Morgunblaðið - 27.04.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.04.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021 Tekist hefur að útfæra styttingu vinnuviku á níunda þúsund starfs- manna hjá ríki og sveitarfélögum sem vinna vaktavinnu og munu breyting- arnar taka gildi fyrir alla starfshópa 1. maí næstkomandi. Meginbreyting- in verður sú að með nýju skipu- lagi vinnutímans í vaktavinnu, sem nær til um 700 stofnana hjá hinu opinbera, styttist vinnuvika fólks í fullu starfi úr 40 í 36 virkar stundir og í sumum tilvik- um, t.d. í nætur- vinnu, getur hún farið niður í 32 stundir. Jafnframt mun launamyndun vaktavinnufólks taka mið af fleiri þáttum en áður. „Þetta er bara allt að ganga upp. Verkefnið hefst 1. maí,“ segir Bára Hildur Jóhannsdóttir, sem leiðir verkefnisstjórn sem hefur haft með höndum heildarskipulag og daglega umsýslu þessa verkefnis. Flókið verkefni Stytting vinnutíma dagvinnufólks hjá ríki og sveitarfélögum tók gildi um seinustu áramót en útfærsla á styttingu vinnutíma vaktavinnufólks er mun flóknara verkefni og hafa margir komið að undirbúningsvinn- unni á umliðnum mánuðum. Hafa t.a.m. verið haldnir um 400 manna fundir um hvert skref innleiðingar þessara breytinga á hverjum mið- vikudegi með stjórnendum hjá hinu opinbera og fundir með fulltrúum launafólks eru haldnir annan hvern föstudag. Bára segir að þótt breytingin taki gildi um næstu mánaðamót verði áfram unnið að ýmsum útfærslum og lagfæringum. „Það eru áskoranir hér og þar sem við erum að vinna með þessa dagana og það er ennþá verið að sníða af agnúa en verkefnið mun engu að síður fara af stað,“ segir hún. Sérstökum matshópi verður falið að fara mánaðarlega yfir lykilmæli- kvarða á framgang verkefnisins og fylgja því eftir. Stytting vinnutíma fólks í vakta- vinnu hefur verulegar breytingar í för með sér að sögn hennar. Vaktavinnu- fólk sem er í 100% starfi á að standa í stað í launum eða hækka en vinnutími þess mun styttast að lágmarki um 17,3 stundir að jafnaði í mánuði en starfsmönnum sem eru í hlutastarfi er gert kleift að hækka starfshlutfall sitt, a.m.k. um sem nemur styttingu vinnuvikunnar. Það á að hafa í för með sér að allir starfsmenn í hluta- starfi, sem hækka við sig starfshlut- fall og vinna sama vinnumagn og áð- ur, hækka í launum. Bára segir að ein af forsendum verkefnisins sé sú að starfsfólk í hlutastarfi eigi rétt á að auka við sig sem nemur styttingu vinnuvikunnar og af því leiðir að ef starfsmaður hef- ur t.d. verið í 80% starfi eigi hann rétt á að auka við sig sem nemur u.þ.b. tíu prósentum af starfshlutfalli sínu og þetta hafi starfsfólk þegið í meira en 95% tilvika. „Með þessu hjálpar það líka til við að fylla upp í mönnunargat- ið sem getur myndast á vinnustað,“ segir hún. Meta kostnað við breytinguna Aðspurð segir Bára að ekki sé orðið ljóst hver kostnaðaraukinn verði við styttingu vinnuviku vaktavinnufólks en unnið sé að mati á því hver áhrifin verða. Stytting vinnuskyldunnar í vakta- vinnu veldur því líka að mönnunargat myndast á stofnunum, einkum þar sem flest vaktavinnufólk er í fullu starfi en ekki er komið í ljós hvað þarf mörg stöðugildi til viðbótar vegna þess að sögn hennar. Þetta á einkum við í löggæslunni, fangelsum, toll- gæslu og víðar þar sem ráða þarf fleiri starfsmenn. Aftur á móti eru margir sem vinna vaktavinnu í hluta- starfi og þar sem flestir þeirra hafa áhuga á að auka starfshlutfall sitt sem nemur styttingu vinnuvikunnar, ætti það að fara langleiðina með að loka mönnunargatinu en það á einkum við á stofnunum innan heilbrigðis- og vel- ferðarþjónustunnar. omfr@mbl.is Vaktavinnan stytt á 700 vinnustöðum - Vinnuvika á níunda þúsund starfsmanna í vaktavinnu hjá hinu opinbera styttist frá og með 1. maí - 95% í hlutastarfi auka starfshlutfallið á móti styttingunni - Óvíst hvað mönnunargatið verður stórt Bára Hildur Jóhannsdóttir Morgunblaðið/Hari Lögregla Stytting vinnuviku vaktavinnufólks mun m.a. hafa umtalsverð áhrif meðal lögreglumanna. Unnið er að heildarmati sem gengur undir nafninu Gullinbrú á áhrifum breytinganna á mönnun í vaktavinnu og á kostnað. Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt til setu á ársfundinum. Vegna aðstæðna í samfélaginu gilda sóttvarnarreglur skv. reglugerð nr. 404/2021 með síðari breytingum. Verði breytingar á reglu- gerðinni með skerðingum á samkomuhaldi áður en að ársfundi kemur verða upplýsingar um breytt fyrirkomulag fundarins birtar á vefsíðu sjóðsins, islenskilif.is. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins: 1. Skýrsla stjórnar 2. Kynning á ársreikningi 3. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins 4. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun 5. Kosning í stjórn 6. Kosning endurskoðanda 7. Tillögur um breytingar á samþykktum 8. Laun stjórnarmanna 9. Önnur mál Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti tveimur vikum fyrir árs- fund. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti viku fyrir ársfund. Framboðum aðalmanna til stjórnar skal skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Að þessu sinni verður kosinn einn aðalmaður til þriggja ára. Tillögur og fram- boð skulu berast til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins, Austurstræti 11, 101 Reykjavík. Tillögur að breytingum á samþykktum og framboð til stjórnar verða birt á vef- svæði sjóðsins, islenskilif.is. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér á vef sjóðsins eða hjá Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans í síma 410 4040. Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 19. maí 2021 kl. 17.00 í útibúi Landsbankans Austurstræti 11. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hleðslustöðvar fyrir rafdrifna bíla eru nú komnar upp í Langadal og Húsadal í Þórsmörk, tvær á hvorum stað. Enn þá mun lítið vera um að stærri jeppar séu rafdrifnir, en Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, segir að von sé á öflugum rafmagnsjeppum á mark- að í haust eða á næsta ári og geti þeir þá fengið hleðslu hjá FÍ í Þórs- mörk. Hann segir að á góðum degi þegar lítið sé í ánum myndu reyndir menn á stærri rafdrifnum jepp- lingum treysta sér til að aka yfir árnar á leiðinni í Langadal. Páll rifjar upp að fyrir um áratug keypti Ferðafélagið aðstöðu Kynnis- ferða og Austurferða í Húsadal og árið 2013 lét félagið leggja rafmagn frá Þórólfsfelli í Fljótshlíð undir Markarfljót og í Húsadal. Umhverfisvænt og öruggt Í fyrra var rafmagn síðan lagt áfram í Langadal og er nú komið í Skagfjörðsskála og í skálavarðar- hús. Um þessar mundir er verið að leggja rafmagn í hús í Skáldagili, en þar er aðstaða fyrir sjálfboðaliða víðs vegar að, sem vinna sumarlangt í Þórsmörk. „Þetta gerbreytir öllum rekstri fyrir okkur og gerir hann um- hverfisvænni og öruggari,“ segir Páll. „Flutningar á olíu á þungum bílum yfir árnar á leið í Langadal heyra nú sögunni til. Nú getum við kynt skálana að vetrarlagi með raf- magni, sem auðveldar heils árs opn- un. Við horfum til þess að endurnýja eða byggja nýjan Skagfjörðsskála og þá nýtist rafmagnið ekki aðeins til lýsingar og upphitunar í meg- inrými heldur einnig í eldhúsi og öll- um vistarverum.“ Ljósmynd/Stefán Jökull. Breyting Magnús Jaró, rafvirkjameistari og samstarfsmaður Ferðafélagsins, við hleðslustaurinn í Langadal. Hleðslustöðvar tilbúnar en beðið eftir jeppunum - Rafmagnið breytir miklu um rekstur FÍ í Langadal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.