morgunblaðið - 26.04.2021, Page 32

Morgunblaðið - 26.04.2021, Page 32
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Snyrtivörumerkin okkar eru: M a d e i n I c e l a n d SUMARVÖRUR Kjólar • Pils • Vesti • Tunikur • Blússur Bolir • Peysur • Buxur Nýjar töskur Nýjar Mikil óvissa ríkir nú í Danmörku um það hvort hægt verður að halda fjölmennar tónlistarhátíðir í sumar. Politiken greinir frá því að hópur sérfræðinga á vegum hins opinbera leggi til að hámarksfjöldi tónleikagesta í hverju sóttvarnahólfi verði 1.000 manns og hámarks- fjöldi sóttvarnahólfa á hverri hátíð 10-15. Lagt er til að þessar samkomutakmarkanir gildi þangað til búið verð- ur að bólusetja meginþorra landsmanna, sem næst sennilega ekki fyrr en um miðjan ágúst. Velji stjórnvöld að fylgja þessum tillögum um samkomutakmarkanir mun það, samkvæmt heimildum Politiken, þýða að stjórnendur stærstu tónlistarhátíða landsins aflýsi þeim öllum, þeirra á meðal Hróarskelduhátíðinni. Óvissa um Hróarskelduhátíðina MÁNUDAGUR 26. APRÍL 116. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Býsna óvænt úrslit urðu í Olís-deild karla í handknatt- leik í gær þegar Þór vann Val á Akureyri. Þórsarar eru í næstneðsta sæti og eru nú aðeins tveimur stigum á eftir Gróttu. Þessi lið eru nýliðar í deildinni í vetur og útlit fyrir að þau berjist um áframhaldandi sæti í deild- inni en ÍR er langneðst og nær ekki að blanda sér í bar- áttuna. Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH eru efst. Staða Hauka er afar góð en liðið er átta stigum á undan lið- unum sem eru í 3. og 4. sæti, ÍBV og Aftureldingu. FH er fjórum stigum á eftir Haukum. » 26 Óvænt úrslit á Akureyri hleypa lífi í baráttuna í neðri hluta deildarinnar ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sumarsýning Grósku, félags mynd- listarmanna í Garðabæ, verður opin að minnsta kosti næstu tvær helgar í Gróskusalnum við Garðatorg, 1.-2. og 8.-9. maí. „Mikil vinna liggur að baki, sýningin hefur þegar fengið góðar viðtökur og eiginlega er ekki hægt að taka hana strax niður,“ segir Rúna K. Tetzschner formaður Grósku, en sýningin var sett upp í liðinni viku og listaverkin voru til sýnis frá fimmtudegi til sunnudags. Gróska í Grósku Gróska átti 10 ára afmæli 1. mars í fyrra og stóð þá til að vera með af- mælissýningu. Félagsmenn voru til- búnir með lítil verk en kórónuveiru- faraldurinn kom í veg fyrir veisluna. Rúna segir að fólk hafi fyllst bjartsýni í haust, þá hafi verið haldin haustsýning og aftur farið að skipuleggja afmælissýninguna. Laufey Jensdóttir hafi sett upp sameiginlegt veisluverk allra sýn- enda með veislu sem þema og því hafi verið komið fyrir á sérstöku veisluborði í miðju rýminu. Á veggj- um þétt saman frá gólfi upp undir loft sé síðan salonsýning með um 130 málverkum, vatnslitamyndum, skúlptúrum úr mismunandi efnum, glerlist og ýmsu öðru eftir 37 sýn- endur. Tilgangur Grósku er að styrkja samstarf myndlistarmanna í Garða- bæ, auka myndlistaráhuga og efla myndlistina og gera hana sýnilegri. Venjulega eru haldnar að minnsta kosti þrjár stórar sýningar árlega auk annarra sýninga, námskeiða og viðburða. Félagið er opið öllum 18 ára og eldri sem fást við myndlist og búa eða vinna í Garðabæ. Um 70 manns eru í Grósku og segir Rúna algengt að um 25 félagar taki þátt í hverri sýningu en nú sé metþátt- taka. Birgir Rafn Friðriksson er sýningarstjóri og Rebekka Jenný Reynisdóttir er að gera myndband með spjalli við listamennina í tengslum við sýninguna. Sýningin verður opin klukkan 14 til 18 og vekur Rúna athygli á að vel sé gætt að sóttvörnum og fjöldatak- markanir virtar. Ljósmyndir/Sjöfn Ólafsdóttir Við veisluborðið Stjórn Grósku og aðrir Gróskuliðar sem unnu að undirbúningi sýningarinnar. Frá vinstri: Aldís Gunnarsdóttir, Gunnar Júlíusson, Ólöf Sigríður Valsdóttir, Birgir Rafn Friðriksson, Laufey Jensdóttir, Álfheiður Ólafsdóttir, Louise le Roux, Rúna K. Tetzschner, Árný Björk Birgisdóttir og Þurý Ósk Axelsdóttir. Gróska býður til veislu - Um 130 listaverk eftir 37 listamenn sýnd næstu tvær helgar Salonsýning Um 130 verk eftir 37 sýnendur eru í Gróskusalnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.