Morgunblaðið - 27.04.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021
Nýjar bækur í hverri viku
Einungis 1.490 kr. á mánuði
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alls greindust sex með kórónuveir-
una innanlands í gær og var enginn
smitaðra í sóttkví við greiningu.
Fólki í einangrun hefur fjölgað en
færri eru í sóttkví en á föstudag; eru
nú 169 í einangrun en 351 í sóttkví.
Flestir smitaðra eru á aldrinum 30-39
ára (31), næstflestir á aldrinum 40-49
ára (28) en 25 á aldrinum 18-29
greindust í gær. Greindist 21 með
veiruna á aldrinum 50-59 ára, tíu á
meðal fólks á sjötugsaldri og tveir á
áttræðisaldri.
Líklegt er að dágóður fjöldi fari í
sóttkví eftir smittölur sunnudagsins
að sögn Þórólfs Guðnasonar sótt-
varnalæknis en uppi er grunur um að
fjögur kórónuveirusmit sem greind-
ust á vinnustað í Þorlákshöfn um
helgina tengist smiti í Vallaskóla á
Selfossi. Þá greindist nemandi við
Barnaskólann á Eyrarbakka og
Stokkseyri með Covid-19 og eru nú
öll börn í 1.-6. bekk skólans komin í
sóttkví.
Spurður hvort til stæði að herða
aðgerðir innanlands sagði Þórólfur í
samtali við mbl.is í gær: „Það er alltaf
verið að skoða það hvenær kemur að
því. Þetta voru tiltölulega fá smit í lok
síðustu viku og fram á helgina. Nú er
aftur smá afturkippur svo við verðum
bara að sjá hvað gerist.“
Fimm liggja á sjúkrahúsi vegna
veirunnar og er fólkið á breiðu ald-
ursbili, frá þrítugsaldri og upp í rúm-
lega sjötugt. Enginn er á gjörgæslu.
Bólusetning með bóluefni Janssen
hefst í vikunni og lánsskammtar af
bóluefni AstraZeneca frá Norð-
mönnum eru komnir til landsins.
Sem stendur er fólk eldra en 60 ára
bólusett með efninu en hugsanlega
verður enn yngra fólk bólusett, að því
er fram kom í umfjöllun mbl.is í gær.
Rannsókn lögreglunar á Austur-
landi vegna árshátíðar er lokið og
verður send til ákærusviðs, sem tek-
ur ákvörðun um framhaldið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Smit Fjöldi fólks hefur farið í sýnatöku vegna hugsanlegs smits. Þeir sem sýna einkenni eru hvattir í sýnatöku.
Líklega fleiri í sóttkví
eftir smit helgarinnar
- Flestir á aldrinum 30-39 ára - Tveir á áttræðisaldri
19 ný innanlandssmitgreindust sl. helgi
351 einstaklingurer í sóttkví
1.100 einstaklingareru í skimunarsóttkví169
eru með
virkt smit
og í einangrun
5 einstaklingareru á sjúkrhúsi
Fjöldi
smita
Heimild:
covid.is
Fjöldi smita
innanlands
Fjöldi smita á
landamærum
júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl
Fullbólusettir:
32.609 einstak-lingar
80.721 hefur fengið að
minnsta kosti einn skammt
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Varðskipið Þór eignaðist í gær heið-
ursheimahöfn á Þórshöfn og þykir
það vel við hæfi að skipið eigi þar
hafnarskjól, þar sem bæði skipið og
höfnin eru nefnd eftir hinu forna
goði Þór, eins og segir í samþykkt
hafnarstjórnar Þórshafnar. Þessu
fylgir einnig að Þór verður undan-
þeginn hafnargjöldum vegna heim-
sókna varðskipsins til Þórshafnar.
Jónas Egilsson sveitarstjóri í
Langanesbyggð sagði að þessi hug-
mynd forsvarsmanna sveitar-
félagsins hefði mælst vel fyrir og
fengið einróma samþykki hafnar-
stjórnar, sem og hjá yfirstjórn
Landhelgisgæslu og varðskipsins
Þórs.
Formleg móttaka var haldin í gær
um borð í Þór að viðstöddum fulltrú-
um sveitarstjórnar og tók Páll Geir-
dal skipherra þar á móti skriflegri
samþykkt hafnarstjórnar varðandi
þessa ákvörðun.
Jónas Egilsson sveitarstjóri þakk-
aði fyrir góð störf varðskipanna nú
sem fyrr og minnti á mikilvægi þess
að vita af traustum bakhjarli á haf-
inu ef eitthvað bjátaði á en á Þórs-
höfn er sjávarútvegur aðalundir-
staða atvinnulífs og sagði hann Þór
velkominn til Þórshafnar sem oftast.
Oddviti Langanesbyggðar, Þor-
steinn Æ. Egilsson, benti einnig á
þríþætta tengingu Landhelgis-
gæslunnar við Þórshöfn; í lofti, á láði
og legi, en það er ratsjárstöðin á
Gunnólfsvíkurfjalli, þyrluþjónusta á
Þórshafnarvelli í samstarfi við
björgunarsveitina Hafliða og loks
höfnin sjálf.
Nemendur Grunnskólans á Þórs-
höfn nutu einnig góðs af veru Þórs
því þeim var öllum boðið að skoða
skipið í gær við mikla ánægju.
Þór kom til Þórshafnar í gær eftir
að hafa aðstoðað áhöfnina á Þórsnesi
SH-109 eftir að skipið varð vélar-
vana. Voru sýni tekin úr áhöfninni í
varúðarskyni í kjölfar þess að fjórir
sýndu einkenni vekinda. Reyndist
ekki vera um kórónuveirusmit að
ræða.
Þór fékk heiðursheimahöfn
- Nýjasta varðskip Landhelgisgæslunnar verður ekki krafið um hafnargjöld
þegar það leggst að bryggju í Þórshöfn - Þökkuðu gæslunni fyrir sín störf
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Þór Varðskipið við bryggju í heiðursheimahöfn. Þórsnes SH í bakgrunni.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég myndi kannski ekki orða það
þannig að við séum sprungin en
ásóknin hefur aukist mikið síðasta
árið og biðin þar með lengst,“ segir
Sigrún Ósk Sig-
urðardóttir, að-
stoðarforstjóri
ÁTVR.
Víninnflytjend-
ur þurfa nú að
bíða í um það bil
eitt ár eftir því að
koma nýjum
vörum í reynslu-
sölu í Vínbúðun-
um.
Fyrirkomulag
reynslusölu í Vínbúðunum er þannig
að nýjar vörur eru skráðar og fara
því næst í röð. Að jafnaði eru teknar
inn 50 tegundir á mánuði. Sigrún
segir að eftir að aðsóknin fór að
aukast hafi verið teknar inn um 65
nýjar tegundir á mánuði. Reynslu-
sala er í fjórum Vínbúðum; Heið-
rúnu, Skútuvogi, Kringlunni og í
Hafnarfirði. Ef vörur seljast vel
færast þær í kjarnasölu en ef ekki
er þeim skipt út að ári liðnu. Nú eru
700-800 tegundir í reynslusölu.
Sigrún Ósk segir í samtali við
Morgunblaðið að pláss í verslun-
unum takmarki það hversu mikið er
hægt að taka inn af nýjum vörum.
„Við erum nú að reyna að leita leiða
til að stytta þennan biðtíma enda
viljum við ekki hafa þetta svona.
Vonandi verður komin einhver lend-
ing á því í maí,“ segir hún.
Aðspurð kveðst hún ekki hafa
skýringu á aukinni aðsókn í að koma
vörum í sölu. „Markaðurinn hefur
verið öðruvísi síðasta árið vegna
kórónuveirufaraldursins. Veitinga-
húsamarkaðurinn er að mestu búinn
að vera lokaður. Það kann að hafa
áhrif.“
Hún segir ennfremur að þetta sé
ekki í fyrsta sinn sem innflytjendur
verði að þola langa bið. „Þeir sem
hafa unnið hérna lengst muna eftir
því að það var sex ára bið eftir að
koma rauðvíni frá Spáni í sölu.
Þannig að við höfum séð það svart-
ara.“
Ársbið eftir því
að komast í ríkið
- Vörum í reynslusölu fjölgar mikið
Sigrún Ósk
Sigurðardóttir
Skúli Magnússon,
dómstjóri við
Héraðsdóm
Reykjavíkur, var
á Alþingi í gær
kosinn umboðs-
maður Alþingis
til næstu fjögurra
ára.
Skúli var kos-
inn umboðs-
maður með 49 at-
kvæðum. Hann tekur við embætti 1.
maí nk. af Tryggva Gunnarssyni.
Fjórir einstaklingar gáfu kost á sér í
embættið, þau Áslaug Björgvins-
dóttir, lögmaður og fyrrverandi hér-
aðsdómari, Ástráður Haraldsson
héraðsdómari, Kjartan Bjarni
Björgvinsson héraðsdómari og Skúli
Magnússon. Áslaug tilkynnti 6. apríl
sl. að hún hefði ákveðið að gefa ekki
kost á sér í embætti umboðsmanns.
Að loknu kjöri Skúla Magnús-
sonar þakkaði forseti Alþingis,
Steingrímur J. Sigfússon, Tryggva
Gunnarssyni farsæl störf sem um-
boðsmaður Alþingis í rúm 22 ár.
Skúli kosinn
umboðsmaður
Skúli
Magnússon